Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 64
64
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD
Loks sigur
hjáÞór
„Langþráðursigur," sagði
Nói Björnsson, fyrirliði Þórs
ÞÓRSARAR unnu sinn fyrsta
sigur í gær er þeir lögðu
Víkinga að velli, 2:1, á Akur-
eyrarvelli. Úrslit leiksins voru
sanngjörn og sigurinn hefði
jafnvel getað verið stærri.
yrri hálfleikur var frekar rislár,
knattspymulega séð, og ekki
margt sem gladdi augað. Þórsarar
voru sterkari fram að fyrsta mark-
inu, sem kom á 22.
mínútu. Þar var að
verki Halldór
Áskelsson. Hlynur
Birgisson fékk
langa sendingu upp kantinn, tók
laglega á móti knettinum og sendi
hann inn á miðjuna. Þar var Halld-
ór á auðum sjó og skoraði af ör-
yggi framhjá Guðmundi Hreiðars-
syni sem kom út úr markinu.
Fallegt mark og vel að því staðið.
Eftir markið slökuðu Þórsarar
nokkuð á og Víkingar komust meira
inn í leikinn, án þess þó að skapa
sér hættuleg tækifæri. Bæði lið
fengu þó eitt ágæt færi fyrir leik-
Þór - Víkingur
2 : 1
Akureyrarvöllur, íslandsmótið í knatt-
spjrrnu, 1. deild, föstudagirin 24. júní
1988
Mörk Þórs: Halidór Áskelsson (22.),
Guðmundur Valur Sigurðsson (53.).
Mörk Víkings: Lárus Guðmundsson
(84.).
Gul spjöld: Sveinn Pálsson, Þór (88.),
Andri Marteinsson, Víkingi (81.).
Áhorfendur: 68Ö.
Dómari: Róbert Jónsson 5.
Línuverðir: Bragi Bergmann og Bárð-
ur Guðmundsson.
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Birg-
ir Skúlason, Nói Bjömsson, Kristján
Kristjánsson (Axel Vatnsdal 61. mín.),
Einar Arason, Halldór Áskelsson, Jú-
líus Tryggvason, Jónas Róbertsson,
Hlynur Birgisson, Ólafur Þorbergsson
(Sveinn Pálsson 53. mín.), Guðmundur
Valur Sigurðsson.
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson,
Andri Marteinsson, Jón Oddsson, Atli
Helgason, Stefán Halldórsson, Þórður
Marelsson (Gunnar Öm Gunnarsson
58. mín.), Jóhann Þorvarðarson (Bjöm
Bjartmarz 46. mín.), Traust Ómarsson,
Atli Einarsson, Lárus Guðmundsson,
Hlynur Stefánsson.
hlé, en ekki voru mörkin fleiri í
fyrri hálfleik.
Þórsarar komu mun ákveðnari til
leiks í síðari hálfleik og réðu að
mestu ferðinni þar til um stundar-
fjórðungur var eftir af leiknum, en
þá tóku Víkingar loks vjð sér.
Þórsarar skoruðu annað mark sitt
á 53. mínútu og það gerði Guð-
mundur Valur Sigurðsson. Hann
fékk knöttinn rétt utan vítateigs,
lék á einn vamarmann Víkinga og
skoraði með góðu skoti í bláhomið.
Tíu mínútum síðar fékk Hlynur
Birgisson gullið tækifæri til að auka
muninn, en Guðmundur varði
stórglæsilega skot hans af stuttu
færi. Skömmu síðar fékk Axel
Vatnsdal gott færi. Hann lék á tvo
vamarmenn í vítateig Víkinga og
skaut að marki. Knötturinn fór í
vamarmann og þaðan í stöngina
og Víkingar sluppu með skrekkinn.
Undir lok leiksins sóttu Víkingar í
sig veðrið og sex mínútum fyrir
leikslok tókst þeim að minnka mun-
inn. Lárus Guðmundssson fékk
sendingu inn í vítateig og skoraði
af öryggi af stuttu færi, framhjá
vöm Þórs sem svaf vært.
Þórsarar léku ágætlega á köflum
og sýndu góða baráttu, enda áttu
þeir sigurinn fyllilega skilið. Víking-
ar vom virtust hinsvegar áhuga-
lausir og verða að bæta sig vem-
lega ætli þeir að losna úr botn-
baráttunni.
„Þetta var langþráður sigur og ég
vona að við fömm nú að sýna betri
knattspymu og sýnum meiri áhuga
á leikvellinum," sagði Nói Björnsson
fyrirliði Þórs eftir leikinn. „Við spil-
uðum þokkalega í leiknum og bar-
áttan var ágæt. En við slökuðum á
eftir mörkin og verðum að láta af
þeim sið.“
m
Birgir Skúlason, Guðmundur
Valur Sigurðsson og Hlynur
Birgisson Þór.
Reynir
Eiríksson
skrífar
Námskeið
í ræðumennsku,
fundarsköpum
og hópstarfi
íþróttabandalag Reykjavíkur heldur
námskeið um ræðumennsku, fundar-
sköp og hópstarf fyrir leiðtoga og leið-
beinendur íþróttafélaganna í Reykjavík.
Námskeiðið verður haldið í húsakynn-
um Í.B.R., íþróttamiðstöðinni í Laugar-
dal, dagana 27. og 30. júní frá kl. 18.00
til 22.00.
Þátttökugjald er ekkert.
Tilkynnaber þátttöku
til skrifstofu Í.B.R. í síma
35850.
Morgunblaðið/Rúnar
Halldór Áskalsson sést hér vera búinn að hrista Stefán Halldórsson af sér
og senda knöttinn yfir Guðmund Hreiðarsson, markvörð Víkings. Á litlu mynd-
inni sést Halldór hlaupa fagnandi frá — hans fyrsta mark í deildinni í ár var
staðreynd.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Guðrún skoraði enn
mark úr aukaspyrnu
Valur og KR eru taplaus á toppnum
ÞRÍR leikir fóru fram í 1. deild
kvenna í gærkvöldi. KR sigraði
Stjörnuna 2:1, Valur vann ÍBK
örugglega 3:0 og Fram tapaði
stórt fyrir ÍA 0:4.
Strax í byrjun tóku gestimir öll
völd og KR-stúlkurnar voru
nánast sem áhorfendur. Þrátt fyrir
ótal tækifæri tókst Stjömuliðinu
ekki að skora í fyrri hálfleik. Á 10.
mínútu komst Guðný Guðnadóttir
ein í gegn, en Sigríður Pálsdóttir
markvörður KR varði vel. Rétt fyr-
ir leikhlé átti Guðný gott skot sem
sleikti utanverða stöngina. Staðan
í leikhléi var 0:0.
I byrjun síðari hálfleiks var Guðný
enn á ferðinni þegar hún skaut r
þverslá af stuttu færi. Þar skall
hurð nærri hælum við KR markið
eins og svo oft áður í fyrri hálfleik.
Það var svo KR sem skoraði fyrsta
markið gegn gangi leiksins. Hrafn-
hildur Hreinsdóttir fékk góða send-
ingu utan af kanti og afgreiddi
boltann laglega í markið, 1:0.
KR-liðið var varla hætt að fagna
markinu, þegar Laufey Sigurðar-
dóttir hafði fiskað víti hinum megin
á vellinum. Sigríður KR-markvörð-
ur felldi Laufeyju úti í vítateig-
skanti og var dómurinn frekar
strangur. Ragna Lóa Stefánsdóttir
var örugg í vítinu og jafnaði 1:1.
Eftir þetta jafnaðist leikurinn, en
Stjarnan átti eftir sem áður hætti-
legri færi sem þeim tókst þó ekki
að nýta. Á 25. mínútu skoraði He-
lena Ólafsdóttir annað mark KR.
Hún fékk knöttinn rétt innan við
miðju, stakk Stjörnuvörnina af og
sendi boltann ömgglega í markið.
Leiknum lauk því með sigri KR 2:1.
ÍBK-Valur 0:3
Mikið rok var í Keflavík meðan leik-
urinn fór fram og vallarskilyrði
frekar slæm. Valsliðið var öllu
meira í boltanum, en hinar vörðust
GuArún Sæmundsdóttlr
vel. Keflavíkurliðið beitti rang-
stöðutaktík sem gafst vel, en þrátt
fýrir það voru Valsstúlkur yfir í
leikhleí 2:0. Fyrra markið skoraði
Guðrún Sæmundsdóttir. Það var
glæsilegt mark, skot úr aukaspyrnu
sem hafnaði í vinklinum. Bryndís
Valsdóttir skoraði annað markið
eftir stungusendingu.
Leikurinn þróaðist svipað í síðari
hálfleik. ÍBK varðist vel og átti
nokkur bitlaus skyndiupphlaup.
Valsliðið bætti við þriðja markinu
og þar var að verkri Arney Magnús-
dóttir sem náði að pota knettinum
í markið eftir að þvaga hafði mynd-
ast í markteig ÍBK.
Fram-ÍA0:4
Á Framvellinum áttust við nýliðar
Fram og íslandsmeistarar ÍA.
Framstúlkurnar börðust mjög vel í
fyrri hálfleik og þrátt fyrir að ÍA
ætti nokkur ágæt marktækifæri var
staðan í leikhléi jöfn 0:0.
Strax á fyrstu mínútu síðari hálf-
leiks skoruðu Skagastúlkumar. Það
var ung og efnileg stúlka Magnea
Guðlaugsdóttir sem þar var að
verki. Magnea spilar enn með 3.
flokki. Aðeins tveimur mínútum
seinna bætti Magnea við öðru marki
fyrir ÍA.
Eftir þessi tvö mörk var allur vind-
ur úr Framliðinu og spumingin var
aðeins hve stór siguri IA yrði. Katla
Kristjánsdóttir átti góðan leik í
marki Fram. Henni tókst þó ekki
að koma í veg fyrir að ÍA bætti við
tveimur mörkum. Sigurlín Jóns-
dóttir og Ásta Benediktsdóttir áttu
þau mörk.
íþróttir
helgarinnar
Knattspyrna
Laugardagur:
2. deild kv. kl. 16.00
Selfoss-KS.........Selfossvelli
3. deild kl. 16.00
Hvöt-Einherji.....Blönduósvelli
Sunnudagur:
1. deild ka. kl. 20.00
Fram-Völsungur....Laugardalsvelli
Leiftur-KA....Ólafsfjarðarvelli
3. deild ka. kl. 14.00
Sindri-Magni.....Homafjarðarvelli
ÞrótturN-Huginn ......Nesk.völlur
4. deild ka. kl. 14.00
Árvakur-Skotf.R...Gervigrasvöllur
Emir-Snæfell......Selfossvöllur
Skallagrímur-Ármann...Borgarnesi
Víkingur-Hvatberar Ólafsvíkurvöllúr
Kormákur-Ef!ing...Hvammstangarv.
HSÞ-b-Æskan.......Krossmúlavöllur
Neisti-KSH......Djúpavogsvöllur
Austri-Höttur....Eskifjarðarvöllur
Leiknir-Valur Fáskrúðsfjarðarvöllur
4. deild ka. kl. 17.00
Léttir-Hafnir.....Gervigrasvöllur
4. deild ka. kl. 20.00
Ægir-AugnablikÞorlákshafnarvöllur
Frjálsar íþróttir:
Meistaramót íslands hefst í Laudad-
alnum kl. 14 í dag og heldur áfram
á morgun og mánudag.