Morgunblaðið - 31.03.1988, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
13
Laufey Kristjánsdóttir
Kristín Sienirðardóttir
Stjórn Pólýfónkórsins f.v.: Kristján Már Sigurjónsson formaður, Margrét Brynjólfsdóttir, Auður Haf-
steinsdóttir og Ólöf Magnúsdóttir varaformaður og stjórnandi kórsins Ingólfur Guðbrandsson.
ir tónlistarmenn, aðrir eru með
nokkra söngmenntun að baki, enn
aðrir með'ágætar náttúruraddir, en
enga kunnáttu. Það er vandasamt
að taka á þessum ólíku vandamál-
um, þegar á að búa til samhljóma
hljóðfæri, þar sem sönggæðin eru
sett á oddinn.
I formála að frægri söngæfinga-
bók eftir ítalskan kennara segist
hann oft hafa undrast hve fólk sem
stundar söng, ekki aðeins í kórum,
heldur jafnvel sem einsöngvarar,
virðist oft gera sér litla grein fyrir
í hveiju raddgæðin séu fólgin og
hvað þurfi til að ná áhrifamikilli
söngtjáningu. Þetta er nákvæmlega
mín reynsla eftir þijátíu ára kór-
stjórn og viðleitni mín felst í að
koma kórfélögunum í skilning um
þetta.
Fólk vill gjaman syngja, en fínnst
litlu máli skipta hvernig er sungið.
Við skólun breytist þetta viðhorf
þó. Það er farið að hlusta betur.
Með því að láta raddimar syngja
til skiptis, fæst ákveðinn saman-
burður. Fólk fer að gera meiri kröf-
ur til sjálfs sín um rétta raddbeit-
ingu og fegurð tónsins.
Þegar þetta tekst, verður það oft
hvati til frekara náms eins og hefur
oft átt sér stað með marga kórfé-
laga hér. Sumir segja að margir
áræði ekki að leita inngöngu í kór-
inn, vegna þess að það séu gerðar
of miklar kröfur og um þetta kunna
að vera dæmi. En hitt hygg ég að
sé þó algengara að fólk leiti einmitt
í kórinn vegna þess hve kröfurnar
em strangar."
Þannig að fólk hræðist ekki mikl-
ar kröfur, heldur þvert á móti sæk-
ist eftir að fá að spreyta sig?
„Eina forsendan fyrir að leggja
á sig svo mikla vinnu er sú að list-
rænn árangur fullnægi þörf hjá
flytjendum. Mér finnst stórkostlegt
að í hringiðu nútímans þar sem
mötun er svo áberandi og því hald-
ið fram að flestir vilji ekkert á sig
leggja til að fegra lífið og skemmta
sér sjálfir, þá skuli hægt að halda
saman jafnstómm og hæfileikarík-
um hópi og nú er samankominn í
Pólýfónkórnum.
Innan hans er fólk i ábyrgðar-
stöðum með ótal skyldur, skólafólk
í krefjandi námi, útivinnandi hús-
mæður, svo eitthvað sé nefnt.. .
og getur þó bætt á sig svo tíma-
freku tómstundastarfi. Það segir
sig sjálft að kórfélagar hljóta að
fínna hugsvölun, gleði og fullnæg-
ingu í tónlistinni. Annars legði það
þessa vinnu ekki á sig. Kórinn hef-
ur oft verið skipaður góðum söng-
röddum og vel menntuðu fólki, en
kannski aldrei jafnvel og núna.
Söngféfagar em flestir á besta
aldri, hafa náð meiri þroska með
ámnum, bæði raddlega og andlega,
og þetta hjálpar til að skila áhrifa-
mikilli tjáningu.
Og um þetta allt geta tónlistar-
unnendur sannfærst á Sönglista-
hátíð Pólýfónkórsins 9. og 10. apríl
næstkomandi eftir gleðilega
páska...
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
Myndir: Sverrir Vilhelmsson
Halldór Hauksson
hríð, en var með fyrir rúmlega tíu
ámm. Átti sannarlega erindi í hann
þá, því þar kynntist hann konunni
sinni. Magnús er læknir, en segist
ekki geta verið án þess að hafa
eitthvað af tónlist að segja. „Þessi
ástundun gefur eitthvað, sem er
hollt fyrir líkama og sál, án þess
að ég geti skýrt það læknisfræði-
lega. Þó maður hafi engan tíma,
er bara reynt að vera þá duglegri
önnur kvöld. Það nægir mér ekki
að hlusta aðeins á tónlist, ég verð
að taka þátt í henni líka.“ Magnús
spilar á blokkflautu, hefur einkum
lagt sig eftir tónlist endurreisnart-
ímans, og öll fjölskyldan mætist í
tónlistinni. En þessar vikurnar er
það sumsé kórsöngurinn ...
Halldór Hauksaon kemur úr tón-
list í sönginn, er í píanónámi auk
þess að syngja í kórnum. Segir að
það hafi lengi blundað í sér að
syngja og ákvað svo að prófa i
haust, dreif sig í kórinn og sér ekki
eftir því. „Það em svo fá tækifæri
til að spila með öðmm þegar maður
leikur á píanó, svo i kórsöngnum
er tækifæri til að vinna í tónlist
með öðmm. Ég hef líka sérstaka
ánægju af barokktónlist og hér er
gott tækifæri til að fá að hrærast
í henni. Við píanóið þarf lítið að
huga að tónheym og slíku, svo það
er kjörið tækifæri til að þjálfa þau
atriði hér í kórnum. Og þó kórinn
þurfi mikinn tíma, þá lít ég ekki
svo á að ég steli honum frá píanó-
náminu, heldur finnst mér kórsöng-
urinn vera mikilvægt innlegg í tón-
listamámið." Halldór fór á nám-
Magnús Jóhannsson
skeið í haust hjá ítölskum kennara
á vegum kórsins, svo í kórskólann
hjá Ingólfí og ekki síst lærist mikið
á æfingum.
Magnús Magnússon tekur mjög
undir þetta með lærdóminn. Hann
hefur verið í söngnámi á Ítalíu,
stundað þar nám hjá mjög góðum
og þekktum kennurum, en finnst
Ingólfur bera af. „Æfingarnar í
kórnum eru ekki aðeins venjulegar
kóræfingar, heldur eins og kennslu-
stund. Verkin sem við flytjum núna
spanna langt tímabil, ólíkar tegund-
ir tónlistar, svo það þarf sannarlega
góða krafta til að ráðast í þennan
flutning."
Strangar kröfur fæla ekki
frá, heldur laða að gott fólk
Orð Magnúsar leiða hugann að
því að það að flytja svona tónlist
er ekki aðeins spurning um að
syngja verkin vel, heldur þarf að
ná ákveðnum stíl. Kórinn hefur ein-
mitt lagt sig eftir að syngja tónlist
sextándu og sautjándu aldar með
þeim stílbrögðum, sem tíðkast á
meginlandi Evrópu og á Bretlandi.
Þéssi sönghefð á sér enga stoð í
innlendri sönghefð, svo vandinn er
ærinn. Söngstíll, auk raddgæða, er
stjómandanum einmitt ofárlega í
huga þegar hann setur efnisskrána
saman. En hvað segir Ingólfur um
viðfangsefni stjórnandans, að fella
margar raddir í eina, að búa til eitt
hljóðfæri úr mörgum?
„Eins og gefur að skilja kemur
fólk mismunandi undirbúið til þátt-
töku í svona starfi. Sumir eru ágæt-
<&-
Til sölu er í áhaldahúsi Mos-
fellsbæjar, vélgrafa, Schaeff
SKB-800A, árgerð 1981.
Tækið er í góðu ástandi.
Nánarí upplýsingar veittar í
áhaldahúsi bæjaríns og í
síma 91-666273.
Yfirverkstjóri.
MOSFELLSBÆR
VÉLGRAFA
P. M. T.
Ráðgjöf
hreinsun
viðgerö.
Ný komin sending af ódýrum
mottum frá austurlöndum.
Verð frá............... kr. 1.575,-
Opið alla virka daga frá kl. 13.00-18.00.
Verslunin Persneskar
motturogteppi,
Hrísateigi 47, sími 680433.
Opið laugardaginn 2. apríl frá kl. 10.00-16.00.
Króm og g!er
Nýkomið úrval af léttum og þægilegum borð-
stofuhúsgögnum. Beyki- og leðurstólar.
Sjónvarps- og tækjaborð. Sófa- og hornborð.
Fatahengi og spegilflísar.