Morgunblaðið - 21.10.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.10.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988 ÍSAL vill senda út ál- dósir í endurvinnslu Morgunblaðið/Sverrir Umferðarljós verða brátt tekin í notkun á mótum Hverfisgötu og Rauðarárstígs. Ný umferðarljós tekín í notkun FULLTRÚAR Náttúruverndar- ráðs og Landvemdar hafa leitað til ÍSAL um aðstoð við að koma í lóg áldósum þeim, sem hent er í miklu magni hérlendis. ÍSAL hefur tekið vel í þessa beiðni og forstjóri þess, Christian Roth, segir að ef samanpressuðum dós- um sé komið til þeirra muni ál- verið sjá um að senda þœr til endurvinnslu i Evrópu. við viljum leggja okkar af mörkum til að svo geti orðið," segir Roth. Hann segir að til að af þessu geti orðið verði íslendingar að kaupa vélar sem pressa dósimar saman. í máli hans kemur ennfremur fram að í framtíðinni ættu íslend- ingar að huga að því að koma hér- lendis á fót endurvinnslustöð á þeim álílátum sem nú er hent á haugana. Reiknistofnun HI: TEKIN verða í notkun á næst- unni umferðarljós á mótum Hverfisgötu og Rauðarárstíg og á mótum Eiríksgötu og Bar- ónsstígs. Þá verður umferðarljósum á mótum Hverfísgötu, Snorrabraut- ar og Laugavegar breytt og verða þau nú samstillt í allar áttir. Nú verður einnig leyfð vinstri beygja af Snorrabrautinni inn á Laugaveg og sett sérstakt beygjuljós þar. Nokkrir mánuðir eru í að önnur ný umferðarljós verði sett upp, en það verður á Suðurlandsbraut við Reykjaveg og Vegmúla og á Kringlumýrarbraut við Sætún. Umferðamefnd hefur samþykkt hugmyndir umferðardeildar um að setja ljós á eftirfarandi gatnamót: Kleppsvegur - Langholtsvegur, Sætún - Laugamesvegur, Hverfís- gata - Klapparstígur, Hverfísgata - Vitastígur, Kalkofnsvegur - Tryggvagata og Bfldshöfði - Breiðhöfði. Að auki var samþykkt að koma upp þremur umferðarljós- um í viðbót, en þau verða ekki sett upp fyrr en eftir breytingar á gatnakerfí, við Bústaðaveg - Litluhlíð, Bústaðaveg - Flugvallar- veg og við Miklatorg. Christian Roth segir að sem standi geti álverið ekki brætt dós- imar hérlendis eða fellt þær inn í framleiðsluna. Þetta er einkum vegna málningarinnar á dósunum og þeirra snefílmálma sem era í þeim. Hinsvegar er það langtíma- markmið hjá álverinu að geta gert slíkt. „Það er mikilvægt að halda hinni einstöku náttúra íslands hreinni og Ráðherra skipar Helga í stöðuna Menntamálaráðherra skipaði í gær dr. Helga Þórsson i stöðu forstöðumanns Reiknistofiiunar Háskólans til tveggja ára frá 16. október síðastliðnum að Fiskeldisstöðvar: telja. Helgi hafði áður hlotið stuðning meirihluta Háskólar- áðs og traustsyfirlýsingu starfs- fóiks Reiknistofiiunar i stöðuna, en stjóm stofiiunarinnar tók afstöðu gegn báðum umsækj- endum um stöðuna. Lausaskuldir 230 milljónir Afurðalánin þurfa að hækka um 25%, segir Friðrik Sig- urðsson framkvæmdastjóri LFH LAUSASKULDIR fiskeldisstöðva eru nú um 230 milljónir kr., sam- kvæmt lauslegri samantekt Friðriks Sigurðssonar framkvæmdastjóra Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva. Þar af skulda stöðvara- ar fóðursölum um 150 mifljónir. Friðrik áætlar að fram á mitt næsta ár bætist við um 300 miljjónir vegna rekstrar stöðvanna og að iausa- skuldirnar verði þá orðnar yfir 500 milljónir. Á móti þessum skuldum kemur greiðslan vegna áranna 1986 og að Þróunarfélag íslands ætlar að veita fiskeldinu 120 milljónir kr. í formi fóðurkaupalána og ríkið hefur ákveðið að endurgreiða stöðvunum uppsafnaðan söluskatt vegna að- fanga. Telur Friðrik að endur- 87 verði samtals rúmar 50 milljónir og gerir ráð fyrir 75 milljónum vegna yfirstandandi árs. Hann seg- ir að til þess að leysa fjárþörf físk- eldisins þurfí viðskiptabankamir að hækka afurðalánin um 25%. Þá ættu málin að komast í gott lag hjá þeim fýrirtækjum sem einhveija framtíð ættu fýrir sér. Viðskiptabankamir hafa veitt 32 fiskeldisfyrirtækjum afurðalán og standa afurðalánin núna í um 900 milljónum kr. Flest era fyrirtækin hjá Landsbankanum, 20 talsins, en 6 era í Búnaðarbankanum og 6 í öðram bönkum. Friðrik sagði að afurðalánin væra mismunandi eftir bönkum og fyrirtækjum. Þá nytu ekki öll fyrirtæki afurðalána sem eftir því hefðu leitað. Auk Helga sótti Hafliði S. Magnússon um stöðuna. Stjóm Reiknistofnunar taldi að hvorugan umsækjandann ætti að skipa, heldur auglýsa stöðuna á nýjan leik. Er Háskólaráð samþykkti hins vegar með miklum meirihluta atkvæða að mæla með Helga við ráðherra, sagði stjómin af sér. í fréttatilkynningu mennta- málaráðuneytisins segir að ákvörðun ráðherra sé reist á til- lögu Háskólaráðs og traustsyfír- lýsingu starfsmannanna. Þá hefur ráðuneytið ákveðið að enduskoða reglugerð um Reiknistofnun frá 1976 í samvinnu við Háskólann. Óskað hefur verið eftir því að Háskólaráð láti ráðuneytinu í té tillögur um bætta fjármálastjóm Reiknistofnunar fyrir næstu tvö ár. Engin steftiubreytíng boðuð í hvalamálinu - segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra HALLDÓR Ásgrimsson sjávarút- vegsráðherra sagði eftir ríkis- stjóraarfimd í gær að engin stefiiubreyting hefði verið boðuð í hvalamálinu. Hins vegar hefði endanleg ákvörðun ekki enn ver- ið tekin um veiðarnar á næsta ári þar sem íslendingar hefðu skuldbundið sig til þess að fara eftir vísindalegum ráðleggingum visindanefiidar Alþjóðahvalveiði- ráðsins. íslenska ríkisstjórain hefur siðustu ár lagt endurskoð- aða visindaáætlun fyrir fúnd nefhdarinnar sem er að jafiiaði haldinn á vorin en skiptar skoð- anir hafa verið i nefndinni nm gildi visindaveiðanna. Á ríkisstjómarfundinum í gær var hvalamálið til umræðu og eftir fundinn sagði Halldór Ásgrímsson að stefna ríkissljómarinnar í málinu væri óbreytt, en hún byggðist á samþykkt Alþingis frá 1983 um víðtækar vísindarannsóknir á hvöl- um og hvalastofnum, þar með tald- ar hvalveiðar í vísindaskyni, til árs- ins 1990, en þá tekur Alþjóðahval- veiðiráðið bannið gegn hvalveiðum í atvinnuskyni til endurskoðunar. „Aðalatriðið er að ljúka rannsókn- aráætlun okkar og fá þar niður- stöðu. Við höfum alltaf sagt að ef við gætum lokið henni með einum eða öðram hætti væram við opnir fyrir breytingum á vísindaáætlun- um,“ sagði Halldór. Hann sagði að það væri að sjálf- sögðu ástæða til að hafa áhyggjur af þróun mála í ljósi þess að erlend fyrirtæki hafa sagt upp viðskipta- samningum við íslensk fyrirtæki, að sögn vegna hvalveiða íslendinga, en einnig að hafa í huga önnur langtfmasjónarmið og menn yrðu að hugsa sig vel um áður en þeir tækju þá ákvörðun. Halldór var spurður um þau orð Steingríms Hermannssonar forsæt- isráðherra, að til greina kæmi að fella niður hvalveiðar á næsta ári, og hvort hann teldi þau hafa haft óheppileg áhrif. Halldór sagðist ekki telja að þau ummæli hefðu haft mikil áhrif í sjálfu sér, „aðalat- riðið er að forsætisráðherra hefur ekki komið með eindregnar yfírlýs- ingar í þessu máli. Hann hefur sagt að það þurfí að ræða og við munum gera það áfram," sagði Halldór. Hann sagðist eiga von á að málið yrði rætt áfram í ríkisstjóminni og utanríkismálanefnd þingsins, sem hefði hingað til verið sammála stjómvöldum um meðferð málsins, og hann hefði enga ástæðu til að Eftir að meta hvalveið- ar í vísindaáætluninni ætla að sú afstaða hefði breyst. Aðspurður um afstöðu til frum- varps Borgaraflokksins, þar sem gert er ráð fyrir að ísland hætti hvalveiðum í 4 ár, og undirbúinnar þingsályktunartillögu Áma Gunn- arssonar þar sem lagt er til að hval- veiðum í vfsindaskyni verði hsett, sagði Halldór að þetta kæmi sér á óvart. „Fulltrúar þessara flokka hafa fylgst með þessu máli frá upp- hafí og það er fyrst núna sem þess- ar skoðanir koma fram. Ef ákvörð- un eins einstaks fyrirtækis [þ-e- Tengelmann] verður til þess að þessir aðilar skipti um skoðun finnst mér það vera mjög undarlegt mál." - segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra sagði eftir ríkis- stjórnarfimd í gær að full samstaða hefði verið um það f ríkisstjórn- inni að engin breyting yrði á afstöðu íslenskra stjóravalda í afstöðu til hvalveiða. Hann sagði þó að eftir væri að meta hvað hvalveiðar yrðu mikilvægur þáttur vísindaáætlunr íslendinga fyrir næsta ár. „Við eram að undirbúa fundinn sinna að til greina kæmi að fella í Alþjóðahvalveiðiráðinu 1990. Vísindaáætlun okkar er endurskoð- uð hvert ár og engin ákvörðun ver- ið tekin um hvemig hún verður að ári,“ sagði Steingrímur eftir ríkis- sljómarfundinn. Þegar hann var spurður um gagnrýni vegna þeirra ummæla niður vísindaveiðar á næsta ári, sagðist hann hafa sagt það, og segði það enn, að stjómvöld hlytu að vera opin fyrir öllum atriðum þessa máls, og skoða þar bæði viðskiptahags- muni og þá föstu ákvörðun að und- irbúa sig sem best undir umræðuna í hvalveiðiráðinu. Hann neitaði því að uppi væri ágreiningur í ríkissfjóminni og í Framsóknarflokknum um afstöð- una til hvalveiða, en þegar hann var spurður nánar um ummæli sín í þá vera að til greina kæmi að fella niður vísindaveiðamar svaraði hann: „Ég tel að það komi til greina eins og öll skiptin sem við höfum endurskoðað okkar vísindaáætlun. Það á eftir að meta hvað veiðamar era mikilvægar í okkar vfsindaáætl- un að ári.“ — Bendir ekki margt til þess að almenningsálitið á íslandi sé aé breytast gagnvart hvalveiðum í þ<* átt að menn eigi að hætta þeim? „Ég vil ekkert um það segja er stjómmálamenn verða auðvitað aí vera tilbúnir til að gera það upí við sig hvað er nauðsynlegt og hvaí er ekki nauðsynlegt. Þetta er auð- lind sem við höfum nýtt með mjög takmörkuðum hætti og það er nauð- synlegt að nýta hana á næstu ára- tugum til að halda jafnvægi lífríkinu. Ef við hættum því þá ei ég hræddur um að það verði ilh fyrir okkur komið, ekki á næsta ár heldur eftir einhveija áratugi,1 sagði Halldór Ásgrímsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.