Morgunblaðið - 19.08.1988, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
43
ÆTLAR STEINGRIMUR AÐ
SPRENGJA STJÓRNINA?
Velvakandi góður!
Allt frá því núverandi ríkisstjóm
tók til starfa, hefur Steingrímur
Hermannsson utanríkisráðherra
stöðugt verið að gefa yfirlýsingar,
sem ekki er hægt að skilja öðruvísi
en svo, að hann vilji stjómarsam-
starfið feigt.
Hann hefur í flölmiðlum lýst sig
andvígan flestum aðgerðum ríkis-
stjómarinnar, en þó stutt þær þegar
á hefur reynt. Hann hefur hvað eftir
annað reynt að koma höggi á ráð-
herra samstarfsflokka sinna, einkum
forsætisráðherra. Og síðast en ekki
sfst, þá hefur hann af og til líkt þjóð-
félaginu við sökkvandi skip eða
brennandi borg og hjálpað til við að
kynda elda verðbólgunnar með
ótímabærum yfirlýsingum um geng-
isfellingar.
Þessar sífelldu ögranir Steingríms
hafa enn færst í vöxt. Forsætisráð-
herra var ekki fyrr farinn til Banda-
rílq'anna en hann hóf söng um að
óeðlilegt væri að taka sér frí á þess-
um tíma og gaf í skyn, að forsætis-
ráðherra væri á einn eða annan hátt
að bregðast skyldum sínum með ferð-
inni. Þessar aðdróttanir em auðvitað
marklausar, einkum í ljósi þess, að
fáir ráðamenn íslenskir hafa verið
eins ferðaglaðir og Steingrímur á
langri ráðherratíð sinni.
Framsóknarmenn hafa flestir
fylgt foringja sínum í þessum til-
hneigingum hans til stjómarand-
stöðu. Nú hyggjast þeir á næstunni
halda miðstjómarfund og munu þá
væntanlega taka ákvörðun um fram-
hald stjómarþátttöku sinnar. Það er
ljóst að í herbúðum þeirra em marg-
ir, sem telja heillavænlegast að
sprengja stjómina og em fyrir því
ýmsar ástæður. í fyrsta lagi er efna-
hagsvandinn mikill og illviðráðanleg-
ur. í öðm lagi mega framsóknar-
menn vera ánægðir með það fylgi,
sem skoðanakannanir hafa gefið
þeim fyrirheit um. Og í þriðja lagi
er Steingrímur Hermannsson ekki
forsætisráðherra. Það hefur meiri
áhrif en sýnist í fyrstu, því þeir hafa,
að því er virðist, tekið hann í tölu
hálfguða. Til dæmis hefur Tíminn
að undanfömu íjallað um hann, eins
og flölmiðlar í Norður-Kóreu Qalla
um_ leiðtogann Kim II Sung.
Á hinn bóginn er margt sem held-
ur framsóknarmönnum í stjóminni.
í fyrsta lagi finnast í hópi þeirra
ábyrgir menn, sem vita að eins og
sakir standa er ekki völ á skárri
kostum en núverandi ríkisstjóm. í
annan stað halda sumar ráðherra
flokksins i stóla sfna af alefli og
mega ekki til þess hugsa að verða
bara óbreyttir þingmenn. í þriðja
lagi óttast margir þingmanna þeirra
að lenda í stjómarandstöðu og missa
áhrif sín. Og víst er, að ýmsir hags-
munaaðilar, sem hafa árum saman
lifað á því að hanga í pilsfaldi fram-
sóknarmadömunnar munu beita fyrir
því af alefli, að flokkurinn sitji áfram.
Af þessum sökum verður fróðlegt
að sjá, hvort framsóknarmenn fylgja
eftir hótunumn sínum eða éta ofan
í sig stóm orðin einu sinni enn. En
hvemig sem fer, þá hafa hótanimar
um stjómarslit, upphlaup og alls
konar yfirlýsingar nú þegar skilað
flokknum þeim árangri, að ekki hef-
ur verið haggað við „gæludýmm"
hans í landbúnaði, heldur hefur fjára-
usturinn í þá hít verið aukinn til
muna.
Meðan þessar aðferðir færa fram-
sóknarmönnum hvem sigurinn á
fætur öðmm í hrossakaupunum í
ríkisstjóminni, þá er ekki von til
þess að Steingrímur þagni.
Reyknesingur
Háspenna - lífshætta
• Ohöppum og tjónum af völdum
háspennu fer fjölgandi. Flest slík
óhöpp verða fyrir vangá eða hugs-
unarleysi.
• Ökumenn:
Hafið gát á háspennulínum, ef
þið emð með hátt loftnet, eða
emð með háfermi í bílnum. Reisið
ekki bílpall upp í línur, eins og
mörg dæmi em um við vegagerð
og aðrar framkvæmdir.
• Gröfu- og kranastjórar
Fylgist vandlega með öllum hreyf-
ingum tækjanna og farið með
sérstakri gát, ef þið emð að störf-
um í nánd við háspennulínur.
• Ef ökutæki eða vinnuvél
snertir háspennulínu er sjálfsagt
að reyna strax að komast undan
línunni og meta síðan aðstæður,
áður en reynt er að komast út
úr ökutækinu. Ef sýnt þykir, að
spenna liggi á tækinu, er ömgg-
ast að hreyfa sig hvergi, fyrr en
tiyggt er að spenna sé ekki leng-
ur á línunum.
• Ef eldur kemur upp í tækinu,
kann að vera eina björgunarvonin
að stökkva út. Ef tækið snertir
enn háspennulínu verður að var-
ast að snerta samtímis tækið og
jörðu.
• Stjórnendur flugdreka:
Leikið ykkur ekki í nágrenni við
háspennulínur. Nælonlína getur
leitt háspennt rafmagn í röku
veðri. Sleppið línunni, ef flækja
við raflínur er fyrirsjáanleg.
• Iðkendur fallhlífarstökks:
Metið aðstæður, vinda og veður,
áður en lagt er til stökks þar sem
háspennulínur geta verið í
sviflínu.
Þessir hrlngdu . . .
Á milli mála
Helga hringdi:
„Ég vil lýsa yfir vonbrigðum
mínum með það, hvernig þáttur-
inn „Á milli mála“ á Rás 2 er
orðinn. Þegar Eva Ásrún og Sig-
urður Gröndal sáu um þáttinn var
hann alveg frábær og tónlistin
sem þau spiluðu var með því besta
sem heyrðist. Allir virtust ánægð-
ir með þetta, en samt var skipt
um stjómendur og nú er þátturinn
alveg orðinn ómögulegur. Ég vil
skora á þá sem em sammála mér
að láta í sér heyra um þetta mál.“
Háfur týndist við Ell-
iðavatn
Þann 6. ágúst týndist lítill sil-
ungaháfur hjá bryggjunum norð-
arlega við Elliðavatn. Teygjuband
var fest við háfinn og á því hnút-
ur. Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 652178.
Endursýnið myndina
um Árna í Árnabúð
Vesturbæingur hringdi:
„Er ekki hægt að endursýna
sjónvarpsmyndina um Áma kaup-
mann í Ámabúð á Fálkagötu. Eg
missti sjálfur af þættinum, en
heyrði að hann hefði verið bæði
fróðlegur og skemmtilegur."
Góð þjónusta í verslun-
inniPingpong
Ánægður viðskiptavinur
hringdi:
„Eg vil koma á framfæri j)ökk-
um til verslunarstjórans í tísku-
versluninni Ping pong við Lauga-
veg. Dóttir mín keypti sér þar
hvít ballföt fyrir skömmu. Hún fór
í þeim á dansleik, og þar skettist
á nýju fötin. Ég fór þá í verslun-
ina til að spytja ráða varðandi
hreinsun á fötunum. Þá brást
stúlkan sem var verslunarstjóri
þannig við, að hún afhenti mér
innleggsnótu fyrir nýjum fötum á
sama verði og greitt hafði verið
fyrir hin.“
Flugvöllurinn verði
áfram í Vatnsmýrinni
Reykvíkingur hringdi:
„Ég vil mótmæla því sjónar-
miði, að leggja beri Reykjavíkur-
flugvöll niður. Slysahætta vegna
staðsetningar vallarins er sáralítil
en ávinningurinn af því að hafa
hann þama í Vatnsmýrinni er á
hinn bóginn mikill. Það er mjög
mikilvægt fyrir samskipti borg-
arbúa og landsbyggðarmanna að
hafa flugvöll í hjarta Reykjavíkur
og hugmyndir um byggingu nýs
em óraunhæfar vegna kostnaðar-
ins, sem því myndi fylgja."
1 KIENZLE
■ T riFANDI ÍMANNA TÁKN
JÁRNAMENN!
BYGGINGA-
VERKTAKAR!
Vorum að fá sendingu af
JÁRNAKLIPPUM
Höfum einnig
fyrirliggjandi:
Mótahreinsivélar.
Rafstöðvar.
Rafmagnstalíur.
Flísasagir.
Steypuhrærivélar.
Verkstæðiskrana.
Loftþjöppur.
SALA-SALA-SALA-SALA
LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIGA
QJ
VÉLA- OG PALLALEIGAN
Sími687160.
Fosshálsi 27,
Reykjavík.
SÉRBLAÐ
á fimmtudögum
Auglýsingar í viðskiptablaðið
þurfa að hafa borist auglýsinga-
deild fyrir kl. 12.00.
á mánudögum.
- blaé allra landsmanna
k