Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTT1R LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 67 ENGLAND Uverpool mætir Charlton Skrá yfír leiki og leikdaga í ensku knattspymunni næsta keppnistímabil var birt í gær. Meistarar Liverpool munu leika gegn Charlton á útivelli í fyrstu umferðinni, sem leikin verður í ágúst. Meðal annarra leikja í fyrstu umferðinni má nefna: Manchester United - QPR Wimbledon - Arsenal Tottenham - Coventry Everton - Newcastle Aston Villa - Millwall Derby - Middlesbrough. Strax í annarri umferð verður stórleikur á Anfíeld Road í Li- verpool. Þá mætast tvö efstu liðin síðasta keppnistímabil, Li- verpool og Manchester United. 2. DEILD Sexgul spjöld á loftiá Siglufirði TÓMAS Kárason var hetja Sigl- firöinga í gærkvöidi, með því að skora jöfnunarmarkið, 2:2, gegn Víði á elleftu stundu. Tómas skoraði jöfnunarmarkið eftir hornspyrnu á 91. mín., en seinni hálfleikurinn stóð yfir í fimmtíu mín. Olafur Sveinsson, dómari leiks- ins, var mikið í sviðsljósinu. Hann sýndi sex leikmönnum gula spjaldið. Þeim Baldri Benónýssyni, Hafþóri Kolbeins- syni, Birgi Ingi- mundarsyni og Paul Friar hjá KS og Sævar Leifssyni og Björgvin Björgvinssyni, Víði. Rigning og pollar settu svip sinn á leikinn, sem var mikill baráttuleik- ur. Vilberg Þorvaldsson skoraði fyrst fyrir Víði á 17. mín., eftir að hafa leikið á Magnús Jónsson, markvörð KS. Björgvin Björgvins- son átti síðan skot sem hafnaði á slánni á marki KS. Paul Friar jafn- aði fyrir KS á 38. mín., eftir að Steve Rutter hafði átt skot á stöng. Friar átti þrumuskot af 25 m færi í seinni hálfleik, en knötturinn small þá á þverslánni á marki Víðis- manna. Þegar aðeins fimm mín. voru til leiksloka skoraði Guðjón Guðmundsson, 1:2, úr vítaspymu, fyrir Víði. Leikmenn KS gáfust ekki upp og sóttu án afláts að marki Víðismanna. Þeim tókst að jafna metin. Tómas Kárason skor- aði markið eftir homspymu. Leikn- um lauk með sanngjömu jafntefli, 2:2. Frá Rögnvaldi Þórðarsyni á Siglufirði KS-Víðir 2:2 (1:1) Mtirk KS: Steve Rutter (38. mtn.) og Tómas Kárason (91. mln.). Mörk Vlðis: Vilberg Þorvaldsson (17. mín.) og Guðjón Guðmundsson, víta- spyma (85. mín.). Maður leiksins: Tómas Kárason, KS. KÖRFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD Hreinn Þorkelsson í Val Morgunblaðið/Einar Falur Hreinn Þorkelsson mun leika með Val næsta vetur, en hér á hann i bar- áttu við Torfa Magnússon. Torfi hefur lagt skóna á hilluna og mun þjálfa liðið, en Hreinn tekur líklega stöðu Torfa í Valsliðinu. HANDKNATTLEIKUR Steindór þjálfar Framliðið Steindór Gunnarsson, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik úr Val, hefur verið ráðinn þjálfari íslandsmeistaraliðs Fram í kvennahand- knattleik. Steindór þjálfari karlaiið Selfoss sl. keppnistímabil. Framliðið mun taka þátt í Evrópukeppni meistaraliða næsta vetur. HREINN Þorkelsson, einn leik- reyndasti leikmaður ÍBK und- anfarin ár, hefur ákveðið að leika með Valsmönnum í úr- valsdeildinni í körfuknattleik næsta vetur. Hreinn á fjöl- marga landsleiki að baki og mun líkiega fylla skarð Torfa Magnússonar sem hefur lagt skóna á hilluna, en mun ein- beita sér að þjáifun Valsliðsins. Mér lýst bara vel á þetta og held að Valsliðið sé mun sterkara en árangurinn síðasta ár gaf til kynna,“ sagði Hreinn Þokels- son í samtali við Morgunblaðið. „Ég hef mikla trú á Torfa sem þjálfara, hann þekkir liðið og hefur mikla reynslu. Auk þess eru margir góðir leikmenn í liðinu og Valur verður örugglega meðal efstu liða í deild- inni.“ Hreinn hefur leikið á annað hundr- að leiki með ÍBK og 44 landsléiki. „Keflvíkingar spjara sig, það er engin hætta á öðru. Þeir verða sterkir í vetur og það munar ekkert um þó að einn fari.“ Lið Vals hefur ekki tekið miklum breytingum. Torfi Magnússon hefur þó lagt skóna á hilluna og tekur við þjálfun liðsins af Bandaríkja- manninum Steve Bergman. Þá er Matthías Matthíasson kominn heim frá Bandaríkjunum og mun leika með liðinu næsta vetur. KNATTSPYRNA Evrópukeppnin í Svíþjóð 1992? Svíar og Spánveijar hafa sótt um að halda Evrópukeppni landsliða 1992. „Það verður ekki tekin ákvörðun um það fyrr en seinna á árinu, hvar keppnin fer fram. Flestir reikna með að Svíar fái keppnina, þar sem Spánveijar héldu heimsmeistarakeppnina 1982 og Ólympíuleikamir fara fram í Barcelona 1992,“ sagði Ellert B. Schram, formaður Knattspymusambands íslands, sem sat ársþing UEFA í Miinc- hen, sem lauk í gær. Ellert sagði að það væri langt um liðið síðan Sviar hafí haldið stór- mót í knattspymu. „Þeir héldu heimsmeistarakeppnina 1958.“ KNATTSPYRNA / 2. DEILD Hvað sögðu þeir: „Ánægður meðbar- áttuna" Eg var ánægður með baráttu minna manna og að þeir skyldu ekki gefast upp eftir slæma byijun. Okkur tókst að yfirspila þá á köflum í seinni hálfleik og áttum stigið skilið. Við munum stefna ótrauðir að 1. deildarsæti en tökum einn leik fyrir ( einu“ sagði Marteinn Geirsson þjálfari Pylkis eftir leikinn. „K»ruleysi“ Ég er óánægður með að tapa stigum á heimavelli. Við vorum of kærulausir og þetta kennir okkur að við megum ekki slaka á. Við misstum tök á miéljunni í seinni hálfleik og FVlkismenn notfærðu sér það. I heildina veiða úrsiitin sennilega að te(ji ast sanngjöm" sagði Helgj Rágnarsson annar þjátfara FH. Martelnn Gelrsson Kristján Hllmarsson skorar hér glæsimark sitt I samskeyti Fylkismarksins. MorgunbiaðuVKGA Jaf ntefli í toppslagnum FH-ingar misstu niðurtveggja marka forskot gegn Fylki FH-INGAR töpuðu fyrstu stig- um sínum í 2. deild, er þeir gerðu jafntefli við Fylki 2:2, á Kaplakrikavelli í gær. Þeir eru þó langefstir í 2. deild með 16 stig og hafa fjögurra stiga for- skot á Fylkismenn, sem koma næstir. Leikurinn var opinn skemmtileg- ur á að horfa en mjög köflótt- ur. FH-ingar sóttu linnulítið fyrsta hálftímann og skoruðu þá tvö mörk. Fyrra markið var Guðmundur sérlega glæsilegt. Jóhannsson Þá fékk Pálmi Jóns- sknfar son knöttinn inn í teig, lék honum áfram og gaf síðan „Lothar Matt- háus-hælsendingu á Kristján Hilm- arsson er kom aðvífandi og skaut þrumuskoti efst í markhornið. Síðara mark FH skoraði Kristján Gíslason eftir samleik í gegnum vöm Fylkis. Eftir þetta jafnaðist leikurinn og áttu Fylkismenn ágæt færi, sem þeir nýttu ekki. Þeir voru síðan miklu ákveðnari í seinni hálfleik og sköpuðu sér mýmörg færi og FH- ingar fengu einnig sín. Fylkir fékk síðan vítaspymu á 58. mínútu en Halldór Halldórson varði vel skot Amar Valdimarssonar. Menn bjug- gust eftir þetta við sigri FH en annað kom í ljós. Þegar aðeins 12 mínútur vom tii leiksloka tókst Jóni Guðmundssyni að minnka muninn og aðeins mínútu síðar jafnaði Bald- ur Bjamason með skalla. Fýlkis- menn vom síðan nær því að skora þriðja markið en FH-ingar það sem eftir var. Úrslit leiksins verða sennilega að teljast sanngjöm. FH-ingar vom betri fyrst en féllu i þá gryfju að hætta að taka á eftir að hafa skor- að og Fylkismenn gengu á lagið með mikilli baráttu. Mörkin hefðu hins vegar getað orðið miklu fleiri, svo opinn var leikurinn. Baldur Bjamason var bezti maður Fylkis en hjá FH vom Halldór Halldórsson og Pálmi Jónsson einna sprækastir. FH - Fylkir 2 : 2(2 : 0) Mörk FH: Kriatján Hilmarsson (17. mfn.), Kristján Gíslason (25. mín.). Mörk Fylkis: Jón Guðmundsson (79. mín.), Baldur Bjarnason (80. mín.). Maður leiksins: Baldur Bjamason, Fylki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.