Morgunblaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
65
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD
Karl átti
stórleik á
Skaganum
Skagamenn skutust upp í ann-
að sætið með öruggum sigri á
KR-ingum ígærkvöldi. Skaga-
menn hófu leikinn mjög vel og
sóttu stíft að KR-markinu og
skoruðu eitt mark í hvorum
hálfleik.
A12 mín. fengu Skagamenn
sitt fyrsta færi; Mark Duffield
átti hörkjuskalla að markinu frá
vítateigshorni eftir aukaspyrnu frá
mHBHH Sigurði Lárussyni,
SigþórEiríksson en Stefán Arnarson,
skrifar nmarkvörður, varði
meistaralega efst í
markhorninu. Eftir
þessa góðu byijun Skagamanna
jafnaðist leikurinn og á 20. mín.
átti Bjöm Rafnsson skot í Þverslá
og yfir.
Skagamenn náðu forystunni á 30.
mín. en þeir höfðu þá átt stórgóða
sókn, sem hófst með því að Hafliði
Guðjónsson gaf fallega sendingu
inn fyrir vörn KR-inga á Karl Þórð-
arson. Karl komst á auðan sjó, sendi
knöttinn fyrir frá endamörkum og
þar kom Gunnar Jónsson og skor-
aði af miklu harðfylgi. Undir lok
fyrri hálfleiks fengu KR-ingar sín
bestu færi í leiknum og hefðu vel
getað jafnað með nokkurri heppni.
I fyrra skiptið átti Bjöm Rafnsson
gott skot í utanverða stöngina úr
þröngu færi og Pétur Pétursson
IA-KR
2 : 0
Akranesvöllur, íslandsmótið í knatt-
spymu, 1. deild, föstudaginn 24. júní
1988.
Mörk ÍA: Gunnar Jónsson (30.), Heim-
ir Guðmundsson (68.)
Gult spjald: Mark Duffield, ÍA (40.)
Áhorfendur: 887.
Dómari: Baldur Scheving 7.
Lið IA: Ólafur Gottskálksson, Hafliði
Guðjónsson, Mark Duffield, Sigurður
Lárusson, Sigurður B. Jónsson, Heimir
Guðmundsson, Ólafur Þórðarson, Guð-
bjöm Tryggvason, Karl Þórðarson,
Gunnar Jónsson, Aðalsteinn Víglunds-
son (Haraldur Ingólfsson á 80. mín.)
Lið KR: Stefán Amarsson, Rúnar
Kristinsson (Jón G. Bjamason á 72.
mín.), Bjöm Rafnsson, Þorsteinn Guð-
jónsson, Willum Þór Þórsson, Jósteinn
Einarsson, Ágúst Már Jónsson, Gunnar
Oddsson, Pétur Pétursson, Sæbjöm
Guðmundsson, Þorsteinn Halldórsson
(Heimir Guðjónsson 61. mín.)
skaut fram hjá fjærstönginni í
dauðafæri.
í seinni hálfleik hófu Skagamenn
leikinn með sama kraftinum og
þeir hófu þann fyrri, og áttu tvö
ágætis færi. í fyrra skiptið tókst
Willum Þórssyni að komast í veg
fyrir að Heimi Guðmundssyni tæ-
kist að senda knöttinn í mark í
góðu færi og skömmu síðar átti
Aðalsteinn Víglundsson þrumuskot,
en Stefán í markinu varði meistara-
lega er honum tókst með naumind-
um að slá knöttinn yfir.
Þung sókn Skagamanna bar svo
árangur á 68. mín, en þá bættu
þeir öðru marki við. Aðalsteinn átti
stungusendingu inn á Heimi, sem
lék inn í vítateig KR-inga og skaut
þrumuskoti í fjærhornið, óverjandi
fyrir markvörðinn. Eftir þetta var
aldrei spuming hvaða lið færi með
sigur af hólmi. Skagamenn drógu
sig að vísu nokkuð aftar á völlinn,
en sóknarlotur KR-inga voru mátt-
lausar og áttu Skagamenn í litlum
erfiðleikum með að verjast þeim.
Þeir fengu hins vegar nokkrar
skyndisóknir, og á lokamínútunum
hefðu þeir hæglega getað bætt
þriðja markinu við. I eitt skiptið lék
Karl Þórðarson á hvern KR-inginn
á fætur öðrum en gott skot hans
frá vítateig fór rétt fram hjá.
Skagamenn sýndu það og sönnuðu
að þeir eiga fyllilega heima í öðm
sæti í deildinni. Þeir áttu góðan
leik, einkum þó í sðiðari hálfleik.
Baráttan var í góðu lagi hjá þeim
og Karl Þórðarson sýndi að hann
hefur engu gleymt. Lið KR-inga
olli hins vegar vonbrigðum. Það var
eins og einhvem neista vantaði í
liðið og sóknir þeirra vom ekki
sannfærandi, og eftir annað mark
Skagamanna varð leikur liðsins ráð-
leysislegur.
m Karl Þóri g [fn m, ÍA
Guðbjöm Tryggvason, Heimir
Guðmundsson, Sigurður B.
Jónsson, ÍA, Björn Rafnsson,
Willum Þór Þorsson, KR
TENNIS / WIMBLEDON
Morgunblaðið/Július
Pétur Pétursson er öllum hnútum kunnugur á Akranesi, en þar lék hann lengi. Hann sótti þó ekki gull í greipar
fyrmrn félaga sinna því KR-ingar töpuðu þar i gær. Hér á Pétur í baráttu við Sigurð Lámsson, en Hafliði Guðjónsson liggur
í valnum.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Langþrádur sigur
SELFYSSINGAR náöu lang-
þráðum sigri í gærkvöldi er lið-
ið fékk Tindastól í heimsókn.
Eina mark leiksins var skorað
á lokamínútunum eftir nokl.cið
þæfingslegan leik.
Selfossliðið sótti heldur meira
allan leikinn en sóknirnar
gengu ekki upp. Tindastólsmönnum
gekk betur að þessu leyti og áttu
mörg góð færi.
Sigurður Langþráð sigur-
Jónsson mark Selfyssinga
skrifar kom eftir j)unga
sókn þar sem liðið
lék framarlega og tók áhættu því
skyndisóknir Tindastóls vom stór-
hættulegar. En markið, sem Guð-
mundur Magnússon skoraði fimm
íslandsmótið
1. deild
ÞÓR - VlKINGUR.............2:1
ÍA - KR....................2:0
Fj. teikja U J T Mörk Stig
FRAM 6 5 1 0 13: 2 16
ÍA 7 4 3 0 11: 3 15
KR 7 4 1 2 12: 9 13
KA 6 3 1 2 6: 8 10
VALUR 6 2 2 2 7: 5 8
ÞÓR 7 1 4 2 7: 9 7
ÍBK 6 1 3 2 8: 9 6
VÍKINGUR 7 1 2 4 5: 13 5
LEIFTUR 6 0 4 2 4: 6 4
VÖLSUNGUR 6 0 1 5 3: 12 1
mínútum fyrir leikslok, var greini-
lega þess virði.
Liðin léku á blautum velli sem setti
sitt mark á leikinn sem var frekar'
þunglamalegur og mikið um brot.
Segja má að dómarinn hafí málað
síðari hálfleikinn gulan eftir að
hafa gefið leikmönnum of lausan
tauminn í fyrri hálfleik.
Selfoss- Tindastóll
1:0 (0:0)
Mark Selfoss: Guðmundur Magnússon
(85.mín.)
Maður leiksins: Anton Hartmannsson,
Selfossi.
2. DEILD
ÍR- ÞRÓTTUR ..............2:3
SELFOSS - TINDASTÓLL......1:0
FH - FYLKIR ..............2:2
KS - VÍÐIR................2:2
Fj. leikja U j T Mörk Stig
FH 6 5 1 0 14: 4 16
FYLKIR 6 3 3 0 14: 10 12
VÍÐIR 6 2 2 2 12: 8 8
KS 5 2 2 1 12: 11 8
ÍR 6 2 1 3 10: 13 7
SELFOSS 5 1 3 1 8: 9 6
l'BV 5 2 0 3 10: 12 6
TINDASTÓLL 6 2 0 4 10: 15 6
ÞRÓTTUR 6 1 1 4 10: 14 4
UBK 5 1 1 3 9: 13 4
Lendl enn í vandræðum
Sigraði naumlega í 3. umferð í gær. Mandlikova úr leik - tapaði fyrir Önnu Minter
IVAN Lendl, besti tennisleikari
heims samkvæmt lista alþjóð-
lega tennissambandsins ITF, á
enn í vandræðum á Wimbledon
mótinu. Hann sigraði Hollend-
inginn Michiel Schapers naum-
iega í gær í spennandi leik í
3. umferð.
Lendl kann ekki vel við sig á
grasi og það sást í leik hans
gegn Hollendingnum sem er í 43.
sæti á heimslistanum. Schapers
vann fyrstu lotuna, 7:6, en Lendl
vann næstu tvær 7:6 og 6:4. Shca-
pers svaraði með sigri í fjórðu lotu
7:6, en þó tók Lendl við sér og sigr-
aði örugglega 6:1.
Leikurinn var hraður og hvorugur
sparaði kraftinn. Eftir leikinn var
völlurinn illa farinn og engu líkara
en að nautahjörð hefði átt leið hjá.
Lendl, sem hefur aldrei sigrað á
Wimbledon, átti einnig í vandræð-
um í 1. umferð og þeir eru fáir sem
spá honum sigri. Hann getur þó
huggað sig við það að Svínn Jonas
Svensson, sem sigraði hann á opna
franska meistaramótinu, er úr leik.
Hann tapaði fyrir Paul Annacone
sem er mættur aftur til leiks eftir
nokkurt hlé.
Hana Mandlikova, sem nú hefur
öðlast ástralskan ríkisborgararétt,
tapaði óvænt fyrir landa sínum,
Anne Minter, 3:6 og 4:6. Mand-
likova hefur átt við meiðsli að stríða
og hefur það sést á leik hennar.
Minter var hinsvegar mjög kát eft-
ir leikinn og sagði það ekki vafa-
mál að hún væri besta tenniskona
Ástralíu.
Fátt annað hefur komið á óvart,
en búast má við að stjörnurnar
þurfi að hafa meira fyrir næstu
leikjum sínum, enda hart barist um
hvert stig á þessu óopinbera heims-
meistaramóti tennisleikara.
3. DEILD
Áml Sveinsson var á skotskónum
Jafnt hjá
Gróttu
Gerði jafntefli gegn
Aftureldingu
GRÓTTA tapaði fyrstu stigum
sínum í A-riðli 3. deildar er lið-
ið gerði markalaust jafntefli
gegn Aftureldingu í Mosfells-
bæ.
Grindvíkingar eru í 2. sæti
deildarinnar, á eftir Gróttu,
og þeir sigruðu ÍK á Kópavogsvelli
í gær, 3:0. Hjálmar Hallgrímsson,
Pálmi Ingólfsson og Júlíus Pétur
Ingólfsson skoruðu mörk
Grindavíkur.
Stjarnan fikraði sig ofar með ör-
uggum sigri á Leikni, 6:1. Árni
Sveinsson skoraði þrennu, Valdimar
Kristófersson, Heimir Erlingsson
og Jón Árnason eitt hver. Mark
Leiknis var reyndar einnig skorað
af Garðbæingum — í eigið mark.
Loks sigraði Víkvetjar Njarðvík-
inga, 4:1 í Njarðvík. Níels Guð-
mundsson skoraði tvö marka
Víkveija, Ólafur Árnason og Guð-
mundur Bjömsson sitt markið hvor.
Mark Njarðvíkur skoraði Helgi Am-
arson.
Skoraðu með
JVC
JVC spólur
fást í Hagkaup