Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988
61
Gunnar Þorkels-
son - Minning
Vinur minn og félagi, Gunnar
Þorkelsson, hefur kvatt þennan
heim, aðeins 63 ára að aldri. Okkur
sem þekktum Gunnar þykir að kall
hans hafi komið nokkru fyrr en við
bjuggumst við, því svo var hann
hress og glaður allar þær stundir
áður en hann fór skyndilega á
sjúkrahús, þar sem hann var skor-
inn upp vegna heiftarlegra inn-
vortis meinskemmda er leiddu hann
um síðir til dauða. Gunnar var
fæddur þann 27. júlí 1925, foreldr-
ar hans voru Hansísna Hansdóttir
og Þorkell Ólafsson söðlasmiður.
Kona Gunriars var Erla Eyjólfs-
dóttir, dóttir Eyjólfs Eyjólfssonar
og konu hans, Sigríðar Einarsdótt-
ur. Þau Erla og Gunnar giftu sig
27. júlí 1945 og eignuðust tvær
dætur, Guðrúnu Stellu og Eygló,
sem báðar eru giftar; Stella gift
Trausta Finnssyni rafvirkja og eiga
þau þijú böm, Eygló gift Ragnari
Ragnarssyni prentara og eiga þau
einn dreng. Erla, kona Gunnars,
andaðist 3. september 1985 og varð
fráfall hennar mikið áfall fyrir
hann, mann á góðum aldri. En öll
él birtir um síðir. Gunnar hélt velli
á lífsbrautinni, hafði ætíð gnægð
að starfa bæði fyrir sínu lifíbrauði
og svo sömuleiðis að félagsstörfum.
Hann vann framan af hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands, einnig mörg ár hjá
Halla Þórarins, sem deildarstjóri í
matvöruverslun, einnig síðari ár
sölumaður hjá Ópal og nú síðast
hjá sælgætisgerðinni Mónu til
dauðadags. Ekki ætla ég mér að
reyna að skrifa tæmandi ævisögu
heiðursmannsins Gunnars Þorkels-
sonar, vildi aðeins minnast hans,
eins og hann kom mér fyrir í sjón
og reynd.
En af því ég kynntist honum það
vel og veit með vissu að hann kærði
sig lítið um óþarfa skjall eða mærð-
armas, þá geri ég ekki tilraun til
slíkra ummæla. Gunnar var sér-
staklega mikill áhugamaður um
a.m.k. tvennt, sem ég veit um, hann
hafði sérstaklega gaman að öllum
veiðiskap og var oft dijúgur á
hlaupunum upp og niður með ám
og vötnum, í viðureign sinni við
þann silfraða, sem gat endað á
ýmsa vegu. Annað sérstaklega mik-
ið áhugamál Gunnars var að spila
bridge og ég, sem fyrrverandi
makker hans í bridge um langan
tíma, get með góðri samvisku borið
honum gott orð í þeirri íþrótt. Hann
var þar geysimikill keppnismaður,
raunsær og í alla staði mjög heiðar-
legur. í þeirri íþrótt vann hann
marga sigra og verðlaunagripi til
minningar þar um. Og þar sakna
ég, og mér er óhætt að segja allir
bridgespilarar, svo sannarlega vinar
í stað.
Gunnar var einnig í rriörg ár
starfandi að margskonar félagsmál-
um og varð bridgeíþróttin þess að-
njótandi að hafa hann sem sjálf-
boðaliða um ýmis málefni hennar.
Og þar sem ég hefí nú tekið mér
penna í hönd til þess að minnast
vinar míns, Gunnars, þá verð ég
að viðurkenna að mig skortir tilfinn-
anlega lýsingarorð svo vel megi
vera. En þó er það ofarlega í huga
mínum hversu hugljúfur og glaðvær
hann var í hvívetna, hlátur hans
og hressilegur húmor voru honum
svo sannarlega í bijóst borin sem
komu öllum í námunda við hann í
gott skap. Með slíkum mönnum er
bæði notalegt og skemmtilegt að
vera. Eitt var það sem vakti sér-
staka athygli mína gagnvart Gunn-
ari, það var hversu fróður hann var
bæði um menn og málefni, hann
virtist svo víða vera heima þegar á
var minnst. Sérstaklega var hann
glöggskyggn á allt umhverfí, bæði
hér í borg sem og í öllum nágranna-
bæjum okkar. Hvert sem við fórum
virtist hann þekkja allar götur alls
staðar og stundum íbúana líka. Og
nú þegar ég minnist síðustu daga
ævi hans get ég ekki látið hjá líða
að minnast þess hversu mér brá
mjög er ég heimsótti hann á sjúkra-
húsið þar sem hann lá á gjörgæslu-
deild í öndunartækjum og gat sig
ekki hreyft eða tjáð sig. Þó þekkti
hann alla fram á síðustu stund og
heilsaði innilega þeim sem komu í
heimsókn. Ég átti stutt viðtal við
hjúkrunarkonu á Landakotsspítal-
anum eftir að hann var allur og
spurði hana nokkurra spuminga um
hans spítalalegu. Hún tjáði mér að
hann hefði alla tíð verið æðrulaus
og mjög jákvæður framan af. Bjóst
helst við að þetta yrði skammtíma-
aðgerð og hann mundi sleppa útí
lífíð aftur, sem því miður varð þó
ekki. Einnig sagði hún mér að hann
hefði um síðir verið farinn að gera
sér ljóst, að hveiju stefndi. En þó
hafí hann alla tíð verið mjög bjart-
sýnn'og haft góðan húmor, þá hann
kom því við að slá á léttari nótum-
ar. Nú er sár missir hans nánustu.
Dætur hans og tengdasynir sakna
hans svo sannarlega og ekki er
minni söknuður afabamanna sem
áreiðanlega sakna afa mikið, því
stundum sagði hann mér; nú ætla
ég að passa í kvöld, afabömin, sem
hann bar innilega fyrir bijósti og
lifði mikið fyrir. Og nú er Gunnar
frá okkur farinn.
Við erum mörg sem söknum hans
mikið. Það varð ég vel var við, því
fjöldinn allur af kunningjum okkar
bað mig jafnan fyrir kveðju til hans
á sjúkrabeðinn. Gunnar lést 25.
júlí á Landakotsspítala. Fari hann
í Guðs friði.
Dætrum, tengdasonum, barna-
börnum og öðrum ættingjum votta
ég samúð.
Lárus Hermannsson
Þingflokkur Alþýðubandalags:
Uppsagnir hjá Meitlinum
eru hluti af hættuástandi
ÁLYKTUN varðandi uppsagnir
um 200 starfsmanna Meitilsins
í Þorlákshöfn var samþykkt á
þingflokksfundi Alþýðubanda-
lagsins, sem haldinn var þann
28. júlí siðastliðinn. í ályktun-
inni er sagt að uppsagnirnar og
yfirvofandi lokun fjölda fyrir-
tækja megi rekja til stefnu og
aðgerða rikisstjórnarinnar.
í ályktuninni kemur einnig
fram, að Alþýðubandalagið hafí á
undanfómum árum varað eindreg-
ið við því, að stefna ríkisstjómar-
innar stefndi atvinnulífi í öllum
landshlutum í hættu og hefði í för
með sér byggðaröskun, kjara-
skerðingu og hættu á atvinnu-
leysi. Sagt er að framganga ráð-
herra og ríkisstjómar sýni rétt-
mæti vantrauststillögunnar, sem
borin var fram á þingi í vor.
Þingflokkur Alþýðubandalags-
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
ins telur uppsagnimar hjá Meitlin-
um á Þorlákshöfn hluta af hættu-
ástandi, sem komi fram í öldu
gjaldþrota í atvinnulífínu. Þing-
flokkurinn telur margt benda til
þess, að fjöldi annarra fyrirtækja
neyðist til að grípa til svipaðra
aðgerða, jafnvel á næstu dögum,
stöðvun sjávarútvegsfyrirtækja sé
yfírvofandi og fjöldi iðnaðar- og
þjónustufyrirtækja séu að loka,
eða hafí þegar hætt starfsemi.
í lok tilkynningarinnar segir að
á meðan Rómaborg íslenskra at-
vinnuvega brenni og f|öldi lands-
manna missi atvinnuna sé ríkis-
stjómin innbyrðis sundurtætt.
Síðan segir orðrétt: „Þingflokkur
Alþýðubandalagsins ítrekar því
fyrri kröfur um að ríkisstjómin
fari frá og þjóðinni verði veitt
tækifæri til að velja nýja forystu
áður en atvinnulíf landsins alls
verður ijúkandi rúst.“
Blóma-og
W skreytingaþjónusta w
™ hvert sem tilefnið er. ™
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álfheimum 74. sími 84200
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jarö-
arföreiginmanns míns, fööurokkar, tengdafööur, afa og langafa,
JÚLÍUSAR GUÐJÓNSSONAR,
Hólmgarðf 4.
Inglbjörg Björnsdóttlr,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t Móðir okkar, tengdamóöir og amma, ÁSTA SIGVALDADÓTTIR JÓNSSON, Hamarstfg12, Akureyri, andaöist í Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 31. júlí. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriöjudaginn 9. ágúst kl. 13.30. Gissur Pétursson, Angela Pótursson, Kolbeinn Pétursson, Kristfn Ásgeirsdóttir, Sighvatur Pétursson, Snorri Péturssosn, Eydfs Arnviöardóttir, og barnabörn.
t Útför bróöur okkar, HELGA GUNNARSSONAR, Blindraheimilinu Hamrahlflö 17, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. ágúst kl. 13.30. Sy8tkinf hins látna.
t Bálför fööur okkar, tengdafööur og afa, GUNNARS ÞORKELSSONAR, Hraunbæ 174, ferfram frá Fossvogskirkju í dag, miövikudaginn 3. ágúst kl. 13.30. Stella Gunnarsdóttir, Trausti Finnsson, Eygló Gunnarsdóttir, Ragnar Ragnarsson og barnabörn.
t Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURÐUR SIGURGEIRSSON vélsmföa- og pfpulagningameistari, Aöalgötu 14, Stykkishólmi, verður jarðsettur frá Stykkishólmskirkju fimmtudaginn 4. ágúst klukkan 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á St. Fransiskusspítalann í Stykkishólmi. Einnig skal bent á að áætlunarferöir eru í Stykkis- hólm á fimmtudagsmorguninn frá Umferðarmiðstöðinni. Ingveldur Kristjánsdóttlr, Erla Siguröardóttir, Þórólfur Danfelsson, Gyða Sigurðardóttir, Jóhannes Þórðarson, Jóhanna Sigurðardóttlr, Slgurberg Árnason, Gerður Sigurðardóttir og barnabörn.
t Þökkum innilega sýnda samúö viö andlát og jarðarför INGIBJARTAR ÞORSTEINSSONAR pfpulagningameistara, Espilundi 1, Garöabæ. Kristfn Guðmundsdóttir, Kristrún Ingibjartsdóttir, Hugi Ingibjartsson.
t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og jarð- arför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, ELfASAR MIKAELS VAGNS ÞÓRARINSSONAR frá Hrauni f Keldudal. Sigrfður Vagnsdóttir, börn, tengdabörn, fóstursonur og barnabörn.
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRARINS ÞORKELSSONAR. Sigrfður Bjömsdóttir, Erla Þórarinsdóttir, Sævar Karl Ólason, Frfða Björg Þórarinsdóttir, Óli Elvar Einarsson, Þórarinn örn Sævarsson, Atll Freyr Sævarsson, Einar Þór Ólason, Björn Óskar Ólason.
t Hjartkær eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐNÝ ANNA PÉTU RSDÓTTIR JENSEN frá Eskifirði, sem lést þann 30. júlí sl., verður jarösungin frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 6. ágúst kl. 14.00. Arnþór Jensen, Gauti Arnþórsson, Sólrún Sveinsdóttir, Valur Arnþórsson, Sigrföur Ólafsdóttir, Hlff Arnþórsdóttir, Bent Christensen, Guðný Anna Arnþórsdóttir, Hjálmar Kjartansson, barnabörn og barnabarnabörn.