Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 25

Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 25 Svikamylla í gangi taki lagið. Nú er mál að hreyfa sig svolítið. Ganga inn Langadalinn og fram á brúnir Húsadals er öllum viðráðan- leg. Á móti blasa Tindfjöllin og Einhymingurinn en undir er skógi vaxinn dalurinn, víður og fagur. Við verðum að snúá við þama, göngum aftur að sæluhúsi Ferða- félagsins en síðan niður með ánni og förum yfir hana á göngubrúnni sem er 700 metmm fyrir neðan sæluhúsið. Brúin er 45 metra löng, lengsta göngubrú á íslandi og byggð af sjálfboðaliðum Ferðafé- lagsins. Bílarnir eru komnir að brúarsporðinum og nú skal haldið í Stakkholtsgjá sem er örskammt neðar. Það þarf ekki að ganga langt inn gjána til að líta mikla náttúmsmíð. Tími okkar er sjálf- sagt orðinn naumur svo við göngum ekki gjána til enda. Við ætlum að halda niður að Stóm- Dímon og á þar. Stóra-Dímon er vafalaust þær Rauðaskriður sem títt em nefndar í Njálu. Hér var Svartur, þræll Bergþóm veginn ög hér sátu þeir Njálssynir fyrir Þráni Sigfússyni en einmitt í þeirri viður- eign stökk Skarphéðinn yfir Mark- arfljót — skara á milli. Samkvæmt Njálu var hér skógur, en nú sést ekki hrísla. Meðan við drekkum síðdegissopann hlýðum við á séra Halldór Gunnarsson í Holti ræða um lönd, menn og málefni í Rang- árþingi. Það er sjálfsagt að aka um Fljótshlíðina á heimleiðinni. Múla- kot, Hlíðarendakot, Tumastaðir, Sámsstaðir, Breiðabólstaður em vettvangur sögu um ræktun jarðar og menningar og Hliðarendi, setur hetjunnar er stökk hæð sína í loft upp og hjó mann og annan vítt um lönd en var svo heillaður af fegurð þessa lands. að hann rauf sætt og vildi „heldur bíða hel en horfinn vera fósturlandsins strönd- um“. Senn er ferðinni lokið. Áformað er að koma til Reykjavíkur kl. 19.30. Munið að vera vel búin og hafa með ykkur regnföt jafnvel þótt veðurútlit kunni að vera gott. Haf- ið með ykkur nesti og munið að við skiljum aldrei msl eftir á áning- arstöðum, ekki einu sinni vindl- ingastubba, tappa eða dósaflipa. Höfum góða ferð. Höfundur er forseti Ferðafélags íslands. Heilbrigðisráðuneytið hafa beitt sér fyrir því, að þessir aðilar nýti landið í sameiningu; golfvöllur verði gerður og þar verði aðstaða fyrir fatlaða. Viðræður hafa farið fram og em menn bjartsýnir á að samkomulag náist innan skamms. Eldur kvikn- aði í bíl í Hvalfirði ELDUR kom upp í bíl í Hvalfirð- inum á fimmtudagsmorguninn og læsti eldurinn sig i ökumann, sem slapp lítið brunninn. Slysið varð með þeim hætti að fólksbifreið fór út af veginum og valt við Hvammsvík í Hvalfirði um fimmleytið á fimmtudag. Kviknaði samstundis í bílnum, en ökumann- inum, sem var stúlka, tókst að losa sig út úr honum í tæka tíð. Læsti eldur sig í föt hennar sem henni tókst að slökkva fljótlega. Var hún flutt á slysadeild lítils háttar brennd. . Bfllinn brann hins vegar til kaldra kola og er gjörónýtur. X-Iöföar til JLAfólksíöllum starfsgreinum! pfinr^timMafoLfr Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Ted Albeury: Pay Any Price Útg. Panther Books 1987 Sagan hefst nokkru fyrir 1960, þegar John Kennedy er að búa sig undir forsetakjör í Bandaríkjunum. Andstaða hans og bróður hans, Roberts, gegn iðju mafíunnar og tengsl hennar um allt þjóðfélagið, eru til þess fallnar að vekja mikla andúð á þeim. Augljóslega eiga langtum fleiri hagsmuna að gæta og Ted Albeury seilist býsna langt þegar hann fer að búa lesendur undir það sem koma skal. Margar persónur eru leiddar fram á sviðið og leyniþjónustumenn — úr ýmsum deildum CIA svo og og hinnar bresku SIS — og kynnt- ar, án þess að manni verði ljóst fyrr en töluvert er á liðið lesturinn, hvar þessar persónur eiga heima í söguþræðinum.í þessu fjölskrúðuga liði er mikið af óþokkalýð og fáum að treysta. Ekki er í fljótu bragði ljóst, hvaða erindi margt af þessu fólki á inn í söguna. Dægurlaga- söngkona, uppgjafa bandarískur sjóliði sem giftist rússneskri konu, læknissonur sem fer snemma að notfæra sér fólk, svo að nokkrir séu nefndir. En það er alveg klárt hvað er verið að fara. Við erum leidd í sannleika um ógeðfellda „stéttaskiptingu" innan leyniþjónustanna, og að allir fara á bak við alla, þótt svikin og ofbeldis- hneigðin og kommúnistahræðsla sé á mismunandi háu stigi; um þetta allt er Albeury fulllangorður og pakkar þessu öllu inn í miklar um- búðir og flóknari en maður á að venjast hjá þessum ágæta höfundi. En loks fer svo að renna upp fýrir manni ljós. Dáleiðslan sem söngkonan og ungi hermaðurinn eru beitt til að fremja ódæðisverk sem leyniþjónustumenn geta ekki framkvæmt sjálfir leiða mann að lokum á brautina, sem höfundur er að fara. Samkvæmt þessari bók ætti því Lee Harvey Oswald að hafa verið dáleiddur og látinn myrða Kennedy, fýrir atbeina CIA og mafíunnar. Oswald gat hins vegar ekki bara haldið fram sakleysi sínu, heldur var honum algerlega ókunnugt um að hann hefði skotið Kennedy. Dá- leiðsluaðferð Symons læknis í bók- inni er ekki nein venjuleg dáleiðsla hún fer lengra inn í vitundina en áður hefur þekkst og það er hætt við því að þeir sem verða fyrir þessu, muni svo smátt og smátt fara að molna. Það gerist með Walker og söngkonuna, þótt annað nái heilsu en hitt ekki. Þegar Albeury er sem sagt loks- ins búinn að byggja nægilega traustar undirstöður fer hann á skrið og þá les maður af áfergju. En framan af er ekki gott að átta sig á hvert stefnir. Og uppgjör eins af fáu ærlegu leyniþjónustumann- anna, Boyd, við Symons lækni er kraftmikil lesning. UPPBOT AISUHSKT SUHUUtí 3 VIKUR Á MJUORKU: 33.900 kr. BR0TTF0R9. Þann 9. júlí tekur Lukkuhjól Úrvals stefnuna á Sa Coma á austurströnd Majorku. Þar eru að meðaltali 30 sól- skinsdagar íjúlí, meðalhiti 26°C og þar er allt sem þarf til að sumarfríið heppnist vel. í Lukkuhjólsferðum velur þú ekki gististað, en fœrð að vita um hann með minnst 7 daga fyrirvara. Á Sa Coma bjóðum við aðeins mjög góða gististaði, svo áhœttan er engin! *Verð á mann miðað við 2 fullorðn í herbergi. Barnaafsláttur fyrir 2-11 ára: 8.000 kr. Eigum ennþá örfáar íbúðir lausar á nýja Úrvals íbúðahótelinu, El Paraiso. Verð frá 33.050 kr. miðað við 2 full- orðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð. Nú gildir að taka ákvörðun strax! i FtRBASKRIFSTOFAH URVAl - fólk sem kann sitt fag! x Pósthússtræti 13 - Sími 26900. MSM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.