Morgunblaðið - 19.08.1988, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
Minning:
Krístmann Dan Jen-
sen frá Fáskrúðsfírði
Fæddur 26. apríl 1942
Dáinn 10. ágúst 1988
Dáinn, horfinn. - Harmafregn.
Hvflíkt orð mig dynur yfir.
(Jónas Hallgr.)
Ljóðlínur listaskáldsins góða eru
mér ofarlega í huga þegar ég minn-
ist vinar míns, samstarfsmanns og
nábúa, Kristmanns Dan Jensen.
Hann lést á Landakotsspítala 10.
ágúst sl. eftir 3ja vikna þunga sjúk-
dómslegu aðeins 46 ára gamall.
Kristmann fæddist á Fáskrúðs-
firði 26. apríl 1942. Foreldrar hans
voru hjónin Björg Magnúsdóttir og
Jens Lúðvíksson, skipstjóri og út-
gerðarmaður.
Jens var m.a. skipstjóri á Hrönn,
einum af þremur bátum Samvinnu-
félags útgerðarmanna á Fáskrúðs-
firði. Þá gerði hann út bátana Ró-
bert Dan og Hvanney. Jens vann
það afrek á skipstjóraferli sínum
22. febrúar 1944 að bjarga 19 rúml.
báti, Báru SU frá Fáskrúðsfírði,
með fimm manna áhöfn. Bára hafði
fengið á sig brotsjó fyrir utan
Homafjarðarós og farið heila veltu
í sjónum. Jens var þá staddur á bát
sínum Hvanney inn á Homafirði.
Hann hélt þegar af stað út úr ósn-
um og tókst að bjarga Bámnni og
koma henni inn á Djúpavog í af-
takaveðri. Þótti þessi björgun
kraftaverki næst. Jens lést árið
1969.
Björg og Jens eignuðust 3 syni:
1. Róbert Dan, starfsmann Vita-
og hafnamálastofnunar. Hann er
kvæntur Kristbjörgu Stefánsdóttur,
hjúkmnarkonu. Þau eiga fjögur
böm: Björgu Dan, Sigrúnu Dan,
Andra Dan og Eddu Dan. 2. Krist-
mann Dan, lést 4ra ára gamall. 3.
Kristmann Dan, sem hér er minnst.
Kristmann ólst upp á Fáskrúðs-
fírði og eftir skólagöngu starfaði
hann m.a. nokkuð til sjós. Hann var
á strandferðaskipinu Heklu og á
Búðafelli SU á sfldveiðum. Á árinu
1959 var hann skipveiji hjá Land-
helgisgæslunni. Hann gerðist vöm-
bifreiðarstjóri fljótlega eftir að hann
öðlaðist réttindi til þess og starfaði
á eigin bílum til 1971. Arið 1972
hóf hann störf hjá Hraðfrystihúsi
Fáskrúðsfjarðar hf. og starfaði þar
meðan kraftar leyfðu eða um 17
ára skeið.
Hann kvæntist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Elsu Guðrúnu Hjalta-
dóttur frá Fáskrúðsfirði 14. nóvem-
ber 1965. Þau eignuðust fjóra syni:
1. Jens Dan, starfsmann hjá Hrað-
frystihúsi Fáskrúðsíjarðar hf. 2.
Hjalta Dan, lést 1984 17 ára gam-
all. 3. Nökkva Dan, 14 ára. 4.
Hjalta Dan 2ja ára.
Elsa og Kristmann reistu íbúðar-
húsið á Hamarsgötu 3, sem er
næsta hús ofan við æskuheimili
Kristmanns, þar sem móðir hans
býr en. Nú höfðu þau fyrir stuttu
lokið við myndarlega stækkun á
húsi sínu.
Kynni okkar Kristmanns hófust
árið 1967. Þá var hann eins og
fyrr getur vörubifreiðarstjóri. Krist-
mann þótti einstaklega lipur
bílstjóri og vinsæll hjá þeim sem
nutu þjónustu hans. Ég veit að
mörgum þótti gott að leita til hans
vegna þess hversu fljótur hann var
til, enda var hann að eðlisfari afar
duglegur, greiðvikinn og þægilegur.
Þegar Hraðfrystihús Fáskrúðs-
fjarðar hf. hóf byggingu á nýju
fiystihúsi árið 1973 var Kristmann
fenginn til að stjóma 25 tonna
bflkrana sem fiystihúsið hafði fest
kaup á. Kraninn hafði m.a. það hlut-
verk að reka niður staura í gmnn
fiystihússins með sérstökum hamri
sem fenginn var frá brúargerðinni
á Skeiðarársandi. Starfaði Krist-
mann um tíma suður á söndum til
að kynna séi* þennan sérstaka
staurarekstur. Hann vann svo á
bflkrananum á hinum ýmsu stöðum
á Austurlandi við hafnargerðir
næstu árin ásamt ýmsu því sem til
féll hjá fyrirtækinu, því maðurinn
var sérstaklega flölhæfur til verka.
Hann vann á hinum ýmsu flutnin-
gatækjum fyrirtækisins og við við-
hald á vélum og tækjum og í raf-
magni.
Það var svo fyrir um það bil ára-
tug að ég undirritaður óskaði eftir
því við Kristmann að hann tæki að
sér umsjón með öllum fískvinnslu-
vélum fyrirtækisins, því ég var viss
um að fjölhæfni hans, dugnaður og
samviskusemi myndi njóta sín vel
við Baader-vélamar. Eg varð svo
sannarlega ekki fyrir vonbrigðum,
því Kristmann skilaði því verki eins
og best verður á kosið og hefur
hann verið einn af lykilmönnum
fyrirtækisins árum saman. Fyrir
nokkrum árum tók fyrirtækið upp
sérstakt gæðastýringakerfi. Mark-
miðið var að fylgjast mun nánar
með framleiðslu frystihússins og
stefna að því að gæðakerfí hússins
yrði það gott að uppþíðing á fram-
leiðslunni væri úr sögunni til að
ákvarða gæði hennar. Frá því að
þetta verkefni hófst hafa fjórir
starfsmenn frystihússins ásamt
framkvæmdastjóra komið saman til
fundar á hveijum morgni, þar sem
farið er yfir árangur dagsins á und-
an og rætt málin framundan. í þess-
um hópi var Kristmann. Árangurinn
varð sá að Hraðfiystihús Fáskrúðs-
fiarðar hf. varð fyrsta frystihúsið á
Islandi sem uppþíðingu var hætt
hjá.
Það var stutt á milli heimila okk-
ar Kristmanns og hittumst við og
fjölskyldur okkar oftar en annars
hefði verið. Þeir eru orðnir margir
umræðufundimir sem við Krist-
mann höfum átt á bflastæðinu í
Tröð eða á milli húsanna. Það var
notalegt að fá hann í heimsókn í
garðinn á hinum fallegu sumar-
kvöldum á Fáskrúðsfirði þegar ekki
blakti hár á höfði. Þeir voru marg-
ir málaflokkamir sem við tókum
fyrir og stundum bættust fleiri í
hópinn. Kristmann hafði gaman af
að segja frá og ef um stórtíðindi
var að ræða bætti hann stundum
við frá eigin bijósti til að gera hlut-
ina skemmtilegri. Skein þá glettnin
úr augum hans. Þessara samfunda
okkar Kristmanns mun ég mjög
sakna.
Kristmann var samvinnu- og fé-
lagshyggjumaður og átti sæti í
stjóm Framsóknarfélags Búða-
kauptúns þegar hann lést langt
fyrir aldur fram.
Ég vil fyrir hönd fyrirtækja kaup-
félagsins.og vinnufélaganna þakka
samstarfið við mikilvægan starfs-
mann og góðan félaga.
Kristmann var góður heimilis-
faðir og voru hjónin og synimir
ákafiega samrýnd. Hann var nær-
gætinn við móður sína og þeir hafa
Mig langar með örfáum orðum
að minnast elskulegs stjúpföður
míns, Sverris Einars Egilssonar,
sem alla tíð rejmdist mér sem besti
faðir, og móður minni tryggur og
traustur forunautur. Ég kynntist
Sverri fyrst ellefu ára gömul sem
miklu prúðmenni og spaugsömum
gefandi manni. Og aldrei skal ég
gleyma fyrstu jólagjöfinni (sem
hann valdi sjálfur) það vom ljósblá
Baby doll-náttföt sem mig hafði
lengi langað til að eignast. Árið
1961 á fertugs aftnæli mömmu, 22.
apríl, eignaðist ég bróður sem var
mikil hamingja í lífi okkar allrá.
Nokkmm áram seinna fæddust
fyrstu bamabömin sem urðu 9, eitt
þeirra andaðist á unga aldri.
En hvert var betra að fara í
sunnudagsbfltúr enn á Grettó til afa
og ömmu, þar sem alltaf vom opn-
ir armar til að taka á móti smáfólk-
inu litla. Síst hefði mig gmnað sl.
sunnudag þegar hann og mamma
komu í heimsókn til okkar, áður en
eflaust verið fáir þeir dagar sem
hann leit ekki inn til hennar. Það
hefur ávallt verið gott að koma á
heimili Kristmanns og Elsu. Þau
bæði gestrisin og vingjamleg.
Mikill er því söknuður fjölskyldu
hans sem sér á eftir ástkæmm eig-
inmanni, föður, syni, bróður og
tengdasyni, aðeins fjómm ámm
eftir fráfall Hjalta. Ég veit að minn-
ingin um góðan dreng mun lifa og
ylja um hjartarætur um ókomna
tíð. Ég efast ekki um að heimkoma
Kristmanns hefur verið góð, þar
sem ástvinir hans sem famir vom
á undan honum hafa umvafið hann
allri sinni ástúð og hlýju.
Ég og fjölskylda mín sendum
Elsu, sonum hennar, Björgu, Ró-
bert og fjölskyldu, Éllý og Hjalta
svo og öðmm ástvinum hugheilar
samúðarkveðjur. Megi góður Guð
styrkja ykkur og blessa í ykkar
miklu sorg.
Blessuð sé minning Kristmanns
Dan Jenssonar.
Gísli Jónatansson
hann ók henni upp á Reykjalund,
þar sem hún hefur dvalið um tíma,
að það yrði í síðasta skipti sem ég
sæi hann héma megin, en vegír
Guðs era órannsakanlegir.
Guð haldi vemdarhendi sinni yfir
móður minni, bróður, tengdadóttur,
og syni þeirra, fósturbömum, mök-
um þeirra, bamabömum og systkin-
um hans.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvflast,
leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis
njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns sín.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum
mínum;
Þú smyr höfúð mitt með olíu;
bikar minn er barmafullur,
Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga
mína,
og I húsi Drottins bý ég langa ævi.
(Sálmur 23)
Góðar minningar em það besta
í heimi hér. Þakka ég allt stjúpa
mínum.
Guðný Sigríður Sigurbjömsdóttir
Guð blessi minningu afa okkar,
Sverris E. Egilssonar, og varðveiti
ömmu og fjölskyldu okkar.
Eg hef augu mín til fjallanna:
Hvaðan kemur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni,
Skapara himins og jarðar.
Hann mun eigi láta fót þinn skriðna;
vörður þinn blundar ekki.
Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,
hann, vörður ísraels.
Drottinn er vörður þinn,
Diottinn er skuggi þinn, þér til hægri handar;
um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein,
né heldur tunglið um nætur.
Drottinn mun vemda þig fyrir öllu illu,
hann mun vemda sál þína;
Drottiim mun vaiðveita útgang þinn og inngang
héðan í frá og að eilífu.
(Sálmur 121)
Bamabörnin
t
Maðurinn minn,
GUÐJÓN HALLSSON,
Lækjarvegi 2,
Þórshöfn,
andaðist í Kristnesspítala miövikudaginn 17. ágúst. Jarðaförin
auglýst síðar.
Elfsabet Þorstelnsdóttlr.
t
Eiginmaður minn, faöir og tengdafaðir,
ALBERTJ. FINNBOGASON,
Hallkelshólum, Grímsnesl,
veröur jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 20. ágúst kl.
13.00. Jarösett verður f Selfosskirkjugarði.
Margrét S. Benedlktsdóttir,
Rannveig Björg Albertsdóttir, Gfsll Hendriksson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR KR. SlMONARSON,
Holtsgötu 12, Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 22. ágúst kl.
13.30.
Hulda Guðmundsdóttir, Kristján Benjamfnsson,
Gyða Guðmundsdóttir, Haraldur Baldursson,
Adolf Guðmundsson, Erla Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgnnbladið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins i Hafnarstræti 85, Akureyri.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaöir og afi,
FRfMANN stefánsson,
Biómsturvöllum,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju laugardaginn 20. ágúst kl.
14.00.
Sveinn Frfmannsson, Sædfs Vigfúsdóttir,
Asdís Frfmannsdóttir, Jónas Björnsson,
Halldór Vlgnir Frfmannsson, Lilja Dóra Victorsdóttir
og barnabörn.
t
Jarðarför eiginmanns mfns, föður okkar, tengdaföður, bróðir og
afa,
SIGFÚSAR SIGURÐARSONAR
frá Nautabúi
fyrrv. verkstjóri RARIK,
Vfðigrund 4, Sauðárkróki,
er lést 14. ágúst sl. fer fram frá Sauöárkrókskirkju laugardaginn
20. ágúst 1988 kl. 11.00 fyrir hádegi.
Svanlaug Pétursdóttir,
Bogga Sigfúsdóttir, Björgvin Lúthersson,
Sigurður Sigfússon, Inglbjörg Hafstað,
Stefanfa Sigfúsdóttir, Snorri Jóhannsson,
Yngvi Sigfússon, Addrún Antonsdóttir,
Ingibjörg Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug við fráfall
og jaröarför
EINARS BJÖRNSSONAR,
Litla-Landi.
Sérstakar þakkir til Haröarfélaga.
Margrét Einarsdóttir,
Magnús Einarsson, Ingibjörg Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
SverrírEinar
Egilsson — Minning