Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988 . Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Deilt um Jan Mayen-svæðið Hvernig á að leysa útflutningsgreina Uppfærsla, niðurfærsla eða millifærsla koma til greina VERÐBÓLGAN er undirrót flestra þeirra vandamála sem islenska efnahagslífið á nú við að etja; um það eru allir sammála. Innlendar kostnaðarhækkanir samfara lækkandi afurðaverði grafa undan út- flutningsgreinunum. Aðgerðir til að snúa þeirri þróun við miða því að því að auka tekjur útflutningsgreina og lækka tilkostnaðinn hlut- fallslega og um leið að draga úr verðbólgu, innlendri þenslu og inn- flutningi. að vakti nokkra undrun að ríkisstjórn Dánmerkur skyldi taka þá ákvörðun á þriðjudag að vísa deilu sinni við Noreg, vegna lögsögumarka milli Jan Mayen og Grænlands, til Alþjóðadómstólsins í Haag. Deila þessi hefur staðið síðan 1980 og kreíjast Danir, fyrir hönd Grænlendinga, 200 mílna efnahagslögsögu en Norðmenn vilja að miðlína gildi. Þessi deila snertir hagsmuni íslendinga þar sem við höfum gert samn- ing við Norðmenn um ævarandi nýtingarrétt íslendinga á fiski- stofnunum á svæðinu. Til að mynda nýtum við 85% loðnu- stofnsins á svæðinu en Norð- menn 15%. Kröfur íslendinga til Jan Mayen-svæðisins eiga sér langa sögu. Árið 1927 ritaði Jón Þor- láksson, forsætisráðherra, ríkisstjóm Noregs, bréf um réttarstöðu Jan Mayen eftir að norskt landnám á eyjunni hafði verið tilkynnt íslendingum. Tók ráðherrann fram að Islendingar hefðu ákveðinna hagsmuna að gæta þar sem Jan Mayen væri næst íslandi og íslendingar hefðu þar notið gæða, m.a. sótt þangað rekavið. Þá væri veður- athugunarstofa á eyjunni mikil- væg íslenskum hagsmunum. Síðan segir í bréfí Jóns Þorláks- sonar: „Jafnframt því, að látin er í ljós viðurkenning á starf- semi veðurstofunnar, skal tekið fram, að ríkisstjóm Islands tel- ur sanngjamt, að náttúru- auðæfí eyjarinnar verði nýtt í þágu veðurstofunnar, að því marki, sem hún telur nauðsyn- legt, en að því leyti sem til greina gæti komið að nýta eyna í þágu annatra hagsmuna óskar ríkisstjóm íslands að áskilja íslenskum ríkisborgurum jafn- an rétt á við hvaða borgara annars ríkis sem vera skal.“ Engin mótmæli eða athuga- semdir vom gerð við þetta bréf af hálfu norskra stjómvalda á sínum tíma. Um þennan fyrirvara íslensku ríkisstjómarinnar var getið í Stórþingsfrumvarpi árið 1928 um innlimun Jan Mayen í norska ríkið svo og í áliti ut- anríkis- og stjórnlaganefndar Stórþingsins árið 1929. Á þessu bréfi Jóns Þorláks- sonar hafa íslendingar meðal annars byggt kröfur sínar auk þess, að eðlilegt sé að hafa hlið- sjón af því, að Jan Mayen hafði um langt skeið verið allt eins íslensk sem norsk þótt eyjan hafí verið innlimuð í ríki Norð- manna með konunglegri tilskip- un árið 1929. íslendingar og Norðmenn áttu á tímabili í hörðum deilum um réttarstöðuna við Jan May- en en þeim deilum lauk á far- sælan hátt með samningum þjóðanna í milli árið 1980 og 1982. Norðmenn féllust á að íslendingar héldu óskertri 200 mflna lögsögu til norðurs í átt að Jan Mayen og gerður var fyrmefndur samningur um sameign og samnýtingu auðæfa hafsins. Samningur þessi var byggður á því að miðlína skyldi gilda á milli Jan Mayen og Grænlands eins og hafréttar- sáttmálinn gerir ráð fýrir. Rök íslendinga fyrir rétti á Jan Mayen-svæðinu voru fyrst og fremst sögulegs eðlis. Það sama er ekki hægt að segja um kröfur Dana en þeir telja að Grænlendingum beri 200 mílna lögsaga, eins og Islendingar hafa til norðurs, vegna af- skekktrar legu og fámennrar byggðar á Jan Mayen. I fréttasamtali við Morgun- blaðið fyrr í vikunni sagði Eyj- ólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis: „Við eigum ekki síður hags- muna að gæta á þessu svæði en Norðmenn, þvert á móti. Með því að sniðganga okkur en draga Norðmenn fyrir Haag-dómstólinn telja Danir sig geta firrt okkur rétti, sem við viðurkennum ekki að sé hægt að gera.“ Eyjólfur Konráð Jónsson leggur einnig á það áherslu, að íslendingar, Norðmenn og Dan- ir semji um lausn í Jan Mayen- deilunni, með viðræðum, í stað þess að bíða í 2-3 ár eftir niður- stöðu Alþjóðadómstólsins. Hin mikla óvissa sem myndi skapast við þá meðferð yrði engum til gagns. Steingrímur Hermanns- son, utanríkisráðherra, hefur sömuleiðis látið í ljós þá skoðun að deiluna verði áð leysa við samningaborðið. Islendingar geta ekki unað við það að vera sniðgengnir af vinaþjóðum sínum í þessu mikla hagsmunamáli og að samnings- bundin réttindi okkar verði skert. Það er því nauðsynlegt að stjómvöld sýni festu og krefjist þess að fá aðild að við- ræðunum og að tekin verði hlið- sjón af sjónarmiðum Islendinga. Efnahagsráðstafanir eru í raun kjarasamningar útflutningsfyrir- tækja þar sem verið er að bæta þeim upp tap vegna innlendra kostnaðarhækkana. Millifærsla, niðurfærsla og uppfærsla Oftast er talað um að til séu þrenns konar meginleiðir í efna- hagsaðgerðum sem miða aðallega að því að treysta rekstrargrundvöll atvinnufyrirtækja og sameiginlegur þáttur allra þeirra er takmörkun launabreytinga. Þessar leiðir eru í fyrsta lagi millifærsla fjár til at- vinnuveganna, í öðru lagi niður- færsla kaupgjalds og verðlags og í þriðja lagi uppfærsla tekna útflutn- ingsgreina með gengisfellingu. í millifærslu felst fjáröflun með einhveijum hætti, svo sem beinum eða óbeinum sköttum eða hugsan- lega niðurskurði á ríkisútgjöldum, sem varið yrði til beinna eða óbeinna framleiðslustyrkja til út- flutningsatvinnuveganna. Skatt- heimta eða niðurskurður myndi draga úr kaupmætti og innlendri efírspum, þenslunni, og einnig hafa áhrif á innflutning. Niðurfærsla kaupgjalds og verð- lags væru beinar ráðstafanir með samkomulagi eða lögum til lækkun- ar launa sem síðan yrði fylgt eftir með lækkun verðlags. Með þessu yrði dregið út innlendri eftirspum og launakostnaður atvinnuveganna lækkaði, sem aftur hefði það í för með sér að verðbólga og vextir lækkuðu. Uppfærslan, eða gengisfellingin, felur í sér að verð á erlendum gjald- eyri er hækkað þannig að tekjur atvinnuveganna eru hækkaðar í hlutfalli við innlent verðlag en þýð- ir jafnframt að kaupmáttur laun- þega minnkar. Þessi gengisbreyting dregur úr eftirspum, svo framar- lega sem ekki komi til samsvarandi hækkun á kaupi, og jafnframt hækka innfluttar vörur umfram innlendar. Gengisfellingin hætt að bíta Sú leið sem við íslendingar þekkj- um best er uppfærsluleiðin, enda hefur gengisfelling þann kost að vera fljótvirk og skila auknum tekj- um strax til útflutningsatvinnu- vega. Einnig er hún tiltölulega ein- föld aðgerð meðan hinar tvær em flóknar og kosta umfangsmikla skriffínnsku, aukið eftirlit og áróð- ur. Bit gengisfellingar hefur þó slævst verulega; aðallega af tveim- ur ástæðum. Útflutningsfyrirtæki hafa mörg safnað vemlegum er- lendum skuldum sem hækka við gengisfellingu þar sem flest lánin em gengisbundin. Sama má segja um útgerð sem fær ekki kjarabætur gegnum gengisfellinguna. Þá gerir innlend verðtrygging það að verk- um að verðbólguáhrif gengisfelling- arinnar hækka höfuðstól lána. Hækkun innfluttrar vöm, sem óhjá- kvæmilega fylgir gengisfellingu, dregur á eftir sér vísitöluhækkun og þar með almenna verðlags- hækkun. Áhrif gengisfellinga em því mun fljótari að fíara út en áð- ur, sérstaklega ef ytri skilyrði hafa ekki breyst á meðan. Niðurfærsluleiðin hefur verið talsvert til umræðu upp á síðkastið. Ef formúlan gengur upp er sú leið mjög fysileg. Þá væm laun t.d. lækkuð um 10% með lögum og all- ar gjaldskrár og opinber þjónusta lækkaði jafnhliða. Við það lækkar framfærsluvísitala, sem aftur hefur áhrif á lánskjaravísitölu og við það lækka vextir og fjármagnskostnað- ur. Verslanir hafa þá tök á að minnka álagningu á innfluttar vör- ur þannig að í heild má búast við að verðlag lækki um 6%. Verð- bólgan á, innan tveggja mánaða, að komast niður í 6-7% og vextir í 10-13%. Lækkun lánskjaravísitölu leiðir til lækkunar verðtryggðra lána og þegar verðbólgan er komin niður í þessa viðráðanlegu stærð væri hægt að afnema lánskjaravísi- töluna. Breyttar forsendur Niðurfærsluleiðin hefur einu sinni verið farin, af minnihluta- stjóm Alþýðuflokksins árið 1959, en íslenska hagkerfíð núna er ekki sambærilegt við það sem þá var. Mönnum kemur saman um að þá hafí atvinnulífíð verið meira og minna bundið höftum og leyfisveit- ingum stjómvalda, sem fyrir vikið áttu mun auðveldara með að stýra efnahagsþróuninni. „Á þessum tíma máttu menn varla reka niður girð- ingarstaur án þess að skrifa og biðja um leyfí," sagði einn viðmælandi blaðsins. Umræður um þessa leið hafa komið upp öðru hvom. Árið 1968 lagði Alþýðuflokkurinn þessa leið til, þegar ríkisstjómin glímdi við vanda vegna aflabrests og lækkun útflutningsverðlags en gengisfell- ing varð fyrir valinu. Arið 1972 skipaði ríkisstjómin nefnd til að gera úttekt á íslenskum atvinnu- vegum og leiðum til efnahagsúr- bóta. Niðurfærsluleiðin var þar skoðuð vandlega en aftur varð gengisfelling fyrir valinu. Niður- færsluleið var enn í umræðunni 1984 en þótti vandframkvæmanleg. í skýrslu nefndarinnar frá'1972 segir t.d. um niðurfærsluleiðina að ýmislegt mæli með að hún verði farin til að leysa efnahagsvandann sem þá var við að glíma, ekki síst til að eyða verðbólguhugsun með þjóðinni. Hins vegar virðist aðstæð- ur í launa- og verðlagsmálum vera þær að ekki sýnist fært að ná fram neinni umtalsverðri verðhjöðnun eftir þessari leið, og að óvissa um framkvæmd verðlækkana í kjölfar kauplækkana sé mikil en það ráði samst algerlega úrslitum um árang- ur. Því sé erfítt að hugsa sér niður- færsluleið sem aðaluppistöðu í heildarlausn. „Til að niðurfærsla komi til greina sem aðaltæki þarf að vera fyrir hendi mikil áhersla á gildi verðlagsmarkaðarins og vilji til þess að færa verulegar fómir fyrir framtíðina," segir síðan orð- rétt í skýrslunni. Skiptar skoðanir um leiðirnar Á meðan gengisfelling náði markmiðum sínum var engin ástæða til að fara áhættusamar leiðir eins og niðurfærslu. Núna hafa hins vegar vaknað efasemdir um að gengisfelling gangi upp og því var farið að skoða aðrar leiðir betur. Af samtölum við forsvars- menn atvinnulífsins kemur fram að verulega skiptar skoðanir eru um leiðir og markmiðin. Friðrik Pálsson forstjóri Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna sagði við Morgunblaðið að ef menn treystu sér í aðrar leiðir en gengisfellingu benti margt til að þær væru betri. Útlán bankanna takmi vegna þröngrar lausafjj ÞRÖNG lausafjárstaða bankanna veldur því, að þeir takmarka nú útl- án. Iðnaðarbankinn einn hefur ekki gripið til takmarkana. Ástæður þessara aðgerða eru ýmist auknar kröfur Seðlabankans um fjárbind- ingu, minnkandi innlán eða meiri vanskil á endurgreiðslum til bank- anna. Þetta veidur erfiðri lausafjárstöðu. í sumum tilvikum eru allir þessir þættir samverkandi. í Morgunblaðinu í gær var sagt frá minnk- andi útlánum Landsbankans. Þvi var leitað til forsvarsmanna hinna bankanna og þeir spurðir hvort sömu aðgerða væri að vænta hjá þeim. „Við höfum í undirbúningi svipað- greiða til baka þau lán sem þeir ar aðgerðir og ætlum að hafa sam- band við útibúin okkar um þær. Þeg- ar búið verður að ákveða vextina verður farið í það,“ sagði Jón Adolf Guðjónsson bankastjóri Búnaðar- bankans. Hann sagði að heldur hefði dregið úr innlánum og greinilegt væri að bæði fyrirtæki og einstakl- ingar ættu erfíðara en áður með að hafa fengið. Hann kvaðst reikna með að um tímabundnar aðgerðir væri að ræða. „Við erum reyndar búnir að standa á bremsum núna um nokkurt skeið," sagði Guðmundur Hauksson hjá Út- vegsbankanum. „Það er nokkuð síðan við ákváðum að hægja á eins og frekast er unnt vegna þess að breyttar reglur um laust fé hjá Seðla- banka hnepptu okkur. Þannig að við erum ekki að grípa til neinna sérs- takra aðgerða núna.“ Hann sagði þetta aðhald vera almennt og gilda um alla viðskiptavini bankans. „Þetta er sá tími ársins sem þjóðfélagið er frekar neikvætt fyrir bankann, seinni hluti sumars er það venjulega. Af þeim ástæðum þurfum við að halda vel á spilunum á þessum tíma. Síðan stefnir í þyngsli í efnahagslífinu al- mennt, þannig að ég held að það sé ljóst að bankar muni, óháð reglum Seðlabankans, byggja upp svolítið sterkari lausafjárstöðu.“ Ólafur Ottósson aðstoðarbanka- stjóri Alþýðubankans sagði að ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.