Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
Mótfallinn því að gengið sé of mikið í smáfiskinn,
segir Sævar aflakóngur togaraskipstj óra á Breka
ÞAÐ ER ekki nýtt að aflakón-
gamir yfir landið allt séu úr
stærstu verstöð landsins, Vest-
mannaeyjum. Um langt árabil
hafa aflakóngarnir á vetrarver-
tíðinni alltaf verið frá Vest-
mannaeyjum og í ár er aflahæsti
togarinn einnig frá Vestmanna-
eyjum. Nokkur breyting hefur
orðið á ýmsum þáttum vetrar-
vertíðarinnar, meðal annars
vegna fiskútflutnings í gámum
og vegna smáfískadrápsins, sem
á sér stað á smáfískamiðunum
fyrir norðan og austan land og
út af Vestfjörðum, þá hefur
minna magn af fiski komið suður
fyrir land á hrygningarslóðir en
eðlilegt er talið af fískifræðing-
um. Fiskifræðingar óttast mjög
hve fáir sterkir árgangar eru nú
í ársaflanum og telja grundvall-
aratriði að smáfískadrápið sé
stöðvað og hrygningarstofninn
styrktur um leið og stuðlað sé
að fleiri en einum til tveimur
sterkum árgöngum í ársaflanum.
Við ræddum við Sævar Brynjólfs-
son skipstjóra á Breka frá Vest-
mannaeyjum ,en frá síðustu vert-
íðarlokum til vertíðarlokanna nú
er hann hæstur togara landsins
með yfir 6.000 tonn og frá ára-
mótum hefur Breki landað yfir
3.000 tonnum af físki. Hermann
Kristjánsson er skipstjóri á móti
Sævari og tekur að meðaltali einn
túr á móti tveimur og hálfum hjá
Sævari.
„Eg er ekkert svo myrkfælinn
við stöðu'' fiskstofnanna við
landið,“ sagði Sævar í upphafí
samtals okkar, „það eru alltaf
sveiflur í þessu, helst er ég
hræddur við að farið sé að ganga
óeðlilega mikið á karfastofninn,
en hins vegar er einnig ljóst að
hrygningarstofn þorsksins er í
lágmarki. í þessu er viss hætta
fólgin sem bregðast verður við.
Við eigum talsvert sterka stofna
af ungfíski, sem borið hefur á
síðastliðin tvö ár, það er að segja
’83 og ’84 árgangana , en það
er ekki nóg og ég er mjög hlynnt-
ur lokun svæða með reglugerðum
til lengri tíma og í ríkari mæli
en gert hefur verið. Það þarf að
fjdgjast með þessum hættusvæð-
V estmannaeyjar:
Morgunblaðið/Sigurgeir
Skipstjórarnir og aflakóngarnir á Breka, Hermann Kristjánsson
og Sævar Brynjólfsson.
um mun meira en gert hefur
verið og stöðva skilyrðislaust
veiðar þar ef sýnt er að ótæpilega
sé gengið í smáfískinn.
Annars held ég að það sé erf-
itt að meta það hvað smáfiska-
drápið hefur verið mikið vanda-
mál síðustu tvö árin. Smáfiskur
hefur verið talsvert áberandi og
á árinu 1987 var mesti smáfísks-
afli sem ég hef lent í, en í vetur
höfum við sem betur fer sloppið
mun betur. Þorskaflinn er svo
takmarkaður að við höfum reynt
að vera í djúpköntunum þar sem
er stærri fískur, en svo eru túrar
inn á milli vestur þar sem lögð
er áhersla á þorskinn.
Varðandi fískveiðistefnuna þá
held ég að hún sé ekki beint úr
böndunum, það þarf visst aðhald,
en ég er mótfallinn því að það
sé gengið of mikið í smáfiskinn
og í stjórnuninni á að taka fullt
tillit til þess að mínu mati. Eg
er tiltölulega sáttur við heild-
arlínuna í þessu.
Togarinn Breki öslar austur með Ystakletti á miðin. Morgunbiaðio/sigurgeir i Ejrjum
Meðferð á fiskinum hefur
batnað og það er sífellt unnið að
því. Við erum til dæmis að skipta
úr kössum yfir í kör vegna þess Ingibjörg Hafliðadóttir og SæVar Brynjólfsson skipstjóri á Breka,
að það þykir betri geymsluað- en Ingibjörg var að vinna í garðinum þegar við heimsóttum þau.
ferð, ekki hvað síst í sambandi
við stærri þorskinn.
Jú, þetta er mest sami mann-
skapurinn, en við erum 15 um
borð venjulega. Mest sæki ég
austur af Eyjum og austur undir
Berufjarðarál. Hljóðið í mann-
skapnum? Það er nokkuð gott,
aflinn er síður en svo minnk-
andi. Gott gengi getur maður
þakkað góðri áhöfn , nei, við
skulum ekkert vera að tala um
fískinefíð, enda er það ekkert
sérstakt. Samstillt fólk skiptir
mestu í þessu."
Breki er að fara í skveringu
til Póllands, 8 metra lengingu,
byggt verður yfír skipið að fram-
an, nýr skutur og auðvitað málað
í hólf og gólf auk þess að skipt
verður um hjálparspil. Breki var
smíðaður sem loðnuskip og tog-
skip, en nú verður skipinu breytt
í alvöru togara loksins, eins og
Sævar komst að orði, því tog-
möguleikar hafa verið takmark-
aðir.
Um 20% af afla Breka hefur
farið í gámaútflutninginn, hitt fer
allt í frystihúsin í Eyjum að öllu
jöfnu. 15% af afla skipsins fór í
gáma á síðastliðnu ári. Sævar
sagði að vissulega væri nokkur
pressa á mannskapnum í þessum
efnum þegar toppamir væru í
gámaútflutningnum.
Þessi eiturharða aflakló, sem
Sævar er, fer sér að engu óðslega
í því sem hann tekur sér fýrir
hendur e,n allt gengur það samt
markvisst. Hann vildi ekkert tala
um blettina sína, sneri því út í
það að konan sæi alveg um blett-
inn við húsið, en hins vegar er
Sævar þekktur fyrir blettina sem
hann sækir afla á ef annað
bregst, en leyndarmálið um þessa
bletti lekur ekkert út. „Jú, maður
á vissa bletti, sem lítið er farið
á,“ sagði aflakóngurinn og brosti,
en ekki söguna meir.
Maður á víssa bletti
sem lítið er farið á
Allt í útileguna
Seljum — Leigjum
Hústjöld 4 m stgr. 29.900, 6 m stgr. 41.700.
5 manna tjöld m/fortjaldi stgr. 18.905.
Samkomutjöld, svefnpokar, gastæki, pottasett,
ferðadínur, borð og stólar, og m.fl.
Útvegum fortjöld á hjólhýsi.
Tjaldaviðgerðir.
Sportleigan v/Umferðarmiðstöðina,
sími 13072.
GARÐASTÁL
Á þök og veggi
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000
■Hróóleikur og JL skemmtun fyrir háa sem lága!
|Bs>rí0íiinííWiití>
Jj!y
|Her inn á lang I flest heimili landsins!