Morgunblaðið - 12.04.1988, Side 8
8 B
jMorgunbtnMb /ÍÞRÓTTtR ÞRHXRJDAGUR 12. APRÍL 1988
KNATTSPYRNA / HOLLAND
Maxwell vill Cruyff
Hyggst gera Utrecht að stórveldi
BRESKI fjölmiðlakóngurinn
Robert Maxwell vill fá Johan
Cruyff til aö taka viö liðí
Utrecht í 1. deild knattspyrn-
unnar á Hollandi. Maxwell vill
gera Utrecht að stórveldi í
hollensku knattspyrnunni og
binda þar með enda á sigur-
göngu PSV Eindhoven.
Maxwell hefur boðið Cruyff
eina milljón sterlingspunda
(um 73 milljónir ísl. kr.) fyrir að
taka við liðinu. Þeir hittust fyrir
skömmu og Cruyff mun hafa
áhuga á að taka við Utrecht ef
hann hafnar tilboði Barcelona.
Hann hefur sagt að hann muni
að öllum likindum skrifa undir
samning við Barceiona í vikunni,
en hefur einnig látið í ljós áhuga
á að vera áfram í Holiandi og
þjálfa þar lið í 1. deild. '
Johan Cruyff hefur viku til að
ákveða sig hvort hann tekur við
Barcelona á Spáni eða gerir hol-
lenska liðið Utrecht að stórveldi
undir stjóm Robert Maxwell.
SALZBURG
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
tölvupretitarar
Tölvuprentarar f rá STAR styðja þig í starfi. Þeir eru
áreiðanlegir, hraðvirkir og með úrvali vandaðra letur-
gerða. STAR prentarar tengjast öllum IBM PC tölvum
og öðrum sambærilegum. Níu gerðir fyrirliggjandi.
Söluaðilar:
Andi sf., Hverfisgötu 105,105 Reykjavík
Atlantis, Laugavegi 168,105 Reykjavik
Einar J. Skúlason hf., Grensásvegi 10, 108 Reykjavík
Gisli J. Johnsen sf., Nýbýlavegi 16,200 Kópavogi
GunnarÁsgeirsson, Suöurlandsbraut 16, 108 Reykjavík
Heimilistæki sf., Sætúni 8, 125 Reykjavík
Hugtak hf., Vestmannabraut 25,902 Vestmannaeyjum
Hugur hf., Hamraborg 12, 200 Kópavogi
Magnús sf., Bolholti 6,105 Reykjavík
Penninn, Hallarmúla 2,108 Reykjavík
Reiknistofa Vestfjarða, Aðalstræti 24,400 Isafjörður
Skrifstofuvélar hf., Hverfisgötu 33,105 Reykjavík
Stuöull, Skagfiröingabraut 6, 550 Sauðárkróki
Traust, Ragnar Jóhannss., Miöási 11,700 Egilstöðum
Tölvusamskipti, Skipholti 35,125 Reykjavík
Tölvutæki-Bókval hf., Kaupvangsstræti 4, 602 Akureyri
Tölvuvörur, Skeifunni 17,108 Reykjavík
TENNIS / DAVIS-BIKARINN
Reuter
Stefan Edberg er hér „tolleraður" af félögum sínum í sænsku landsliðinu eftir sigurinn á Mecir í síðasta leiknum.
Edberq bjargaði Svíum
Tryggði Svíum sæti í undanúrslitum með sigri i síðasta leikn-
um. Júgóslavía, V-Þýskalandi og Frakkland í undanúrslit
STEFAN Edberg tryggði Svíum
sæti í undanúrslitum Davis-
bikarsins í tennis með naumum
sigri á Tékkanum Miloslav
Mecir í síðasta leiknum. Leik-
urinn stóð yfir í tæpa fjóra tíma,
en Edberg sigraði í síðustu
hrinunni, 9:7. Svíar sigruðu því
3:2 og eru komnir í undanúrslit
ásamt V-Þjóðverjum, Frökkum
og Júgóslövum.
Tékkar unnu fyrsta leikinn, en
Svíar næstu tvo. Eftir það
héldu flestir að sigur Svía væri í
höfn, en Milan Srejber, sem kom
inn í lið Tékka sem varamaður, kom
á óvart og sigraði Mats Wilander.
Það var því leikur Edberg og Mecir
sem réði úrslitum. Mecir sigraði í
fyrstu hrinunni, 4:6, en Edberg
jafnaði, 6:1. Mecir náði forystunni
að nýju, 4:6, en aftur jafnaði Ed-
berg, 6:4. Síðasta hrinan réði því
úrslitum og eftir langa viðureign
tókst Edberg að að knýja fram sig-
ur er Mecir sló boltann í netið eftir
góða uppgjöf Edberg.
Flestir höfðu spáð Svíum sigri í
þessum leik, enda eru í liðinu tveir
bestu tennisleikarar heims, Wiland-
er og Edberg. En Tékkar komu á
óvart og vantaði ekki mikið upp á
■'að hnekkja veldi Svía sem hafa
fímm sinnum sigrað í keppninni.
gerald að mæta Leconte. „Ég vakti
langt fram á nótt og horfði á golf
í sjónvarpinu. Hefði ég vitað að ég
myndi spila morgunin eftir þá hefði
ég farið fyrr að sofa,“ sagði Fitz-
gerald sem fékk hræðilega útreið
gegn Leconte í leiknum.
V-Þjóöverjar skelltu Dönum
V-Þjóðveijar þurftu ekki að hafa
mikið fyrir sigri sínum á Dönum.
V-Þjóðveijar unnu alla leikina með
yfírburðum, samtals 5:0 og Becker
og Eric Jelen unnu tvo síðustu leik-
ina á innan við klukkustund.
Yfírburðir Þjóveija voru ótrúlegir
og það er búist við miklu af liðinu
í undanúrslitum, en V-Þjóðveijar
mæta Júgóslövum. Nikola Spear,
þjálfari Dana, var mjög hrifínn af
leik Þjóðveija: „Þeir geta náð mjög
langt með þetta lið, jafnvel sigrað.
Með Boris Becker í liðinu geta þeir
verið öruggir með að minnsta kosti
tvo vinninga."
Boris Becker mætir Zivojinovic,
sterkasta manni Júgóslava: „Hann
er mjög góður þegar mikið íeggur
við, en hann er svolítið latur. Ef
að hann æfði betur gæti hann verið
meðal tíu bestu í heiminum,“ sagði
Becker, sem er í 4. sæti á heimslist-
anum.
Júgóslavar sigruðu ítali 4:1 og
tryggðu sér þar með sæti í undanúr-
slitum i fyrsta sinn. Það var fyrst
og fremst frábær leikur Slobodan
Zivojinovic sem tryggði Júgóslövum
sigur, en hann sigraði Paolo Cane,
sterkasta mann ítala í rúmlega
fímm tíma leik.
Það verða því V-Þýskaland og
Júgóslavía sem mætast í öðrum
undanúrslitaleiknum og í hinum
leiknum mætast Svíþjóð og Frakk-
land.
Auðvelt hjá Frökkum
Frakkar áttu ekki í nokkrum vand-
ræðum með Astralíumenn sem léku
án Pat Cash. Frakkar sigruðu, 5:0,
en þetta var fyrsti sigur þeirra á
Ástralíumönnum í Davis-bikamum
í 62 ár eða síðan 1925. Þetta var
jafnframt í fyrsta sinn í 14 ár sem
Ástralíumenn komast ekki í undan-
úrslit.
Það voru Yannick Noah og Henri
Leconte sem lögðu grunninn að
sigri Frakka. Þeir sigruðu í tvíliða-
leik, þrátt fyrir að hafa ekki leikið
sérlega vel. Eftir tapið í fyrsta
leiknum var sem allur vindur væri
úr Ástralíumönnum og þeir töpuðu
síðustu leikjunum, flestum með
miklum mun.
Noah og Guy Forget unnu svo ör-
uggan sigur á Darren Cahill og
Mark Woodforte og tryggðu Frökk-
um sigur, 5:0.
Það var ekki til að bæta ástandið
hjá Ástraliumönnum að þeirra besti
maður, Darren Cahill, gat ekki leik-
ið vegna matareitrunar. Það varð
því að kasta upp á hver mætti
Henri Leconte í næst síðasta leikn- Borls Bscker lék mjög vel gegn Dönum. Hann mætir Júgóslövum í undanúr-
um og það kom í hlut John Fitz- slitum.
+