Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
Viirusfélagumir Johan Storgárd og Mats Lángbacka í hlutverkum
sínum
sé áhugaleysi á báða bóga, og er
það slæmt ef ungir rithöfundar
telja sig ekki hafa neinn ávinning
af því að skrifa fyrir leikhús. Því
ekki vantar rithöfundana, það
vantár aðeins leikritin. Og láti þau
á sér kræla verða leikhúsin að vera
tilbúin til að taka áhættu við flutn-
ing þeirra.
Skárbránnaren er forvitnilegt
verk og ágætlega skrifað. Tveir
logsuðumenn hittast í búnings-
herbergi verksmiðjunnar að lokn-
um vinnudegi og taka tal saman.
Annar telur hinn hafa gleymt að
skrúfa fyrir gasleiðsluna, sá neitar
og þannig spinnast orðræður og
undirtónninn er vangaveltur um
valdið og ábyrgðina. Vissulega má
lesa úr þessu verki táknræna sam-
svörun við stærstu vandamál
heimsbyggðarinnar, en mikilvæg-
ara er þó að þessar tvær leikpersón-
ur eru heilar og trúverðugar í því
samhengi og umhverfí sem þær eru
Góðir gestir frá Finnlandi
Leiklist
Hávar Sigurjónsson
Finnski leikhópurinn Viims sýn-
ir:
Skarbránnaren (Logskurðartæk-
ið)
Höfundur:Magnus Dahlström
Leikstjóri: Arn-Henrik Blom-
quist
Leikendur: Johan Storgárd og
Mats Lángbacka
Finnski leikhópurinn Viirus sem
sýnir þessa viku í Norræna húsinu
er um margt spennandi fyrir
íslenskt leikhúsáhugafólk. Viirus
er leikhópur Qögurra ungra sæn-
skumælandi Finna sem útskrifuð-
ust frá leiklistarskólanum í Hels-
inki sl. vor. Hingað eru þeir komn-
ir með leikritið Skárbránnaren eftir
tuttugu og flögurra ára gamlan
Svía, Magnus Dahlström. Það er
fróðlegt að bera þennan leikhóp
saman við hliðstæða hópa sem sko-
tið hafa upp kollinum hér heima í
vetur og reyndar er nærtækastur
samanburður við Eih leikhúsið, þar
sem samsetning þessarra tveggja
hópa er mjög svipuð; þrír til fjórir
ungir leikarar sem skipta með sér
verkum við uppfærslu. Þessi sam-
anburður verður hagstæður Finn-
unum og að minni hyggju er ástæð-
una fyrst og fremst að fínna í verk-
efnavalinu sem er Finnunum mjög
í vil. Það hlýtur að teljast djarfara
og meira spennandi að frumflytja
verk eftir ungan höfund (sem
reyndar eru næsta fáir hérlendis
núna) sem á brýnt erindi við áhorf-
endur, en að velja sér til flutnings
gamla einþáttunga, sígilda að vísu,
með misjöfnum árangri. Sú við-
leitni skyldi þó síst vanmetin í
sjálfu sér, allt slíkt starf er af hinu
góða, en koma þessara ungu Finna
með þetta unga leikrit, er kærkom-
ið tækifæri til að tæpa á þeirri
lægð sem íslensk leikritun er í nú
um stundir. Það er örugglega langt
síðan íslenskur leikhópur hefur
flutt leikrit eftir jafnungan íslensk-
an höfund. Mig grunar að ástæðan
settar fram í. Þetta fannst mér
sterkasti þáttur verksins; góð per-
sónusköpun, bæði af hálfii höfund-
ar og þá ekki síður leikenda og
heillandi hversu vel þeim tókst að
draga upp bakgrunn beggja mann-
anna utan sjálfs sviðsins. Með
þessu móti tekst höfundi að skapa
verkinu ákveðna dýpt sem skilur á
milli feigs og ófeigs við smíði leik-
rita.
Leikamir Johan Storgárd og
Mats Lángbacka fara ágætlega
með þetta leikrit. Það má glöggt
sjá að þeir eru ungir og ekki þaul-
vanir en leikritið hentar þeim ein-
mitt svo ágætlega vegna þessa.
Þeir hafa báðir sterka tilfínningu
fyrir persónum sínum og þar sem
tækninni er ábótavant kemur til-
fínningin til hjálpar. Ifyrir vikið
verður leikur þeirra beggja afskap-
lega trúverðugur og flutningur
verksins sterkur, þrátt fyrir nokkra
minniháttar galla. Viirushóþurinn
sýnir í Norræna húsinu á Skírdag
og laugardag fyrir páska áður en
þeir halda utan aftur.
„Svo kvað Tómas“
Bókmenntir
Tómas Guðmundsson
und samtíðar og til framtíðar stolt
og ást á borginni okkar, Reykjavík,
eru ljóð hans annað og meira. Þau
eru einnig djúpviturt ákall til okkar
allra sem gistum þetta hótel, jörð-
ina. Þau beina augum okkar að feg-
urð náttúrunnar og alls þess er í
henni býr.
Æska, gleði, hverfulleiki, mann-
legur breyskleiki og jafnvel dauði
eru oftast í nálægð í ljóðum hans.
Fegurðin og góðvildin, sem Snorri
Hjartar segir umkomulausust í heimi
en þó mest af öllu og muni lifa allt,
lýsa af hveiju ljóði Tómasar og birt-
ast jafnan í umburðarlyndi og næm-
um skilningi á lífinu þegar raunsæið
ber ljóðið uppi. Um listrænt gildi
ljóðanna og vald Tómasar á tung-
unni þarf ekki að fjölyrða. Ljóðin
eiga erindi við okkur öll, ekki síst
böm og unglinga og þau munu allt-
af eiga það meðan við unnum há-
leitri menningu og því besta sem í
henni býr.
Fyrir nokkrum árum vár svokallað
„Tómasarkvöld" í Þjóðleikhúsinu.
Þar var flutt dagskrá um skáldið
Tómas Guðmundsson og verk hans,
í tali, tónum og leik. Herdís Þor-
valdsdóttir leikari tók dagskrána
saman og hafði ásamt öðrum leikur-
um allan veg og vanda af flutningi
hennar. Dagskráin var mjög vönduð
og vakti hrifningu þeirra er kynnt-
ust henni.
Hér var sérstakt tækifæri fyrir
nemendur gmnnskóla til að kynnast
Reykjavíkurskáldinu Tómasi og ljóð-
um hans frá mörgum listrænum hlið-
um. En því miður — einhvem veginn
fór þessi dagskrá fram hjá grunn-
skólunum,.má vera að þar hafi miklu
ráðið hve stutt hún stóð yfir vegna
annarra aðkallandi verkefna hjá
Þjóðleikhúsinu. Nú hefur Herdís tek-
ið upp þráðinn á ný og samið dag-
skrá um skáldið. Hér er miðað við
flutning úti í skólunum og markast
efnið af því. Herdís hefur fengið
Amar Jónsson leikara í lið með sér.
Nýlega hlýddi ég á þau í Hvassa-
leitisskóla, þar sem 8. og 9. bekkjar-
nemendur skólans, ásamt nokkrum
kennurum sínum voru samankomnir.
Þau Herdís og Amar sögðu frá Tóm-
asi allt frá bemsku hans er hann
orti sitt fyrsta ljóð. Síðan lásu þau
ljóð hans og höfðu aðfaraorð fyrir
hveiju ljóði, sem leiddu til betri skiln-
ings hjá nemendum. Sum ljóðanna
rauluðu þau og juku þannig á þá
margbreytni er möguleg var við
þröngar aðstæður. -
Hér eru á ferðinni tveir af mikil-
hæfustu og vinsælustu leikurum
okkar svo það er í raun engin furða
þótt ljóð Tómasar birtust okkur í
þeim töframætti er í þeim felst.
Aðfaraorðin voru af sama toga
spunnin. í byijun — og að lokum
vom flutt af snældu ljóð eftir Tómas
við lög eftir Sigfús Halldórsson.
Eg er ekki í nokkmm vafa um
að kynning sem þessi á dijúgan þátt
í að gera augu nemenda skyggn á
menningarverðmæti þau sem stuðla
að andlegum þroska sem getur
reynst sterkt afl í samfélagi okkar.
Fræðslustjórinn í Reykjavík hefur
þegar vakið athygli gmnnskólanna
á kynningu þessari.
Eg veit að Hvassaleitisskóli hlúir
vel að andlegum verðmætum og
vona að aðrir gmnnskólar geri það
einnig.
Þetta er listviðburður sem nem-
endur ættu að njóta.
Hallgrímskirkja;
Mótettukórinn frumflytur páska-
óratoríu eftir Þorkel Sigurbj ömsson
Mótettukór Hallgrímskirkju
frumflytur Upprisuna, páskaórat-
oríu eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
í Hallgrímskirkju laugardaginn
2. apríl klukkan 21. Stjórnandi
er Hörður Áskelsson og flytjend-
ur eru 50 manna blandaður kór
og 16 manna hljómsveit. Ein-
söngvari er Rósa Kristin Baldurs-
dóttir sópran.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Þorkell Sigurbjömsson tónskáld að
efnislega fjallaði verkið um upprisu-
söguna samkvæmt öllum fjórum
guðspjöllunum. „Þetta líta út fyrir
að vera margar sögur en em í aðalat-
riðum sama sagan. Áherslumar em
aðeins mismunandi. Upphaf og end-
ir verksins byggist á gömlum lat-
neskum sálmi, inngöngusálmi og.
útgöngusálmi, sem fluttur er í gam-
alli þýðingu úr Grallaranum", sagði
Þorkell. „Þá er einnig sunginn annar
þekktur lúterskur sálmur, í dauðans
böndum drottinn lá, en upprisusagan
sjálf er sögð með kór og einsöngs-
röddum. Upprisusagan er sögð ná-
kvæmlega með órðum guðspjalla-
mannanna; það er ekki um neina
útleggingu eða hugleiðingu að ræða
af minni hálfu. Verkið er óratoría
því hér er sögð ákveðin saga, en þó
er sá munurinn að óratoríur flytja
oftast fmmsaminn texta en hér er
ekki um það að ræða“.
Hörður Áskelsson söngstjóri sagði
hér vera afskaplega skemmtilegt og
spennandi verk á ferðinni. „Það em
miklar og spennandi andstæður í
verkinu þar sem hlutar kórsins
syngjast á og flytja mismunandi
raddir. Það má til dæmis nefna sérs-
taklega fallegan kafla þar sem María
Magdalena kemur að gröfinni og
syngur á móti karlaröddum kórsins,
sem flytja rödd Krists. Verkið ein-
kennist af spenningi og lýsir þessari
ákveðnu upplausn sem á sér ætíð
stað meðal fólks þegar mikil saga
fer af stað“, sagði Hörður.
„Aðdragandinn að flutningi þessa
verks nær aftur til þess er Listvina-
félag Hallgrímskirkju fór þess á leit
við nokkur tónskáld að þau skrifuðu
verk í tilefni vígslu Hallgrímskirkju.
Hugmyndin var sú að tengja verkin
efnislega hátíðum kirkjuársins, jól-
um og páskum fyrst og fremst, og
afraksturinn varð m.a. Hallgrímsp-
assía Atla Heimis Sveinssonar sem
fmmflutt var hér á Föstudaginn
langa í fyrra. Páskaóratoría Þorkels
beið því flutnings þar til á þessum
páskum þar sem efni hennar bauð
ekki upp á flutning á öðmm
árstírna", sagði Hörður Áskelsson
söngstjóri.
Fmmflutningur Páskaóratoríu
Þorkels Sigurbjömssonar verður
sem áður sagði í Hallgrímskirkju á
laugardagskvöldið klukkan 21. Að-
gangur er ókeypis og allir velkomnir.
Jenna Jensdóttir
Kynning á Tómasi Guðmundssyni
og skáldskap hans.
Samsetning: Herdís Þorvalds-
dóttir, leikari.
Flytjendur: Herdís Þorvaldsdóttir
og Árnar Jónsson, leikarar.
Sú þróun hefur orðið æ ríkari í
efnishyggju- og tækniveröld að
gmnnskólar okkar hverfa stöðugt
meira á vald vithyggju og véltækni.
Hinn skapandi máttur er felst í fög-
mm listum og lifandi skáldskap hef-
ur lagst í dróma og um leið tapast
það innsæi er skilar eðlilegum, sam-
ræmdum þroska bama.
Skólabömum er því engin andleg
næring hoilari en góðar listir og
bókmenntir, sem geyma í sér sígild
lífssannindi reynslunnar og mátt
tungunnar frá liðinni tíð og í
samtíma. Sú næring ræktar hugar-
þel bamanna og þeim lærist að orð
em máttug.-Þau búa að baki hvers
kyns listar. Þau gleðja og göfga —
þau særa og skera. Þau veita innsýn
í heim fegurðar og góðvildar — heim
afskræmingar og vítis á jörðu.
Það er því mikilvægust mannrækt
að opna augu og hugi barna sem
fyrst fyrir því að þau verða að velja
sér vegi.
Orð em vopn hugans og leiða til
athafna á þann hátt að þau geijast
í vitundinni og fínna sér farveg.
Okkur íslendingum, sem notum
orð ein vopna, er öðmm fremur
nauðsynlegt að ígmnda tunguna og
mátt hennar. Við, sem hikum ekki
við að veita holundarsár með orðum
í mannlegum samskiptum og gefum
æskunni okkar það í veganesti að
hafa gaman af og gerast þar öðmm
fremri' ef svo ber undir. ÍÞað er því
meira en gleðiefni þegar sérstaklega
fer fram í skólunum kynning á því
besta sem við eigum í bókmenntum
okkar og listum.
Nú hefur skólunum boðist ein slík
kynning. Það er dagskrá um skáldið
Tómas Guðmundsson og flutningur
á ljóðum hans.
Þótt Tómas hafi fyrstur vakið vit-
Morgunblaðið/Bjarni
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld.
Mótettukór Hallgrímskirkju við æfingu á Páskaóratoríu Þorkels Sigurbjömssonar.
Morgunblaðið/Þorkell