Morgunblaðið - 31.03.1988, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
67
símstöðvum og gömul símtaeki úr einka-
eign. Aðgangur er ókeypis en safnið er
opið á sunnudögum og þriðjudögum
milli klukkan 15 og 18. Hægt er að skoða
safnið á öðrum tímum en þá þarf að
hafa samband við safnvörð i sima 54321.
Sjóminjasafnið
í sjóminjasafninu stenduryfir sýning um
árabátaöldina. Hún byggir á bókum
Lúöviks Kristjánssonar „íslenskum sjáv-
arháttum". Sýnd eru kort og myndir úr
bókinni, veiðarfæri, likön og fleira. Sjó-
minjasafnið er að Vesturgötu 6 i Hafnar-
firði. Það er opið í vetur um helgar klukk-
an 14-18 og eftir samkcmulagi. Síminn
er 52502.
Þjóðminjasafnið
í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur sýn-
ing á teikningum skólabarna. Undanfaríð
hefur staðið yfir teiknisamkeppni í tilefni
125 ára afmælis safnsins og hafa safninu
borist á annað þúsund mynda. Einungis
er hægt að sýna lítinn hluta þessa fjölda,
en allar verða myndirnar varðveittar í
Þjóöminjasafninu. Sýningin stendurfram
í maí og er opin á venjulegum opnun-
artíma safnsins, þ.e. laugardaga, sunnu-
daga, þriðjudaga og fimmtudaga kl.
13.30-16.00. Aðgangur er ókeypis.
[ anddyri Þjóðminjasafnsins ersýning á
fornleifum sem fundust við uppgröft á
Bessastöðum sl. sumar. í safninu eru
meðal annars sýndir munir frá fyrstu
árum Islandsbyggðar og islensk alþýðu-
list frá miööldum. Einnig er sérstök sjó-
minjadeild og landbúnaðardeild._
Leiklist
Leikfélag Reykjavíkur
Söngleikurinn „Síldin er komin" eftir Ið-
unni og Kristínu Steinsdætur verður
sýndur í Leikskemmu L.R. við Meistara-
velli miðvikudaginn 6. april og föstudag-
inn 8. apríl kl. 20.00. „Þar sem Djöflaeyj-
an rís" i leikgerð Kjartans Ragnarssonar
verður sýnd fimmtudaginn 7. april kl.
20.00 i Leikskemmu LR við Meistara-
velli. Sýningum á þvi verki fer fækkandi.
Miðasala í Iðnó eropin daglega kl. 14-19.
Síminn er 16620. T ekiö er á móti pöntun-
um á allar sýningar til 6. apríl. Miðasalan
í Leikskemmu LR við Meistaravelli er
opin daglega kl. 16-20. Síminn þar er
15610.
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsiö sýnir nýtt verk, Hugaburður
eftirSam Shepard, fimmtudaginn 7. apríl
kl. 20.00. Leikarar eru Hákon Waage,
Arnór Benónýsson, Lilja Þórisdóttir, Sig-
uröurSkúlason, Þóra Friðriksdóttir, Vil-
borg Halldórsdóttir, Gisli Halldórsson og
Sigriður Þorvaldsdóttir. Leikstjóri er Gísli
Alfreðsson.
Sýningar á Vesalingunum, söngleik
byggðum á samnefndri skáldsögu eftir
Victor Hugo, verða á skírdag, annan í
páskum, 6. og 8. apríl kl. 20.00. Upp-
selt hefur veriö á allar sýningar til þessa
en tekið á móti pöntunum fram yfir páska.
Á Litla sviðinu er sýnt verk Ólafs Hauks
Símonarsonar, Bílaverkstæði Badda.
Sýningarverða þriðjudaginn 5. apríl og
fimmtudaginn 7. apríl kl. 20.30. Sýning-
um á Bílaverkstæðinu lýkur 16. apríl.
Miðasalan í Þjóðleikhúsinu er opin alla
daga nema mánudaga kl. 13.00-20.00.
Sími 11200.
Leikféiag Akureyrar
Leikfélag Akureyrar sýnirjeikritið Horft
af brúnni eftir Arthur Miller fimmtudag,
annan í páskum kl. 20.30 og er það
næstsíöasta sýning, síðasta sýning verð-
ur föstudagskvöldið 8. apríl kl. 20.30.
Næsta verk leikfélagsins er Fiðlarinn á
þakinu sem verður frumsýnt 22. apríl.
Leikstjóri erTheodór Júlíusson. Leikarar
' eru Þráinn Karlsson, Sunna Borg, Erla
Ruth Harðardóttir, Marinó Þorsteinsson,
Jón Benónýsson og Skúli Gautason.
Miðasala í síma 96-24073.
Sögusvuntan
Leikhúsið Sögusvuntan verður með
brúðuleikhús-sýningu að Fríkirkjuvegi 11
ásunnudaginn kl. 15.00. Leiksýningin
nefnist Smjörbitasagan og er byggð á
íslensku ævintýri. Sýningin er ætluð
yngstu á.horfendunum. Hallveig Thorlac-
ius skrifaði handritið, gerði brúðurnar og
leikur. Miðasala er í Fríkirkjuvegi 11 frá
kl. 13.00 á sunnudaginn. Einnig er hægt
að panta miða í síma 622215.
Frú Emilía
Leikhúsiö Frú Emilía sýnir gamanleikinn
Kontrabassinn eftir Patrick Suskind. Með
hlutverk kontrabassaleikarans ferÁrni
PéturGuðjónsson. Sýningarverða
fimmtudaginn 31. mars og mánudaginn
4. apríl kl. 21.00. Síðustu sýningar. Miða-
pantanir eru í sima 10360. Leikhúsiö er
til húsa að Laugavegi 55B.
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðarsýnir Enriil i Katt-
holti fimmtudag 31. mars, mánudaginn
4. april kl. 14.00. Miöapantanir í sima
50184 allan sólarhringinn.
Gránufjelagið
Gránufjelagið sýnir „Endatafl" eftir Samu-
el Beckett laugardag 2. april kl. 16.00.
Leikarar í „Endatafli" eru fjórir: Barði
Guðmundsson, Hjálmar Hjálmarsson,
Kári Halldór og Rósa Guðný Þórsdóttir.
Eggert Ketilsson erframkvæmdastjóri
sýningarinnar og Leiksmiöjan ísland hef-
ur unniö með Gránufjelaginu að gerð
leikmyndar. Leiksýningin fer iram að
Laugavegi 32 i bakhúsi. Miðasala opnar
klukkustund fyrir sýningar. Miðapantanir
allan sólarhringinn i sima 14200.
Leikklúbburínn Saga á
Akureyrí
Leikklúbburinn Saga á Akureyri sýnir leik-
ritið Grænjaxlar eftir Pétur Gunnarsson
skírdag ki. 17.00, 2. april kl. 20.30, ann-
an i páskum kl. 17.00 og þriðjudaginn
5. apríl kl. 20.30. Leiksýningar fara fram
i Dynheimum.
íslenska óperan
íslenska óperan sýnir Don Giovanni eftir
Mozart í Gamla bíói. Með aðalhlutverk
fara Kristinn Sigmundsson, Bergþór Páls-
son, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Elin Ósk
Óskarsdóttir, SigriðurGröndal, Gunnar
Guðbjörnsson og Viöar Gunnarsson.
Hljómsveitarstjóri er Anthony Hose og
leikstjóri Þórhildur Þorleifsdóttir.
Sýningar verða föstudaginn 8. apríl kl.
20.00. Miöasalan er opin daglega kl.
15-19. Síminner 11475.
Myndlist
FÍM
Halldóra Thoroddsen sýnir í FÍM-salnum
á horni Ránargötu og Garöastrætis.
Halldóra er fædd 1950. Á sýningunni eru
textílverk unnin með blandaðri tækni.
Sýningin er opin daglega kl. 14-18 og
stendurtil 3. apríl.
Gallerí Borg
Valgerður Hauksdóttir sýnir grafíkmyndir
i Gallerí Borg, Pósthússtræti 9. Valgerður
erfædd IReykjavík 1955og ernú deildar-
stjóri við grafíkdeild Myndlista- og
handíðaskóla (slands. Sýningin eropin
virkadaga kl. 10-18og um helgarkl.
14-18. Lokað er á föstudaginn langa og
páskadag. Sýningunni lýkur 5. apríl.
Gallerí Borg hefur sett á stofn sérstakt
Grafík Gallerí í Austurstræti 10 og kynnir
verk einstakra listamanna í glugganum í
Austurstræti. Nú stendur yfir kynning á
grafíkmyndum eftir grafíklistamanninn
Ingiberg Magnússon og keramikmunum
eftirlistakonuna Kristínu l'sleifsdóttir.
Gallerí Gangskör
Lísbet Sveinsdóttir sýnir í Gallerí Gang-
skör, Amtmannsstíg 1. Lísbet stundaði
nám við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1972-1982. Sýningin er opin alla
virkadaga frákl. 12.00—18.00 og um
helgarfrá kl. 14.00—18.00. Sýning henn-
ar stendur til 10. april. Lokað verður um
páskahelgina.
Gallerí List
i Gallerí List, Skipholti 50b, verðuropnuð
á skírdag, 31. mars, kl. 14.00 sýning á
keramikverkum eftir þau Eydisi Lúðvíks-
dótturog Daða Harðarsonar. Daði og
Eydis hafa rekið saman verkstæði að Ási
i Mosfellsbæ síðan i nóvember 1987.
Þau vinna ýmist saman eða sitt í hvoru
lagi að gerð listmuna úr postulínsleir.
Eydís er fædd 1950 og lauk prófi úr kenn-
aradeild Myndlista- og handiöaskóla is-
lands 1971. Daði er fæddur 1958 óg
lauk námi í keramikdeild Myndlista- og .
handíðaskólans 1982 og var næstu tvö
árin gestanemi við Skolen for Brugskunst
í Kaupmannahöfn. Sýningin stendurtil
10. apríl og er opin virka daga kl. 10-18
og um helgar kl. 14-18, lokað er á föstu-
daginnlanga.
Gallerí Svart á hvrtu
Sýning á verkum norska listamannsins
Yngve Zakarias opnar í Gallerí Svart á
hvítu, Laufásvegi 17, laugardaginn 2.
apríl kl. 14.00. Yngve Zakarias er búsett-
ur í Berlin og hefurtekið þátt í samsýning-
um víða i Evrópu og haldið einkasýning-
ar. Hann hefur dvalið hér á landi undan-
farnar vikur sem kennari við Myndlista-
og handiðaskóla islands. Sýningin sem
stendurtil 10.apríi er opin kl. 14-18 alla
daga nema mánudaga. Lokap páskadag.
Gullnihaninn
Á veitingahúsinu Gullna hananum eru
myndir Sólveigar Eggerz til sýnis. Að
þessu sinni sýnir hún vetrarmyndir og
stemningar um Ijóð Sigfúsar Daðasonar.
Ustasafn ASI
Guöbjartur Gunnarsson sýnir myndir
unnar i blandaðri tækni i Listasafni ASÍ,
Grensásvegi 16. Guðbjartur lauk kenn-
araprófi 1950 og siðar myndmennta-
kennaraprófi i Bandaríkjunum. Myndirnar
sem hann sýnir eru byggðar upp á Ijós-
mýndum, þrykktará mismunandi litan
pappír og handlitaðar með pastellitum.
Sýningin er opin virka daga kl. 16-20,
laugardaga og sunnudaga kl. 14-20 svo
og skirdag og annan í páskum. Föstu-
daginn langa og páskadag verður opið
kl. 15.-20. Sýningunni lýkur 10. apríl.
Nýhöfn %
Sigrún Haröardóttir sýnir í Nýhöfn i Hafn-
arstræti 18 í Reykjavík. Á sýningunni eru
málverk og þurrkrítarmyndir sem unnar
eru á þessu og síðastliðnu ári. Þetta er
3. einkasýning Sigrúnaren hún hefur
tekið þátt í samsýningum hér og erlend-
is. Sýningin er opin virka daga kl. 10-18
og um helgar kl. 14-18. Um páskana er
hún lokuð á föstudaginn langa og páska-
dag. Sýningunni Iýkur6. apríl. i innri sal
Nýhafnar eiga eftirtaldir listamenn verk
til sölu: Ágúst Petersen, Borghildur
Óskarsdóttir, BragiÁsgeirsson, Daði
Guðbjörnsson, Edda Jónsdóttir, Guðrún
Kristjánsdóttir, Gunnar Örn Gunnarsson,
Harpa Björnsdóttir, HaukurDór, Hólm-
fríður Árnadóttir, Karl Kvaran, Karólina
Lárusdóttir, Magnús Kjartansson, Val-
garður Gunnarsson og Vignir Jóhanns-
son.
Kjarvalsstaðir
Sigþrúður Pálsdóttir, Sissú, opnar mál-
verkasýningu í Kjarvalssal laugardaginn
2. apríl kl. 14.00. Þetta er 4. einkasýning
Sigþrúðar í Reykjavík frá þvi hún útskrif-
aðist sem Bachelor og Fine Arts frá The
School of Visual Arts í New York vorið
1982. Sissú fæddist i Reykjavik árið
1954. Á sýningunni á Kjan/alsstöðum eru
um 40 málverk, flest unnin i oliu á striga.
Sýningin er opin alla daga kl. 14-22 til
17. april.
í vestursal Kjarvalsstaða ophar Guð-
mundur Björgvinsson málverkasýningu
laugardaginn 2. apríl kl. 14.00. Sýningin
beryfirskriftina „Martin Berkofsky spilar
ungverska rapsódiu nr. 10 eftir Franz
Liszt. Sýningin er opin daglega til 17.
apríl kl. 14-22.
Ávesturgangi Kjarvalsstaða opnar Jens
Kristleifsson málverkasýningu laugar-
daginn 2. april kl. 14.00. Jens erfæddur
árið 1940 i Reykjavik. Sýning hans er
opintil 17. apríl.
Krókur
Nýr sýningarsalur hefur verið opnaður
að Laugavegi 37 í Reykjavik. Salurinn
hefur hlotið nafnið Krókur og er Kees
Visser sá fyrsti sem sýnir þar. Kees sýn-
ir þar skúlptúra til 1. apríl. Sýningin er
opin á verslunartima.
Liststofa Bókasafns
Kópavogs
Sýning á 18 Ijósmyndum eftir Svölu Sig-
urleifsdóttur stendur nú ytir í Liststofu
Bókasafns Kópavogs. Ljósmyndirnareru
teknar á seinustu 6 árum á isafirði og
Hornafirði. Svala fæddist á isafirði 1950.
Sýningin er opin á sama tíma og bókasaf-
nið, mánudaga til föstudaga kl. 9-21,
laugardaga kl. 11-14. Sýningin stendur
til 15. apríl og er aðgangur ókeypis.
Gamli Lundur
Aðalsteinn Vestmann opnar sýningu á
verkum sínum í Gamla Lundi á skírdag.
Þetta er 4. einkasýning Aðalsteins en
hann hefur tekið þátt I samsýningum. Á
sýningunni eru 35 verk og lýkur henni
annanípáskum.
Glugginn Akureyri
Kristján Steingrímur Jónsson sýnir mál-
verk i Glugganum Glerárgötu 34 á Akur-
eyri. Kristján Steingrimur er fæddur á
Akureyri 1957. Sýningin stendurtil
mánudagsins 4. apríl. Glugginn er opinn
daglegakl. 14-18enlokaðerámánu-
dögum, nema annan dag páska verður
opiö eins og aðra daga. Við opnun sýn-
ingarinnarferJón L. Halldórsson með
kvæði við undirleik félaga sinna.
Safnaðarheimili
Hveragerðis
Hans Christiansen myndlistarmaðuropn-
ar sýningu á vatnslita- og pastelmyndum
í Safnaðarheimili Hveragerðiskirkju á
skirdag, 31. mars, kl. 20.00.
Þetta er 14. einkasýning Hans og verður
hún opin daglega kl. 14-22. Henni lýkur
að kvöldi annars í páskum.
Félagsheimili Ölfusinga
Hveragerði
Sigurður M. Sólmundarson opnar mynd-
listarsýningu i félagsheimili Ölfusinga i
Hveragerði dagana 31. mars. Þetta er
8. einkasýning Sigurðar auk samsýninga.
Sýningin er opin kl. 10-22 til 4. apríl.
Hafnargata í Keflavík
Erla Sigurbergsdóttir opnar sýningu á
verkum sínum á Hafnargötu 35 í Keflavik
á skírdag. Á sýningu Erlu eru oliumálverk
og keramik. öll verkin eru unnin á árun-
um 1986
1988. Sýningin stendurtil 17. april og
er opin virka daga kl. 14-20 og um helg-
arkl. 14-18.
Ferðalög
Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiðstöö ferðamála er með
aðsetur sitt að Ingólfsstræti 5. Þar eru
veittar allar almennar upplýsingar um
ferðaþjónustu á-íslandi. Mánudaga til
föstudaga er opið frá klukkan 10.00-
16.00, laugardaga kl. 10-14. Lokaðá
sunnudögum. Sfminn er 623045.
Útivera
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana Nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 2. apríl. Lagt veröur af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10.00.
Markmið göngunnar er samvera, súrefni
og hreyfing. Nýlagað molakaffi. Allireru
velkomnir.
Útivist
Á skírdag kl. 13 er ganga á Úlfarsfell i
Mosfellssveit. Áföstudaginn langa kl.
13 er 10. ferð í Strandgöngu í landnámi
Ingólfs. Byrjað verðurvið Vogavik og
gengið um Reiðskarð sem er gamia þjóð-
leiðin upp á Vogastapann. Siðan verður
gengið yfir stapann í Innri-Njarðvik. Viður-
kenning er veitt fyrir góða þátttöku en
alls verða farnar 22 ferðir með ströndinni
frá Reykjavik að Ölfusárósum. Laugar-
daginn 2. apríl kl. 13 verður gengið að
Tröllafossi og Haukafjöllum. Engin ferð
er á páskadag en mánudaginn annan i
páskum kl. 13 er stórstraumsfjöruferð
og kraéklingatinsla í Hvalfirði. Brottför í
feröirnar er frá Umferðarmiðstöðinni að
vestanveröu. Allireru velkomnirog þarf
ekki að panta fyrirfram. Á laugardaginn
fyrir páska 2. april kl. 9 er lagt upp í
þriggja daga páskaferð í Þórsmörk. Nokk-
ur sæti eru laus í þá ferð og eru farmiö-
arviöbilinn.
Ferðafélag íslands
Á skírdag verður lagt af stað í fjórar ferð-
ir á vegum Ferðafélags íslands kl. 8. 1.
Ferð á Snæfellsnes þar sem gengið verð-
ur á Snæfellsjökul og farnar skoðunar-
ferðir með ströndinni. Gist í gistihúsinu
Langaholti í Staðarsveit. 2. Skíðagöngu-
ferðtil Landmannalauga. Ekiðverðurað
Sigöldu og gengið þaðan 25 km til Lauga
og gist i sæluhúsi Fi þar. 3. Þórsmörk, •
fimm daga ferð og einnig þriggja daga
ferö og er þá komið til baka 2. apríl. Gist
ÍSkagfjörðsskála/Langadal. Ferðtil Þórs-
merkurverðureinnig á laugardag 2. april
og erbrottför kl. 8. Dagsferðir Fi um
bænadaga og páska veröa: Skírdag,
fimmtudag 31. mars kl. 13 Óttarstaöir —
Lónakot. Ekið að Straumsvik og gengið
þaðan í átt til sjávar og siðan yfir Hraun-
in að Lónakoti og upp á þjóðveg. Föstu-
daginn langa kl. 13 verður gönguferð á
Helgafell sem er suðaaustur af Hafnar-
firði. Ekið að Kaldárseli og gengið það-
an. Laugardag 2. apríl ökuferð um Þing-
velli, Grímsnes og Hveragerði og brottför
kl. 13. Engin dagsferð á páskadag, en
annan í páskum verður gönguferð á
Vifilsfell. Brottför i allar ferðir er frá Um-
ferðarmiðstöð, austanmegin, kl. 13.00.
Viðeyjarferðir
Hafsteinn Sveinsson er með daglegar
ferðir út í Viðey og um helgar eru ferðir
allan daginn frá kl. eitt. Kirkjan i Viðey
er opin og veitingar fást í Viðeyjarnausti.
Bátsferóin kostar 200 krónur.
Félagslíf
Samhjálp
hvrtasunnumanna
Á skírdag verður almenn samkoma kl.
20.30 í félagsmiðstöð Samhjálpar,
Þribúðum, Hverfisgötu 42. Söfnuðurinn
i Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð sér um sam-
komuna undirstjórn Hinriks Þorsteins-
sonar.
Menningarvaka
á Suðumesjum
Menningarvaka á Suðurnesjum stendur
yfir um þessar mundir. Fimmtudapinn
31. marsopnar Halldóra Ottósdóttirog
Þórunn Guðmundsdóttir málverkasýn-
ingu i Sandgerði kl. 14.00. Opnuð verður
málverka- og höggmyndasýning Ástu
Pálsdóttur, Erlings Jónssonarog Höllu
Haraldsdóttur i Fjölbrautaskóla Suður-
nesja kl. 15.00. i Festi í Grindávík verður
einnig opnuð málverkasýning Sigríðar
Rósinkarsdótturkl. 17.00. Mánudagian-
4. april verður bókmenntakynning í
Stóru-Vogaskóla kl. 14.00. Jón Dan verð-
ur kynntur, bókmenntafyrirlestur, upp-
lestur, tónlist, skáldiö heiðrar og menn-
ingarvöku formlega slitið.
Tónlist
Listvinafélag
Hallgrímskirkju
Frumflutt verður óratórian „Upprisan"
eftir Þorkel Sigurbjörnsson laugardaginn
2. april kl. 21.00. Verkið varskrifaðfyrir§7
Mótettukór Hallgrímskirkju að tilhlutan
Listvinafélags Hallgrímskirkju vegna
vígslu kirkjunnar fyrir hálfu öðru ári. Það
byggir á frásögnum allra guðspjallanna
af upprisunni. Textinn er ýmist sunginn
eða lesinn með undirleik hljóðfæra. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill, en
verkið tekur um eina klukkustund í flutn-
ingi.
Hreyfing
Keila
í Keilusalnum í Öskjuhlíð eru 18 brautir
undir keilu. Á sama stað er hægt að
spila billjarð og pinu-golf. Einnig er hægt
að spila golf í svokölluðum golfhermi.
Sund i?v
i Reykjavík eru útisundlaugar í Laugar-
dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta-
skólann í Breiöholti. Einnig eru útisund-
laugar á Seltjarnarnesi, á Varmá og við
Borgarholtsbraut i Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuðborgarsvæðinu eru við
Barónsstíg og við Herjólfsgötu í Hafnar-
firði. Opnunartima þeirra má sjá i dag-
bókinni.
Skyndisýning
Vorkoman ílífríkinu I
Nú fara lifverurnar að vakna af vetrardv-
ala. Til að kynna fjölbreytni íslenskra
smádýra verður sett upp skyndisýning í
Náttúrugripasafninu, Hverfisgötu 116,
3. hæð, og veröur hún opin kl. 13.30-
16.00á skirdag, laugardag og á þriðju-
dag. Sýndarverða nokkrartegundirskor-
dýra af smiðsættinni og má þar nefna
járnsmið, gullsmiö, húsasmið, tröllasmið
og dvergsmið. Þá verða sýnd tvö stutt
myndbönd um lifnaöarhætti skordýra.
Einnig verður kynnt nýútkomið Fjölrit
■Náttúrufræðistofnunar: „Könnun á smá-
dýrum i Hvannalindum, Fagradal og Grá-
gæsadal" eftir Erling Ólafsson dýrafræð-
ing.
MYNDIR ER TENGJAST
SJÁYARÚTVEGI
Fyrir tvo af viðskiptavinum okkar leitum
við nú að myndum er tengjast sjávarút-
vegi, helst eftir þekkta höfunda.
UPPBOÐ
Fyrir næsta uppboð okkar óskum við eftir
myndum eldri meistaranna t.d. Jóhannesar
S. Kjarval, Muggs, Jóns Stefánssonar,
Jóhanns Briem, Asgríms Jónssonar, Þor-
valdar Skúlasonar, Júlíönu Sveinsdóttur
og Kristínar Jónsdóttur.
Þeir, sem hafa í hyggju að setja verk á
uppboðið, þurfa að skila þeim inn til
Gallerí Borgar eigi síðar en 15. apríl næst-
komandi.
BORG
LISTMUNIR-SYNINGAR-UPPBOÐ