Morgunblaðið - 03.08.1988, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
4t*
Þjóðhátíðin í Eyjum:
Lagt hald á 60
grömm af hassi
UAGl var iiald á bO gromm at
hassi og 2 grömm af amfetamíni
á þjóðhátíðinni i Vestmannaeyj-
um. Þar af var einn maður með
52 grömm á sér er hann var tek-
inn við komu til Eyja. Tvennt
bjargaðist naumlega út úr brenn-
andi íbúð við Illugagötu á laugar-
dagsmorgun. Nokkuð var um
þjófnaði í Eyjum um helgina og
þrjár kærur bárust vegna inn-
brota. Olvun var með mesta móti
á þjóðhátíð að sögn lögreglu og
var áberandi að þjóðhátíðargest-
ir voru ungir að árum og lítið
um fjölskyldur meðal aðkomu-
manna.
Tveir menn frá fíkniefnadeild
lögreglunnar í Reykjavík voru lög-
reglu í Vestmannaeyjum til aðstoð-
ar meðan á þjóðhátíð stóð. Var leit-
að á þeim sem grunsamlegir þóttu
strax við komu til Eyja. Ails fund-
ust fíkniefíii í fórum 10 manna, þar
af átti einn 52 grömm eins og fyrr
sagði. Að sögn Geiijóns Þórissonar
lögreglufulltrúa í Vestmannaeyjum
eru málin að fullu upplýst.
Lögreglumenn á eftirlitsgöngu
urðu klukkan tæplega 8 á laugar-
dagsmorgun varir við að mikinn
reyk lagði út um glugga kjallaraí-
búðar að Illugagötu 9. Tvennt var
í íbúðinni. Kona, sem var vakandi,
komst út af eigin rammleik en lög-
reglumennimir aðstoðuðu mann,
sem var sofandi í íbúðinni, við að
komast út. Talið er að kviknað hafí
í út frá rafmagni í eldhúsi íbúðar-
innar, sem er mikið skemmd.
Geiijón Þórisson sagði að tals-
vert hafí verið um kærar vegna
þjófnaða úr tjöldum en þó minna
en undanfarin ár enda var nú verðí^
mæta gætt fyrir þá sem þess ósk-'
uðu. Minna var um áflog og líkams-
meiðingar en oft áður. Geiijón sagði
að alltaf væri nokkuð um að menn
kæmu allslausir á þjóðhátíð í trausti
þess að geta orðið sér úti um fé
og hvers konar verðmæti og nauð-
synjar með þjófnaði. Mörg þjófnað-
armál era upplýst en þó er talsvert
um óskilagóss í vörslu lögreglunn-
ar.
Brotist var inn á þremur stöðum
í Vestmannaeyjum yfir þjóðhátíð
en litlu stolið. Tvö málanna era
upplýst. Brotist var inn í Friðar-
hafnarskýlið og í einkaheimili í
bænum en engu stolið. Þau mál era
upplýst og áttu hlut að máli að-
komumaður og heimamaður. Þá var
brotist inn f skóverslun í bænum
og stolið þaðan skiptimynt úr kassa.
Ekki er enn vitað hver þar var að
verki.
DELSEY
PARIS
aTÖSKUR
Laxinn hffður upp úr einni kvínni sem var dregin upp að bryggju.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Starfsmaður Mánalax með tvo 13 punda fiska, en nokkrir svoleiðis
reyndust vera i kvinni þó að uppistaðan væri um 2>/2 kílóa fiskur.
Útsölustaðir:
PENNINN, Hallarmúla • PENNINN, Austurstræti • PENNINN, Kringlan •
GEYSIR, Aðalstræti • HAGKAUP, Skeifunni og Kringlunni •MIKLIGARÐUR v/Holta
veg • BÓKABÚÐ KEFAVÍKUR, Keflavík • BÓKABÚÐIN HLÖÐUM, Egilsstöðum
• Kf. HÉRAÐSBÚA, Egilsstöðum • TÖLVUTÆKI-BÓKVAL, Akureyri •
Kf. HÚNVETNINGA, Blönduósi • Kf. BORGFIRÐINGA, Borgarnesi • BÓKABÚÐ
ANDRÉSAR NÍELSSONAR, Akranesi.
Fyrsta slátrun hjá Mánalaxi
Neskaupstað.
HJÁ MÁNALAXI var nú nýve-
rið slátrað 5 lestum af laxi og
má segja að það sé fyrsta veru-
lega slátrunin hjá fyrirtækinu
og þar með á Austurlandi.
Laxinn var fluttur ferskur á
Bandarílqamarkað og líkaði mjög
vel og seldist fyrir þokkalegt verð,
að sögn Gylfa Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins. Nú í
haust mun verða slátrað á milli
30 og 40 lestum til viðbótar. Þá
er áformað að setja um 80 þúsund
seiði út í sumar. Engin áföll hafa
orðið í laxaræktinni hjá Mánalaxi
og eldið hefur gengið vel.
— Ágúst
Starfsrolk
óskast
Geödeild Landspítala
Læknaritari
Læknaritari óskast í fullt starf á geðdeild Land-
spítalans, deild 34D. Vinnutími frá kl. 08.30-16.30.
Góð íslensku- og vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Stúdentspróf eða hliðstæð menntun og mála-
kunnátta æskileg.
Nánari upplýsingar gefur Sólveig Pálmadóttir,
skrifstofustjóri, í síma 601701.
Starfsmcnn
Starfsmaður óskast til þess að hafa umsjón og
eftirlit með sambýli við Kleppsveg í samvinnu við
fagfólk. Vinnutími frá kl. 16.00-22.00.
Æskilegt er að umsækjendur hafi sjúkraliðamennt-
un.
Nánari upplýsingar gefur Margrét Sæmundsdótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 602600.
RÍKISSPÍTAIAR
LANDSPÍTAUNN