Morgunblaðið - 31.03.1988, Side 72
upplýsingar
^ um vörur og
pjónustu.
FERSKLEIKI,
jggfjp'
ÞEGAR
MESTÁ REYNIR
FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
VERÐ I LAUSASOLU 60 KR.
Dollar hef-
ur lækkað
en pundið
' -hækkað
Á FYRSTA mánuðinum frá
gengisfellingunni 29. febrúar
varð engin breyting á vegnu
meðaltali gengis íslensku krón-
unnar samkvæmt viðskiptavog.
Hins vegar hefur Bandarikjadal-
ur lækkað um 1,6% gagnvart
krónunni, sterlingspund hefur
hækkað um 3,5%, dönsk króna
lækkað um 0,6%, vestur-þýskt
mark Iækkað um 0,2%, japanskt
yen lækkað um 1,3% og sérstök
dráttarréttindi hækkað um
0,03%.
Jón Ingvarsson, stjómarfor-
maður Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
- húsanna, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að sú stund nálgaðist nú
óðum að ávinningur frystingarinnar
af gengisbreytingunni yrði uppur-
inn vegna minnkandi tekna og
hækkandi tilkostnaðar. Auk þess
sem gengi Bandaríkjadals hefði
lækkað gagnvart íslensku krónunni
um 1,6% hefði verð á þorskblokkum
og hluta af þorskflakaframleiðsl-
unni, sem seld væri á Bandaríkja-
markaði, lækkað um 10 sent pund-
ið. Enda þótt gengi sterlingspunds-
——ins hefði hækkað gagnvart íslensku
krónunni um 3,5% frá gengisfelling-
unni hefði verð á frystum fiski í
Bretlandi lækkað, m.a. vegna auk-
ins framboðs á óunnum íslenskum
fiski þar.
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson
Páskaveðrið:
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
Valsmenn tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn 1. deild karla í handknattleik
með sigri yfir FH, 26:23 í úrslitaleik liðanna í gær. Á stærri myndinni eig-
ast þeir við Geir Sveinsson fyrirliði Vals og Héðinn Gilsson. Á innfelldu
myndinni fagna sigri Júlíus Jonasson, sem var valinn maður leiksins og
Þórður Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar Vals.
ÞÚSUNDIR landsmanna ferðast með innanlandsflugi Flugleiða og
Arnarflugs um páskana. Samkvæmt upplýsingum flugfélaganna eru
áætlaðar aukaferðir til allra viðkomustaða. Ekkert er flogið á föstu-
daginn langa og páskadag en aðra daga verða miklar annir í flug-
inu. Einnig hafa verið annir hjá BSÍ undanfarna daga og er áætlað
að um fimm þúsund manns taki sér far með áætlunarbifreiðum um
páskana.
Á vegum Plugleiða er ráðgert
að fara 22 ferðir í dag, skírdag.
Meðtaldar eru aukaferðir til allra
viðkomustaða. Á laugardag verður
einnig flogið á alla viðkomustaði
og á annan dag páska verða farnar
27 ferðir með Fokker-vélum félags-
ins og Boeing-þotur fara þá 3 ferð-
Þúsundir landsmanna á
faraldsfæti um páskana
ir með farþega til og frá Akureyri.
Að sögn starfsfólks Flugleiða fara
flestir, nú eins og jafnan, til Akur-
eyrar en aukaferðir verða farnar á
alla viðkomustaði.
Á vegum Arnarflugs verða farn-
ar áætlunar- og aukaferðir til allra
áfangastaða félagsins eftir því sem
bókanir kreijast og veður leyfir.
Ekkert flug er á föstudag og páska-
dag. Að sögn starfsfólks Arnarflugs
eykst ferðamannastraumurinn jafnt
og þétt dag frá degi og er ekki að
sjá að þyngri straumur liggi til eins
staðar en annars.
Ekki er vitað til að veður hafi
tálmað flugi enn sem komið er og
veðurspár virðast fremur hliðhollar
ferðalöngum.
Örn Sigurðsson hjá BSÍ sagði
miklar annir hafa verið á öllum leið-
um áætlunarbifreiða undanfarið.
Hann giskaði á að 5 þúsund manns
ferðist með bifreiðum BSÍ um pásk-
ana. Öm sagði að straumurinn lægi
einkum til Akureyrar, Hornafjarð-
ar, Snæfellsness og Borgarfjarðar
og hefði verið efnt til aukaferða á
þessa staði. Tvær rútur hefðu farið
til Akureyrar daglega í dymbilviku.
Engar ferðir eru frá BSÍ föstudag-
inn langa og páskadag, að því und-
anskildu að á páskadag fer bíll frá
Homafirði til Reykjavíkur og farnar
verða nokkrar ferðir á styttri leið-
um.
Auk þessa má reikna með fjölda
ferðalanga, sem ferðast á eigin veg-
um, m.a. um óbyggðir og fyrir þá
er rekin sérstök tilkynningarþjón-
usta.
Sjá bls. 21: Ferðafólk hvatt til
að láta vita um ferðir sínar.
Jökull
samþykkti
Höfn, Hornafirði.
Verkalýðsfélagið Jökull á
Höfn í Hornafirði samþykkt
samningana, sem undirritaðir
voru á Akureyri, með 92 atkvæð-
um gegn 35.
Tveggja daga allsherjaratkvæða-
greiðsla fór fram meðal félags-
manna í Jökli eftir að samningurinn
hafði verið kynntur á vinnustöðum
á Höfn. Yfírvinnubann sem boðað
hafði verið síðasta laugardag kom
aldrei til framkvæmda, þar sem
Akureyrarsamningarnir voru undir-
ritaðir um miðnætti kvöldið áður.
JGG
ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra hefur falið Byggðastofnun
að gera heildarúttekt á þróun byggðar í landinu. Kannaðar verði
búsetubreytingar og staða höfuðatvinnugreina á landsbyggðinni.
Jafnframt hefur forsætisráðherra falið stofnuninni að semja yfirlit
um opinbera þróun í þessu efni með hliðsjón af mannfjöldabreyting-
um, bættum samgöngum og þjóðfélagsbreytingum.
„Ég hef átt viðræður við for-
stjóra Byggðastofnunar um mögu-
leika á því að stofnunin geri slíka
úttekt. Á mánudag fékk ég í hend-
ur minnisblað um mat Byggða-
stofnunar á þeim aðstæðum sem
fyrir hendi eru. í framhaldi af því
akvað ég að fela stofnuninni þessa
viðamiklu úttekt. Það er stefnt að
því að þetta verði unnið eins hratt
og nokkur kostur er og verði síðan
grundvöllur fyrir áframhaldandi
umræður og ákvarðanir," sagði
Þorsteinn Pálsson. „Það er ljóst að
það er vaxandi spenna milli þétt-
býlis og dreifbýlis og mjög mikil-
vægt að menn fái haldgóðar upplýs-
ingar um þessa stöðu til að móta
framtíðarstefnu á,“ sagði forsætis-
ráðherra.
Meðal þess sem felast á í úttekt
Byggðastofnunar er gerð heildar-
yfirlits um þær fjárveitingar ríkis-
sjóðs, sem með einum eða öðrum
hætti er varið til byggðamála. Með
gerð slíks yfírlits verði leitt í ljós
hvort breyttar áherslur í þessu efni
geti greitt fyrir því, að markmið
ríkisstjómarinnar í byggðamálum
náist.
Forsætisráðherra:
Vindasamt í dag
og á morgun en
blíða á laugar-
dag og páskadag
í VEÐURSPÁ páskahelgarinnar
er gert ráð fyrir norðan- og norð-
austanátt um land allt á skírdag
og föstudaginn langa. Víðast verð-
ur stinningskaldi eða allhvass
vindur. Snjókoma eða él verða um
norðanvert landið, en þurrt og
víða bjart syðra.
Hiti verður nálægt frostmarki að
degi til, en næturfrost 2-6 gráður.
A laugardag er búist við að veður
batni. Þá og á páskadag verður hæg
breytileg átt, þurrt og bjart veður
um land allt. Hiti verður um eða
yfir frostmarki.
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út miðvikudaginn 6.
aprfl.
Úttekt á byggðamálum