Morgunblaðið - 21.10.1988, Blaðsíða 36
- 36
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hver er ég?
Ég birtist stundum í lífí fólks
og kem þá oftast án þess að
gera boð á undan mér. Það
má segja að ég hafí gaman
af því að koma á óvart. Ég
kem eins og elding og þegar
ég er farinn er allt breytt.
Saga afkonu
Ég get sagt ykkur sögu. Það
var einu sinni kona sem bjó
með manni sínum og syni,
svona rétt eins og gengur.
— Hún hafði verið mátulega
ánægð í hjónabandi sínu, en
hafði gert lítið fyrir sjálfa
sig. Eða þangað til ég kom
í heimsókn.
Liföi fyriraöra
Bemska konunnar hafði ver-
ið erfíð og úr uppeldi kom
hún hálf niðurbrotin. Það má
þó ekki gera of mikið úr því.
Það var allt í lagi með hana,
annað en að hún hafði ekki
of mikið sjálfstraust. Að-
stæður í umverfi hennar
höfðu einnig verið þess eðlis
að hún hafði ekki átt kost á
því að feta sjálfstæða braut
eða rækta hæfíleika sína sér-
staklega.
Árin liðu
Það má segja að saga þessar-
ar konu hafí verið keimlfk
sögu margra annarra kvenna
og manna. Hún gifti sig, átti
böm og árin liðu. Lífíð gekk
sinn vanagang. Stundum var
það skemmtilegt og stundum
leiðinlegt, svona eins og
gengur, eða þangað til ég
kom í heimsókn.
Skyndileg óánœgja
Hún varð mín fyrst vör einn
sunnudagsmorgun þegar hún
stóð við eldhúsvaskinn. Hún
fann fyrir skyndilegri
óánægju. Þeirri hugsun laust
allt í einu niður í höfði henn-
ar. Hvað er ég eiginlega að
gera? Hún leit á hanska-
klæddar hendur sinar, á
sápulöðrið, á uppþvottaburst-
ann og óhréint leirtauið.
Henni varð óglatt og það
rann upp fyrir henni að hún
hataði líf sitt, að henni leidd-
ist alveg óskaplega.
Uppreisn
*> Koma mín var upphaf að
uppreisn í lífi þessarar konu.
Hún kastaði frá sér upp-
þvottaburstanum. Hún fór að
spyija sjálfa sig: Hvað vil ég
gera með líf mitt? Og svarið
var Eg vil gera eitthvað
spennandi, ég vil lifa fyrir
sjálfa mig. Já, þannig er ég.
Eg hvet fólk til að lifa fyrir
sjálft sig.
Ég endurnýja
Sumir segja að ég sé tillits-
laus og eigingjam. Ég er það
sjálfsagt. En tilgangur minn
er göfugur. Ég opnaði augu
konunnar og vakti hana af
- svefhi. Hún stóð þama við
vaskinn af gömlum vana og
henni leiddist. Ég gaf henni
sjálfstraust og orku til að
bijóta sig út úr stöðnuðu
mynstri. Þegar ég kom öðlaö-
ist hún kjark til að gera það
sem hana hafði alltaf langað
til að gera en hafði aldrei
gert. Ég geri fólk eigingjamt
og gef því orku til að fara
eigin leiðir. Á þann hátt end-
umýjar það líf sitt.
Þyrnirós vaknaði
Þetta ár sem ég var í heim-
sókn fannst konunni spenn-
andi. Það var órólegt, en
margt nýtt og skemmtilegt
gerðist. Þannig vil ég hafa
lífíð. Og þá er það spuming-
in: Hver er ég? Rétt svör
stflist á: Stjömuspekiþáttur,
Morgunblaðið, Aðalstræti 6.
Vinningshafí hlýtur vegleg
verðlaun fyrir getspeki sína.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988
GARPUR
UÓSKA
SMÁFÓLK
(’pon't botmer me..s) VJ'M M0PIN6! (YOU SHOUIP G0\ OUTSIPE ANP 6ET ) \S0ME EXERCISE.. 7 | i,E i'm alreapv EXERCISIN6 í |‘m EXERCISING^ iJ l MVM0PIN6.. ) X * rT\
Ekki að trufla mig... ég Þú ættir að fara út og fá Ég er einmitt I æfingum. Ég er að æfa þunglyndið
er í þunglyndi! þér smá æfíngu... mitt.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þegar útspil gegn slemmu er
valið verða menn að gera upp
við sig hvort þörf sé á snömm
handtökum eða hvort best sé að
hafa með löndum og láta sagn-
hafa um að hreyfa viðkvæma
liti. Þessi ákvörðun hlýtur að
byggjast á sögnum. Spilarinn í
vestur rataði ekki á rétta útspil-
ið gegn slemmu Karls Sigur-
hjartarsonar og Sævars Þor-
bjömssonar í viðureign íslands
og Zimbabe á Ólympíumótinu.
Austur gefur AV á hættu.
Norður
Vestur
♦ K74
▼ D9653
♦ 763
♦ Á5
♦ G8
VÁK7
♦ K5
♦ KDG853
Austur
♦ D10832
♦ 1085
♦ 8
♦ 10942
Suður
♦ Á95
♦ G4
♦ ÁDG10842
♦ 7
Karl og Sævar sögðu þannig
á spil NS:
Vestur Norður Sœvar Austur Suður Karl
— — Pass 1 tígull
Pass 2 lauf Pass 3 tíglar
Pass 3 hjörtu Pass 3 grönd
Pass 4 tíglar Pass 4 spaðar
Pass 4 grönd Pass 5 tiglar
Pass Pass 6 tíglar Pass Pass
Útspil: tígulsjö.
Kerfið er Standard og sagnir
fylgja eðlilegri slóð alla leið.
Vestur hafði því úr nægum upp-
lýsingum að moða, svo trompút-
spilið er næsta óskiljanlegt.
Sagnir hrópa beinlinis á
ágenga vöm. Það er ljóst að í
blindum er ógnandi lauflitur,
sem gefur sagnhafa alla þá slagi
sem hann þarf ef hann fær tíma
til að reka út ásinn. Vestur verð-
ur því að ráðast á annan hálit-
inn. Og þar sem líklegra er að
makker eigi drottningu en kóng
hlýtur að vera rökréttara að
spila út spaða en hjarta. Valur
Sigurðsson spilaði líka út spaða
á hinu borðinu og hélt sagnhafa
í 11 slögum. Að vfsu í fímm
tíglum.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opna bandaríska meistara-
mótinu í ár kom þessi stað upp í
skák hins lítt þekkta M. Giles,
sem hafði hvítt og átti leik, og
hins kunna stórmeistara Waílter
Browne.
25. Rc7+! - Dxc7, 26. Dxf7+!
og Browne gafst upp, því hann
er mát í næsta leik. Sigurvegari
á mótinu varð bandaríski stór-
meistarinn Dmitri Gurevich, sem
hlaut 10 v. af 12 mögulegum.
Næstir komu landar hans Michael
Ronde, Roman Dzindzindhashvili
og Larry Christiansen ásamt
kanadfska alþjóðameistaranum
Nickoloff, sem kom mjög á óvart.
Þessir fíórir hlutu 9*/2 v.