Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 7 PRESTASTEFNU LOKIÐ: Stóraukin fræðsla ogfærriíhóp TORFI Stefánsson er formaður fermingarstarfanefndar sem lagt hefur fram tillögur á Prestastefnunni um stóraukna fermingarfræðsluskyldu. Til- lögurnar fela í sér að fræðsl- utímar verði minnst 60 kennslu- stundir og fermingarhópur tak- markist við 20 börn. Verði hóp- ur stærri en 25 börn verður leyfi prófasts að koma til. Þá er i tillögunum gert ráð fyrir að hver fermingarfræðari hafi ekki fleiri en 80 börn eða 4 hópa á fræðslutímabilinu en i dag þekkist að fermingarfræð- ari hafi allt upp í 200 börn. Að sögn Torfa eru þetta ekki nýjar tillögur því á Prestastefnu árið 1965 og 1972 komu fram samþykktir um að fræðslustundir skyldu ekki vera færri en 30 en það hefur verið virt að vettugi og um 50% fermingarfræðara hefur haft færri fræðslustundir. Sumir fermingarfræðarar hafa allt að einum og hálfum árslaunum prests fyrir fermingarstörf og að sögn Torfa virðist sem þeir séu tilbúnir að ráða sér aðstoðarfólk og láta um leið af hendi hluta launa sinna. Verði erfiðleikum bundið að fá fermingarfræðara til samstarfs um þetta atriði er sú spuming fyrir hendi hvort beri að skikka þá til þess, að sögn Torfa. Þær breytingar sem verið er að ræða á Prestastefnu núna voru framkvæmdar á Norðurlöndum fyrir 15 árum. Tillögur fermingar- starfanefndar byggja á þeim breytingum og á könnun um við- horf og vinnubrögð fermingar- fræðara sem nefndin lét gera. „Það 'er í sjálfu sér í lagi þó tillög- umar verði ekki samþykktar á þessari Prestastefnu. Það tók mörg ár að breyta þessu á hinum Norðurlöndunum," sagði Torfi. „Hér er um að ræða 3-4 ára áætl- un sem lýkur með því að ný nám- skrá verður gerð. Fermingar- starfanefnd mun móta þessa nýju námskrá og í framhaldi af því verður að búa til nýtt íslenskt fermingarkver. Það gengur ekki að vera endalaust að þýða erlend kver. En fyrsta verkefnið er að gera samræmda námskrá sem gerir ráð fyrir að fermingarfræð- arar kenni sama efni og kenni jafn mikið. Tillögur fermingar- starfanefndar miða að auknum gæðum fræðslunnar," sagði Torfi Stefánsson. Morgunblaðið/Sverrir Torfi Stefánsson formaður ferm- ingarstarfanefndar sem hefur lagt stefnumótandi tillögur fyrir Prestastefnu 1988. Fermingin: „Ekki burtfararpróf“ SIGMAR Torfason prófastur í Múlaprófastdæmi hefur verið prestur á Skeggjastöðum frá 1944 og lætur af störfum í ágúst næst- komandi. Hann var inntur eftir fermingarstarfi í sinni sókn. „Undirbúningur undir fermingu hefst strax með starfi því sem prest- ur hefur með bömum. Það er ólíkt með fámennum söfnuði og þeim stærri að fermingarfræðslan hefst strax í þeim fámennari. Mér hefur þótt þessi leið árangursríkari en aðr- ar en ég vil leggja áherslu á að ég lít ekki á ferminguna sem burtfarar- próf. Því er öfugt varið. Fermingin er innganga í samfélag krist- inna manna. Eins finnst mér að ekki megi leggja of mikla áherslu á fræðslu og aftur fræðslu. Þess verð- ur að gæta að samband myndist á milli fermingarbama og kirkjunnar en ekki að þetta samband rofni," sagði séra Sigmar sem var á hrað- ferð því umræður á Prestastefnunni vom að hefjast. Séra Sigmar Torfason frá Skeggjastöðum telur árang- ursríkast að fermingarfræðslan hefjist þegar börn eru á unga aldri. Nesti sem aldrei eyðist - segir Auður Eir Vilhjálmsdóttir AUÐUR Eir Vilhjálmsdóttir er prestur á Þykkvabæ í Kirkju- hvolsprestakalli. Hún lýsti yfir ánægju sinni með Prestastefn- una og sagði hana nauðsynlega fyrir þá sem koma frá ystu dölum og annesjum svo þeir gætu skiptst á skoðunum við starfsbræður sína. Blaðamaður spurði hana hvað hún teldi mik- ilvægast í fermingarfræðslunni. „Fræðsla, tilbeiðsla og samfélag er það sem mest á ríður og þessir þættir verða allir að fara saman." Aðspurð hvort þörf væri á því að Prestastefnan væri helguð um- ræðum um ferminguna sagði hún: „Það er mikil þörf á því. Þetta er mikilvægur vetur í lífí barna og heimilanna og mikilvægt tækifæri fyrir kirkjuna að koma sínum boð- Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið/Sverrir Auður Eir Vilhjálmsdóttir prest- ur í Þykkvabæ. skap til leiðar. Fermingin er tæki kirkjunnar til að ná til barna og heimila. Varðandi undirbúning ferming- ar sagði Auður: „Að jafnaði ferm- ast 10-20 böm og ég undirbý þau að mestu í mánuðinum fyrir jól. Eg hef námskeið á laugardögum þar sem við ræðum saman. Mig langar til að kenna börnum að biðja og að lesa Biblíuna. Til þess nota ég Barnabiblíuna og Nýja Testamentið. Börnin sýna Biblí- unni mikinn áhuga. - Hvernig eru börnin undir- búin þegar þau koma til þín? „Það er misjafnt og fer sjálfsagt eftir kennurum. Flest eru þau ágætlega undirbúin og sum eru mjög vel að sér. En ef barn lærir að lesa Biblíuna og biðja hefur það nesti í farteskinu sem aldrei eyðist. SUM ARSYNINGIN ERí SUNDABORG UM ÞESSA HELGI Á sumarsýningunni í ár getur þú kynnst kostagripum okkar af eigin raun: Glæsilega innréttuð hjólhýsi; tjaldvagnar sem eru þrautreynd- ir fyrir íslenskar aðstæður; gróðurhús, farangurskassar og margt fleira af spennandi sumarvöru. í dag er opið frá kl. 10 til 17 og á morgun verður opið frá kl. 13 til 17. Gísli Jónsson & Co Sundaborg 41 s. 686644
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.