Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JUNI 1988 47 ræði læknastéttarinnar í þessum efnum er fáránleg tímavilla í nútím- anum. Og einhvers staðar verður að bytja hvað þetta varðar. Þess vegna hef ég farið af stað með skrif mín í vetur, einungis til að vekja fólk til umhugsunar. Ég hef ekki þolinmæði til að bíða eftir því að mér vitrari og hæfari maður taki til máls. Ég hef fært rök að því að geymsla sjúkragagna von úr viti, án nokkurrar aðgreiningar eftir eðli þeirra, geti verið hagsmun- um sjúklinga skaðleg. Ástæða væri reyndar til að treysta þennan rök- stuðning á ýmsan hátt. En jafnvel eins og hann stendur verður honum ekki svarað með því að yppta öxlum eða með þungri þögn. Enginn lækn- ir hefur þó séð ástæðu til að víkja að skrifum mínum einu orði. Þeir eru nógu pennaglaðir sín á milli, eins og best sást í bjórmálinu þar sem þeir kepptust við að sýna fram á faglegar vitleysur hvers annars. En þeim finnst greinilega ekki ómaksins vert að virða leikmann viðlits, jafnvel þó hann sé einungis að skrifa um réttindamál sjúklinga en ekki sérheim læknisfræðinnar. Kannski standast ekki rök mín og þau eru heldur ekki endanleg. En þeim verður þó aðeins hnekkt með öðrum rökum. En jafnvel þó engin rök mín um þetta atriði stæðust út af fýrir sig, ómerkir það ekki málflutning minn. í bili geta lesend- ur sjálfir reynt að átta sig á því hvers vegna. Læknaleikur Hér verður að öðru leyti ekki farið lengra út í þessa sálma. Grein- inni er fyrst og fremst beint gegn svörum stjórnar Læknafélags Is- lands við spurningum mínum. Og ég hef sýnt fram á það í smáatrið- um að svörin eru óljós og villandi ef ekki sum beinlínis röng. Þau eru ekki marktæk. Er það dapurlegur vitnisburður um afstöðu læknis- stéttarinnar til almennings. Því auðvitað gætu þeir svarað eins og menn. Þeir eru bara enn í lækna- leik. Það er háttur lækna að svara helst engu ef þeir eru spurðir. En ef þeim er ekki undankomu auðið verða svör þeirra svo óljós og frá- vísandi að spytjendur eru engu nær. Almenningur á ekki að láta lækna eða aðra embættismenn komast upp með svona háttalag. Fólk á að krefjast þess að þeir svari skýrt og skorinort spumingum al- mennings um málefni er varða hvert mannsbarn í landinu. Þeirri sjálfsögðu kröfu er ekki ætlað að spæla einn né neinn eða klekkja á neinum, heldur skapa gagnkvæmt traust milli almennings og stjóm- valda. — Það er svona einfalt. P.S. Sérlegur útsendari minn hefur nú komist að því hveijir sitja í stjórn Læknafélags íslands. Það eru ekki Kasper, Jesper og Jónatan og ekki heldur Gísli, Eiríkur og Helgi. Öllum á óvart reyndust þau vera: Sigríður Þóra Magnúsdóttir, Þorkell Bjarnason, Gestur Þorgeirs- son sérfræðingur í lyflækningum, Ari Jóhannesson sérfræðingur í innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum, Sveinn Magnússon sérfræðingur í lyflækningum, Kristján Eyjólfsson sérfræðingur í hjartasjúkdómum, Sverrir Bergman yfirlæknir og sér- fræðingur í taugasjúkdómum, Haukur Þórðarson yfírlæknir og sérfræðingur í endurhæfíngarlækn- ingum. Vegaframkvæmdir á Austurlandi 1988: Vegabætur í Eskifirði og til Norðfjarðar í ÁÆTLUN um vegafram- kvæmdir á Austurlandi er gert ráð fyrir miklum vegabótum á leiðinni til Norðfjarðar og um Fáskrúðsfjörð. Lagt er fé í und- irbúning vegarlagningar yfir Búr, suður af Vopnafirði. Hér á eftir er sagt frá einstökum verkefnum og staðsetning þeirra er sýnd á kortinu. Austurlandsvegur. Blábjörg-Hofsá. Fjárveiting er 12,3 m.kr. og að auki verður unn- ið fyrir viðhaldsfé. Vegur verður styrktur á köflum og réttur af. Lögð verður klæðing 8,5 km. Vegagerðin vinnur verkið og er áætlað að því ljúki í byijun júlí. Ossurá-Reyðará. Fjárveiting er 7,2 m.kr. og auk þess verður unnið fyrir viðhaldsfé. Vegur verð- ur réttur af og lögð klæðing 4,7 km. Vegagerðin vinnur verkið og er áætlað að því ljúki í byijun júlí. Mýri-Hof. Fjárveiting er 12,0 m.kr. og auk þess verður unnið fyrir viðhaldsfé. Lokið verður við nýbyggingu vegar 7,2 km. Verk- takafyrirtækið Fell sf. á Höfn vinnur verkið og ér skilafrestur l. júlí. Vegagerðin leggur klæðn- ingu á kaflann í júlí. Norðausturvegur. Sunnudalsvegur-Teigará. Fjárveiting er 7,0 m.kr. Vegur verður endurbættur um 5,0 km upp Burstafellsbrekkur. Vega- gerðin vinnur verkið í júní ogjúlí. Jökulsárhlíð-Krossvík. Fjár- veiting er 1,0 m.kr. Unnið verður við tæknilegan undirbúning vegar yfir Búr. Norðfjarðarvegur. Um Hólmaháls. Fjárveiting 4,8 m. kr. Lögð verður klæðing 1,8 km. Frá Hólmahálsi að Eskifjarðará verður vegur styrktur og end- urnýjuð klæðing 2,5 km fyrir við- haldsfé. Vegagerðin vinnur verkið í júní og júlí. Við Eskifjörð. Fjárveiting er 8,0 m.kr. Lokið verður við nýbygg- ingu vegar á 0,7 km og gata upp úr Eskifirði endurbyggð 0,3 km. Vegagerðin vinnur verkið í júní og júlí. Eskifjörður-Beljandi. Fjár- veiting er 23,1 m.kr. Lokið verður við undirbyggingu vegar 2,5 km, en yfirbygging og frágangur verða unnin næsta sumar. Verkið er boðið út og á verktaki að skila undirbyggingu í byijun október, en veginum í heild á að vera lokið í byijun ágúst á næsta ári. Seyðisfjarðarvegur. Neðri Stafur - Efri Stafur. Fjárveiting er 13,8 m.kr. Lokið verður við frágang vegar á 4,0 km og lögð klæðing. Vegagerðin vinnur verkið í júní og júlí. Bakkaíjörður Vopnafjöröur Sunnudalsvegur -Teigará 7,0 m.kr. Seyðisfjörður Egilsstaðir- ^-Jökuldalsvegur 7,0 m.kr. Atlavik -Hafursá 12,9 m.kr. Slöðvarljörður Djúpivogur AUSTURLAND VEGAÁÆTLUN, 1988 Borgarfjörður cystri Neðri-Stafur-Efri-Stafur 13,8 m.kr. AKVEGIR þeir sem hér eru sýndir eru einungis númeraðir vegir, hringvegurinn, tveggja ogþriggja tölu vegirsvo og fjallvegir með F-númerum. Bretðdalsvik ■ Lsævarendaströnd 9,0 m.kr. Össurá-Reyðará—x 7,3 m.kr. \ Skaftafcll * 25 km i Flugvallarvegur 3,8 m.kr. v. Eskifjörð-i / Neskaupstaður 8, Rcyðarijörður___^E^nörður -Be^nd^ um 23'1 m kr' 4,8 m.kr. Fáskrúðsfjörður ^___ — Skrtður- ‘-Höfðahús 15,1 m.kr. Mýri-Hof—' Fagurhólsmýrt 12,0 m.kr. Morgunbldðið/ GÓI Suðurfjarðarvegur. Skriður-Höfðahús. Fjárveiting er 15,1 m.kr. Vegur verður endur- bygKður 4,9 km. Verkið verður boðið út í júní og á verktaki að skila því fyrir haustið. Sævarendaströnd. Unnið verð- ur fyrir viðhaldsfé. Vegur verður styrktur 9,0 km. Verkið verður unnið í haust og verður a.m.k. að hluta boðið út. Jökuldalsvegur. Fjárveiting er 7,0 m.kr. Unnið var fyrir hluta fjárveitingar sl. haust og verður unnið að lagfæringum á ýmsum stöðum á Jökuldalsvegi í sumar. Vegagerðin vinnur verkið Upphéraðsvegnr. Atlavík-Hafursá. Fjárveiting er 12,9 m.kr. Vegur verður réttur af og lögð klæðing 4,6 km. Vega- gerðin vinnur verkið í júní og júlí. Flugvallarvegur á Norðfirði. Fjárveiting er 3,8 m.kr. Byggð verður ný brú og fyllt að henni. Vegagerðin vinnur verkið í haust. ÞATT Kodak Stuðningsaðill Ölympluleikanna 1988 Vertu með í að styrkja Ólympíufara íslands. Það gerirðu með því að kaupa Kodakfilmu eða láta framkalla í neðangreindum verslunum - um leið færðu skafmiða sem getur fært þér skemmtilegan sumarvinning. Hér færðu Kodak Express gæðaframköllun: Verslanir Hans Petersen í Bankastræti, Glæsibæ, Austun/eri, Kringlunni Lynghálsi. Bókaverslun Jónasar Tómassonar, ísafirði. idrésar Níelssonar, Akranesi. Pedrómyndir, Akureyri. Nýja Filmuhúsið, Akureyri. Vöruhús KÁ, Selfossi. Kaupstaður í Mjódd Hljómval, Keflavík. Radíóröst í Dalshrauni og á Linnetstíg, Hafnarfirði. Veda í Hamraborg, Kópavogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.