Morgunblaðið - 19.08.1988, Side 14

Morgunblaðið - 19.08.1988, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988 Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg Ingvar Helgason ásamt konu sinni, Sigríði Guðmundsdóttur, veitir viðurkenningunni viðtöku. Lengst til hægri er Klaus Bretow sendi- ráðsritari. Þýska alþýðulýðveldið: Ingrari Helgasyni veitt viðurkenning ÞÝSKA alþýðulýðveldið veitti Ingvari Helgasyni bílinnflytj- enda viðurkenningu miðvikudag- inn 17. ágúst fyrir að hafa stuðl- að að viðskiptum við fyrirtæki í Austur—Þyskalandi í yfir 30 ár. Klaus Bertow sendiráðsritari af- henti Ingvari heiðursskjalið „Kammer fÚr Aussenhandel“ og merki helgað kjörorðinu „Við- skipti tengja þjóðir“. I ávarpi bar Klaus Bertow sendi- ráðsritara fram þakkir til Ingvars Helgasonar fyrir að hafa stuðlað að biómlegum viðskiptum ríkjanna, en Ingvar hefur undanfarin ár setið sem fulltrúi Verslunarráðs íslands í viðskiptanefnd beggja ríkjanna. Einnig kom fram að væntanlegar eru á markaðinn nýjar tegundir af Wartburg og Trabant bifreiðum. Júlíus Vífill Ingvarsson, fram- kvæmdastjóra Ingvars Helgasonar h.f., sagði að hinn nýi Wartburg væri framhjóladrifinn með Volks- wagen-vél og Trabantinn sé með fjórgengisvél. Þessar breytingar voru gerðar í samræmi við mengun- arvamir í flestum ríkjum Vestur— Evrópu. Námskeið fyrir íþrótta- kennara aldraðra FÉLAG áhugafólks um íþróttir aldraðra mun gangast fyrir námskeiði fyrir iþróttakennara og aðra þá er leiðbeina öldruð- um í hvers konar íþróttum og líkamsrækt. Námskeiðið hefst I Árbæjarskóla í Reykjavík 26. ágúst nk. kl. 9.00 og því lýkur sunnudaginn 28. ágúst. Á námskeiði þessu verða verk- legir þættir, eins og leikfími, sund, dansar og aðrar íþróttir. Tveir reyndustu kennarar Danmerkur á þessu starfssviði, Nina Velin og Lizzi Dibbem, munu annast alla kennslu á þessu námskeiði. Auk þess mun Ársæll Jónsson, sér- fræðingur í öldrunarsjúkdómum, flyrtja erindi er hann nefnir „Þrek og þjálfun eldra fólks". Fyrir tveimur árum hélt félagið námskeið fyrir þá sem sinntu leið- beinendastörfum eða ætluðu að heíja þau. Þátttakendur komu víðs vegar af landinu og urðu 56 að tölu. Námskeiðið var hvetjandi og árangursríkt. Nú þegar hafa 70 þátttakendur látið skrá sig. Áhugi er mikill og þörf fyrir slík námskeið greinileg. Morgunblaðið/BAR Kjörorð Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra er: „Aldrei of seint!“. Myndin er tekin á Miklatúni á útivistardegi aldraðra 15. júní sl. Flugskólamenn um skýrslu um öryggismál í flugi: Yfirvöld skella eigin skuld á flugskóla og viðhaldsaðila Dauðadómur yfir einkaf lugi á landsbyggðinni, ef allt flugnám fer til Reykjavíkur og Akureyrar Ekki við skólana að sakast „MÉR sýnist á þessari skýrslu, að verið sé að hvítþvo yfirvöld og skella skuldinni á flugskóla og viðhaldsaðila. Það er hlutverk Flugmálastjómar að sjá til þess, að þeir sem kenna flug séu starfi sínu vaxnir," sagði Leifur Hallgr- imsson hjá Mýflugi í Mývatnssveit í samtali við Morgunblaðið. Hann var, ásamt fleirum, spurður álits á skýrslu um flugöryggi, sem gerð var á vegum samgönguráðu- neytisins. í Morgunblaðinu á sunnudag var sagt frá gagnrýni skýrslunnar á störf flugskóla. Bæði Leifur og Pétur Elísson hjá Flugklúbbi Egilsstaða töldu að það væri dauðadómur yfir einka- flugi á landsbyggðinni, ef leggja ætti niður flugkennslu þar, eins og lagt er til í skýrslunni. Stefán P. Þorbergsson, yfirkennari hjá Vesturflugi i Reykjavík, sagði þessa skýrslu mjög ófullnægjandi, hún hefði getað átt við fyrir tíu árum, en alls ekki í dag. „En ef skýrslan verður til þess að Flug- málastjóm taki við sér og hafi meira samstarf við okkur, þá ger- ir hún gagn,“ sagði Stefán. Einkaflug yrði lagt í rúst „Við erum ekki hrifnir af því hvemig gagnrýni er sett fram í þess- ari skýrslu," sagði Leifur Hallgríms- son hjá Mýflugi. „Það er vegna þess að Flugmálastjóm ber ábyrgðina. Það má vera að þeir hafi ekki mann- afla til að rækja sitt hlutverk, en það færir sökina ekki yfir á okkar herðar." Leifur sagðist vera mjög óánægður með þá tillögu Skýrslunn- ar, að stöðva flugkennslu utan Reykjavíkursvæðis og Akureyrar. „Það yrði til þess að allt einkaflug yrði lagt í rúst. Það gefur auga leið að fólk flytur ekki í langan tíma til Reykjavíkur til þess að læra að fljúga, nema til þess að verða at- vinnuflugmenn. Það yrði rétt eins og með hveija aðra skólagöngu. Ég get líka mótmælt því harðlega, að kennslan sé á einhvem hátt óper- sónuleg. í þau ár sem við höfum rekið hér flugskóla höfum við haft einn kennara og hann hefur alltaf haft mjög-góða yfirsýn yfir nám og frammistöðu neménda," sagði Leif- ur. Kunna ekki á malarvelli Um þá gagnrýni skýrslunnar, að nemendur utan af landi væm síður hæfir til að fljúga við stóra flugvelli með stjómaðri flugumferð sagði hann: „Það má vel vera að það sé rétt. Reyndar hafa okkar nemendur getað spjarað sig vel í umferð í Reykjavík, vegna þess að við höfum lagt á það áherslu að kynna þeim flugumferð og farið með þá suður. Hins vegar þarf líka að skoða þetta á hinn veginn. Þegar flugmenn sem hafa lært í Reykjavík eða á Akur- eyri koma og lenda hér, er það oft ansi skrautlegt. Þeir hafa enga þjálf- un í að lenda á litlum malarvöllum, þeir eru vanir löngum og breiðum malbikuðum brautum með fullkomn- um búnaði, aðflugshallaljósum og þess háttar. Það væri skynsamlegra að kenna á malarvöllum, vegna þess að meirihluti flugvalla sem eru not- aðir í einkafluginu eru litlir malar- vellir," sagði Leifur Hallgrímsson. „Ég er ekki viss um að skólamir geti komið í veg fyrir slys í flug- inu,“ sagði Pétur Elísson hjá Flug- klúbbi Egilsstaða. „Þau virðast fremur verða þegar líður frá skólan- um og menn fara að ryðga í fræðun- um. Það er fremur eftirmenntunin sem veldur, en sjálf frumkennslan í skólunum. Menn taka sitt einkaflug- mannspróf og fljúga síðan kannski ekki nema einu sinni til tvisvar á ári.“ Pétur sagði landsbyggðarmenn vera óánægða með það, ef koma skal á einum eða tveimur flugskól- um, það leiddi til þess eins að einka- flug á landsbyggðinni legðist af og flug hér á landi yrði hrein atvinnu- mennska eingöngu. Eftirmenntunin er brotalömin Pétur sagði að Egilsstaðamenn væru vel settir hvað stjómað flug snertir, þar sem alla daga er vakt og umferð á flugvellinum þar. „Brot- alömin í þessu öllu er eftirmenntun- in, uppriQun fræðanna. Við höfum verið með eftirmenntunamámskeið hér og það sýnir sig að þess er þörf. Við erum vel settir hér hvað kenn- ara varðar. Við erum með þtjá at- vinnuflugmenn sem hafa tekið að sér bæði bóklega og verklega kennslu," sagði Pétur Elísson. Skýrslan er 10 árum á eftir tímanum Vesturflug er staðsett í Fluggörð- um við Reykjavíkurflugvöll, í nýju húsnæði þar sem er kennslustofa fyrir allt að 20 nemendur. Þar em öll bókleg námskeið flugskólans fyr- ir einkaflugmannspróf og stundum em þar haldin blindflugsnámskeið. Auk þess er aðstaðan stundum leigð Flugleiðum og Amarflugi til nám- skeiða. Stefán P. Þorgeirsson yfir- kennari hjá Vesturflugi sagði að sér þætti umrædd skýrsla um flugöryggi vera eins og hún hefði verið samin fyrir tíu ámm, en ekki í fyrra. Hann segir óréttmætt hvemig kennslu- gögn og kennarar em gagnrýnd. „Þama er ekki rætt hveijir ættu frekar að kenna. Við höfum ijóra fastráðna kennara allt árið og ef fleiri en einn kenna sama nemandan- um hafa þeir samráð um það sín í milli. Hér er allt námsefni á íslenku og hver nemandi fær það allt í einni möppu. Auk þess er honum bent á ítarefni í erlendum bókum sem við höfum hér og hann hefur aðgang að,“ segir hann. Kennt á eigin vélar skólans Stefán segir að ekki sé lengur kennt á einkaflugvélar hjá Vestur- flugi. „Flugmálastjóm fór fram á það, en hvergi er bannað að kenna á einkavélar. Við fómm að þessum tilmælum að því undanskildu að við ljúkum við að kenna þeim nemendum sem hófu nám á einkavélum, þeir em tveir eftir. Þegar þetta gerðist ijölguðum við flugvélum okkar, eig- um nú Qórar kennsluvélar og höfum auk þess eina á leigu til að kenna blindflug." Ófullkomnar reglur Stefán sagði augljóst að ekki væri einvörðungu við flugskóla að sakast hvað varðaði öryggismál flugsins. Hann tók sem dæmi, að umrædd skýrsla samgönguráðu- neytisins greinir frá því að í 95% tilvika væri flugmanns getið sem orsakar slysa. Ennfremur að meðal- flugtímafjöldi sem flugmennimir áttu að baki var 380 klst flug. „Það em þá um 300 klukkutímar sem flugmaðurinn hefur flogið eftir að skólinn sleppir af honum hendinni. Á tveggja ára fresti eiga einkaflug- menn að fara í hæfnipróf til að end- umýja flugskírteinin. Einkaflug- menn fljúga að meðaltali líklega um 50 - 60 tíma á ári. Það þýðir að þeir hafa tekið hæfnipróf all mörgum sinnum sem lenda í slysi og hafa 380 tíma reynslu. Þama er ekki við skólana að sakast heldur reglumar um viðhald flugskírteina. Það þarf að herða kröfur um hæfniprófín, bæði um flugtíma sem menn fljúga á ári og um form prófsins." Stefán sagði að reglur vantaði á mörgum sviðum. Til dæmis um hve langan tíma þarf í verklegt atvinnu- flugmannspróf. „Við höfum okkar reglu um 15 tíma. Sumir hafa ekki sætt sig við það og snúið sér annað, þar sem þeir sleppa með styttri tíma.“ Hann sagðist geta sætt sig við lágmarks inntökukröfur í at- vinnuflugskóla, en þó ekki vera sannfærður um ágæti Háskólans í þeim efnum. „Það er ekkert sem tryggir að stúdentspróf gefi okkur betri flugmenn." Gott samstarf skólanna Stefán sagði ekki rétt, að óheyri- leg samkeppni væri á milli flugskól- anna. Þvert á móti væri gott sam- starf a.m.k. á milli skólanna í Reykjavík. Þeir hafl samráð sín í milli um form og innihald kennslunn- ar. f skýrslunni er mælt með að keyptur verði flughermir. Stefán segir það vera til bóta, einkum við blindflugskennslu og þjálfun á tveggja hreyfla vélar. „Það gæti stytt þann tíma sem tekur nemand- ann að kynnast því hvað flug er, en kemur þó aldrei í stað flugvélarinn- ar.“ „Við höfum reynt að bæta okk- ur,“ segir Stefán P. Þorbergsson að lokum. „En það er erfitt þegar leið- beiningar og reglur vantar. Ef þessi skýrsla verður til þess að Flugmála- stjóm taki við sér og hafí meira samstarf við okkur, þá gerir hún gagn.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.