Morgunblaðið - 19.08.1988, Page 13

Morgunblaðið - 19.08.1988, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988 13 Skógey í A-Skaftafellssýslu: Uppgræðslan gefur fyrirheit um 4 þúsund hektara gróðurvin Verður skemmtilegt útivistarsvæði þegar fram líða stundir Selfossi. MIKIL umskipti hafa orðið á landsvæðinu í Skógey i Nesja- hreppi í Austur-Skaftafellssýslu milli Hornafjarðarfljóts og Hof- fellsár. Sú leiftursókn, sem þar hefur verið gerð á undanförnum árum með fyrirhleðslum og sán- ingu, er byijuð að skila því 4.000 hektara landi sem um ræðir grænu og gefur fyrirheit um skemmtilegt útivistarsvæði. Hægt verður að aka umhverfis svæðið á varnargörðunum og í Skógeynni sjálfri og skeijunum verða skemmtilegar gönguleiðir. Skógeyjarsvæðið hefur verið á landgræðsluáætlun frá 1974. Meg- inþátturinn í öllu landgræðslustarfi á svæðinu hefur verið að hemja ámar Hoffellsá og Homafjarðar- fljót og græða sandinn samhliða því upp eins hratt og mögulegt hefur verið. 1986 var girt 15 kíló- metra löng girðing sem afmarkar 4.000 hektara lands. Ámar runnu áður óheftar yfir sandana og þegar þornaði um þá fauk leirinn sem þær bám fram. Svo mikið áfok heijaði stundum á Höfn að oft þurfti að loka fiskverk- uninni og ekki var hægt að opna þar glugga á húsum vegna sand- foks. Tilraunasáningar á landgræðslu- svæðinu hófust 1984. Sáningar þessar hafa tekist mjög vel og hef- ur alls verið sáð í 1.250 hektara lands. Stór hluti svæðisins er einnig sjálfgróinn. í samvinnu við Lions- klúbbinn á staðnum hefur lúpínu verið plantað og Alaskavíði. Rann- sóknastofnun landbúnaðarins hefur að auki plantað elri í Skógey í til- raunaskyni og er vænst mikils af honum en hann er köfnunarefnis- bindandi planta sem bætir jarðveg- inn líkt og lúpínan. Landgræðslan telur það knýjandi verkefni að græða sandinn þama upp og græða svæðið eins hratt og unnt er. Sandurinn er fijósamur og tekur fljótt við sér og talið er að stutt verði í að svæðið verði gróður- vin vaxin víðigróðri en víðirinn er þegar farinn að nema land á svæð- inu. Það er ekki lengra síðan en 1983 að skerin í Skógey vom með öllu gróðurlaus og sandi orpin. Nú er þar alls staðar gróður í vexti. Sker- in svonefndu sem standa upp úr svæðinu em mörg hver rofabakkar 5—12 metrar á hæð og sýna mikla jarðsögu og í raun taldar vera minj- ar um jarðveg sem þama var í eina tfð. Það vom sandstormar sem lögðu Skógeyna í eyði og síðasti stóri sandstormurinn gekk yfir 1969. í eynni vom verðmæt engjalönd sem vom nýtt til slægna og beitar. Síðast var heyjað í Skógey 1953. Eftir að Skógey hefur tekið að gróa upp að nýju hefur fuglalíf aukist þar jafnt og þétt. Þrátt fyrir að landið muni hækka nokkuð upp vegna áfoks mun stór hluti þess að öllum líkindum breytast í mýrar- flóa sökum lágrar stöðu sinnar. Því má gera ráð fyrir að svæðið verði athvarf votlendisfugla. Þá hefur fiskigengd í Hoffellsá aukist í kjöl- far uppgræðslunnar. Sig. Jóns. \e\ Kærkominn gestur í Skógey. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og Þrúðmar Sigurðsson i Mið-' felli landgræðsluvörður í Skógey ganga niður af einu skerinu, ánægð- ir með útsýnið. Melgresið í Skógey er sérlega hávaxið og kraftmikið. f þetta svæði var sáð 1986. Ur Skógey. Skerin sem standa upp úr vatninu eru 5-12 metra há rofabörð sem geyma mikla jarðsögu. GÓÐPCZ4! GOTTVERÐ! Jón Bakan er nýr pizzastaöur, sem leggur megináherslu á heimsendingar. Þú hringir í síma 46614 eða 641974, - velur þér góöa pizzu og viö hringjum hjá þér dyrabjöllunni stuttu síðar. Okkar helsta metnáöarmál er GÓÐ PIZZA! - GOTT VERÐ! Góöu pizzuna gerum við af alúö, smekkvísi og áralangri þjálfun, en góöa verðið bjóöum viö meö því aö spara ýmsa stóra kostnaðarliði, s.s. veitingasal. Já, láttu svengd og síma ríma. bMMAVEG114, S.46614 & 641974. OPIÐ: 11:30-23:30 VIRKA DAGA &11:30-02 UM HELGAR P.S.-Ef þú vilt pizzuna á verksmiðjuverði, sækirþú hana til okkar á Nýbýlaveg 14 (vesturgafl). I J » t' \ >444 1 14. t » 1, I 4 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.