Morgunblaðið - 19.08.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1988
HANDKNATTLEIKUR / FLUGLEIÐAMÓTIÐ
„Njósnarar" frá A-Þýskalandi
TVEIR „njósnarar" frá Aust-
ur-Þýskalandi koma hingaðtil
lands í dag. Þeir koma hingað
til að kortleggja landslið
Tékkóslóvakíu og Spánar,
sem keppa á Flugleiðamót-
inu, sem hefst á morgun.
Austur-Þjóðvetjar leika í riðli
með Tékkum og Spánvetjum
á Ólympíuleikunum í Seoul.
„Njósnaramir" hafa sérstaklega
augu með tékkneska landsliðinu,
þar sem þeir hafa lítið séð til
Tékka að undanfömu.
Fyrstu leikimir á Flugleiðamót-
inu verða á morgun. íslendingar
mæta Tékkum kl. 17 í Laugar-
dalshöllinni, þar sem íslenska
landsliðið leikur alla sína leiki.
Spánvetjar og Svisslendingar
leika kl. 14 á Selfossi og á Akur-
eyri leika Sovétmenn gegn B-liði
íslands.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Rush til
Liverpool
ENSKA meistaraliðið Liverpool
keypti í gær framherjann lan
Rush frá Juventus á Italíu. Kom
þetta gífurlega á óvart, en
Rush lék sem kunnugt er með
Liverpool áður — var seldur
þaðan fyrir 3,2 milljónir punda
og hafði aðeins leikið eitt
keppnistímabil með Juventus.
Ekki fékkst staðfest hve mikið
ensku meistaramir greiða fyrir
Rush, en talið er að það sé um 3
milljónir punda. Rush, sem er 26
' ára, skoraði á sínum tímá rúmlega
200 mörk á sjö ára ferli með Li-
verpool. Hann gerði hins vegar að-
eins sjö mörk í ítölsku deildinni með
Juventus í fyrra. „Liverpool er eitt
besta lið heims þannig að ég þurfti
ekki að hugsa mig tvisvar um hvort
ég ætti að fara þanga aftur er mér
bauðst það,“ sagði Rush í gær.
„Þetta er stórkostlegt fyrir okk-
ur. Áhorfendur verða glaðir, svo
og leikmenn mínir. Eg er viss um
að það verður gott fyrir enska
'"** knattspymu að fá Rush aftur
heim,“ sagði Kenny Dalglish, stjóri
Liverpool í gær.
lan Rush leikur í Liverpool-búningn-
um á nýjan leik á keppnistímabilinu
sem er að hefjast.
HANDBOLTI
Sovézka landsliðið:
Opin
æf ing fyrir
íslenska
þjátfara
Íslenskum handknattleiksþjálfur-
um býðst einstakt tækifæri í
dag, föstudag, því þá ætlar hinn
heimsþekkti sovézki landsliðsþjálf-
ari Anatolij Evtushenko að leyfa
þeim að fylgjast með æfingu
sovézka landsliðsins. Æfingin er í
Laugardalshöll klukkan 15 til 17
og á eftir heldur Evtushenko fyrir-
lestur og svarar fyrirspumum.
HSÍ samdi um það við Evtus-
henko fyrir nokkru að hann leyfði
íslenzkum þjálfurum að kynnast
æfingum Sovétmanna, sem taldir
em eiga bezta handknattleikslið
heimsins í dag. Þess má geta að
Evtushenko hefur aldrei áður gefið
þjálfurum í öðmm löndum kost á
að fylgjast með æfingum sovézka
liðsins né hefur hann fyrr haldið
opinberan fyrirlestur.
Allir handknattleiksþjálfarar em
velkomnir á æfinguna í dag.
KNATTSPYRNA / LANDSLEIKIR
50. landsleikur Atla
Atli Eðvaldsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, lék í gær sinn 50. landsleik fyr-
ir ísland. Að því tilefni afhenti Ellert B. Schram, formaður KSÍ, Atla blómvönd
fyrir leikinn. Atli hefur þar með komist upp að hlið Áma Sveinssonar í annað
sæti yfir leikjahæstu landsliðsmenn frá upphafi. Marteinn Geirsson á sem fyrr
flesta landsleiki að baki, 67.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Inga Birna með þrennu
KÁ-stúlkur gerðu góða ferð til ísafjarðar í gærkvöldi og sigmðu
ÍBÍ 6:0. Það er því ljóst að nánast þarf kraftaverk til að ÍBÍ haldist
í deildinni, en KA siglir lygnan sjó um miðja deild. í leikhléi hafði
KA skorað 4 mörk og var annað markið sérlega glæsilegt. Amdís
Ólafsdóttir einlék þá frá miðju í gegnum alla Isafjarðarvömina og
skoraði með þmmuskoti frá vítapunkti efst í vinkilinn. Inga Bima-
Hákonardóttir gerði tvö mörk í fyrri hálfleik og íris Thorleifsdóttir
eitt. Stórsókn gestanna bar tvisvar árangur um miðjan seinni hálfleik
og þær Inga Bima og Amdís bættu við mörkiim fyrir KA.
Ikvöld
Þrir leikir verða leiknir í 2.
deildarkeppninni í knatt-
spymu í kvöld kl. 19. Fylkir
fær Selfoss í heimsókn. Víðir
leikur gegn ÍR og KS mætir
Breiðabliki á Siglufirði. í 2.
deild kvenna mætast Þór og
KS og ræður sá leikur úrslit-
um úr um hvort liðið fylgir
Breiðabliki upp í 1. deild. FH
GOLF / NORÐURLANDAMOTIÐ HOLMSVELLI LEIRU
Völlurinn frábær — minn-
ir á skosku sjávarvellina
Svía - Sigurjón Arnarsson lék á einum undir pari í gær
Morgunblaöiö/Björn Blöndal
FJórlr úr íslenska llölnu, þeir Sigurður Sigurðsson, Hilmar Björgvinsson, Sveinn Sigurbergsson og Siguijón Amars-
son, en hann lék á einum undir pari vallarins í gær sem var besti árangur dagsins.
y
KNATTSPYRNA
Keppni
hafiní
.4. flokki
ÚRSLITAKEPPNI íslandsmóts-
ins í knattspyrnu, í 4. flokki
karla, hófst í gær í Kaplakrikan-
um í Hafnarfiröi. Keppni heldur
áfram í dag kl. 16.00 og þá
hefst keppni í 5. flokki í dag
kl. 16.00 á KR-vellinum.
Fjórir leikir fóm fram í 4. flokkn-
um í gær sem fyrr segir. Þór
frá Akureyri sigraði Fram í fyrsta
leik, 4:3, síðan vann KA lið Selfoss
4:2, ÍR sigraði KR 2:1. Allt vom
_ þetta frekar jafnir leikir — en sá
síðasti var það aftur á móti ekki.
Þá sigmðu FH-ingar lið ÍA ömgg-
lega, 6:1.
Keppni heldur áfram í dag í 4.
flokknum; kl. 16.00 mætast annars
vegar Akureyrarliðin Þór og KA
og hins vegar Fram og Selfoss, og
kl. 17.15. he§ast síðan tveir leikir:
^ÍR-FH og KR-ÍA.
- sagði liðsstjóri
LANDSLIÐ þriggja þjóða, ís-
lands, Svíþjóðar og Finnlands
æfðu á Hólmsvelli í gær. Sigur-
jón Arnarsson átti frábæran
leik og lék á einum undir pari
vallarins og íslandsmeistarinn
Sigurður Sigurðsson lék á ein-
umyfirpari.
Jóhann R. Benediktsson landslið-
seinvaldur var ánægður með
árangur sinna manna og sagði að
menn hefðu sett stefnuna á að sigra
Norðmenn og Finna
Bjöm í sveitakeppninni og
Blöndal á góðum degi væm
skrífar strákarnir til alls
líklegir í einstakl-
ingskeppninni. íslensku stúlkumar
léku einnig einn hring í gær og
sagði Kristín Pálsdóttir einvaldur
kvennaliðsins að stúlkurnar hefðu
leikið vel og hún væri ánægð með
árangurinn. „Stúlkurnar em stað-
ráðnar í að gera sitt besta um helg-
ina, andinn er góður og svo er bara
að sjá hvað setur.“
Sænska liðið lék einn hring á
vellinum og sagði Ame Andersson
liðsstjóri sænska liðsins að völlurinn
væri frábær og hann minnti sig
einna helst á skosku sjávarvellina.
„Völlurinn er sérlega skemmtilega
hannaður og okkur fannst sérstak-
lega gaman að leika á 3. braut og
16. braut. Liðið hjá okkur er ein-
göngu skipað unglingalandsliðs-
mönnum, bestu kylfíngarnir em að
undirbúa sig fyrir þátttöku á
„World Cup“ sem fram fer í Svíþjóð
í næsta mánuði og gátu því ekki
leikið hér. Við gemm okkur góðar
voriir um sigur, það er mikil breidd
í golfíþróttinni í Svíþjóð og við eig-
um marga snjalla kylfinga.“ Arne
Andersson sagðist ekki vita mikið
um íslenska liðið, þetta væri í fyrsta
sinn sem hann kæmi hingað til
lands. Honum sýndist að völlurinn
væri þess eðlis að menn þyrftu að
hafa leikið á honum í nokkur skipti
til að ná góðu skori og íslenska lið-
ið hefði það forskot á hinar þjóðim-
ar.
„Við emm með hálsbólgu sem
við fengum í rigningunni á miðviku-
daginn, sögðu fínnsku stúlkumar
Outi Eriksson og Sann Kahiluoti
sem létu það samt ekki á sig fá og
léku einn æfíngarhring í gær ásamt
þeim Marika Soravouo og Elina
Schuurman. Þeim fannst kalt á
Suðumesjum og kvörtuðu undan
vindinum sem gæti haft áhrif. Þær
sögðust samt vera ánægðar með
árangurinn í gær og von væri á
betra veðri um helgina. Þijár þeirra
sögðust hafa komið hingað til lands
fyrir 4 ámm og leikið á Norður-
landamótinu sem fram fór á Grafar-
holtsvellinum.