Morgunblaðið - 19.08.1988, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
23
Búrma:
Stj ómarflokkur-
inn leitar leiðtosfa
Bangkok. Reuter.
MIÐSTJÓRN stjórnarflokksins i Búrma koma saman til fundar í gær
í því skyni að velja nýjan leiðtoga landsins. Að sögn heimildarmanna
í Rangoon, höfuðborg Búrma, munu flokksstjórnin og þingið koma
saman í dag, föstudag, og verður arftaki Sein Lwins, sem sagði af sér
á föstudag í siðustu viku, þá tilnefndur.
Stjómarerindrekar í Rangoon friðsamlegum kröfugöngum stjóm-
voru sammála um að fátt benti til
þess að takast myndi að finna nýjan
leiðtoga sem bæði harðlínumenn inn-
an flokksins og almenningur í
landinu gæti fellt sig við. „Svo virð-
ist sem harðlínumennimir séu reiðu-
búnir til að beita stjómarandstæð-
inga hörðu en síðan er einnig að
fínna menn innan flokksforystunnar
sem eru tilbúnir til að fallast á tils-
lakanir án þess þó að innleiða fjöl-
flokkakerfí," sagði vestrænn sendi-
maður í símtali við fréttamann Reut-
ers.
Leiðtogar stjómarandstöðunnar
hafa krafíst þess að bundin verði
endi á 26 ára alræðisvald Sósíalista-
flokksins og lýðræði innleitt í
landinu. Mótmælin leiddu til þess
að Sein Lwin sagði af sér sem leið-
togi flokksins á föstudag eftir að
hafa gegnt embættinu í 18 daga.
Talið er að allt að 3.000 manns
hafí týnt lífí í síðustu viku er hemum
var beitt til að bijóta á bak aftur
mótmæli andstæðinga stjómarinnar.
Allt var með kyrmm kjömm í
Rangoon í gær en fréttir bámst af
arandstæðinga.
Mikill fjöldi fólks safnaðist saman
við stærsta sjúkrahúsið í Rangoon
á fimmtudag í trássi við ákvæði
herlaga sem sett hafa verið í
Búrma. Stjórnarandstæðingar
krefjast þess að alræðisvaldi Só-
síalistaflokksins verði hnekkt og
lýðræðislegir stjómarhættir inn-
leiddir.
Reuter
Taiwan:
Sleppt úr haldi eftir 34 ár
Moskvu. Reuter.
ÞRÍR sovéskir sjómenn sem ver-
ið hafa í haldi á Taiwan í 34
ár héldu í gær aftur heim til
Sovétríkjanna.
Að sögn sovéska blaðsins fz-
vestía var áhöfn skipsins Tupase
handtekin þann 23. júní 1954. Um
borð vom 37 menn og vora þeir
fluttir í fangabúðir. 29 mönnum
var sleppt ári síðar og fímm til
viðbótar fengu frelsi árið 1956.
Þremur mönnum var hins vegar
haldið fíingnum þar til í þessari
viku. í fzvestíu sagði að mennimir
hefðu oft fyllst vonleysi vegna „af-
skiptaleysis fóstuij arðarinnar". Að
sögn blaðsins grétu mennimir, sem
allir em vel við aldur, eins og böm
er þeir fengu á ný að beija ættjörð-
ina augum.
Líbanon:
Ætla ekki
að leysa er-
lendu gísl-
anaúrhaldi
Beirút. Reuter.
ÍSLAMSKA öfgahreyfingin Ji-
had, Heilagt strið, sem heldur
tveimur Bandaríkjamönnum i
gislingu í Libanon, sendu í gær
út yfirlýsingu þar sem segir að
erlendu gislarnir verði ekki leyst-
ir úr haldi fyrr en gengið verði
að öllum kröfum hreyfingarinnar.
Hreyfíngin lýsir því yfír að hún
ein geti ákveðið hvort gíslamir verði
leystir úr haldi, teknir af lífí eða
þeim haldið áfram í gíslingu. Hún
krefst þess að félögum hennar í f ang-
elsum erlendis verði leystir úr haldi
og að „öllum Palestínumönnum og
Libönum verði sleppt úr fangelsum
í ísrael, Suður-Líbanon og Austur-
Beirút." Hreyfíngin krefst þess enn-
fremur að ísraelsher og Suður-
Líbanonher yfirgefi öryggissvæðið í
Suður-Líbanon, að uppbygging hefj-
ist í Suður-Líbanon og Beirút, auk
þess sem „þeim verði greiddar bætur
sem orðið hafa fyrir barðinu á sam-
særi Bandaríkjamanna og ísraela."
Óþekktur maður, sem sagðist fé-
lagi í hreyfingunni, hafði á miðviku-
dagskvöld hringt til alþjóðlegrar
fréttastofu og sagt að breski gíslinn
Terry Waite væri á lífi og yrði látinn
laus innan skamms.
Afganistan:
Skæruliðar harma
dauða Zia-ul-Haqs
Pakistanir lesa úr Kóraninum i Karachi til að sál Mohammeds Zia-
ul-Haqs njóti friðar i eilifðinni.
Fráfall Zia harm-
að út um allan heim
Lundúnum, Santa Barbara, Bonn. Reuter.
LEIÐTOGAR ýmissa ríkja lýstu
í gær yfir harmi sínum vegna
fráfalls Mohammeds Zia-ul-
Haqs, forseta Pakistans. Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti sagði
meðal annars að starfandi for-
seti Pakistans, Ghulam Ishad
Khan, gæti reitt sig á stuðning
Bandaríkjastjórnar.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti Iofaði áframhaldandi stuðningi
Bandaríkjamanna við Pakistani í
samúðarkveðju sinni til pakistan-
skra stjómvalda, þar sem sagði að
Zia hefði haft „þor til að taka við
milljónum Afgana á flótta vegna
hatrammrar styijaldar og til að
veita afgönsku andspymunni lið."
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði að Zia hefði
„áunnið sér virðingu út um allan
heim fyrir stuðninginn við afgönsku
þjóðina í kjölfar innrásar Sovét-
manna í Afganistan og sér í lagi
fyrir gestrisni sína við þijár milljón-
ir afganskra flóttamanna."
Talsmaður vestur-þýsku stjóm-
arinnar, Herbert Schmuelling, sagði
að stjóm sín vonaði að fráfall Zia
minnkaði ekki líkumar á varanleg-
um friði í Afganistan.
Perez de Cuellar, aðalritari Sam-
Harðlínumenn Hekmatyars sagðir
geta glatað stuðningi Pakistana
Islamabad, Moskvu. Reuter.
TALSMENN afganskra skæruliðahópa sögðust í gær harma mjög
fráfall Zia-ul-Haqs Pakistansforseta en forsetinn var einarður
stuðningsmaður skæruliðanna. Um Pakistan hafa vopnasendingar
vestrænna ríkja og auðugra arabaríkja til skæruliða farið, þar
hafa flestar skæruliðahreyfingarnar aðalstöðvar og tvær milljónir
afganskra flóttamanna eru í Pakistan. Skæruliðar segjast ekki
óttast að nýir leiðtogar Pakistana muni hætta að styðja þá en stjórn-
málaskýrendur telja mögulegt að framvegis muni pakistönsk stjórn-
völd styðja hófsamari öfl meðal afgönsku frelsissveitanna. Sovét-
menn og Kabúl-stjórnin hafa sent samúðarskeyti vegna dauða Zia
en árétta jafnframt kvartanir sínar vegna brota Pakistana áfriðar-
samningnum sem gerður var í Genf í apríl siðastliðnum.
Félagi í hinum róttæka Hezb-i- iat-i-Islami, annars stjómmála-
einuðu þjóðanna, vottaði Zia enn-
fremur virðingu sína. „Gáfur hans
og innsýn í alþjóðamál gerðu hann
að virtum og tryggum félaga í bar-
áttu okkar við vandamál sam-
tímans," sagði aðalritarinn meðal
annars.
Islami stjómmálaflokki, sem
stjómað er af afganska skæmliða-
foringjanum Gulbuddin Hekmaty-
ar, sagði um Zia forseta: „Muja-
hideen-skæmliðar hafa misst mik-
ilvægan stuðningsmann. Hann var
dyggur félagi í „Jihad" [heilögu
stríði] Afgana.“ Talsmaður Jam-
flokks, sagði dauða Zia mikið áfall
fyrir ríki múslima og afgönsku
þjóðina. Hann sagðist ekki óttast
að Pakistanar myndu hætta að
styðja við bakið á skæmliðunum;
pakistanska þjóðin vildi halda
stuðningnum áfram og hver sem
tæki við af Zia myndi áreiðanlega
Náinn samstarfsmaður Zia-
ul-Haq tekur við starfi hans
Islamabad, Reuter. ”*■
GHULAM Ishaq Khan, sem nú gegnir forsetaembættinu í Pakistan
eftir fráfall Mohammads Zia-ul-Haqs forseta í flugslysinu í Pakistan
á miðvikudag, var náinn samstarfsmaður Zia. Ishaq Khan var fjár-
málaráðherra í stjórn Zia-uI-Haqs árið 1978 og er talinn hafa skipu-
lagt þá stefnu forsetans að fella framþróun efnahagslífsins að grund-
vallarsiðaboðiun múhameðstrúarmanna.
Andstæðingar Zia-ul-Haqs segja
að Ishaq Khan hafi verið lykilmaður
í valdatökunni árið 1977. Eftir
valdatökuna var hann skipaður
ráðuneytisstjóri í vamarmálaráðu-
neytinu og átti náið samstarf við
Zia sem var yfirmaður hersins.
Ishaq Khan er 73 ára að aldri,
fæddur 20. janúar árið 1915, í
Bannu-héraði í norðvesturhluta
landsins. Frá árinu 1966 starfaði
hann í fjármálaráðuneytinu. Hann
var bankastjóri á ámnum 1971 til
1975. Ishaq Khan hóf afskipti af
stjómmálum árið 1985. Það ár var
hann kosinn á þing. Hann var síðar
kosinn forseti efri deildar þingsins,
en samkvæmt stjórnarskrá Pakist-
ans gegnir sá hinn sami embætti
forseta í fjarvem starfandi forseta.
Ghulam Ishaq Khan.
Reuter
verða vinur skæmliðanna. En tals-
maðurinn bætti þó við: „Við verð-
um að sjá hvað gerist næstu vik-
umar.“
Vestrænir stjómarerindrekar í
höfuðborg Pakistans, Islamabad,
töldu líklegt að nýir stjómendur í
landinu myndu fara vægar í sak-
imar gagnvart Kabúl-stjóminni
sem nú á í vök að veijast vegna
brottflutnings sovéska herliðsins
frá Afganistan. „Vopn verða ekki
flutt til skæruliða í jafn stríðum
straumi og fyrr,“ sagði einn þeirra.
Margir telja að dauði Zia muni
geta styrkt þijá hófsama flokka í
samfylkingu sjö helstu afgönsku
skæruliðahópanna. Þessir flokkar
em jákvæðari en hinir §órir gagn-
vart friðartilraunum sendimanns
Sameinuðu þjóðanna, Diego
Cordovezar.
Najibullah, leiðtogi Kabúl-
stjómarinnar, sendi í gær Ghulam
Ishaq Khan, sitjandi forseta Pa-
kistans, samúðarskeyti og kvað lát
Zia hafa valdið sér hryggð. Hann
sagðist vona að samband ríkjanna
kæmist í eðlilegt horf og lagði
áherslu á gildi friðarsamningsins
sem gerður var í Genf. Forsætis-
nefnd Æðsta ráðs Sovétríkjanna
sendi einnig Khan samúðarkveðj-
ur. TVlSS-fréttastofan sovéska
sagði þó að þess yrði krafist að
nýir leiðtogar Pakistans svömðu
ásökunum Sovétstjómarinnar um
ítrekuð brot Pakistana á Genfar-
samningnum. Pakistanar héldu
áfram að skipta sér af innan-
landsátökum í Afganistan og
senda skæmliðum vopn. Þeir brytu
þannig gegn ákvæðum samnings-
ins. Fyrir skömmu kölluðu Sovét-
menn Pakistana „alþjóðlega
hermdarverkamenn" og sovéskir
embættismenn veltu því fyrir sér
hvort Zia forseti myndi standa við
fyrri loforð um að telja afganska
skæmliða á að sleppa sovéskum
föngum.