Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 37

Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 37 Ný o g endurbætt lyfjabók komin út Lyfj abókaútgáf an hefur nú sent frá sér nýja útgáfu ís- lensku lyfjabókarinnar. I henni eru ítarlegar upplýsingar um öll lyf, sem skráð eru hér á landi. Miklu hefur verið bætt við frá eldri útgáfu lyfjabókar- innar, svo sem umfjöllun um náttúrulyf og ýmsu varðandi sjúkdóma á ferðalögum. Með því að skila gömlu bókinni verð- ur hægt að fá bókina á hálf- virði í apótekum. Fyrri útgáfa íslensku lyfjabók- arinnar kom út árið 1985 og seld- ist þá í yfir 12.000 eintökum. Mikl- ar breytingar hafa átt sér stað á lyfjamarkaðnum frá útgáfu henn- ar og þótti því þörf á endurbótum. Nýja útgáfan er mun efnismeiri, auk þess sem allur frágangur er vandaðri. Aukið hefur verið við upplýsing- ar um einstök lyf í bókinni og einn- ig eru þar nýir kaflar, svo sem um náttúrulyf og aukaverkanir þeirra. Enn fremur er i^'allað um hvaða lyfj'aflokka alkóhólistum ber að varast og hvernig sé best að komast hjá veikindum á ferðalög- um erlendis. Meðal annarra nýj- unga í bókinni er umfjöllun um afgreiðslu lyfja, pakkningar og upplýsingar um óskráð lyf. Nýja lyijabókin er 560 síður að lengd. Að útgáfu hennar standa höfundamir; lyfjafræðingurinn Bessi Gíslason og læknamir Helgi Kristbjarnarson og Magnús Jó- hannsson. Hægt er að kaupa bók- ina í apótekum og bókaverslunum. Verð hennar er kr. 1.960, en unnt er að fá hana á kr. 980 í apótekun- um, með því að skila eintaki af gömlu bókinni. Hækkun húsaleigu SAMKVÆMT ákvæðum í lögum nr. 62/1984 hækkar leiga fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhús- næði, sem lög þessi taka til, um 8 af hundraði frá og með 1. júlí 1988. Reiknast hækkun þessi á þá leigu sem er í júní 1988. Júlíleigan helst óbreytt næstu tvo mánuði, það er í ágúst og september. (Úr fréttatilkynningu) Njarðvíkurbær: ' \ pf?-.<! Morgunblaðið/Ó.K.M. Frambjóðandi fundará Lækjartorgi Sigrún Þorsteinsdóttir, frambjóðandi til emb- ættis forseta íslands, hélt í gær fund á Lækjart- orgi. Hún kynnti þar framboð sitt og hlýddi nokkur hópur fólks á mál hennar. Forsetakosn- ingar fara fram í dag og stendur valið á milli Sigrúnar og Vigdísar Finnbogadóttur. Bæjarritaranum vikið úr starfi Forsetakosningarnar: Alþýðubandalag' og Alþýðu- flokkur taka ekki afstöðu Framkvæmd málsins orðið mikið hitamál í bæjarstjórninni Keflavík. BÆJARSTJÓRN Njarðvíkur að tillögu bæjarstjórans Odds Einarssonar. Sigurður G. Ólafs- son hefur verið starfsmaður hjá Njarðvíkurbæ sl. 11 ár. Njarðvíkur hefur vikið bæjarritaranum Sigurði G. Ólafssyni úr starfi að hér væri um trúnaðarmál ræða. að Alþýðubandalag og Alþýðu- flokkur taka ekki afstöðu til fram- bjóðenda í forsetakosningunum að því er fram kemur í bréfum sem Kristján Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðubandalags- ins, og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, hafa sent stuðningsmönnum Sigrúnar Þorsteinsdóttur forsetaframbjóð- anda. Bréfin eru svör við fram- komnum tilmælum um að þessir flokkar Iýsi yfir stuðningi við framboð Sigrúnar. í bréfi framkvæmdastjóra Al- þýðubandalagsins segir meðal ann- ars að það sé afstaða flokksins að stjómmálaflokkar eigi ekki að taka formlega afstöðu þegar þjóðin kýs sér forseta. Alþýðubandalagið beri sín stefnumál fram í kosningum til Alþingis og sveitarstjóma. Á þeim vettvangi hafi komið fram stefna flokksins um aukið lýðræði, þjóðarat- kvæði um mikilvæg mál og tillögur um aukið jafnrétti og bætt kjör fólks í landinu. í bréfí formanns Alþýðuflokksins segir meðal annars að Alþýðuflokk- urinn bjóði ekki fram við þessar for- setakosningar og taki ekki flokks- lega afstöðu til framboðsaðila. Af bréfí stuðningsmanna Sigrúnar megi ráða „að frú Sigrún forsetaframbjóð- andi vilji „koma á lýðræði", m.a. með því að gera forsetaembættið pólitískt. Ég vil því eindregið skora á frú Sigrúnu að bjóða sig fram til þings og freista þess, á réttum vett- vangi, að vinna skoðunum sínum um breytingar á stjómarskránni, fram- gang“, segir Jón Baldvin m.a. í bréfí Guðjón Sigurbjömsson sem gegnt hefur starfi forseta bæjar- stjómar í Njarðvík sagði í samtali við Morgunblaðið að Sigurði G. Ólafssyni hefði verið veitt lausn frá störfum, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um uppsögnina, sagði Umferðarslys: Sextug kona lenti fyrir bíl SEXTUG kona Ienti fyrir bíl á mótum Háaleitis-og Kringlumýr- arbrautar síðdegis á fimmtudag. Konan var að ganga, á ská yfir gatnamótin er slysið átti sér stað. Að sögn lögreglunnar varð konan fyrir bíl sem ekið var suður Kringlu- mýr’arbraut og yfir gatnamótin á grænu ljósi. Konan skarst á höfði við slysið en er ómeidd að öðm leyti og slapp hún betur úr slysinu en á horfðist í fyrstu. Mál þetta er nú orðið mikið hita- mál í bæjarstjórn Njarðvíkur eftir að bréf sem Oddur Einarsson bæjarstjóri sendi Sigurði G. Ólafs- syni var birt í vikublaðinu Reykja- nesi. I bréfinu segir Oddur að vegna meintra brota Sigurðar í starfi hyggist hann leggja tillögu þess efnis fyrir bæjarstjórn að honum verið vikið úr starfi. í bréf- inu sakar Oddur Sigurð um að hafa gefið sér og bæjarstjóm rangar upplýsingar um ijármál bæjarins og hann óski þess að Sigurður víki þegar af vinnustað. Á bæjarráðsfundi daginn eftir að umrætt bréf var birt í Reykja- nesinu létu fulltrúar Alþýðuflokks og Framsóknarflokks sem hafa meirihluta í bæjarstjóm bóka vítur á bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks: ins fyrir að birta umrætt bréf. í bókuninni kemur fram að þetta gerist þrátt fyrir að bókað sé á þeim fundi bæjarstjórnar sem fjall- aði um málið að hann væri lokað- ur og allt sem þar færi fram væri trúnaðarmál. Þessum ásökunum vildu fulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins ekki una og kröfðust aukafundar í bæjar- stjórn á fundinum sem haldinn var þann 15. júní sl. Þar vísa þeir á bug öllum ásökunum um brot á trúnaði og kröfðust jafnframt op- inberrar afsökunarbeiðni af hálfu meirihlutans vegna ásakana um brot á trúnaði. Morgunblaðið hafði samband við Sigurð G. Ólafsson fyrrverandi bæjarritara, en hann vildi ekkert láta hafa eftir sér, annað en hann væri búinn að ráða sér lögmann til að gæta hagsmuna sinna. - BB Laugar í Þingeyjarsýslu: Norrænarhús- mæður í orlofi Húsavik. • SUMARORLOF Norræna hús- mæðrasambandsins var sett á Laugum á fimmtudag að við- stöddum um 100 fulltrúum frá öllum Norðurlöndunum þar með töldum Færeyjum og Grænlandi. Samkoman hófst með því að Jóhanna A. Steingrímsdóttir, formaður Kvenfélagasambands S-Þingeyinga, ávarpaði gesti og bauð hina aðkomnu velkomna í héraðið. Síðan setti Sumarorlofið formaður Norræna húsmæðra- sambandsins, Birgitta Vikström, og fulltrúi frá hverju Norðurland- anna flutti ávarp. Bamakór Tón- listarskóla Mývetninga skemmti með söng undir stjóm Margrétar Bóasdóttur. Samkvæmt venju koma um 20 konur frá hvetju hinna 5 Norður- landa og tveir fuiltrúar frá Fær- eyjum og einn frá Grænlandi. Þama em því samankomnar rúm- lega 100 konur sem sameina skyldustörf, skemmtun og skoð- unarferðir í vikudvöl á Laugum. Morgunblaðið/Silli Jóhanna A. Steingrímsdóttir formaður Kvenfélagasam- bands Suður-Þingeyinga ávarpaði gesti Sumarorlofsins. Hveija ráðstefnu er valið ákveðið umræðuefni sem að þessu sinni er „Fjölskyldan á Norðurl- öndum, barnið í dag, barnið á morgun". Ifyrirlesarar vom Ka- rólína Stefánsdóttir félagsráðgjafi sem talaði um bamið og fjölskyld- una, Már V. Magnússon sálfræð- ingur sem talaði um bamið og skólann og Kristín Sigfúsdóttir hússtjómar- og líffræðikennari um næringu og neysluvenjur bama. Eftir hveija framsögu hó- fust ijörugar umræður undir stjóm Sigríðar Ingimarsdóttur. Þessi félagssamtök vom stofn- uð árið 1930 og hafa staðið fyrir húsmæðraorlofi til skiptis á Norð- urlöndum frá árinu 1963 og er þetta í þriðja skiptið sem orlofíð er hér á landi og nú í fyrsta skipti á Norðurlandi. Kvenfélagasam- band íslands, undir forystu Stef- aníu M. Pétursdóttur, hefur séð um allan undirbúning ásamt hér- aðssamböndum kvenfélaganna í Þingeyjar- og Eyjafjarðarsýslum. Stjórn samtakanna skipa þrír full- trúar frá hveiju Norðurlandanna og haldinn verður stjórnarfundur í sambandi við þessa samfundi. Ljósmynda- sýning í Bókakaffi HALLDOR Carlsson og Þóra Vilhjálmsdóttir opna í dag ljós- myndasýningu í Bókakaffi í Garðastræti 17 (við hlið Unu- húss). Myndefnið er fjölbreytt og mynd- irnar teknar víða. Sýningin stendur yfir til 9. júlí og Bókakaffið er opið alla daga frá kl. 9 til 19. (Fréttatilkynning) Athugasemd ÞORSTEINN Pálsson forsætis- ráðherra vildi koma þeirri at- hugasemd á framfæri vegna fréttar á baksíðu blaðsins í gær, þar sem haft er eftir honum að íhugunarefni sé, hvort nógu vel sé að rekstri frystingar staðið, að þar hafi verið átt við atvinnu- rekstur almennt, frystinguna þar með talda. „Orð mín áttu auðvitað við allan atvinnurekstur á landinu, og ekki frystinguna frekar en annað, þótt auðvitað sé hún ekki undanskilin," sagði Þorsteinn. o INNLENT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.