Morgunblaðið - 31.03.1988, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
----:--------1------------------------
Minning:
Sigurður G. Ólafsson
„Kallið er komið
komin er nú stundin.
Vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri trega tárin stríð."
(Höf. V. Briem)
Siggi var fæddur í Hlíðarhúsum
á Akranesi og jarðsunginn frá
Akraneskirkju þann 26. mars 1988.
Hann var sonur Halldóru Sigurdórs-
dóttur og Olafs Oddssonar frá Arn-
arstað. Lengst af bjó Siggi í
Grindavík ásamt eftirlifandi eigin-
konu sinni, Margréti Engilberts-
dóttur, og byggðu þau sér heimili
á Hvassahrauni 2 þar í bæ. Þau
hjónin eignuðust fjögur börn. Elst
er Rut og býr hún í Dalbæ, Hruna-
mannahreppi, gift Magnúsi Páli
Brynjólfssyni, bónda, og eiga þau
þijú böm. Næstur kemur Engil-
bert, kvæntur Maríu Birgisdóttur
Olsen. Þau eiga tvær dætur og búa
þau í Grindavík. Næstyngstur er
Orn og er unnusta hans Svanhvít
Másdóttir og búa þau í Grindavík.
Yngst er Gígja en hún er enn í föð-
urhúsum, en starfar í Reykjavík.
Til Sigga og Grétu var ævinlega
gaman að koma enda var Siggi
hrókur alls fagnaðar og miðpunktur
fjölskyldna okkar. Hann hafði sér-
lega mikinn áhuga á ættfræði og
vann hann ásamt öðmm ættingjum
að útgáfu bókar um Hallbjarnar-
ætt, sem kom út í maí 1987.
- Félagsmálamaður var Siggi af
lífi og sál enda var hann vinmargur
og var knattspyma honum einkum
hugleikin. Var hann mikil driffyöður
í knattspyrnudeild Ungmennafé-
lags Grindavíkur og átti stóran
þátt í uppbyggingu deildarinnar.
Ekki má gleyma uppáhalds knatt-
spymuliði hans, en það var Skaga-
mannaliðið og lét hann sig helst
aldrei vanta á knattspyrnuleiki
þess.
Frændrækinn var Siggi í meira
lagi og traustur mjög og voru vinir
hans á öllum aldri. Systkinum
sínum og systkinabömum var hann
góður bróðir og frændi og studdi
þau í blíðu og stríðu.
Ferðamaður var Siggi ágætur og
fór hann margar ferðir utanlands
og innan en þó held ég að honum
hafi þótt skemmtilegast að koma
til Svíþjóðar enda talaði hann
sænsku eins og innfæddur og átti
þar ágæta vini. Sú sem þetta ritar
naut þeirrar ánægju að ferðast með
þeim hjónum Sigga og Grétu sum-
arið 1976 og sú ferð mun vart líða
úr minni, en í þeirri ferð komu í
ljós miklir skipulagshæfileikar
bróður míns og nutu aðrir ferðafé-
lagar okkar þess í ríkum mæli.
Gréta mín, þér og bömunum,
tengdabömum, bamabörnum og
móður þinni sendum við dýpstu
samúðarkveðjur og biðjum algóðan
Guð að styrkja ykkur og styðja.
Fyrir mína hönd og systkina
minna,
Gugga.
„Böm og frændur falla
fram í þakkargjörð,
fyrir ástúð alla,
árin þín á jörð.
Fyrir andans auðinn,
arf, sem vísar leið.
Þegar dapur dauðinn,
dagsins endar skeið.
Hvíl, þín braut er búin,
burt með hryggð og tár.
Launað traust og trúin,
talið sérhvert ár.
Fögrum vinafundi
friðarsunna skín.
Hlý að hinsta blundi,
hejgast minning þín.“
(Úr bókinni „Til móður minnar“. M.M.)
Okkur langar aö minnast frænda
okkar, Sigurðar Ólafssonar, nokkr-
um orðum.
Sigurður var fæddur á Akranesi
25. sept. 1937, sonur Halldóru Sig-
urdórsdóttur og Ólafs Veturliða •
Oddssonar. Hann var til heimilis
meira og minna hjá ömmu og afa
á Arnarstað, þeim Guðbjörgu
Bjarnadóttur og Oddi Hallbjöms-
syni, til ársins 1946, er hann flutti
með móður sinni til Sauðárkróks.
Arið 1959 giftist hann Margréti
Engilbertsdóttur úr Grindavík og
eignuðust þau 4 börn. Þau em:
Rut, gift Magnúsi P. Brynjólfssyni,
Engilbert, kvæntur Maríu M. Birg-
isdóttur Olsen, Öm, unnusta hans
er Svanhvít Másdóttir, Gígja, ógift.
Barnabörnin eru 5.
Siggi lærði húsasmíði hjá tengda-
föður sínum og vann við þá iðn
meðan heilsan leyfði, en síðustu ár
hefur hann háð baráttu við þann
sjúkdóm sem nú hefur leitt hann
til dauða langt um aldur fram.
Þó Siggi væri löngu fluttur frá
Akranesi átti staðurinn alltaf mikil
ítök í honum. Það var oft sem við
hittumst á vellinum þar sem hann
var kominn til að fylgjast með
Skagamönnum, en knattspyrnan
var eitt af áhugamálum hans og í
Grindavík starfaði hann mikið að
þeim málum.
I stómm fyolskyldum er þörf fyr-
ir fólk sem hefur áhuga á og vinn-
ur að því að rækta frændsemi.
Þannig var Siggi. Er skemmst að
minnast veglegs ættarmóts á sl. ári
þar sem hans þáttur við undirbún-
ing var mikill. Einnig við undirbún-
ing útgáfu niðjatals Hallbjamarætt-
ar.
Að leiðarlokum viljum við þakka
samfylgdina og munum í huganum
geyma minninguna um góðan
dreng.
Við sendum Grétu, börnum og
öðmm ástvinum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Gulla, Júíla,
Guðný, Helga Jóna
og fjölskyldur á Akranesi.
Það var sunnudaginn 20. mars
sem systir mín og mágur fluttu
okkur þá harmafregn að Sigurður
Ólafsson byggingameistari í
Grindavík væri dáinn.
Þótt kunnugt væri um vanheilsu
hans, kom þessi fregn á óvart. I
huga minn kom enn á ný alúðar-
þakklæti til þessa góða drengs og
hans ágætu fyölskyldu. Því er það
að þessar línur em festar á blað.
Sigurð hafði ég ekki þekkt lengi
og reyndar ekki mikið, aðeins um
nokkurra ára skeið, eftir að hann
tengdist fyölskyldu systur minnar.
Ljóst var að þar fór prúður maður,
heldur hlédrægur en glaðsinna og
greinilega vinur vina sinna.
Minnisstætt er, þegar hann kom
eitt sinn með frænkur sínar frá
Kanada og vildi allt fyrir þær gera.
Síðar varð mér ljóst hve sériega
ættrækinn hann var.
t
Sonur minn, eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORBJÖRN SIGURGEIRSSON
prófessor,
Digranesvegi 113,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. apríl kl.
10.30.
Torfhildur Þorsteinsdóttir,
Þórdís Aðalbjörg Þorvarðardóttir,
Þorgeir Þorbjörnsson,
Sigurgeir Þorbjörnsson,
Jón Baldur Þorbjörnsson,
Þorvarður Ingi Þorbjörnsson,
Arinbjörn Þorbjörnsson
og barnabörn
Erla V. Kristinsdóttir,
Kristin Jónsdóttir,
Auðbjörg Bergsveinsdóttir,
Helga Ingimundardóttir,
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður minnar, dóttur og ömmu,
VILBORGAR SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR
Ijósmóður,
Háaleitisbraut 48.
Sórstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki á deild 13-A á
Landspítalanum fyrir góöa umönnun í veikindum hennar.
Kristfn Aradóttir,
Einar Benediktsson,
Hrund Kolbeinsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
t
Þökkum auðsýnda vinsemd og samúö við andlát og útför
BJARNHEIÐAR SIGURRÍNSDÓTTUR,
Skipholti 32,
veitti það okkur styrk og huggun á sorgarstundu.
Páll Sveinsson,
Steinunn Pálsdóttir, Sturla Már Jónsson,
Ásta Ólafsdóttir, Guðni Þórarinn Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Andvirði þakkarkorta hefur veriö gefið i líknarsjóð St. Jósefsspít-
ala, Landakoti.
Fyrir um það bil fimm árum
þurfti Sigurður að gangast undir
hjartáaðgerð í London, þar sem í
ljós hafði komið sá sjúkdómur sem
nú hefir valdið því sem orðið er.
Hélt hann reyndar enn utan á sl.
hausti í þeirri von að öðlast bata.
Þegar þau hjón fréttu nú í janúar
að ég þyrfti að skipa þann hóp sem
starfsfólk sjúkrahúsanna kallar
stundum „London lömb“, höfðu þau
strax samband við mig. Ekkert
minna en að heimsækja mig hingað
austur skyldi það verða, þótt dóttir
þeirra og hennar fyölskylda væru
að vísu í leiðinni. Var þetta ómetan-
leg uppörvun fýrir mig vegna þess
sem í vændum var.
Svo þegar kom að því, að við
hjón skyldum halda utan, var ekki
við annað komandi en við gistum
hjá þeim í Grindavík nóttina fyrir
brottför. Ekki var hægt að van-
þakka þetta góða boð, enda gleðj-
umst við yfir því að hafa þegið það.
Eftir að hafa komið á þetta fal-
lega og hlýlega heimili þeirra
Margrétar, var mér fullljóst hvílíkan
öðling Sigurður hafði að geyma og
hve samrýnd þau hjón voru og
reyndar fyölskyldan öll. Myndarlegu
bókasafni hafði hann komið sér
upp, einkum um ættfræði og þjóð-
legan fróðleik og virtist Sigurður
hafa logandi áhuga á slíku. Enda
leið kvöldið allt of fljótt við spjall
um eitt og annað. Var svo til talað
að ég ferðaðist með honum um
ættarslóðir konu hans og afkom-
enda þeirra á komandi sumri.
Margar fallegar myndir sýndu
þau okkur einnig, sem báru þess
merki að hann hafði verið mjög
virkur í unglingastarfí þar í bænum,
einkum er knattspyrnudeildina
varðar. Segir mér svo hugur um
að hann hafí virkað sem vítamín-
sprauta í því starfí, enda kominn
úr sjálfum knattspyrnubænum
Akranesi.
Ekki var nóg með að þau hjón
flyttu okkur á flugvöllinn, heldur
skruppu þau þangað líka til að hitta
okkur þegar við komum að utan.
Daginn eftir var svo Sigurður kom-
inn upp á spítala í Reykjavík til að
spjalla við mig.
Elskulega Margrét og fyölskylda.
Við Sólveig sendum ykkur innilegar
samúðarkveðjur og þökkum alla
ykkar vinsemd.
Megi minningin um góða dreng
veita ykkur huggun á komandi tíð.
Sigurgeir Sigmundsson, k
Flúðum.
Eg hitti Sigga fyrst sumarið
1974 er ég var nýfluttur til
Grindavíkur, þar sem ég var fram-
kvæmdastjóri Félagsheimilisins
Festi. Siggi byggði félagsheimilið
og stóð ekki á sama hvernig um
það var hugsað.
Siggi sá um allt sem gera þurfti
og gerði það þau þrjú og hálft ár
er ég var í Festi. Hann leysti ýmis
flókin mál snilldarlega. Mér er
minnisstætt kvikmyndatjaldið sem
við útbjuggum við erfið skilyrði og
eftir því sem ég best veit er notað
enn í dag, þrettán árum síðar.
Samstarf okkar Sigga þróaðist
upp í vinskap og þau ár er ég var
í háskóla í Ameríku héldum við
sambandi. Siggi var vinur vina
sinna og þegar ég kom heim allur
í sárum vegna míns eigin sjálfskap-
arvítis á árunurr. 1979 og 1980 var
oft gott að tala við Sigga og Grétu.
í janúar 1981 tóku Siggi og
Engilbert að sér að innrétta fyrir
mig Tommahamborgara á Grensás-
vegi 7 í Reykjavík. Upp úr þessu
urðum vjð Siggi viðskiptafélagar í
tæp þtjú ár. A tuttugu og einum
mánuði innréttuðum við átta veit-
ingahús, kjötvinnslur, undirbún-
ingseldhús og skrifstofu fyrir höf-
uðstöðvar Tommahamborgara hf.
Þegar best lét vorum við svo sam-
rýndir að við þurftum varla að
teikna staðina, gátum jafnvel hann-
að staðina í gegnum síma. Það var
engu líkt að starfa með Sigga, án
hans hefðu aldrei verið byggðir
neinir Tommaborgarar, hann var
mér sem faðir þann tíma sem við
störfuðum saman.
Eg kveð Sigga, megi Guð varð-
veita fyölskyldu hans.
Tómas A. Tómasson
+
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför fósturföður
míns, tengdaföður, afa og langafa,
EYÞÓRS J. HALLSSONAR,
Siglufirði.
Karólina Hallgrimsdóttir,
Ólöf Þórey Haraldsdóttir,
Helga Haraldsdóttir,
Ragnheiður Haraldsdóttir,
Árni Haraldsson,
Eyþór Haraldsson
Haraldur Árnason,
Eriingur Björnsson,
Marc Teulier,
Ásdis Björnsdóttir,
og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
INGÓLFS THEODÓRSSONAR
netagerðameistara,
Höfðavegi 16, Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Sigurðardóttir,
börn.tengdabörn, barnabörn, og barnabarnabörn.
+
Við sendum öllum þeim sem sýndu hlýhug og vináttu í veikindum
og við andlát og útför,
ÁSTRÍÐAR JÓHANNESDÓTTUR,
Torfalæk,
hugheilar kveðjur og þakkir.
Torfi Jónsson,
Jóhannes Torfason, Elfn Sigurlaug Sigurðardóttir,
Jón Torfason, Sigriður Kristinsdóttir
og barnabörn.
Lokað
verður miðvikudaginn 6. apríl til kl. 13.00 vegna jarðar-
farar prófessors ÞORBJARNAR SIGURGEIRSSONAR.
Raunvísindastofnun Háskólans.