Morgunblaðið - 19.08.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
5
Utanríkismálanefnd um Jan Mayen málið:
Þegar verði óskað eftir
formlegum viðræðum
Morgunblaðið/Ingólfur Friðgeirsson
Loðnu landað úr Hólmaborg á Eskifirði.
Fyrstu loðnunni
landað á Eskifirði
Eskifirði.
HÓLMABORG SU 11 kom til
heimahafnar á Eskifirði á þriðju-
dagsmorgun með um 1.200 tonn
af loðnu, og er það fyrsta loðnan
sem íslensk fiskiskip veiða hér
við land á þessari vertíð. Loðn-
unni var landað hjá loðnuverk-
smiðju Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar hf., sem mun greiða rúmar
þijú þúsund krónur fyrir tonnið.
Að sögn Þorsteins Kristjánsson-
ar, sem var skipstjóri á Hólmaborg-
inni í þessari veiðiferð, var skipið 8
daga í túmum og urðu nokkrar frá-
tafir frá veiðum vegna bilana. Bæði
hafði skipið farið inn til Bolung-
arvíkur vegna vélarbilunar og höfðu
þeir síðan orðið að halda í land,
áður en fullfermi var fengið, þar
sem „asdic“-tæki var bilað.
Þorsteinn sagði að loðnan hefði
veiðst norður á Hala og virtist þar
vera um talsverða loðnu að ræða,
en þó illveiðanlega sökum straums.
Stórstreymi var á meðan á veiðiferð
Hólmaborgar stóð, en Þorsteinn
sagði að nokkru áður en þeir komu
á miðin, hefði verið mokfiskirí hjá
færeyskum loðnubátum er þama
voru að veiðum þegar straumur var
minni.
Enginn lagís er á veiðisvæðinu,
einungis stakir borgarísjakar á reki
og sagðist Þorsteinn vonast til að
loðnan yrði í veiðanlegra ástandi
þegar Hólmaborgin k'æmi aftur á
miðin, en þá yrði þar smástreymi.
Bandarískí
vinsældalistinn:
Plata Sykur-
molanna
færðist upp
um ellefu sæti
Life’s too Good, hljómplata
Sykurmolanna, er nú í 71. sæti
bandaríska breiðskífulistann og
fór upp um ellefu sæti á einni
viku.
Platan hefur nú þegar selst í yfir
200.000 eintökum í Bandaríkjunum
og fregnir herma að salan sé um
7.000 eintök á dag. Líkur eru á að
tónleikaferð hljómsveitarinnar sé
snar þáttur í aukinni plötusölu, en
í gærkvöldi lék hljómsveitin í San
Diego og leikur í San Juan Capisatr-
ano í kvöld.
í Bretlandi hafa selst yfir 90.00
eintök af plötunni og er stutt í að
hún nái þar gullsölu. Nokkuð er
síðan platan náði gullsölu á íslandi,
en alls hafa selst um 6.000 eintök
af henni hér.
Áætlað er að viðgerð á „asdic“-
tæki Hólmaborgarinnar ljúki í dag,
þriðjudag, og að skipið komist aftur
á veiðar í nótt.
- Ingólfur
Utanríkismálanefnd Alþingis
hefur sent frá sér ályktun vegna
Jan Mayen málsins. I henni fagn-
ar nefndin því að norsk stjórn-
völd ætla að hafa náið samstarf
við íslendinga vegna þeirrar
ákvörðunar Dana að vísa málinu
til alþjóðadómstólsins i Haag.
Orðrétt er ályktun nefndarinnar
þannig: „Utanríkismálanefnd árétt-
ar þá stefnu Alþingis íslendinga að
réttindum íslands á Jan Mayen
svæðinu verði fylgt fram af fullri
festu. Ljóst er að engar viðræður
um Jan Mayen svæðið geta borið
árangur án aðildar Islendinga.
Nefndin lýsir undrun sinni á þeirri
ákvörðun Dana að vísa deilumálum
varðandi þetta svæði til Alþjóða-
dómstólsins án undangengis sam-
ráðs við íslendinga. Nefndin fagnar
því á hinn bóginn að norsk stjóm-
völd hyggjast hafa náið samstarf
við íslendinga út af þessari ákvörð-
un Dana.
Utanríkismálanefnd treystir því
að leysa megi ágreiningsefni þjóð-
anna með samkomulagi og mælir
með því að af íslands hálfu verði
þegar óskað eftir formlegum við-
ræðum við Dani, Grænlendinga, og
Norðmenn vegna deilna um svæðið
milli Grænlands og Jan Mayen.“
Lögreglubifreið í
hörðum árekstri
MJÖG harður árekstur varð a
afrennslisbraut milli Miklubraut-
ar og Reykjanesbrautar um
klukkan hálfníu í gærmorgun.
Ökumaður lögreglubils, sem ekið
var með forgangsmerki á leið í
neyðarkall, missti stjórn á bílnum
sem þeyttist upp á umferðareyju
og lenti á sendibifreið sem var á
leið í gagnstæða átt.
Ökumaður sendibílsins slapp
ómeiddur en lögreglumennimir
tveir tognuðu, annar á hálsi, hinn
á handlegg. Bílamir báðir em mik-
ið skemmdir og talið er að lög-
reglubíllinn, Saab, sé ónýtur.
Áttræðisafmæli
KRISTÍN Geirsdóttir, Hringveri
á Tjömesi er áttræð í dag, 19.
ágúst.
Kristín er nú í sjúkrahúsinu á
Húsavík. Hún varð fýrir því óhappi
að lærbrotna í sumar en er nú á
góðum batavegi.
Óskum ef tir
oókaupa
gamla kœliskápa, þvotta-
vélar eða upþvottavélar
á kr.3000
Otrúlegt en satt
Viö hjá Heimilistækjum erum tilbúnirtil þess aö gefa
3000 krónur fyrir hvert tæki; gamla kæliskápinn,
þvottavélina eöa uppþvottavélina þína án tillits til
gerðar, ástands og aldurs.
Viö tökum tækiö sem greiöslu upp í nýjan fullkominn
PHILIPS eöa PHILCO
kæliskáp, þvottavél eöa
uppþvottavél.
stykkió
ATH.
Að sjálfsögðu sendum
við nýja tækið og
sækjum það gamla þér
að kostnaðarlausu.
Haföu samband strax,
lagerinn er ekki
ótæmandi.
Heimilistæki hf
Sætúni 8 • Hafnarstræti 3 • Kringlunni
SÍMI: 69 15 15 SÍMt:69152S SÍMI:691520
l/có &iUM,$ueýyiaH(!egA L sawuKgujH