Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 39

Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988 w89 Utlendingur í Disneylandi Breski leikarinn Daniel Day- Lewis er nú í hverri myndinni á fætur annarri. Hann var óborgan- legur í bæði Herbergi með útsýni og Fallega þvottahúsið mitt í svo ólíkum hlutverkum að það var er- fitt að þekkja hann fyrir sama mann. Nýlega var frumsýnd Óbærilegur léttleiki tilverunnar með honum í hlutverki Tómasar og núna síðast „Stars and Bars", gamanmynd um íðilbreskan list- munasala sem fer í ferðalag til hinna villtu og trylltu Bandaríkja. Leikstjóri myndarinnar er Pat O’Connor („Cal”) en handritið ger- ir William Boyd eftir sinni eigin skáldsögu. Lewis leikur Henderson og fyrir honum eru Bandaríkin eitt stórt Disneyland. Um miðbik myndar- innar kemur hann t.d. inná margra hæða hótel/skemmtigarð í Atlanta sem nú eru mjög í tísku vestra og afgreiðslumaðurinn í móttökunni segir: „Fylgdu stígnum í gegnum blómagarðinn og taktu svo útsýn- islyftuna uppá 35. hæð. Enn eitt Daniel Day-Lewis f „Stars and Bars.“ æfintýri Hendersons í sínum full- komnu, klæðskerasaumuðu jakka- fötum er byrjaö. Hann kemst í gegnum frumskóg geröan af manna höndum þartil hann kemur að bryggju. Brosandi umsjónar- maður tekur á móti honum, bendir á árabát og segir honum að róa yfir á lyftubakkann. Alltaf til í allt hann Henderson en róöurinn gengur ekki nógu vel, bæði er umferðin mikil og skjalataskan vill flækjast fyrir. Um síöir strandar báturinn og Henderson stígur í vatnið og veður það sem eftir er að lyftunni. , Annars er „Stars and Bars“ um lífsreynslu (og frelsun) Hender- sons Dores þegar hann er sendur langt inní Suðurríkin að reyna að kaupa löngu glatað Renoir-málverk frá sérvitringnum Loomis. Gage (Harry Dean Stanton). Myndin er enn eitt afbrigðið af sögunni um hinn veluppalda Evrópumann sem ferðast um í landinu sem fann upp hinn ægivinsæla en falska töfram- ann Oz. Flestir sem Henderson hittir eru svo sérkennilegir að þeir gætu vel búið á fjarlægum plánet- um. „Stars and Bars" staðfestir einnig, segir The New York Times að Daniel Day-Lewis er á góðri leið með að verða leikari sem allt getur gert. Tveir bræður Tólf sekúndur skiptu öllu í lífi tvíburanna Dominicks (Tom Hulce) og Eugene (Ray Liotta). Andlegt atgervi þeirra er mjög ólíkt. Gino er Ijóniðinn læknanemi en það er Nicky sem borgar menntun hans og er hreykinn af. Ferill Nicky er ekki jafnmerkilegur þar sem hann vinnur kátur og glaður í öskunni. Eftir slys sem átti sér stað þegar tvíburarnir voru ungir hefur Nicky andlegan þroska barns. „Dominick og Eugene” er nýj- asta mynd leikstjórans Roberts M. Youngs og honum þykir hafa tekist vel upp að fjalla um við- kvæmt efni væmnislaust. Leikar- arnir Tom Hulce og Ray Liotta (lék brjálaðan erkióvin Jeffs Daniels í „Something Wild") þykja standa sig með afbrigöum vel í hlutverkum bræðranna. Gino er tilbúinn að fórna öllu fyrir velferð hins van- þroska bróður síns en það reynist oft erfitt að gæta hans. Myndin er um það þegar bræðr- unum, sem orðnir eru 26 ára, verð- ur það Ijóst að þeir verða að vera óháðari hvor öðrum í framtíðinni. Handritið er eftir Alvin Sargent og Corey Blechman eftir sögu Danny Porfirio en Jamie Lee Curt- is fer með lítið aukahlutverk sem vinkona Ginos og væntanlegur meðlimur fjölskyldunnar. Hulce í Dominick og Eugene. \ geysivinsæli með Ijúffenga lambalærinu Við bjóðum nú aftur íslenska lamba- lærið sem við matreiðum á okkar sér- stæða hátt og svo sannarlega sló í gegn á sínum tíma. Auk þess minnum við á tugi úrvals rétta á hinum girnilega matseðli okkar. Veitingasalir okkar verða opnir sem hér segir: í dag, skírdag Föstudagurinn langi, lokað. Laugardagur Páskadagur Annarípáskum BORÐAPANTANIR í SÍMA 25700. Viö óskum ykkur öllum gleÖilegra páska.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.