Morgunblaðið - 03.08.1988, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.08.1988, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 grein fyrir eðli þess og sjálfsögðum kröfum. Leita ég líka að presta sið langft til baka um leiðbeiningar, þeg- ar huga er beint til þjóðhöfðingja. En í fyrri Kronikubók má lesa þessi orð: „Þó skalt vera hirðir þjóðar minnar, og þú skalt vera höfðingi yfir þjóð minni." Þekki ég ekki önn- ur tvö orð, sem að mínu viti túlka betur eðii hugsjónarinnar í starfi þjóðhöfðingja, en þegar hann er í senn hirðir lýðs og höfðingi. Og munu þá allir réttsýnir menn líta til hans með gleði, laðast að honum með stolti og lúta í fúsleika. A síðasta hausti sóttum við hjónin þing Alkirkjuráðsins í E1 Escorial á Spáni, en þar skyldi rætt um sam- skipti heimshluta og hjálp hinna bet- ur stæðu við þá, sem örlög veita skertan hlut. Á leið frá flugvelli um Madrid-borg sóttist ferðin hægt, slík var umferðin á háannatímanum. Loksins var komið út fyrir borgar- mörkin, en niðurinn ómaði enn í eyr- um, svo nærri var umferðarþunginn. En vart gátum við trúað eigin aug- um, þegar hirðir með hjörð sína birt- ist rétt við hlið bílsins, sem flutti okkur á áfangastað. Var engu líkara en sá væri nýstiginn af blöðum Bibl- íunnar eða lifandi tákn þeirra mynda sem við höfum svo mörg litið og tengjum liðnum tíma. Veðurbarinn gekk hann í fararbroddi hjarðar sinnar og þar fylgdi fé eftir, svo að ekki virtist nein hætta á því, að lamb heltist úr lestinni. Þótti okkur undar- legt að sjá þarna sambland þess, sem í huga okkar tilheyrir fortíð í svo mikilli nánd samtímans, með hávaða sinn, umferðarhnúta og flýti, jafnvel leiða vegna hægrar farar. En þama var hirðirinn kominn og hjörðin fylgdi, í slíkri ró og friði, að ekkert virtist mundi trufla, hvað þá æra eða fæla. Stundum er þjóðhöfðingi settur á bekk með konungum og öðru því, sem sögur varðveita helzt og litinn sem tákn löngu liðins tíma. Sprettur þá fram spuming um þörf fyrir slikan í samtímanum. Enda beri honum ekki hirð, sem fyrr þótti nauðsyn og spuming um viðfangsefni og afskipti af málum. En þegar nær er skoðað er þama kominn sá þáttur í samtí- manum, þegar vel tekst til, sem sízt má án vera. Þegar þjóðhöfðingi er hirðir, sem fer í fararbroddi þjóðar sinnar og leiðir eftir farsælum stig- um, er fátt betra fyrir samtímann og ekkert nauðsynlegra kynslóðum framtíðar. Það er því mikil ábyrgð, sem hvílir á þeim, sem í fararbroddi veitir öðmm fyrirmynd, og þar kom- inn sá þáttur, sem ég vildi setja efst- an, þá viðfangsefni forseta eru met- in. Hér skal þess ekki sízt minnzt í þakkarskyni, þegar fordæmi forseta mannorð íslenskrar þjóðar. Að gera öðrum þjóðum ljóst að við erum ábyrgir og hugsandi þegnar í sam- félagi þjóðanna, fólk sem er þess virði að við það sé rætt, af því sé lært og við það samið um allt sem máli skipti. Brýnast er að rækta ímynd íslensku þjóðarinnar nú þegar heimurinn umhverfis okkur er að taka stórfelldum breytingum. Þær þjóðir, sem við höfum átt best sam- skipti við á meginlandi Evrópu og talið til nánustu frændsemi við, skipa sér nú saman í bandalag með nýjum hætti. Eins og skilyrði eru fyrir þátt- töku eru til þess auglós rök að við getum ekki átt beina aðild að því Evrópubandalagi sem verður að veruleika innan fárra ára. Hins vegar mun okkur þjóðamauðsyn að geta átt náin samskipti við þetta bandalag — einmitt með þeim hætti sem hér hefur verið ræddur; þannig að ímynd okkar sé sterk og hrein og skær, að við stöndum frammi fyrir öðrum þjóðum með þá séríslensku ímynd sem umfram allt gefur okkur svip- mót sem tekið er eftir. Þessa stöðu getum við best öðlast í krafti þekk- ingar og með því að sýna öðrum þjóð- um að við búum yfir mikilli reynslu og kunnáttu í hveiju því sem við tökum okkur fyrir hendur. Til þess að það megi rætast hljótum við að veita þekkingunni, almennri mennt- un, ræktun vísinda og skapandi hugsun forgang umfram allt annað í náinni framtíð. Þannig getum við borið höfuðið hátt, fullviss um að okkar verði minnst með virðingu. Megi sú verða gæfa Islenskrar þjóð- ar. birtist í reglulegri kirkjugöngu og þátttöku í virkri tilbeiðslu safnaðar í söng og bænargjörð. Ekki er heldur sú fyrirmynd síðri, þegar þjóðhöfð- ingi beygir kné sín sem huga við náðarborð Drottins og þiggur sem aðrir þegnar náð fyrirgefningarinn- ar. Fer þar fagurlega saman hreins- un hugar með þeim undirbúningi, sem fylgir, og er farsælt veganesti frekari göngu í fararbroddi. Herma íbúar staða, sem forseti heimsækir, að gott sé að fá þjóð- höfðingja sllkan sem nú eigum við I heimsókn. Fari þar saman upplyfting hugar á hátíðarstundum með skírskotun til þess, sem sameinar íslenzka þjóð. En sá sé einnig kostur slíkrar heimsóknar, að heimamenn vita vel, að ekki er hægt að bjóða þjóðhöfðingja sínum það, sem endra- nær mætir kíki við blinda augað. Er því allt fegrað og fágað og það fjarlægt, sem ekki sæmir. Er því staður sem fólk sparibúið, þegar for- seti ekur I hlað. Þar fer því enn líking um hirði og hjörð. Góður hirðir laðar fram hið bezta og býr hjörð sinni það eitt, sem vel gagnar. Og þegar það hefur ítrekað verið gjört, verður það sjálfsagt, svo að annað særir. Þannig getur máttur endurtekning- arinnar orðið til þess að athyglin vex, ekkert síður en I aðgæzluleysi, að hún slævist. En fom texti kveður forystumann þjóðar ekki aðeins hirði, heldur og höfðingja. Sá einn ber þann titil með sóma, sem varðar þá stigu, er heill fylgir og laðar að þeim. Þótti forðum sem saman færi gæfa konungs og gott árferði. Mun reyndar ekki fjarri sanni, að enn þyki líklegt, að heill á einu sviði, laði fram blessun á öðrum. Og er líka sá höfðingi einn sannur hirðir, sem kann að hverfa úr há- sæti til að deila kjörum við þá, sem I kring safnast. Ber því hirðir höfuð hátt sem höfðingi, en lýtur líka að þeim, sem lýist á för hjarðar og lyft- ir I fang sér eða hlúir að með öðrum hætti. En sízt skyldi okkur skjótast yfir eitt atriði textans úr fómri Kroniku- bók. Þar er ekki aðeins talað um hirði og höfðingja þjóðar, heldur notar sá, sem orðin em lögð I munn eignarfomafnið. Takið eftin „Þú skalt vera hirðir þjóðar minnar, og þú skalt vera höfðingi yfir þjóð minni." Hver mælir svo annar en sá, sem upphaf er rakið til, hann sem er skapari himins og jarðar, sá sem mælti og það varð. Hans er þjóðin, höfðingi sem þegnar, hirðir sem hjörð. Islenzk þjóð má ekki sízt telja það gæfu sína, að nafn Guðs hefur verið hér ákallað og tilbeðið allt frá upphafi, svo að fyrr en föst búseta var hér, var Guði sungið lof og frels- aranum Jesú Kristi lotið. Og hvort heldur það var heill eða hörmung sem einkenndi árin, þá gleymdist ekki Drottins nafn. Vera má jafnvel, að því hafi síður verið gleymt, þegar I móti blés en þá allt gekk fólki I hag- inn. Er því ekki sízt ástæða fyrir okkur I velmegun ótrúlegri að gæta vel hugar ekki síður en fóta, svo að við rötum ekki I þær ógöngur, að Guði sé gleymt Er því leiðsögn þjóð- höfðingja á þeim leiðum mikil blessun og fyrirmynd I fararbroddi nokkur trygging gegn gleymsku og ekki sízt ástæða fagnaðar við upphaf hins þriðja kjörtímabils. Það fylgir því enginn leiði endur- tekningu nú, heldur fögnuður og þakklæti. Við þekkjum sögu áranna liðnu og eigum I forseta bæði hirði sem höfðingja og felum árin næstu forsjá Guðs I góðri trú á handleiðslu hans. Blessi Drottinn Jesús, hinn góði hirðir, Vigdísi Finnbogadóttur, for- seta Islands, og þegna hennar. Miðli hann henni styrk svo sem verið hefur til að veita vemd hirðisins með góðu vali vegferðar, ásamt fyrirmynd höfðingjans, sem eðlilegt er að líta upp til og sýna aðeins hið bezta. Við felum Guði árin fjögur, já, árin öll og landið hans, Island og islenzka þjóð. Heyrum fyrirmæli hans forseta veitt „Þú skalt vera hirðir þjóðar minnar, og þú skalt vera höfðingi yfir þjóð minni." í Jesú nafni. Amen. Citroen á tilboðsverði Við þurfum að rýma fyrir nýjum birgðum og bjóðum nokkra AX bíla á tilboðsverði eins og að neðan greinir: B X BX/Leader BX16TRS BX19GI BX' BX1 BX19TRS Break Verðliata- Afsláttur: Tilfc verð: 595.000^ M7.C r9.ooo 929.000 1147.000 859.000 939.000 125ITO00 899.000 989.000 .000 103.000 40.000 50.000 A X Verðlista- Afsláttur: Tilboðs- verð: verð: AX 10 RE 3 390.000 31.000 359.000 AX 10 RE 5 410,000 32.000 378.000 AX 11 TRE 3 430.000 31.000 399.000 AX 11 TRE5 473.000 54.000 419.000 AX14TRS3 474.000 45.000 429.000 AX 14 TRS 5 493.000 48.000 446.000 Aldrei áður höfum við boðið Citroén á slíku verði. —Látið því ekki happ úr hendi sleppa. Komið í sýningarsalinn í vikunni og gerið góð kaup. SÉð Greiðsluskilmálar við allra hæfl. Heitt á könnunni. Globusi Lágmúla 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.