Morgunblaðið - 19.08.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
Kaþólsk- lútherskt systrabrúðkaup í Kristskirkju.
Kaþólsk-lútherskt systrabrúðkaup
TVÖFALT brúkaup var haldið í
Kristskirkju í Reykjavík, laugar-
daginn 13. ágúst. Þetta var tvöf-
alt brúðkaup i fleiri en einum
skilningi þvi önnur hjónavígslan
fór fram að kaþólskum sið en
hin að lútherskum, og sáu þvi
tveir prestar tun að gefa hjónin
saman.
Að sögn séra Ágústar Eyjólfs-
sonar, sem þjónar við Maríukirkju
í Beiðholti, er þetta í annað sinn
hér á landi sem tveir prestar, lút-
herskur og kaþólskur, gefa saman
tvenn hjón í einu.
Séra Ágúst vígði þau Halldór
Nellert og Hafdisi Garðarsdóttir,
en séra Olafur Jóhannesson, nú
prestur í Neskirkju, gaf saman
Bryndísi Garðarsdóttur og Jóhann-
es Benjamínsson.
VEÐURHORFUR í DAG, 18.ÁGÚST1988
YFIRLIT í GÆR: 973 mb lægð um 1.100 km suövestur af Vest-
mannaeyjum þokast austur og grynnist. Hiti breytist lítið.
SPÁ: Á morgun lítur út fyrir noröaustangolu eða -kalda ó landinu.
Súld verður á Austurlandi og annesjum norðanlands. Skúrir suð-
austanlands en á Suðvestur- og Vesturlandi lóttir smám saman
til. Hiti 10—15 stig suövestan til en 6—10 stig á Norður- og Aust-
urlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG Norðaustanátt, víða súld eða rigning á
Norður- og Austurlandi, einkum við ströndina, en þurrt suövestan-
lands.
HORFUR Á LAUGARDAGNorðanátt, smáskúrir við norðaustur-
ströndina en annars þurrt. Léttskýjað á Suður- og Vesturlandi.
Hiti 6—10 stig norðaustantil á landinu, en 10—15 stig sunnanlands
og vestan báða dagana.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavfk hhl 12 12 ve&ur skýjað riSn'nS
Bergen 15 skýjað
Helsinki 18 skúr
Kaupmannah. 18 skýjað
Narssarssuaq 15 iéttskýjað
Nuuk 6 skýjað
Ósló 18 skýjað
Stokkhólmur 17 skúr
Þórehöfn 11 alskýjað
Algarve 26 heiðskfrt
Amsterdam 19 lóttskýjað
Barcetona 29 léttskýjað
Chicago 26 láttskýjað
Feneyjar 30 heiðskfrt
Frankfurt 23 hálfskýjað
Glasgow 17 úrkoma
Hamborg 19 hétfskýjað
Las Palmas 31 léttskýfað
London 24 skýjað
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 22 léttskýjað
Madríd 31 léttskýjað
Malaga 28 mistur
Mallorca 31 léttskýjað
Montreal 19 skýjað
New York 26 mistur
Parls 26 léttskýjað
Róm 30 þokumóða
San Diego 19 skýjað
Winnlpeg 17 léttskýjað
Magnús Friðgeirsson Iceland Seafood:
Frionor trulega
boðið lægra verð
„ÁHUGI veitingahúsakeðjunnar
Burger King á að kaupa fisk af
norska fyrirtækinu Frionor og draga
saman viðskipti sín við okkur í stað-
inn stafar trúlega af því að Frionor
hefur boðið lægra verð en við og við
þurfum sjálfsagt að mæta því í
gæðum, verði og þjónustu," sagði
Magnús Friðgeirsson, forstjóri Ice-
land Seafood Corporation, dótturfyr-
irtækis Sambandsins í Bandaríkjun-
um, í samtali við Morgunblaðið. „Ég
get ekki ímyndað mér að Burger
King dragi úr viðskiptum sínum við
okkur og kaupi fisk af norska fyrir-
tækinu Frionor í staðinn vegna hval-
veiða íslendinga þar sem Norðmenn
veiða einnig hvali," sagði Magnús.
Dean Wilkinson, talsmaður græn-
friðunga í Wasington, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið síðastliðinn
þriðjudag að samtökunum hefði ný-
lega borist bréf frá Burger King þar
sem fyrirtækið hefði tilkynnt að það
hefði fundið viðskiptaaðila, sem ekki
seldi íslenskan fisk, og það myndi
skera viðskipti sín við íslendinga
niður um 20%.
„Ég veit ekki til þess að bandarísk
fyrirtæki hafi ákveðið að hætta að
kaupa fisk af íslendingum og ég hef
ekki séð neitt í bandarískum blöðum
eða sjónvarpi um mótrnæli grænfrið-
unga vegna hvalveiða íslendinga að
þessu sinni. Ég vil hins vegar ekki
vanmeta áhrif þeirra. Hvalveiðar
okkar eru hins vegar mál íslensku
ríkisstjómarinnar og hún verður að
meta hversu mikilvægt það er að
hafa þekkingu á því líffræðilega
jafnvægi sem þarf að vera í sjónum,
svo og hvaða viðskiptalegir hags-
munir geta verið í veði,“ sagði Magn-
ús.
Markaskrár á öllu
landinu samræmdar
NÚ í haust verða gefnar út nýjar markaskrár á öllu landinu og verða
þær samræmdar þannig að ekki verði misræmi á markaheitum og
því hvemig lesið er af mörkum. Hefur þetta í för með sér talsverðar
breytingar fyrir marga sauðfjáreigendur þar sem þeir þurfa að sveigja
sig að þessu samræmda kerfi. Er þetta í fyrsta skipti sem allar marka-
skrár í landinu era gefnar út á sama ári.
Samræming markaskránna á
þessu ári er gerð samkvæmt afrétt-
arlögum og reglugerð um mörk og
markaskrár, sem gefin var út á
síðastliðnu ári, en samkvæmt henni
var ætlast til að allar markaskrár á
landinu komi út á þessu ári.
Markanefnd vinnur nú að því að
skera úr um ágreiningsmál sem
markaverðir út um héruð hafa sent
til úrskurðar nefndarinnar, en
markanefnd sker úr um hver fær
að halda sínu marki ef fjáreigendur
í tveim eða fleiri sýslum hafa sömu
mörk. Að sögn Ólafs R. Dýrmunds-
sonar, sauðfjárræktarráðunauts
Búnaðarfélags Islands, sem sæti á
í markanefnd, fá þeir sem missa
mörk sín að halda þeim í skránum
sem gefnar verða út nú í haust, en
í næstu skrám, sem gefnar verða
út að átta árum liðnum, falla þau
út. „Þó menn tapi markinu má það
vera í skránni, en það verður merkt
með bókstafnum F fyrir framan
það, sem merkir að það sé á full-
orðnu fé, en óleyfilegt verður að
marka lömb undir það mark. Það
verður því nokkuð um slík mörk í
skránum sem nú eru að koma út,“
sagði Ólafur.
Nýmæli er að öll mörk á landinu
eru skráð í tölvu hjá Búnaðarfélag-
inu og auðveldar það samræminguna
til muna, en Búnaðarfélagið hefur
jafnframt yfirumsjón og eftirlit með
útgáfu markaskránna um allt land
og samræmir gerð þeirra.
„Greinilegt er að mörkum hefur
fækkað töluvert, og í sumum skrán-
um hefur orðið veruleg fækkun. í
heildina gæti ég trúað að fækkunin
sé um 20%, og er ástæðan fyrst og
fremst fækkun sauðfjárbænda í
þéttbýli, en þeim hefur fækkað
gífurlega síðustu ár, og einnig er
um að ræða nokkra fækkun sauð-
fjáreigenda í sveitum," sagði Ólafur
R. Dýrmundsson.
Ölduselsskóli:
Daníel Gunnarsson
fær leyfi frá störfum
DANÍEL Gunnarsson, fráfarandi
yfirkennari Ölduselsskóla, tekur
við skólastjóra Bankamannaskól-
ans 1. september og kveðst munu
annast hana i að minnsta kosti
ár. Sjöfn Sigurbjömsdóttir tekur
alfarið við starfi skólastjóra Öld-
uselskóla af Áslaugu Friðriks-
dóttur 1. september en þær eru
Slasaðist á
mótorhjóli
ÍTÖLSK stúlka handleggsbrotn-
aði þegar mótorhjól, sem hún var
farþegi á, valt á Mývatnsöræfum,
við afleggjarann að Dettifossi,
um hádegið í gær.
Stúlkan, sem var á ferð um landið
ásamt samlanda sínum, var fyrst
flutt á sjúkrahúsið á Húsavík en
síðan til Akureyrar til aðgerðar.
nú báðar að störfum við skólann.
Kvaðst Sjöfn í gær vera að kynna
sér nýtt starf og ekkert hafa að
segja við fjölmiðla að svo stöddu.
Fræðsluráð veitti síðastliðinn
mánudag Daníel Gunnarssyni launa-
laust leyfi frá störfum við Öldusels-
skóla í eitt ár. Sótti Daníel um leyf-
ið af persónulegum ástæðum eins
og sagði í umsókninni. Daníel vinnur
nú að gerð stundataflna nemenda í
Ölduselsskóla en segir afar lítið hafa
reynt á samstarf við Sjöfn, enda sé
fráfarandi skólastjóri enn við störf
og verði út mánuðinn.
Kennarar við Ölduselsskóla og
foreldrar mótmæltu í vor ákvörðun
menntamálaráðherra um skipan
Sjafnar Sigurbjömsdóttur í embætti
skólastjóra í trássi við stuðningsyfír-
lýsingar þeirra við Daníel Gunnars-
son. Foreldrar lýstu þvi svo fyrr í
sumar að þeir hefðu hætt aðgerðum.
Fimm kennarar við skólann hafa
sagt upp störfum og mæta ekki til
kennslu í haust.