Morgunblaðið - 03.08.1988, Page 36

Morgunblaðið - 03.08.1988, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 pltrgi Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúarritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 70 kr. eintakið. Glatað gróðurlendi rátt fyrir menntun, þekk- ingu, tækni og ríkidæmi hefur Islendingum ekki tekizt að hefta gróðureyðingu lands- ins. Engu að síður hefur verið tekizt skipulega á við þetta vandamál allar götur frá því að Landgræðsla ríkisins var sett á laggimar fyrir rúmum 80 árum, árið 1907. Talið er að frá landnámi hafi rúmlega þrjár milljónir hektara gróins lands eyðst — eða þrjú þúsund hektarar að meðaltali á ári. Þetta þýðir að um helmingur þess gróður- lendis, sem hér var við land- nám, hefur glatast. Ástæðan er margþætt: kóln- andi veðurfar, eldvirkni lands- ins, eyðing skóga, ofbeit og uppblástur. Gróðureyðingin er að hluta til „náttúruleg“, ef svo má að orði komast. Á hinn bógin sök landsmanna, sem hafa ofboðið landinu á ýmsan hátt. Enn gengur á gróðurlendið, ekki sízt í Þingeyjarsýslum, á Suðurlandi og á suðvestur- homi landsins. Hraðfara gróðureyðing, eins og hér var á fyrri hluta aldarinnar, er að vísu ekki til staðar, en gróður- lendið skreppur hins vegar saman á mörgum smærri svæðum, einkum á hálendinu. Viðkvæmum hálendisgróðri stendur ekki ógn af beitarálag- inu einu saman, heldur vax- andi og á stundum ógætilegri umferð ferðamanna, innlendra sem erlendra, sem sækja á vit öræfanna. í þessu efni þarf að koma við betri vömum áður en þ'að er orðið of seint. Sveinn Runólfsson, land- græðslustjóri, segir í viðtali við Morgunblaðið fyrir fáeinum dögum, að langalvarlegustu sandfoks- og gróðureyðingar- svæði landsins séu á Mývatns- öræfum og í Hólsfjöllum. Þetta em eldfjallasvæði; jarðvegur sendinn, gosefnablandinn og fokgjam. Urkoma lítil og eyði- merkurástand í þurrkatíð. Beitarþol svæðanna er því mjög takmarkað, ekki sízt ef fé er sleppt snemma á afrétt- arlönd, þó að víðáttumikil séu. „Að frumkvæði landbúnaðar- ráðherra hefur verið ákveðið að koma á starfshópi sem í verða fulltrúar sveitarstjómar og gróðurvemdarnefndar," sagði Sveinn, „sem ætlað er að gera nokkurskonar land- græðslu- og landnýtingaráætl- un fyrir þetta svæði.“ Land- græðslustjóri sagði jafnframt að „Landgræðslan geti ekki farið út í neinar nýjar upp- græðsluaðgerðir á þessum slóðum fyrr en menn verða búnir að gera áætlanir um hvemig búskaparháttum verð- ur hagað á næstu árum. í dag er þetta lang alvarlegasta sandfoks- og gróðureyðingar- svæðið sem við eigum við að etja“. Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins hafa unnið mikið og gott starf í áratugi. Misþröngur fjárlagarammi hefur hinsvegar sett starfsem- inni sín mörk. Síðast en ekki sízt hafa skógræktar- og gróð- urfélög, sem virkjað hafa áhugasama einstaklinga, lyft Grettistökum á þessum vett- vangi. Skógræktarfélag íslands undirbýr nú, í samstarfi við önnur félagasamtök og opin- bera aðila, sérstakt þjóðarátak í skógrækt 1990. Það er vel, enda er skógrækt veigamikill þáttur landgræðslu. Þannig er íslenzki birkiskógurinn sterk- asta vöm jarðvegs gegn rofi. Skógar-skjólbelti eru ekki síður mikilvirk í landgræðslu. Áhugi almennings á um- hverfísmálum, gróðurvernd, landgræðslu og skógrækt hef- ur aukizt mjög mikið á síðustu áratugum og fer enn vaxandi. Þessi áhugi kom meðal annars fram í þjóðarátaki í land- græðslu, sem efnt var til í til- efni ellefu alda búsetu í landinu, og gaf góða raun. Þessi áhugi speglast einnig í stefnuyfírlýsingu ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar, en þar segir m.a.: „Gerð verður áætl- un um nýtingu landsins sem miðar að því að endurheimta, varðveita og nýta landgæði á hagkvæman hátt... Skóg- rækt, landgræðsla og gróður- vemd verði aukin í samvinnu ríkis, sveitarfélaga og fijálsra samtaka ... Fræðsla um nátt- úruvemd og umhÝerfismál verði aukin.“ Þessum stefnumiðum þarf að fylgja eftir með verkum. Það hefur að hluta til verið gert. En betur má ef duga skal. Stjómvöld þurfa að styðja myndarlega við bakið á þeim sem nú undirbúa sérstakt átak í skógrækt á árinu 1990. Norræna kvennaþingið í Osló Tíu þúsund þátttakendur á kvennaþingi: Um hundrað dagskrá að velja hvern dag í I Osló. Frá Þórunni Þórsdóttur blaðamanni Morgunblaðsins Háskólasvæðið „Blindem“ í Osló er nú iðandi af lífi þrátt fyrir sumarleyfi skólafólks. Þar streyma konur á öllum aldri úr ólíkum þjóðfélagshópum um götur og torg inn og út af fyrirlestrum, kynning- arfundum og ráðstefnum. Margar þeirra em á hraðferð, enda um liðlega hundrað dagskrárliði að velja dag hvem á norrænu kvenna- þingi sem sett var undir berum himni síðastliðinn laugardag og lýkur næstkomandi sunnudag. Um átta hundruð íslenskar kónur eru á þinginu og alls hafa nærri tíu þúsund konur af öllum Norðurlönd- unum skráð sig til þátttöku að sögn Guðrúnar Agústsdóttur, sem er full- trúi íslands í norrænu undirbún- ingsnefndinni ásamt Amdísi Stein- þórsdóttur. Það er því mikill kvennafans í Osló þessa vikuna. Hótel eru troðfull og veitingahús þétt setin. Raunar eru fleiri gestir í Osló en kvennaþingskonur, hér er haldið 800 manna alþjóðlegt bindindismót og geysifjölmennt fótboltamót unglinga auk jasshátíðar. Á kvennaþingið eitt hafa skráð sig 230 fréttamenn sem eru um helm- ingi fleiri en búist var við að sögn Guðrúnar. Dagskrá kvennaþingsins er ærið yfirgripsmikil og samanstendur af fyrirlestrum, umræðuhópum, sýn- ingum og ráðstefnum á vegum kvennaúr stjómmálaflokkum, laun- þegahreyfingu, kvenfélögum og fjölmörgum hópum öðrum. Talsvert er um að konur frá fleiri löndum en einu og af sama sviði hafi sameiginleg dagskráratriði. Jafnframt segir Guðrún Ágústdóttir að þær tvö hundmð klukkustundir sem teknar vom frá í byggingum á háskólasvæðinu fyrir óvænt atriði séu næstum uppumar. Konur með sömu hugðarefni en frá ýmsum Norðurlandanna vilji bera saman bækur sínar. Hátt í þijátíu byggingar á há- Morgunblaðið/Ól. K. Magnússon Norrænar hægrikonur héldu ráðstefnu á kvennaþinginu í gær. í dag kynna sjálfstæðiskonur stefnu flokks- ins fjölskyldu og jafnréttismálum. Hægrikonur halda ráð- stefnu um fjölskylduna HÆGRIKONUR á kvennaþingi héldu ráðstefnu í gær um efnið „Konur og fjölskyldan". Flutt voru fjögur inngangserindi, þá voru haldnir fyrirlestrar i smærri hópum. Af íslenskum konum töluðu þær Inga Jóna Þórðardótt- ir og Sólveig Pétursdóttir. í dag kynna sjálfstæðiskonur starf sitt innan flokksins. KONUR úr Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja kynntu sig fyrir kynsystrum af öðrum Norðurlöndum á kvennaþingi á mánudag. Stór hópur fylgdist með upplestri, söng og dansi BSRB kvenna um vinnutímann þar sem breytingar á honum eru raktar frá aldamótum til dagsins í dag. Brynja Benediktsdóttir leikkona setti vinnutímarevíuna saman, en Guðrún Alfreðsdóttir hefur stjóm- að æfingum. Revían fjallar um vinnutíma kvenna í fíórar kynslóð- ir, allt frá bændasamfélagi til tölvu- samfélags. Fyrst segir af aldamótakonunni sem hélt sig heima og féll aldrei Yfirskrift á kynningu sjálfstæðis- kvenna í dag er „Konur, atvinnulífið og fjölskyldan". Þórunn Gestsdóttir setur kynningarfundinn en erindi flytja þær María E. Ingvadóttir, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Katrín Fjeldsted og Salóme Þorkelsdóttir. Að loknum fundinum kynna sjálf- stæðiskonur myndband um stjóm- mál í daglegu lífí sem gert var í til- verk úr hendi. Þá kemur konan sem farin er að vinna ýmis þjónustu- störf á stríðsárunum' til sögunnar, hún á sokkapijónavél og jafnvel saumavél. Næst víkur sögunni að vélritunardömum á sjöunda ára- tugnum. Konur á vinnumarkaði hafa yfirleitt lág laun, gegna þjón- ustu- og skrifstofustörfum. Rauð- sokkutímabil gengur í garð og stúdentauppreisnir komast í al- gleyming. Lokakafli vinnutímarevíu BSRB kvenna gerist um og eftir 1970 þegar jafnréttiskrafan verður mjög sterk, útlitsdýrkun áberandi, tölvu- væðing á sér stað og barnagæsla verður æ stærra vandamál eftir því sem konur hasla sér frekari völl á vinnumarkaði. efni norræna kvennaþingsins. Á ráðstefnu hægri kvenna í gær lagði ein frummælenda þingmaður- inn Anna Khateriné Haglund höfuð- áherslu á möguleika foreldra til að velja á milli ólíkra kosta við uppeldi barna án þess að stjómvöld hefðu kortlagt valið fyrirfram með því að veita miklu fé í einn þátt en hafa annan í fjársvelti. Sagði Haglund að aukinn skattafrádráttur vegna barna væri meðal grundvallaratriða í kosningabaráttu hægri flokksins í Svíþjóð. Fyrir hönd íslenskra hægrikvenna talaði Ragnhildur Helgadóttir og greindi frá meginhugmyndum að baki fjölskyldustefnu Sjálfstæðis- flokksins sem byggðist á jafnfrétti karla og kvenna innan og utan heim- ilis. Hún ræddi meðal annars um fjölskylduna sem grunneiningu þjóð- félágsins og skyldu ríkisins til að styðja hana, ábyrgðarhlutverk for- eldra og nauðsyn þess að það sé virt. Formaður sambands norskra hægrikvenna, Astrid Nöklebye Hei- berg, er geðlæknir sem sérstaklega hefur rannsakað streitu kvenna. í erindi sínu fjallaði hún um muninn á stöðu karla og kvenna í atvinnulíf- inu og talaði um að sífellt samvisku- bit margra kvenna vegna mikillar vinnu utan heimilis stafaði einfald- lega af því að þær bæm mesta ábyrgð. Þá talaði Heiberg um mikil- vægi þess að minnka yfirvinnu for- eldra smábarna. BSRB konur flytja revíu um vinnuna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.