Morgunblaðið - 19.08.1988, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR
PÖSTUDAGUR 19. AGUST 1988
ínémR
FOLX
■ Á miðvikudag var einn leikur
í 4. deild karla í knattspymu. Leikn-
ir P. og Austri E. áttust við í E-
riðli og lauk leiknum með jantefli
3:3. Þar með endurheimti Austri
sæti sitt í 3. deild. Þröstur Sigurðs-
son skoraði tvö mörk fyrir Leikni
og Albert Hansson gerði eitt. Fyrir
Austra skoruðu Sigurjón Kristjáns-
son, Bergur Stefánsson og Hilmir
Ásbjömsson.
■ / þríðju deild voru sex leikir
í fyrrakvöld. í A-riðli sigraði
Stjarnan Leikni R. 5:1. Svein-
björn Hákonarson skoraði þrennu
fyrir Stjörnuna og Valdimar Kri-
stófersson og Heimir Erlingsson
sitt markið hvor. Jóhann Þorkels-
son gerði mark Leiknismanna.
Afturelding vann Gróttu með
þremur mörkum gegn einu. Viktor
Viktorsson, Óskar Óskarsson og
Ragnar Rögnvaldsson skoruðu
fyrir Aftureldingu, en mark
Gróttu gerði Erling Aðalsteins-
son. Á gervigrasinu í Reykjavík
sigraði Víkveiji Njarðvík 2:1.
Níels Guðmundsson skoraði bæði
mörk Víkverja en Rúnar Jónsson
* svaraði fyrir Njarðvík. Grindavík
sigraði ÍK 4:1 á heimavelli. Í B-
riðli áttust við Huginn og Þróttur
og sigraði Huginn 4:2. Sveinbjöm
Jóhannson gerði þrennu fyrir Hug-
inn og Halldór Róbertsson eitt.
Guðbjartur Magnason skoraði
bæði mörkin fyrir Þrótt.
■ HELENA Ólafsdóttir, skor-
aði mark KR gegn Stjörnunni á
miðvikudagskvöldið. Leiknum lauk
með 1:1 jafntefli.
■ AC MILANO sigraði hol-
> lensku Evrópumeistarana PSV
Eindhoven 2:0 í vináttuleik á mið-
vikudag. ítöisku meistaramir léku
án Ruud Gullit sem er meiddur,
en það virtist ekki koma að sök.
Það var Hollendingurinn Marco
van Basten sem kom Milano yfir
á 28. mínútu og rétt fyrir leikslok
gulltiyggði Daniella Massaro sig-
ur ítalska liðsins með þrumuskoti
af 25 metra færi.
■ COCA Cola mótið í tennis fer
fram á Víkingsvelli við Stjörnu-
gróf dagana 25.-28. ágúst. Mótið
er opið og skráning fer fram á
Víkingssvæðinu fyrir þriðjudaginn
23. ágúst.
■ GRETA Waitz, sem hlaut silf-
urverðlaun í maraþonhlaupi kvenna
á síðustu ólympíuleikum, tekur
ákvörðun um það í þessari viku,
hvort hún muni keppa í Seoul eða
ekki. Hún gekkst undir skurðaðgerð
í síðustu viku en vonast til þess að
feta hafíð æfíngar í lok þessarar.
I Opið öldungamót í golfí verð-
ur haldið á golvelli Selfoss á laugar-
daginn. Keppt verður í tveimur
flokkum, 50 - 54 ára og 55 ára og
eldri. Vegleg verðlaun verða veitt
fyrir þijú efstu sætin með og án
forgjafar í hvorum flokki ásamt
ýmsum aukaverðlaunum.
FRJALSAR / OLYMPIULEIKARNIR
IMuddari og slökunarfræðingur með
frjálsíþróttamönnum til Seoul
STJÓRN Frjálsíþróttasam-
bandsins hefur ákveðið að
senda Örn Jónsson, nuddara
og slökunarsérfræðing, sem
sérstakan aðstoðarmann
íslensku frjálsíþróttamann-
anna, sem keppa á Ólympíu-
leikunum f Seoul.
Við viljum gera allt, sem í
okkar valdi er til þess að
gera möguleika íþróttamannanna
á að ná sem bestum árangri f
Seoul sem mesta,“ sagði Ágúst
Ásgeirsson, formaður FRÍ, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Fijálsíþróttamennimir, sem
keppa í Seoul, hafa notið aðstoðar
Amar Jónssonar í sumar. Hann
nam nudd í Svíþjóð og sérhæfði
sig jafnframt í slökun, þ.e. hvem-
ig auðvelda má íþróttamanni að
slaka á undir keppnisálagi og
auka einbeitni sína. Þar sem Öm
verður sérstakur aðstoðarmaður
frjálsíþróttamannanna, sem
keppa í Seoul, stendur FRÍ straum
af kostnaði við för hans á leikana.
Aldrei hafa verið sendir jafn
margir aðstoðarmenn með
íslenskum ólympíuförum. Tveir
læknar, Gunnar Þór Jónsson og
Stefán Carlsson, fara til Seoul.
Annar þeirra sinnir handboltalið-
inu en hinn öðrum keppendum,
þ.e. fijálsíþrótta-, júdó-, sund- og
siglingamönnunum. Þá sendir
Ólympíunefndin einnig sérstakan
sjúkraþjálfara með öllum hópnum,
Andrés Kristjánsson.
FRJALSAR IÞROTTIR / STANGARSTOKK
Bubka „sýnir“
stangar-
stökk í Seoul
SERGEI Bubka, sovéski stangarstökkvarinn,
verður án efa í sviðsljósinu á Ólympíuleikunum
í Seoul, en talið er að keppni í þeirri grein verði
einungis sýning hans á getu sinni, en hann
hefur stokkið 10 cm. hœrra en helstu keppina-
utar hans í greininni.
Bubka hefur tvisvar sinnum á þessu ári bætt heims-
metið í stangarstökki, og á undanfömum árum
hefur þessi 24 ára gamli fijálsíþróttamaður unnið til
nærri allra þeirra verðlauna, sem hægt er að vinna til
í greininni. Það er einungis einn verðlaunapeningur,
sem ekki hefur ennþá komist f safnið hans, og það
er gullverðlaunapeningur frá ólympfuleikum.
Grfpur hærra um stöngina en aðrir
Bubka er eini maðurinn í heiminum, sem hefur
farið yfír. 6 metrana í stangarstökki, og það gerði
hann i sjötta sinn, er hann bætti heimsmetið í síðasta
mánuði; stökk 6,06 metra. Sagt er að hann sé ákveð-
inn í þvf að bæta heimsmetið svo mikið að enginn
hans samtíðarmanna geti gert sér vonir um að kom-
ast nálægt því á þessari öld.
Styrkur hans sem stangarstökkvara er af mörgum
talinn liggja fyrst og fremst í því hversu fljótur hann
er (hann hleypur 100 metrana á 10.40 sek.) og hversu
hátt á stönginni hann heldur, en fáir stangarstökkvar-
ar hafa afl til þess að grípa um stöngina eins ofar-
lega og hann.
Bubka kom fyrst fram á sjónarviðið utan Sovétríkj-
anna árið 1983 f Helsinki. Þá var hann aðeins 19 ára
gamall, og sigraði þar í fyrstu keppninni um heims-
meistaratitil í stangarstökki sem fram fór. Fyrsta
heimsmet hans sigldi svo í kjölfarið í maí árið eftir,
þegar hann stökk 5,85 metra. Tveimur mánuðum
seinna hafði hann svo tvæbætt metið áður en Frakk-
inn Thierry Vigneron stökk 5,91 m í ágúst. Það liðu
hins vegar ekki nema 14 mínútur áður en met Vigner-
on tilheyrði fortíðinni, því Bubka, sem horfði á þetta
gerast meðan röðin- kæmi að sér, stökk 5,94 metra.
Seglst geta stokklö 6,20 m
Árið 1985 rauf Bubka svo 6 metra múrinn og árið
eftir var hann kominn í 6,01 metra. Í fyrra stökk
hann 6,03 en nú er metið komið upp í 6,06, en það
setti hann í Nice í Frakklandi 10. júlí síðastliðinn.
Sergel Bubka, stangarstökkvarinn knái, hefur verið
ósigrandi.
Þeir sem á hæla honum koma í stangarstökkinu, ef
svo má að orði komast, eru 10 cm. fyrir neðan hann,
þannig að ekki er hægt að búast við því að honum
verði veitt mikil keppni í Seoul.
Bubka er þess einnig fullviss að hann hafí ekki
sagt sitt síðasta orð í stangarstökkinu. „Ég veit að ég
á eftir að ná enn betri árangri en fram að þessu,"
sagði Bubka, og bætti við að hann gæti stokkið 6,20
metra. Hann verður þó að láta sér nægja þann mögu-
leika í bráð að komast yfír 6,10 m, en þá hæð felldi
hann naumlega í þremur tilraunum í Nice, þegar hann
bætti heimsmetið síðast.
FRJALSAR IÞROTTIR
„Big Ben“ fær375 þús.
kr. fyrir sek. í Köln
BEN Johnson, sem hefur átt
viö meiðsli að striða og mótti
þola tap fyrir Carl Lewis í
Zilrich, keppir næst í Köln á
sunnudaginn.
B
ig Ben“ - eins og Ben
Johnson er kallaður, sem
fékk 11.5 millj. ísl. kr. fyrir að
keppa í Ziirich, fær hann 3.750
milij., eða 375 þús. fyrir sek. fyr-
ir að keppa í Köln. Þessi mikli
hlaupari verðus svo í sviðsljósinu
á Ólympíuleikvanginum í Vestur-
Berlín, þar sem úrslitakeppni
Grand-Pix hefst 26. ágúst. Þar
far hann tækifæri til að hefna
tapsins fyrir Lewis í Ziirich.
REYKJAVIKURMARAÞON
Fleiri og betri þátt-
takendur en áður
ÞÁTTTAKENDUR í Reykjavík-
urmaraþoninu verða fleiri og
betri en áður. Þegar hafa 800
keppendur skráð sig til keppni
en búist er við að þeir verði
ekki færri en 1000, sem þátt
taka í hlaupinu. Reiknað er með
að fjöldi útlendinga í hlaupinu
verði meiri en áður, eða um
150 talsins.
Agúst Þorsteinsson, hjá FRÍ,
sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að að von væri á hlaupara,
sem ætti mun betri tíma, en gild-
andi brautarmet væri.
„Það er einn Dani, sem boðið
hefur verið til keppni, sem á tímann
2:17.35 í maraþoni, en gildandi
brautarmet er 2:19.46,“ sagði
Ágúst.
„Þá er einnig von á Svíanum
Lars Ake Palm, sem hlaupið hefur
á 2:19 sleftum, svo og Júgóslava
nokkrum, Borut Podgomik, sem
hingað kemur á eigin vegum, en
besti tími hans er 8 sekúndum und-
ir gildandi brautarmeti," sagði
Ágúst að lokum. Það er því ekki
loku fyrir það skotið að nýtt met
sjái dagsins ljós næstkomandi
sunnudag.
KNATTSPYRNA
Hrósum
Valsmenn
íhinu
franska
L’Equipe
NJÓSNARI f rá franska liðinu
Mónakó var staddur á leik
Valsmanna og Völsunga á
sunnudaginn, og í franska
blaðinu L’Equipe birtist síðan
stutt umfjöllun hans um hina
íslensku mótherja Mónakó í
Evrópukeppni meistaraliða.
Henry Eiancheri, en svo heitir
Frakkinn, sem fylgdist með
leiknum, hrósaði Valsmönnum mjög
mikið í grein sinni; sagði liðið hafa
verið gott og að sig-
Bemharö urinn gegn Völs-
Valsson ungum hefði getað
orðið enn stærri.
Hann sagði það hafa
komið sér mest á óvart hve liðið
væri gott tæknilega og hversu vel
leikmenn þess notuðu vallarbreidd-
ina. Þá sagði hann að leikur þessa
íslenska liðs væri allt öðruvísi en
Frakkar gerðu sér í hugarlund um
íslenska knattspymu, og átti þá við
að íslenskir leikmenn væra ekki
risar, sem eingöngu beittu líkaman-
um i knattspymunni.
Eiancheri sagði vömina, með
Guðna Bergsson í broddi fylkingar,
vera helsta aðal Valsliðsins, en hann
hældi Guðna, og sagði hann vera
góðan leikmann á öllum sviðum
knattspymunnar. Þá taldi hann að
Mónakó liðið yrði að gefa Siguijóni
Kristjánssyni, sem skoraði tvö mörk
í leiknum, góðar gætur, og einnig
nefndi hann að hafa yrði auga með
Atla Eðvaldssyni, en hann hefði
spilað undanfarin ár í þýsku úrvals-
deildinni.
í lok greinar sinnar sagði hann
að Valsmenn yrðu líklega erfíðir
heim að sækja, og þá sérstaklega
ef norðannepjan hér á Fróni, næddi
um hina suðrænu mótheija Vals.
skrifarfrá
Frakklandi
Sigurjón Krlstjánsson