Morgunblaðið - 31.03.1988, Síða 17
8861 SÍIAM .18 flUOAŒJTMMrí .(JIQAJaMUOílOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
ai
“17
Er ekki kominn iírni til að
Markmið okkar hjá HEILSUGARÐINUM er að bæta heilsu og auka vellíðan. Þess vegna
höfum við reynt að búa Heilsugarðinn búnaði og tækjum, er við teljum þau bestu, sem völ
er á, og fengið til liðs við okkur vel menntað starfsfólk. Við teljum, að með þessum hætti
getum við best tryggt góðan árangur, þægilegt andrúmsloft og öryggi.
NÝTT - NÝTT
Sumaráætlun HEILSUGARÐSINS
Laugardaginn 16. apríl hefst nýsumaráætlun
þar sem lögð verður áhersla á alhliða þjálfun
fyrir almenning. Af því tilefni verða læknarn-
ir Jóhann Heiðar Jóhannsson og Grímur
Sæmundsen í HEILSUGARÐINUM þann dag
til ráðgjafar ásamt Jóni Gísfasyni næringar-
fræðingi. Skoðun, fitumæling og næringarr-
áðgjöf. Hægt er að velja um mismunandi
hlaupaleiðir eða þjálfa þolið á okkar frábæru
tölvustýrðu þrekhjólum eða róðrarvél. Eftir
þolæfingar verður farið í styrktarþjálfun í hin-
um heimsþekktu NautHus tækjum undir
stjórn sjúkraþjálfara eða íþróttakennara.
Jn ' -
Skráiðykkur sem fyrst isima 656970 - 7!.
ÞAÐ EROKKAR AÐ HJÁLPA
YKKUR AÐ BÆTA HEILSUNA.
IVauti/us þjálfunartækin hafa sannað ágæti
sitt um heim allan og nú á íslandi. Tækin
eru sérlega vel hönnuð. Allirfinna þyngdir
við sitt hæfi. Tækin eru stillt sérstaklega fyr-
ir hvern mann þannig að fólk fái sem mest
út úr æfingunum. Ekki er ætlast til að gerð-
ar séu nema 8-1 2 endurtekningar í hverju
tæki sem tryggir skjóta árangur og minnkar
hættu á þjálfunarleiða. Fólk verður greinilega
vart árangurs eftir 5-6 fyrstu skiptin. Við
bjóðum byrjendum upp á frían kynningatíma.
Við bjóðum einnig kvenna- og karlatíma í
leikfimi, sem henta flestum allan daginn.
Leikfimisalur okkar er bjartur með sérhönn-
uðu gólfi sem hefur mikla mýkt.
Barnaherbergi með gæslu á ákveðnum
tímum.
Um páskana varður opiA sem hér segir:
Á skírdag, laugardag, og 2.1 pískum frá
kl. 10-18. Lokað föstudaginn langa og
páskadag.
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, sími 656970-71
Auk framangreindra atriða viljum við benda
á að í björtum baðklefum eru nuddpottar af
bestu gerð, kraftmiklar sturtur, gufuböð, góð
loftræsting, stórir speglar og allt samkvæmt
ströngustu kröfum um hreinlæti. Þá eru Ijós
fyrir karla og konur, nuddari að ógleymdum
björtum salatbar með fögru útsýni.
„y
HeilbrigÖ sál i hraustum líkama.
VeriÖ ávallt velkomin.
Gleðilega páska!