Morgunblaðið - 03.08.1988, Side 30

Morgunblaðið - 03.08.1988, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 Þrír menn fórust í flugslysi við Reykjavíkurflugvöll: „Vélin steyptist á baíiðog hrapaði á nefið“ BJARNI Pálmars leigubílstjóri var austan megin Sóleyjargötu þegar hann sá flugvélina yfir trjá- toppunum f Hljómskálagarðinum. Með honum f bflnum var farþegi, ung stúlka. „Vélin kom út úr skýjabakkanum eins og skuggi og það glitti í hana yfír trjátoppunum. Ég gat ekki séð annað en að vélin væri í eðlilegri aðflugshæð og ég sá ekkert sem benti til þess að eitthvað væri að. Hins vegar lækkaði hún flugið skyndilega yfir Hringbrautinni og beygði örlítið til vinstri sem var afar torkennilegt. Þetta gerðist allt svo snöggt. Ég kallaði upp yfir mig hvort þeir hefðu hugsað sér að lenda vél- inni á veginum en þá rétti hún sig strax til hægri með snarpri beygju og miklum vélargný og steypist á bakið og hrapaði síðan á nefið með miklum dynk. Ég stöðvaði bílinn og flýtti mér út að flakinu sem strax varð alelda. Slökkviliðið brást skjótt við og var farið að dæla kvoðu yfir brennandi flakið innan örskammrar stundar. Maður verður svo hissa þeg- ar svona lagað gerist að maður miss- ir alveg andlitið. Konan sem var hjá mér í bílnum hljóp út úr honum í skelfingu og ég sá hana ekki aftur," sagði Bjami Pálmars leigubílstjóri. Morgunblaðið/RAX Slökkviliðið á Reykjavíkurflugvelli ásamt slökkviliði Reykjavíkur brást skjótt við. Tekist hafði að slökkva eldana með kvoðu áður en fimm mínútur voru liðnar frá slysinu. Flugvélin steyptisttiljarðar 50 metrum sunnan Hringbrautar ÞRÍR Kanadamenn létust er tveggja hreyfla Casa-212-flugvél fórst f aðflugi að Reykjavíkur- flugvelli klukkan 17.42 f gær. Vélin stakkst niður milli Hring- brautar og norður-suður-flug- brautar, rúmum 50 metrum sunnan Hringbrautar, en þá var þung umferð um Hringbraut til austurs og vesturs. Casa-vélin var sérútbúin til rannsókna og segulmælinga. Hún var hingað komin frá Nassarsuaq á Grænl- andi en Kanadamennirnir voru á Ieið til Frakklands þar sem þeirra beið rannsóknarverkefni. Vélin, sem var skráð í Kanada og bar einkennisstafina C-GILU, var í eigu fyrirtækisins Geo- terrex f Ottawa og hafði marg- sinnis áður haft viðdvöl hérlend- is. Fjöldi sjónarvotta var að því er vélin fórst. Hún var þá í blindflugs- aðflugi í um IV2 kflómetra skyggni að norðurenda norður-suður-flug- brautarinnar og var áhöfnin í sam- bandi við flugtuminn á Reykjavík- urflugvelli. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var ekkert í fjar- skiptum vélarinnar við flugtuminn sem bent gat til bilunar eða erfið- leika við stjóm hennar. Flugmaður- inn hafði nýverið fengið upplýsingar úr flugtumi um veður og skyggni. Sjónarvottum í flugtumi virtist vél- in hallast á hægri væng er hún kom niður úr skýjum í, að því er þeim virtist, eðlilegri aðflugshæð en ekki í nákvæmri stefnu á flugbrautina. Þeim virtist vélarhljóðið óeðlilegt. Þegar flugmaðurinn jók eldsneytis- gjöf snerist vélin yfir til hægri og snerist í um það bil 270 gráður miðað við rétta aðflugsstefnu áður en hún skall til jarðar um 100 metra vestan við flugbrautina. Strax og vélin snerti jörðu kvað við sprenging í flakinu og eldtungur stigu til lofts. Varð vélin að ijúkandi rústum á örskammri stundu. Talið er víst að mennimir hafi allir beðið bana sam- stundis. Slökkviliðið á Reykjavíkurflug- velli var komið á vettvang og tekið til við slökkvistarf innan tveggja mínútna að sögn sjónarvotta. Skömmu síðar dreif fjölmennt lög- reglulið að, einnig slökkviliðið í Reykjavík og sjúkrabifreiðar. Mikill fjöldi fólks fylgdist með slökkvi- og björgunarstarfi enda síðdegisum- ferð um Hringbraut í hámarki. Um hálfri annarri klukkustundu eftir að björgunarstarf hófst náðu björgunarmenn líki fyrsta mannsins úr vélinni en um klukkan 21 var björgunarstarfi lokið. Þá var dúkur breiddur yfír flak vélarinnar og verður það varðveitt á slysstað þar til fulltrúar eigenda og framleið- enda koma til landsins til að kanna verksummerki í dag eða á morgun, fímmtudag. Þá em einnig væntan- legir til landsins fulltrúar frá kanadískum flugmálayfirvöldum sem annast munu rannsókn slyssins í samvinnu við íslensk yfirvöld. Lögregluvörður verður um flakið þar til vettvangsrannsókn telst lok- ið. Um klukkan 23 í gærkvöldi varð- ist Loftferðaeftirlitið allra frétta af rannsókna málsins en þá stóðu yfir umfangsmiklar skýrslutökur af þeim fjölda sjónarvotta sem gefíð hafði sig fram. Grétar Óskarsson framkvæmdastjóri Loftferðaeftir- litsins sagði nokkra daga mundu líða áður en orsakir slyssins skýrð- ust. „Sá vélina sting- ast niður hægra megin við migu Jón Óli Sigurðsson. EINN sjónarvotta að flugslysinu á Reylqavíkurflugvelli, Jón ÓIi Sigurðsson, hafði ekið vestur Hringbraut og var að beygja suð- ur Vatnsmýrarveg. Hann sá ekki flugvélina í aðfluginu en sá hann Slæm veður- skilyrði við Reykjavíkur- flllgVÖll VEÐUR var slæmt þegar flug- slysið varð í gær. Veðurstofa ís- lands er með mælingar við flug- völlinn og klukkan 18 var þar suðvestan fjögur vindstig og súld. Skyggni var 9 kílómetrar. Það var lágskýjað og voru lægstu ský í um 400 fetum og alskýjað í 800 fetum. hrapa til jarðar. Hann var með myndavél í bilnum og snaraðist hann út úr bflnum og tók myndir af slysinu. „Ég var kominn yfir gatnamótin þegar ég heyri mikinn vélargný. Ég veit ekki hvort flugmaðurinn hefur verið að botngefa vélinni til að ná henni aftur á loft eða hvort hann hafi verið að reyna að ná henni á loft aftur vegna þess að hann hafi komið of lágt inn. Ég sá ekki að- flugið því ég var kominn það langt. En ég sá vélina koma hallandi inn og nefið og vængurinn stakkst í jörð- ina. Ég sá hana bara stingast niður hægra megin við mig. Það kviknaði eldur um leið og hún kom við jörð- ina. Það var aðallega reykur, maður sá varla eldinn fyrir reyk. - Hvernig varð þér við? „Mér brá náttúrulega. En ég stöðvaði bílinn, greip myndavélina og fór að taka myndir. Það var aus- andi rigning og lágskýjað og það dreif strax að mikinn fjölda fólks," sagði Jón Óli Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.