Morgunblaðið - 12.04.1988, Qupperneq 6
6 B
HtorgonMaMb /ÍÞRÓTTIR ÞRJÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988
FRAKKLAND
BELGÍA
Montpellier í Evrópu-
keppni í fyrstu tilraun?
Hefurgertflest rnörk allra liða ívetur. Efstu liðin unnu um helgina
Alaln Qlrasse hefur átt hvem stórleikinn á fætur öðrum með Marseille.
MEÐ 2:0 sigri sínum á Brest
tókst Mónakó að tryggja stöðu
sína gegn Bordeaux sem sigr-
aði Toulon mjög auðveldlega
3:0 á heimavelli. Bestum úrslit-
um náði þó Marseille, sem
vann Laval 2:1, og Montpellier,
sem burstaði St. Etienne 5:0.
Bœði liðin eiga nú góða mögu-
leika á Evrópusæti. Matra Rac-
ing fékk eitt stig úr „derby“-
leiknum gegn París SG, en leik-
urinn, sem var mjög grófur og
frekar hægur, olli miklum von-
brigðum.
Mónakó þurfti ekki að taka á
honum stóra sínum í leiknum
gegn Brest. Greinilegt var á leik
þeirra síðamefndu að þeir stefndu
^■■■■1 einungis að því að
Frá tapa sem minnstum
Bemharö mun, og má segja
Þrátt fyrir takmarkaða mótstöðu
tókst Mónakó ekki að skora fyrr
en á 59. mín. og va_r það Dib sem
skoraði með skalla. Á 76. mín. kom
svo seinna markið — allur undifbún-
ingur var í höndum þeirra Hoddle
og Hately, en eftir að hafa leikið
vöm Brest grátt sendi Hately bolt-
ann til Ferratge, sem skoraði með
lausu skoti.
Ross skoraði fallegt mark af
18 m færi
Það var aldrei spuming í leik Borde-
aux og Toulon um það hvorum
megin sigurinn myndi lenda. Þrátt
PORTÚGAL
fyrir ágætan leik þá átti Toulon
aldrei möguleika gegn feykigóðu
liði heimamanna. Vujovic skoraði
fyrsta markið eftir fyrirgjöf frá
Ferreri á 19. mín., og á 30. mín.
bætti José Touré við öðru marki
úr víti eftir að markmaður Toulon
hafði brotið á honum. í seinni hálf-
leik slakaði Bordeaux svo á án þess
þó að missa tökin á leiknum og á
74. mín. fékk bakvörðurinn Ross
boltann á miðjum vellinum, og án
þess að.hika óð hann upp kantinn
og skoraði gullfallegt mark með
föstu skoti af 18 m færi.
Ferð St. Etienne til Montpellier
verður seint talin til frægðar. Út-
reiðin sem liðið fékk var slík að
elstu menn muna ekki annað eins.
Lengst af var sem eitt lið væri á
vellinum, og sýndi Montpellier að
það er lítil tilviljun að liðið hefur
skorað flest mörk allra í 1. deild,
50 alls. Með þessum 5:0 sigri þá
er liðið, sem lék í 2. deild á síðasta
keppnistímabili, komið í 5. sæti með
ágætis möguleika á Evrópusæti, ef
vel gengur þær 7 umferðir sem
eftir eru.
OplA hús í Maraellle
í Marseille var opið hús um helg-
ina. Eftir háðuglega útreið liðsins
gegn Ajax í Evrópukeppninni á
miðvikudag ákváðu forráðamenn
félagsins að bjóða borgarbúum á
leikinn sem þeir síðarnefndu nýttu
sér og studdu liðið til sigurs. Það
voru útlendingamir í liðinu, þeir
Allofs og Förster, sem skoruðu
mörk Marseille, bæði eftir undir-
búning „gamla mannsins" Giresse,
sem fór á kostum sem fyrr í vetur,
en Pouliquen svaraði fyrir Laval.
Viðureign Parísarliðanna, Matra
Racing og PSG, olli talsverðum
vonbrigðum. Liðunum-hefur gengið
heldur illa upp á sfðkastið og vonuð-
ust menn til að í þessum leik tæk-
ist liðunum að kippa hlutunum í
lag. En svo fór ekki, og var leikur-
inn umfram allt grófur og bitnaði
þau náttúlega mikið á gæðunum.
Þau fáu augnablik sem áhorfendum
var skemmt voru þau sem Urugay-
búinn hjá Matra, Enzo Fransescoli,
var með boltann. Sá er hreinn snill-
ingur, og lék hann þama einn sinn
besta leik í vetur, þrátt fyrir að
vera í strangri gæslu allan tímann.
Leikurinn endaði sem sagt 1:1 og
skoraði Krinau fyrir Matra og San-
djak fyrir PSG.
í þessari umferð voru skomð 27
mörk og gerðu erlendir leikmenn
16 þar af. í því sambandi má geta
þess að 14. apríl verður tekin fyrir
tillaga hjá franska knattspymu-
sambandinu um að gefa leyfi fyrir
því að fjölga erlendum leikmönnum
úr tveimur í þrjá í hveiju félagsliði.
■ Úrsllt B/16
■ Staðan B/16
Arnór Guðjohnsen:
Vorum með
hugann við
bikarleikinn
Lið FC Bmgge skaust upp að
hlið Antwerpen á toppnum er
liðið vann St. Truiden 2:1 á heima-
velii þar sem Antwerpen tapaði stigi
> Ghent. Anderlecht
Frá Bjama sigraði Cercle
Markússyni Bmgge 2:0 á heima-
iBelgíu veUi Arnór Guðj0_
hnsen sagði leik-
menn liðsins hafa verið með hugann
bikarleikinn við Mechelen á morgun
en það er fyrri viðureign þessara
stórliða í keppninni „Ég var sæmi-
lega ánægður með minn hlut í leikn-
um,“ sagði Amór í samtali við
Morgunblaðið, um viðureignina við
Cercle Bmgge. Bmgge-liðið pakk-
aði í vöm og leikurinn vár frekar
slakur. Kmcevic skoraði bæði mörk
Anderlecht. sitt í hvomm hálfleik.
SKOTLAND
Varamenn-
irnir voru
hetjur Celtic
Leikmenn Celtic tryggðu sér rétt
til að leika til úrslita í skosku
bikarkeppninni, á elleftu stundu á
Hampden Park. Þar lögðu þeir
Hearts að velli, 2:1, eftir að staðan
var, 0:1, fyrir Edinborgarliðið þegar
tvær mín. vom til leiksloka. Vara-
maðurinn Mark McGhee jafnaði,
1:1, fyrir Celtic eftir homspymu á
88. mínútu og annar varamaður,
Andy Walker skoraði sigurmarkið,
einnig eftir homspymu, þegar
örfáar sek. vom til leiksloka.
Þrátt fyrir stórleik Charlie Nicholas,
fyrrnrn leikmann Celtic og Arsenal,
náði Aberdeen ekki að leggja
Dundee á Dens Park, þar sem jafn-
tefli varð, 0:0.
KNATTSPYRNA / ÍTALÍA
Maradona skoraði
beint úr aukaspymu
Napolí heldurfjögurra stiga forystu
tapPortó
Evrópumeistarar Portð töp-
uðu sínum fyrsta leik í
deildarkeppninni í vetur um
helgina er þeir mættu Sporting
frá Lissabon. Sporting vann 2:1,
en Portó hefur þó enn sex stiga
forystu í keppninni um meist-
aratitilinn.
Níu leikir em eftir í deildinni
og ekkert virðist geta komið í
veg fyrir sigur Portó. Liðið hef-
ur 49 stig en Benfica, sem hefur
43 stig, er í öðm sæti. Benfica
sigraði Rio Ave 1:0 á útivelli
með marki gömlu kempunnar
Femando Chalana á 30. mín.
Benfíca leggur nú aðal áherslu
á Evrópukeppni meistaraliða,
þar sem félagið á góða mögu-
leika á að komast í úrslit. Gerði
jafntefli við Staeua Búkarest í
fyrri leiknum í undanúrslitun-
um, á útivelli, og í leiknum á
sunnudag- vom fimm sterkir
leikmenn hvfldir, þar á meðal
framherjamir Rui Aguas og
Mats Magnusson, sem meiddust
lítillega í leiknum gegn Staeua
á dögunum.
Mörk Sporting gegn Portó gerðu
Paulinho Cascavel og Mario
Jorge en Jorge Placido svaraði.
Sporting er nú í fímmta sæti
og á góða möguleika á UEFA-
sæti næsta vetur.
■ Úrsllt/B 16
■ StaAan/B 16
lan Rush sýndi gamla takta með
Juventus og skoraði.
DIEGO Maradona var enn einu
sinnl í sviðsljósinu á Ítalíu.
Þrátt fyrir að vera meiddur
mætti hann tvíefldur til leiks
og skoraði glæsilegt mark -
beint úr aukaspyrnu, sem
tryggði Napolí sigur, 1:0, yfir
Inter Mílanó. lan Ru'sh var
einnig á skotskónum og hol-
lenski landsliðsmaðurinn Van
Basten, sem lék á ný með AC
Mflanó eftir fjarveru vegna
meiðsla.
Ian Rush átti góðan Ieik með
Juventus, sem varð að sætta sig
við jafntefli, 1:1, gegn Ascoli, sem
varð undan til að skora. GioVanelli
skoraði markið.
Brynja Rush náði að jafna
Tomerskrífar fyrir Juventus.
fráltalíu Milan lagði Empoli
að velli, 1:0. Vari
Ba;:ten skoraði sigurmarkið, sem
var glæsilegt. Hann lék nú sinn
fyrsta leik í langan tíma, en hann
hefur átt við alvarleg meiðsli að
stríða í vetur. Gullit hefur oft leikið
betur en nú, en það sem mestu
máli skiptir er hversu samhent liðið
er, og hversu vel leikmermimir ná
saman. •
Maradona skorar í 13. slnn
Napolí háfði mikla yfírburði gegn
Inter Mflanó og Maradona skoraði
sitt 13. mark á þessu leiktímabili,
en hann er markahæsti leikmaður
deildarinnar. Maradona hefur átt
við meiðsli að stríða á fæti, og áttu
menn ekki von á að hann léki vel
á sunnudaginn. En hann fískaði
aukaspymu og skoraði svo eins og
sannur listamaður úr aukaspym-
unni. Menn áttu erfítt með að trúa
því að Maradona væri ekki heill
heilsu, svo frábærlega lék hann.
Eftir leikinn var Maradona á vellin-
um í tíu mínútur og veifaði til áhorf-
enda. Hann sagðist hafa viljað
þakka þeim fyrir stuðninginn, en
gámngar segja að hann hafí viljað
að áhorfendur þökkuðu honum fyr-
ir leikinn.
Polsteráttl ekki að lelka en
skoraöi
Leik Torino og Pescara lauk með
tveimur mörkum gegn engu. Pes-
cara átti nokkrar sóknir í upphafí
leiksins, en Lorier markvörður Tor-
ino, stóð sig mjög vel í markinu.
Hann réði þó ekki við skot Danans
Bergreen. Polster bætti öðru marki
við. Hann hefur ekki leikið mikið
með liðinu undanfamar vikur, fyrst
vegna leikbanns og síðar vegna
meiðsla í liðböndum. Gigi Radice,
þjálfari liðsins, ákvað á síðustu
stundu að láta Polster leika. Veróna
mátti þola tap, 0:1, fyrir Cesena,
sem vann í fyrsta sinn í Verona,
borg Rómeó og Julíu.