Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
3SÍ
Samgöngfuráðherra á
ferð um Austurland
Seyðisfirði.
MATTHÍAS Á. Mathiesen sam-
gönguráðherra verður á ferð
um norðurhluta Austurlands
dagana 4.-6. ágúst. Hann mun
skoða hafnar- og samgöngu-
mannvirki, fara i heimsóknir í
fyrirtœki og hitta sveitarstjóm-
armenn.
Ferðin hefst á Egilsstöðum
fimmtudagsmorguninn 4. ágúst
kl. 8.00 þar sem hann skoðar
framkvæmdir við Egilsstaðaflug-
yöll og ræðir við ráðamenn flug-
vallarins og forsvarsmenn bygg-
ingarverktákanna þar. Síðan mun
hann hitta oddvita Fellabæjar og
Opið hús í Norræna húsinu
myndin „Þrjár ásjónur íslands" með
norsku táli.
Í anddyri hússins stendur nú yfír
sýning á íslenskum steinum og í
sýningarsal er sýning á landslags-
málverkum eftir Jón Stefánsson.
Bókasafnið og kaffistofan verða
opin til kl. 22.00 eins og venja er
á fimmtudögum meðan „Opið hús“
verður á dagskrá í sumar. í bóka-
safni liggja frammi bækur um ís-
land og íslenskar hljómplötur.
Aðgangur er ókeypis.
í „OPNU húsi“ í Norræna húsinu
fimmtudagskvöldið 4. ágúst kl.
20.30 talar sr. Heimir Steinsson
þjóðgarðsvörður um Þingvelli,
hvert hlutverk þeirra hafi verið
í vitund þjóðarinnar og sögu.
Spjall Heimis verður flutt á
dönsku, enda er dagskráin í „Opnu
húsi" einkum ætluð norrænum
ferðamönnum, en íslendingar eru
engu að síður velkomnir.
Eftir kaffíhlé verður sýnd kvik-
Tónleikar í Dómkirkjunni
TVEIR ungir þýskir tónlistar-
menn halda tónleika i Dómkirkj-
unni í kvöld kl. 20.30 og flytja
verk fyrir orgel, gítar og söng.
Leikin verður tónlist frá fímm
síðastliðnum öldum, meðal annars
eftir Johann Sebastian Bach, John
Dowland, Benjamin Britten og Oliv-
er Messiaen.
Michael Hillenstadt, sem er kenn-
ari í gítarleik í Hamburg, og Wolf-
gang Knuth, sem starfar sem orgel-
leikari og tónskáld í sömu borg, eru
á tónleikaferð í kringum landið.
Eftir hljómleikana í Reykjavík
munu þeir koma fram á fimmtu-
dagskvöld á Selfossi og á sunnu-
daginn kl. 15.00 i Skálholti.
Ollum er heimill aðgangur á tón-
leikana.
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til
sýninga kvikmyndina „Skyndi-
kynni“ með Lea Thompson og
Victoria Jackson í aðalhlutverk-
um.
„Skyndikynni“ fjallar um leit
tveggja vinkvenna að draumaprins-
inum, en breytt viðhorf níunda ára-
heimsækja fyrirtæki.
Farið verður til Seyðisfjarðar
þar sem hann ræðir við bæjar-
stjóra og bæjarráðsmenn, skoðar
hafnarmannvirki og farþegafeij-
una Norrönu sem kemur til Seyðis-
ijarðar á hvetjum fímmtudags-
morgni. Hann fundar með stjóm-
um Sjálfstæðisfélaga á Austurl-
andi og sveitarstjómarmönnum
Sjálfstæðisflokksins í hádeginu á
Hótel Valaskjálf.
Ráðherra verður með við-
talstíma í Valaskjálf kl. 14.30 og
kl. 16.00 hittir hann samgöngu-
nefnd og framkvæmdastjóm Sam-
bands sveitarfélaga á Austurlandi.
Um kvöldið verður hann á opnum
fundi í Brúarási í Jökulsárhlíð.
Á föstudagsmorgun hittir sam-
gönguráðherra bæjarstjóra og
bæjarstjómarmenn á Egilsstöðum
og heimsækir fyrirtæki þar. Síðan
fer hann til Bakkafjarðar og
Vopnafjarðar þar sem hann heim-
sækir fyrirtæki. Hann heldur
kvöldverðarfund á Hótel Tanga
með stjóm Sjálfstæðisfélagsins og
sveitarstjórnarmönnum Sjálfstæð-
isflokksins. Um kvöldið verður
hann á opnum fundi í félags-
heimilinu Miklagarði í Vopnafirði.
Á laugardagsmorguninn hittir
hann sveitarstjóra og sveitar-
stjómarmenn á Vopnafírði og
skoðar þar hafnarmannvirki og
heimsækir fyrirtæki. Þessari ferð
ráðherra lýkur svo á hádegi á laug-
ardag en síðar þann sama dag
verður hann viðstaddur vígsluat-
höfn Flugmálaráðs á nýrri flug-
stöðvarbyggingu á Vopnafírði.
- Garðar Rúnar
Leifur Leópoldsson skoðar bækling þann sem Krýsuvíkursamtökin
hafa sent frá sér, þar sem markmið þeirra og málstaður eru kynnt.
Áheitaganga Leifs Leópoldssonar;
Gekk með ísaðri girð-
ingu í blindaþoku
LEIFUR Leópoldsson er nú kom-
inn langleiðina yfir landið endi-
langt eftir að hafa gengið í 33
daga. Þegar Morgunblaðið hafði
samband við Leif hafði hann lagt
að baki um 580 km en átti um
40 km eftir. Göngunni lýkur
væntanlega við Arnarstapa á
laugardag. Tilgangurinn með
göngu Leifs er að safna áheitum
til styrktar Krýsuvíkursamtök-
unum, en meginmarkmið þeirra
er að koma á fót meðferðarstofn-
un fyrir unglinga í vímuefna-
vanda í Krísuvíkurskóla.
Leifur var staddur á Snæfellsnesi
þegar Morgunblaðið náði tali af
honum. Nánar tiltekið undir Elliða-
hamri, miðja vegu milli Kerlinga-
skarðs og Fróðárheiðar. Hann sagði
veður hafa verið gott yfír helgina,
en í síðustu viku lenti hann 5 nokkr-
um hrakningum. „Ég lenti í heil-
miklu slarki á miðvikudeginum og
á fímmtudaginn, þegar það skall á
með slyddu og hagléli. Þetta var
versta veður sem komið hefur á
leiðinni. Hiti var við frostmark og
ég gekk meðfram ísaðri girðingu í
blindaþoku. Þetta var á leiðinni upp
af Bröttubrekku, á mótum Borgar-
íjarðar- og Dalasýslu. Um nóttina
svaf ég síðan undir berum himni í
2 stiga hita, en þá var ég kominn
niður í Mjóadal, ekki langt frá
Hítardal."
Leifur er nú einn á ferð, en hund-
urinn Vaskur sem lagði af stað með '
honum frá Reyðarfírði várð fljótt
sárfættur og sá Hjálparsveit Skáta
á Akureyri um að koma honum til
síns heima úr Herðubreiðarlindum.
Samkomulag ráðuneyta vegna rekstrarvanda Landakots:
Fulltrúaráð Landakotsspítala
fjallar um tillögurnar í dag
Victoría Jackson og Lea Thompson í hlutverkum sínum í kvikmynd-
inni „Skyndikynnum".
„Skyndikynni“ í Laugarásbíó
tugarins og lífshættulegir sjúk-
dómar setja þeim vissar hömlur.
En löngunin er oft sterkari en sið-
gæðið og verður þeim oft á í mess-
unni. En það birtir þó upp um síðir
er þær ákveða að dvelja á heilsu-
hæli og halda leit sinni þar áfram.
(Frcttatilkynning)
FULLTRÚARÁÐ Landakotsspít-
ara fjallar í dag um samkomulag
heilbrígðisráðherra og fjármála-
ráðherra um aðgerðir til lausnar
rekstrarvanda spítalans. Tillög-
urnar voru lagðar fyrir fram-
kvæmdastjórn spítalans á föstu-
dag en Logi Guðbrandsson fram-
kvæmdastjóri Landakotsspitala
vildi í gær ekki tjá sig um tillög-
urnar fyrr en fulltrúaráðið hefði
lýst afstöðu til þeirra.
Ráðuneyti heilbrigðis- og fjármála
sammæltust á föstudag um tillögur
í 14 liðum sem komi til framkvæmda
á næstu fjórum mánuðum. Gert er
ráð fyrir að sett verði á eftirlits-
stjóm þriggja manna til marsloka
Sauðárkrókur:
Kiwamsmenn gefa sjúkrahúsinu búnað
Sauðárkróki.
STJÓRN Kiwanisklúbbsins
Drangeyjar á Sauðárkróki færði
síðastliðinn mánudag Sjúkrahúsi
Skagfirðinga á Sauðárkróki
myndarlega gjöf, 15 náttborð til
nota á ellideild Sjúkrahússins.
Veitti Ólafur Sveinsson yfirlækn-
ir þessarí gjöf móttöku fyrir hönd
stofnunarinnar.
í ávarpi sem Sigurgeir Angantýs-
son flutti við afhendingu gjafarinnar
kom fram að Kiwanismenn hefðu
ákveðið að minnast 10 ára afmælis
klúbbsins á þann hátt að gefa
Sjúkrahúsinu einhveija þá hluti er
þangað vantaði og í samráði við
lækna og hjúkrunarforstjóra hefðu
þessi náttborð orðið fyrir valinu.
Fram kom að fengist hefðu niður-.
felldir tollar og öll aðflutningsgjöld
af borðunum en þau kosta tæpa
hálfa milljón króna. Lýsti Sigurgeir
þeirri von Kiwanismanna að nátt-
borð þessi kæmu sjúkum, öldruðum
á deild 2 að sem bestum notum.
Ólafur Sveinsson yfírlæknir veitti
og gjafabréf sem þeim fylgdi og
þakkaði þessa ágætu gjöf og þann
hlýhug sem í gjöfínni fælist. Sagði
Ólafur að borðin kæmu að mjög
góðum notum, þar sem þau eru sér-
staklega ætluð þeim sem eru alger-
lega rúmliggjandi og sérhönnuð fyr-
ir þá.
Að lokum sátu Kiwanismenn
kaffíboð með stjóm Sjúkrahússins,
læknum og hjúkrunarforstjórum.
í viðtali við Hjalta Guðmundsson
formann Kiwanisklúbbsins kom
fram að þetta væri í fyrsta sinn sem
klúbburinn gefur búnað til sjúkra-
hússins en mikið af starfínu hefði
beinst að því að styrkja einstaklinga
sem þess hefðu þurft með, vegna
ýmissa erfíðleika, til dæmis vegna
ferða og dvalar á sjúkrahúsum er-
lendis. Hins vegar sagði Hjalti að
næsta verkefni klúbbsins væri að
styðja myndarlega við bakið á ungri
og efnilegri sundkonu af Sauðár-
króki, Lilju Maríu Snorradóttur, en
hún hefur nú unnið sér rétt til þátt-
töku á Ólympíuleikum fatlaðra í
Seoul á þessu ári. _ BB
1990 til að koma tillögunum fram.
Sú stjóm verði skipuð einum fulltrúa
úr hvom ráðuneyti og einum frá
spítalanum og hafí heimild til að
ráða sér starfsmann. Að því tilskyldu
að stjóm Landakotsspítala fallist á
þetta fyrirkomulag og aðgerðirnar
mun ríkissjóður leggja fram fé, á
þessu og næsta ári, til að gera upp
skuldir spítalans svo hann komist á
eðlilegan rekstrargrundvöll.
í tillögum ráðuneytanna er fyrst
gert ráð fyrir því að rekstur spítal-
ans verði færður í það horf að hann
verði innan ramma fjárlaga. Þá verði
not Landakots af fasteignum styrkt-
arsjóðs spítalans endurskoðuð.
Þá er lagt til að leigutakar á
Marargötu 2 verði látnir standa und-
ir kostnaði þannig að spítalinn beri
engan kostnað af húsnæðinu. Lækn-
ar spítalans reka þama læknastöð
og leigja húsnæðið af Landakotspít-
ala. I tillögunum er gert ráð fyrir
að skilið verði fjárhagslega á milli
reksturs spítala og læknamiðstöðv-
ar, læknamiðsöðin greiði starfsfólki
sínu laun sjálf og einnig annan rekst-
urskostnað án þess að slíkt fari um
reikninga spítalans.
Lagt er til að kannað verði hvort
hagkvæmara sé að selja þvottahús
spítalans eða vélar þess eða halda
áfram rekstri. Þá er lagt til að stofn-
skrá styrktarsjóðs Landakots verði
staðfest með venjulegum hætti og
að hann hafi ekki leigutekjur frá
spítalanum. Tryggt verði að sjóður-
inn og allar eigur hans verði í eigu
spítalans.
Gert er ráð fyrir að kostnaður
vegna ráðgefandi sérfræðinga á
spítalanum dragist frá launum
þeirra sérfræðinga sem ráðinir em
með samningi við spítalann. Þá ann-
ist spítalinn rekstur rannsóknarstofu
á sama hátt og hann annast rekstur
röntgendeildar nú. Gerður verði
samningur við Tryggingarstofnun
ríkisins og Sjúkrasamlag Reykjavík-
ur um greiðslur, og rekstur rann-
sóknarstofu verði algeriega aðskil-
inn frá rekstri rannsóknarstofu ann-
ara aðila. Laun yfírlæknis stofunnar
verði síðan í samræmi við laun sam-
bærilegs yfírlæknis á Borgarspítala.
Miðað er við að lyfjabúr spítalans
verði rekið fyrir spítalann einan og
ekki verði seld lyf til starfsemi utan
hans.
í samkomulaginu er siðan gert ráð
fyrir að framvegis geti hvorki spítal-
inn né styrktarsjóður Landakots
stofnað til kaupa eða leiguskuld-
bindinga nema með samþykki hefl-
brigðis- og fjármálaráðherra. Kaup-'
leigusamningar spítalans verði end-
urskoðaðir og þeim sagt upp sem
ekki standist hagkvæmisathugun.
Nýir kaupleigusamningar verði ekki
gerðir nema með samþykki ráðherra
og þeir staðfesti einnig aila samn-
inga sem stjórn spítalans geri við
starfsfólk, þar með talda lækna.
Þá er gert ráð fyrir að eftirlit
með reikningum lækna sem vinna
sem verktakar verði í höndum aðila
sem ekki eiga hagsmuna að gæta.
Innra eftirlit og bókhald verði eflt
°g tryggt verði að reikningar fari
skilvíslega í gegnum spítala og komi
jafnóðum fram. Loks er gert ráð
fyrir að heildarendurskoðun fari'
fratn á rekstri og hlutverki spítalans
fyrir næstu ár með hliðsjón af verk-
efnum annara sjúkrahúsa í
Reykjavík og nágrenni.