Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 18

Morgunblaðið - 25.06.1988, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGÚR 25. JÚNÍ 1988 18 Garpur á sj ó, garpur í höfn Hannes Jónsson hafnsögumaður Eyjamanna Hannes Jónsson lóðs. eftir Aðalstein Jóhannsson Á hveijum sjómannadegi erum við minnt á þýðingu sjósóknar og sjávar- afla fyrir lífsafkomu okkar hér norð- ur í reginhafí. Sjómennirnir eru öðr- um fremur hetjur nútímans, hafa tekið við af hetjum íslendingasagna, sem voru þjóðinni aflvaki til dáða á þeim árum og öldum, þegar árferði var erfiðast. Og við eigum nú orðið margar merkar sögur um dugnað, áræði og hreysti sjósóknara í kröppum dansi við höfuðskepnurnar, að viðbættri frosthörku og myrkri oft og einatt. I flestum ef ekki öllum fískiplássum landsins hafa búið menn, sem dug- legir hafa verið til sjósóknar og jafn- vel verið taldir afburðamenn á því sviði. Á sjómannadaginn ár hvert eru slíkir fyrirmyndarmenn gjaman heiðraðir í orði og með einhveiju sýnilegu tákni. Er gott til þess að vita. Sjómenn hafa nú haldið þennan minningardag sinn í hálfa öld, eða síðan 1938. En svo vill til að sá maður, sem verður til umræðu í þessari grein, andaðist einmitt árið áður, þá orðinn hálfníræður. Þótt hann færi þannig á mis við heiðurs- pening stéttar sinnar á sjómanna- degi, var hann sæmdur riddara- krossi Fálkaorðunnar og einnig kjör- inn heiðursborgari Vestmannaeyja- kaupstaðar, þegar hann stóð á átt- ræðu. Munu allir telja að hann hafí verið vel að þeim sóma kominn. Hannes Jónsson var fæddur 21. nóvember 1852 ! tómthúsinu Nýja- kastala í Vestmannaeyjum, sonur hjónanna Jóns Hannessonar og Margrétar Jónsdóttur. Jón var ætt- aður úr Mýrdal en Margrét úr Eyja- ijallasveit. Þangað höfðu foreldrar hennar leitað undan Skaftáreldum. Ekki naut Hannes litli föður síns lengi, þvf að hann drukknaði réttum mánuði fyrir ársafmæli sonar síns. Jón hafði farið í hákarlalegn á áttær- ingi, sem lenti í norðanstormi. Héldu þeir þá til hafnar undir fullum segl- um og voru komnir upp undir Heima- ey austanverða, þegar Jón hrökk fyrir borð. Hann hafði setið á skor- bitanum hléborðsmegin og hallað sér upp að skautinu, þegar það bilaði, svo að Jón missti jafnvægið og féll útbyrðis. Ekki tókst að bjarga hon- um. Og hér var ekki ein báran stök fyrir ekkjunni Margréti, því að hún hafði áður verið gift öðrum Jóni, Jóni Gíslasyni í Túni, og hafði hann einnig drukknað af hákarlaskipi, sem fórst um hvítasunnuleytið 1847. Margrét hafði átt dóttur með fyrri manni sínum. Hét hún Sesselja og varð kona Jóns Jónssonar sýslu- nefndarmanns í Gvendarhúsi. En með síðari manninum eignaðist hún tvö böm, Hannes og stúlku að nafni Jóhanna. Hún varð tvígift, fýrst Guðmundi Guðmundssyni á Fögru- völlum og síðan Pétri Valgarðssyni. Með honum bjó hún vestur í AI- berta-fylki í Kanada. í bókinni Sögum og sögnum úr Vestmannaeyjum, sem Jóhann Gunnar Ólafsson fyrrum bæjarstjóri í Eyjum tók saman, er þáttur um Hannes lóðs, og er Hannes sjálfur aðalheimildarmaðurinn. Þar segir m.a. um Margréti móður Hannesar og uppvöxt þeirra systkina: „Bömin voru öll í ómegð, þegar Jón Hannesson drukknaði. Átti Margrét því erfítt uppdráttar. Sýslu- maður hafði skipað henni meðráða- mann: Varð Helgi Jónsson í Garð- §ósi fyrir valinu. I erfiðleikum sínum leitaði Margrét til hans, en hann gaf henni þessi svör: „Segðu bömin til „Og- við eigTim nú orðið marg'ar merkar sögur um dugnað, áræði og hreysti sjósóknara í kröppum dansi við höf- uðskepnurnar, að við- bættri frosthörku og myrkri oft og einatt. I flestum ef ekki öllum fiskiplássum landsins hafa búið menn, sem duglegir hafa verið til sjósóknar og jafnvel verið taldir afburða- menn á því sviði.“ sveitar og reyndu að vinna fyrir sjálfri þér.“ Var henni þetta fjarri skapi og leitaði hún nú til Eyjólfs Erasmussonar hreppstjóra á Eystri- Vesturhúsum. Hafði Jón Hannesson verið hjá honum um langt skeið. Eyjólfur brást þegar hið bezta við, og reyndist henni jafnan hinn mesti öðlingur. Sendi hann henni þegar þijú ílát full með söltuðum fugli og hjálpaði henni með úttekt úr búð. Sagði Margrét, að Eyjólfur hefði alltaf reynzt mesti bjargvættur, þeg- ar í nauðimar rak. Sjálf vann hún myrkranna á milli til þess að fram- fleyta sér og sínum. Að sumrinu reytti hún lunda fyrir kaupmennina. Um þessar mundir var gott verð á lundafíðri, og höfðu kaupmenn þá margt manna við lundaveiði. Leigðu þeir veiðiréttinn af bændum og réðu til sín margt manna, jafnvel austan úr Mýrdal, til veiðinnar, og settust margir þeirra síðan að í Vestmanna- eyjum. Fyrir reytinguna guldu kaup- menn helming fugls og fíðurs. Barst mikið að af fuglinum, því að veiðiaðferðir vom með þeim hætti, að heita mátti að stefnt væri að gereyðingu fuglsins. Má af því sjá, hvílík kynstur hafa verið drepin af fuglinum, að útflutningur á fíðri nam árið 1858 26.680 pundum, og svipaður var útflutningurinn hin næstu ár. Margrét hafði því ærið að starfa þessi árin yfír sumarmánuðina; og mátti heita að hún sæti í fuglinum dag og nótt. Sjálf bringureytti hún, því að það var vandasamara, en lét dætur sínar, er þær stálpuðust, bak- reyta og reyta vængina. Var fiðrið flokkað þannig, að haldið var sér af fíðri af bringu, baki og vængjum. Spýlumar, bak, vængi og læri lun- dans, en hann var þá spýlaður á lærunum, þurrkaði Margrét og not- aði til eldsneytis. Einnig vann Margrét mikið við fískverkun hjá verzlununum, en þá var fískur enn lagður inn við verzlan- imar blautur eða beint úr sjónum. Nokkum styrk hafði hún snemma \af Sesselju. Ung að aldri var hún farin að himnudraga físk og breiða til þurrks. Með sparsemi bjargaðist Margrét þannig með bömin, án þess að þiggja af sveit. Hannes hafði varla slitið barns- skónum, þegar hann byijaði að draga til heimilisins. Um 10 ára ald- ur byijaði hann að róa með fullorðn- um. Að sumrinu reri hann oft með Magnúsi Pálssyni bónda á Vilborg- arstöðum. Hafði Magnús með sér þijá eða fjóra stráka og stundaði róðra á grunnmiðum og aflaði stund- um vel. Var hann umvöndunarsam- ur, og lærðu drengimir margt af honum, sem að sjómennsku laut. Urðu margir þeirra, er með honum reru, miklir formenn og aflaklær." Árið sem Hannes var 11 ára fór hann svo sjóróðra á vetrarvertíð, og var það fyrir vinsemd Magnúsar, formanns fyá Austara-Skála, mágs Margrétar. Hann sá aumur á drengnum, sem var alltaf að klifa á þessu, að komast í róður. Þá kom á daginn, að Hannes kenndi ekki sjó- veiki, þrátt fyrir vetrarölduna, og mun hann aldrei hafa fundið fyrir henni. Á næstu vertíð var hann skip- veiji á Haffrúnni upp á hálfan hlut, en formaður þar var Jón Pétursson í Elínarhúsi. Þá kom þar árið eftir, þegar drengurinn var 13 ára, að hann réðst til Árna Diðrikssonar í Stakkagerði, á bát hans, Gídeon, og þaðan hreyfði hann sig ekki í fjóra áratugi að einni vertíð undanskilinni. { fyrstu mun Hannes hafa róið upp á hálfdrætti á Gídeon, en það breyttist fljótt. Hér skal aftur gripið niður í Sögur og sagnir: „Fyrstu vertíðina, sem Hannes var til heils hlutar á Gídeon, fékk Ámi Diðriksson vont fíngurmein, svo að hann treysti sér ekki til að róa. Þeg- ar kallað var til fyrsta róðursins, sem Ámi reri ekki, sendi hann Hannesi þau skilaboð með Ögmundi Ög- mundssyni í Landakoti, að hann treysti því, að Hannes reri skipinu fyrir sig. Hannes var seytján ára þessa vertíð. Á skipinu voru margir þrautreyndir sjómenn og gamlir for- menn, og var Hannes yngstur allra. Fór Hannes nú til skips og lét færi sitt á venjulegan stað í skipinu. Þeg- ar allir voru komnir til skips og Hannes sá, að enginn bar sig að formannssætinu, spurði hann, hvort enginn ætlaði að láta færi sitt í form- annssætið. Sögðu hásetar þá, að enginn þeirra hefði verið beðinn að taka við skipinu. Tók Hannes þá færi sitt og gekk aftur með skipinu, lagði það í formannssætið og sagði hásetunum að standa að í Jesií nafni, eins og formanna var siður. Settu þeir síðan á flot og fískuðu vel um daginn. Bar ekki á neinni óánægju. Næstu vertíð tók Hannes alveg við formennsku á Gídeon og var síðan formaður fyrir honum í 37 vertíðir." Að sumarlagi fékkst Hannes tals- vert við fuglaveiðar milli sjóróðra, og var þó talið að sú veiði félli hon- um ekki sem bezt. Má vera að þá vanþóknun hans hafi mátt rekja til atburðar, sem fyrir hann kom um fermingaraldur og olli honum nokk- urri bæklun ævilangt. Þar um segir í Sögum og sögnum: „Sumar eitt fór hann til lunda- veiða í Bjamarey með fleiri mönnum. Það mun hafa verið árið 1865, og var Hannes þá 13 ára gamall. Dag nokkum fór hann einsamall með 15 faðma langt lagnet suður á eyjuna og ætlaði að leggja það þar í lunda- byggðina. Upp af Hrútaskorunefínu varð honum fótaskortur í brek- kunni, og hrapaði hann fram af ham- arsbrúninni. Vissi hann það næst af sér, að hann hékk í lausu lofti með höfuðið niður og annan fótinn flæktan í netinu, sem í fallinu hafði fezt á snös, og var hann úr öklaliðn- um á þeim fæti, sem hann hékk á. Með erfíðismunum tókst Hannesi að ná með höndunum í netið og rétta sig við. í þeim svifum hrökk öklinn aftur í liðinn. Spölkom fyrir ofan Hannes, þar sem hann hékk í netinu, var sylla í berginu. Þangað tókst honum að lesa sig upp netið, en af syllunni sýndist honum ókleift standberg á alla vegu, og slútti það fram yfír sig víðast hvar. Syðst á hillunni var krókur inn í bergið, og virtist honum líklegast þar til uppgöngu. Hann vissi, að árangurslaust var að kalla á hjálp, því að félagar hans voru allir fjarri. Mjakaði hann sér suður hilluna með því að hoppa á öðmm fæti og styðja sig við bergið með hendinni. En þegar hann kom í krók- inn syðst á hillunni, sá hann að berg- ið var einnig ókleift þar. Varð honum nú ekki um sel og sagðist muna það síðast eftir sér þama á hillunni, að hann hefði haft það eitt í huganum: „Hér verð ég að komast upp“. Hug- ur hans hefði verið fullur af þessu einu, og þá missti hann meðvitund- ina. Vissi hann síðan ekki af sér fyrri en uppi í grösum á eynni, langt frá brúninni, og var hann þá lamað- ur og ósjálfbjarga. Þar fundu félag- ar hans hann nokkm síðar. Hann vissi aldrei með hveijum hætti hann hafði farið upp, og em menn í engum vafa um, að björgun hans hefur farið fram með aðstoð einhverra dularafla eða verndar- vætta. Magnús Guðmundsson bóndi á Vesturhúsum, tengdasonur Hann- esar, athugaði nákvæmlega alla staðhætti þama, og fullyrðir hann að uppganga af syllunni sé algerlega óhugsandi og ómöguleg á venjuleg- an hátt, enda þótt fimasti fjallamað- ur ætti í hlut, hvað þá lamaður 13 vetra drengur. í sömu átt hnígur álit annarra, sem staðháttum em kunnugir. Þar sem hann hrapaði heita nú Hannesarstaðir. Eftir áfall þetta lá Hannes rúm- fastur nær eitt ár og var búizt við, að hann yrði örkumlamaður alla ævi. Reyndin varð önnur. Náði hann fullri heilsu, en varð upp frá þessu svo skjálfhentur, að hann átti erfitt með að drekka úr kaffibolla. Og nafn sitt skrifaði hann þannig, að hann lá ofan á handleggnum á með- an. Þrátt fyrir skjálftann var Hann- es góð skytta og skaut fugl á flugi og hæfði vel. Lék hann þetta fram á gamals aldur, en skjót handtök hafði hann við, því að ekki tjáði að teíja lengi við miðanir. Fram af Hrófunum í Skipasandi var lón, sem kallað var Stokkalón, og stóð sjór í því um fjöru. Ein- hvetju sinni fjaraði sel uppi í lóninu. Var þar fjöldi manns saman kominn í kringum lónið og margir með byssu til þess að bana selnum. Þorði eng- inn að skjóta vegna mannfjöldans, þegar selurinn skaut upp hausnum til þess að anda. Hannes stóð á klöpp, sem gnæfði yfír lónið. Leidd- ist honum þóf þetta, þreif byssu af manni einum, er nærri stóð, og skaut selinn umsvifalaust." Þannig var Hannes, verkahraður og öruggur. Hér skulu tilfærðar tvær frásagnir frá formannsárum hans því til sönnunar. Hin fyrri er úr bók Helga Benónýssonar frá Vestur- húsum: Fjörutíu ár í Eyjum. Þar segir frá fiskiróðri Hannesar og hans manna á Gídeon suður að Geirfugla- skeri í byijun vertíðar árið 1897. Hrepptu þeir austanstorm nokkru eftir að þangað kom og höfðu þá dregið 5—6 físka í hlut. Einn skip- veijanna sagði þannig frá: „Þegar við á Gídeon botnuðum ekki lengur með færin, skipaði form- aðurinn að hafa uppi, setja upp segl- in og tvírifa. Þá var farið að nota poka úr boldangi, en svo voru nefnd gömul segl af stórskipum, og þeir fylltir af sjó og hafðir fyrir kjölfestu. Hannes siglir nú í einum slag og nær út á móts við Vestur-Landeyj- ar, lá þá á honum landfallið. Hann siglir svo grunnt sem hann getur. Þá snýr hann austur og siglir það sem tekur og nær skammt fyrir vest- an Þrídranga, og hafði hann þá enn landfallið. Nú vildi mjög gefa á skip- ið, og skipar þá Hannes sex mönnum að leggjast niður við kjöl sem kjöl- festa og tók svo enn slag undir sand. Er á daginn leið var komið af- spyrnurok og menn famir að óttast um skipið. Höfðu margir safnast saman niðri í Hrófum og ræddu um hvað gera skyldi. Sigurður Sigur- fínnsson gekkst þá fyrir því, að skipta mönnum til að skyggnast eft- ir skipinu, en hann hafði oft forystu um björgun, þegar líkt stóð á. Hann valdi átta menn úr hópnum til að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.