Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.08.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988 45 I V-ÞÝSKALAND KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Arnór og Asgeir klárir í slaginn gegn Sovétmönnum Amórog GuðmundurTorfason opnuðu markareikning sinn íBelgíu ARNÓR Guðjohnsen hefur fengið grænt Ijós hjó And- erlecht um að leika með lands- liðinu gegn Sovétmönnum í heimsmeistarakeppninni á Laugardalsvellinum 31. ágúst. Anderlecht leikur sama dag gegn Charleroi. Þá er Ásgeir Sigurvinsson einnig klár íslag- inn, þar sem Stuttgart leikur ekki íV-Þýskalandi sama dag vegna heimsmeistaraleiks V- Þýskalands og Finnlands. mór skoraði fallegt mark með skalla þegar Anderlecht lagði Molenbeek að velli, 2:0, á miðviku- dagskvöldið í belgísku 1. deildar- keppninni. Amór og félagar höfðu áður unnið Guðmund Torfason og félaga hans hjá Genk, 3:0. Guðmundur Torfason skoraði fyrsta mark nýja félagsins Genk - kom Genk yfír, 1:0, þegar félagið gerði jafntefli við Evrópubikar- meistara Mechelen, 1:1. Guðmund- ur skoraði með skalla. Anderlecht, St. Tmiden og Ware- gem em með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í Belgíu. Óvíst er hvort að Guðmundur Torfason fái frí frá Genk til að leika gegn Sovétmönnum, þar sem leikið er í Belgíu sama dag, 31. ágúst. Genk mætir þá Standard Liege. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær, þá er Sigurður Grét- arsson klár í leikinn gegn Sovét- mönnum. Bjami Sigurðsson og Gunnar Gíslason koma í leikinn, en enn er ekki útséð hvort að Sigurður Jónsson fái frí hjá Sheffíeld Wed- nesday. „Við eigum að geta teflt fram okkar sterkasta liði gegn Sovét- mönnum. Það verður gaman að koma heim til að glíma við þá. Við gerðum jaftitefli, 1:1, við þá heima síðast. Nú er kominn tími til að vinna," sagði Amór, en það var einmitt hann sem skoraði mark ís- lands gegn Sovétmönnum fyrir tveimur árum. Arnór Guðjohnsen. Ásgelr Sigurvlnsson. Tvö rauð og níu gul spjöld á lofti Dómarinn, sem dæmdi leik Köln og Bochum í Bundesligunni á þriðjudagskvöldið, var haldur betur í sviðsljósinu. Hann sýndi níu leik- mönnum gult spjald og tveimur rautt - þeim Kempe hjá Bochum og Pierre Littbarski hjá Köln. Fyrir utan það dæmdi hann mjög umdeilda vítaspymu á Bochum á síðustu mín. leiksins. Thomas Allofs skoraði sigurmark Kölnarliðsins, - 1:0, úr vítaspymunni. FRAKKLAND St. Germain á toppnum París St. Germain hélt toppsæt- inu í Frakklandi með því að ieggja Sochaux að velli, 1:0, á mið- vikudagskvöldið. Argentínumaður- inn Gabriel Calderon skoraði eina'r~' mark leiksins. Parísarliðið er með fimmtán stig eftir sex leiki. Bordeaux og Toulon em með fjórtán stig. Bordeaux vann stórsigur, 5:0, yfír St. Etienne. Englendingurinn Clive Allen skor- aði eitt af mörkunum. Mónakó mátti þola tap, 1:2, gegn Auxerre á heimavelli sínum. Mar- seille, sem hefur haft hug á að fá þjálfara Stuttgart, Arie Haan, til sín, vann Marta Racing Club, 2:0. HANDKNATTLEIKUR Alþjóðlegt unglinga mót í Mosfellsbæ ATLANTIC-mótið, mót lands- liða unglinga f handknattleik, hefst í kvöld í Mosfellsbæ. Keppt verður f pilta- og stúlknaflokki. Fjögur lið taka þátt í hvorum flokki, A- og B-lið íslendinga, Bretar og Færeyingar. etta er í fyrsta skipti, sem þessi keppni er haldin. HSÍ stendur að keppninni. í framtí- ðinni munu Skotar og Englend- ingar senda sitt hvort liðið á mó- tið en að þessu sinni aðeins eitt sameiginlegt lið. Gert er ráð fyrir að mótið verði árlegur viðburður og haldið til skiptis í löndunum fjórum. Síðar er ætlunin að bjóða fleiri rikjum, sem liggja að Atlants- hafinu, þátttöku í mótinu og hafa Bandaríkin, Kanada, Grænland og fleiri verið nefnd í því sam- bandi. Allir leikimir fara fram í íþróttahúsinii að Varmá dagana 19.-24. ágúst eða á sama tíma og Flugleiðamótið. Leikin verður tvöföld umferð í hvoram flokki. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Þrír af bestu hlaupurum heims keppa ekki í Seoul ÞRÍR af bestu hlaupurum fró Kenýa - tveir heimsmeistarar og einn ólympíumeistari, keppa ekki á Ólympfuleikunum f Seoul vegna velkinda. að era þeir Julius Korir, sem varð meistari í hindranarhlaupi á ÓL í Los Angles. Hann hefur verið veikur og hafði ekki kraft til að tryggja sér farseðilinn til Seoul á úrtökumótinu í Kenýa. Billy Konc- hellah, sem varð heimsmeistari í 800 m hlaupi í Róm í fyrra og Paul Kipkoerch, sem varð heims- meistari í 10.000 m hlaupi á svo eftirminnilegan hátt - stakk aðra hlaupara í úrslitahlaupinu hreinlega af. Kipkoerch hefur ekki náð sér eftir malaríu. Allir þessir snjöllu hlauparar vora taldir mjög sigurstranglegir á Ólympíuleikunum og því mikill sjón- arsviptir að þeir verða ekki með. Billy Konchellah heimsmeistari í 800 m hlaupi. mmw im Fylkisvöllur ---- SELF0SS íkvöld kl. 19.00 Daihatsu HAGKAUP BÓKABÚÐ JÓNASAR Hraunbæ 102 SPORTBÆR lomabuÖin Hraunbae102 A.Ja.U1\A. Hraunbæ 102 Veitingahúsið H AVUAH /DD BLASTEINN BAn^Aníha Hraunbæ 102 Hraunbæ102 TTjá STELLU Hraunbæ 102, s: 673530 Hraunbæ 102 VERSLANAKJARNINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.