Morgunblaðið - 25.06.1988, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
4h
GÁLGAHRAUN
eftirÓlaf
Sigurgeirsson
Einhver aðgengilegasti staður
til útiveru og gönguferða hér í
nágrenni Reykjavíkur er Gálga-
hraun, en það er sunnan við Arnar-
nesvog og er raunar nyrsti hluti
Garðahrauns, en sker sig að
nokkru úr vegna þess hvað það
er úfið og sundur skorið af sprung-
um. Þessi hraun eiga upptök sín
í Búrfeilsgíg suðaustan Hafnar-
fjarðar og munu vera um 7200
ára gömul.
Þegar við leggjum leið okkar í
Gálgahraun er best að aka Hafn-
arfjarðarveg í Engidal og þaðan
Alftanesveg um Garðahraun, en
þegar hrauninu sleppir er vega-
slóði sem liggur af veginum í átt
til sjávar við hraunjaðarinn. Her
er gott að skilja bílinn eftir og
ganga með hrauninu í átt til sjáv-
ar að Lambhúsatjöm. Hér við
hraunjaðarinn er skjólgott og mik-
ill gróður, en utar þar sem ekki
nýtur skjóls er gróður allur minni
og er þar kríuvarp, sem varið er
af mikilli atorku og er því betra
að halda sig við hraunjaðarinn á
varptíma. Þegar stutt er að Lamb-
húsatjöm verða á vegi okkar tvær
litlar vörður í hraunjaðrinum, en
þær vísa á gömlu þjóðleiðina sem
liggur hér yfir hraunið. Þetta er
rudd gata og hefur sýnilega verið
mjög fjölfarin á öldum áður, enda
er gatan merkt á uppdrætti Bjöms
Gunnlaugssonar. Við skulum
fylgja þessari götu yfir hraunið,
en hún er furðu glögg þótt nú sé
hún algróin. Þegar inn í hraunið
er komið verður það allúfið og
sprungið og eru þar margar skjól-
góðar lautir og bollar. Hér er gott
að setjast niður og njóta útiver-
unnar. Sé sólskin má jafnvel fara
í sólbað. Síðan höldum við
göngunni áfram og þegar við emm
komin í gegnum hraunið erum við
stödd syðst við Arnamesvoginn
og höldum með sjónum til baka
og komum við þá brátt að nesi sem
heitir Eskines og skilur að Amar-
nesvog og Lambhúsatjöm. A ijöru
er auðvelt að ganga út á nesið, en
Gálgaklettur
á flóði verður nesið að eyju og er
landsig mjög áberandi hér, svo
sem nafnið Lambhúsatjöm gefur
til kynna, en Lambhúsatjörn er
nú sjávarvogur.
Kofatótt er við hraunjaðarinn
upp af Eskinesi og á hún þá sögu
að um 1870 hugðist Þórarinn Böð-
varsson, prestur í Görðum, koma
i
:
Nú ætlar þú líka að vi
nýju skafmiðahapp
Ford Escort
utan