Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 15
88ei SHAM .18 HUPAaUTMMIH .aiaAJaVÍUOHQM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
M
15
Feneyjabiennalinn
• •
Gunnar Orn
fulltrúi
Islands
STNINGARNEFND fyrir
íslenska myndlist hefur sam-
þykkt að Gunnar Örn myndlistar-
maður verði fulltrúi Islands á
Feneyjarbiennalnum sumarið
1988. Gunnar Örn mun sýna um
15 olíumálverk og 3 höggmyndir.
Feneyjarbiennalinn, sem er ein
stærsta myndlistarsýning í heimin-
um, hefst 26. júní og stendur fram
til 25. september. Sýningamefnd
fyrir íslenska myndlist erlendis
skipa: Gunnar B. Kvaran, listfræð-
ingur, Bera Nordal, listfræðingur
og Ragna Róbertsdóttir, myndlist-
arkona.
Stjarnan
útvarpar
hátíðarmessu
STJARNAN mun útvarpa beint
hátiðarmessu frá hinni nývígðu
Fella- og Hólakirkju klukkan 8
á páskadagsmorgun. Prestur
er sr. Hreinn Hjartarson.
Stjarnan hefur ekki áður út-
varpað guðsþjónustu.
Þá verður á annan páskadag
kl. 16 útvarpað tónleikum danska
háðfuglsins Eddie Skollers sem
fram fóru í Gamla bíói í þessari
viku.
Teknir á
bannsvæði
Landhelgisgæslan stóð tvo
báta frá Vestmannaeyjum að
veiðum á bannsvæði þar sem raf-
strengurinn milli lands og Eyja
liggur á þriðjudagskvöldið. Rétt-
að var í málinu í Vestmannaeyj-
um í gær.
Bátamir sem teknir vom em
loðnubáturinn Gígja VE 340 og
netabáturinn Gæfa VE 11. Bannað
er að veiða á svæðinu vegna þess
að hætta er talin á að veiðarfæri
slíti sæstrenginn.
Skiptimark-
aður fyrir
safnara
FÉLAG frímerkjasafnara í sam-
vinnu við Félag myntsafnara og
nokkra áhugamenn um póst-
kortasöfnun hafa ákveðið að
endurtaka sameiginlegan skipti-
markað laugardaginn 2. april nk.
Skiptimarkaðurinn verður hald-
inn í húsnæði Landssambands
íslenskra frímerkjasafnara í Síðu-
múla 17 frá kl. 13 til 17.
Leiðrétting
VILLUR slæddust inn í frétt
Morgunblaðsins um Opna Aust-
urlandsmótið í skák, sem fram
fer 5.-15. júní á Egilsstöðum.
Bæði heiti þess og tímasetning
voru þar rangar og er beðist
velvirðingar á því um leið og
þetta er leiðrétt.
ÞAÐ STANSA
FLESTIR 1
ALLTÁ FULLUHJÁ OKKUR - Æ
VETUR SEM SUMAR