Morgunblaðið - 21.10.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988
19
Heimsbikarmótið í skák
Fjórtánda umferð:
Beljavskíj einn í efsta sæti
Morgunblaðið/Bjami
í sjö ár ræddust þeir ekki við en nú fer vel á með þeim. Eldri kynslóðinni hefur ekki gengið sem best
á Heimsbikarmótinu að Tal undanskildum. Spasskíj og Kortsnoj sem hér sjást við upphaf skákar sinnar
í gær þráléku og sömdu um jafntefli eftir 32 leiki.
LÍNUR skýrðust nokkuð á toppn-
um í 14. umferð Heimsbikar-
mótsins í gærkvöld. Alexander
Beljavskíj og Mfkhaíl Tal, tveir
af þremur efstu mönnum mótsins
tefldu saman. Beljavskíj vann
örugglega og er því kominn einn
í efsta sætið með 9 vinninga.
Skemmtilegasta skák umferðar-
innar var tvímælalaust viðureign
Jans Timmans og heimsmeistar-
ans Kasparovs. Kasparov heftir
ekki gengið sem best í mótinu
og var staðráðinn í að ná sér í
„heilan punkt“. Það var Timman
reyndar einnig ef marka má orð
hans fyrir skákina. Kasparov
tefldi eins og heimsmeistara
sæmir með miklum eldglæring-
um og peðsfórnum og rúllaði
Timman upp. Þeta var langbesta
skák Kasparovs í mótinu til þessa
og líkur á því að hann sé kominn
á bragðið þótt seint sé.
Áhorfendur, sem voru vel á
níunda hundrað, fylgdust spenntir
með viðureign Jans Ehlvests, eins
af efstu mönnum mótsins, og Jó-
hanns Hjartarsonar. Jóhann kom
Ehlvest á óvart í byijuninni. Ehlvest
hitti þó á vænlegt framhald en jafn-
tefli urðu úrslitin eftir að skipt hafði
verið upp á drottningum. Margeir
Pétursson sem ekki hefur unnið
skák síðan hann lagði Portisch
snemma móts vann góðan sigur á
John Nunn, Þessi sigur kemur sér
að sjálfsögðu vel fyrir Margeir en
einnig fyrir Jóhann því Nunn hefur
verið í toppbaráttunni.
Sokolov er nú heldur farinn að
lækka flugið eftir góða byijun.
Hann hafði svart og koltapaði í 28
leikjum fyrir Sax. Upp kom Schev-
eningen-afbrigði Sikileyjarvamar
og Sax tefldi kristalstæra kóngs-
sókn sem gekk fullkomlega upp.
Júsúpov og Ribli, Spasskíj og
Kortsnoj og Andersson og Speel-
man gerðu allir tíðindalítil jafntefli.
Svipað mætti segja um þá Nikolic
og Portisch nema hvaið Nikolic
reyndi fremur lítið til að vinna betri
stöðu. Kannski sá hann aumur á
Ungveijanum sem gengið hefur
afleitlega.
Þegar þijár umferðir eru eftir
er Beljavskíj einn efstur sem fyrr
segir. Hann á fremur þægilegt „pró-
gramm" eftir sem eru Kortsnoj,
Nunn og Spasskíj og hlýtur því að
teljast mjög sigurstranglegur.
Kortsnoj gæti þó tekið upp á hveiju
sem er með hvítu mönnunum í dag.
Kasparov og Ehlvest koma næst-
ir í 2.-3. sæti. Þeir mætast einmitt
á morgun í geysimikilvægri skák.
Annars á Kasparov eftir að tefla
við Sax og Nikolic, andstæðinga
sem ekki ættu að vefjast fyrir hon-
um.
Tal sem lengi var efstur á mótinu
hefur ekki unnið skák í seinni hluta
mótsins, er kominn niður í 4. sætið
og er nær óhætt að afskrifa hann
úr baráttunni um efsta sætið.
Jóhann Hjartarson er nú í 5.-9.
sæti með 7V2 vinning, einum og
hálfum vinningi fyrir neðan efsta
mann. Hann á eftir að tefla við
Nikolic, Júsúpov og Anderssón. Víst
er að hinir tveir síðamefndu er
fastir fyrir og verður erfitt fyrir
Jóhann að leggja þá. Jóhann hefur
þegar unnið sér inn fimm skákstig
með góðri frammistöðu. Fleiri vinn-
ingar en IV2 úr síðustu þremur
umferðunum væru frábær árangur
hjá Jóhanni.
Margeir vann góðan sigur á Nunn
Skák
Bragi Kristjánsson
og Karl Þorsteins
Margeir Pétursson tefldi af hörku
gegn John Nunn. Englendingurinn
fómaði peði í byijun og fékk í stað-
inn mjög gott spil. Drottningar
hurfu af borðinu, en Nunn lék óná-
kvæmt og Margeir gaf peðið til
baka með betri stöðu. I lokin tók
Nunn eitrað peð og tapaði manni.
Hann gaf eftir 41. leik Margeirs.
Margeir sýndi í þessari skák, að
hann hefur ekki sætt sig við neðsta
sætið baráttulaust. Nunn þykir afar
erfiður viðureignar, og er þetta
fyrsta tap hans í mótinu.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: John Nunn
Kóngsindversk-vörn
1. d4 - RfB, 2. c4 - g€, 3. Rc3
- Bg7, 4. e4 - d6, 5. Be2 - 0-0,
6. Bg5 - h6, 7. Be3 - c5!?, 8. e5
— dxe5, 9. dxe5 — Dxdl+, 10.
Hxdl — Rg4, 11. Bxc5 — Rxe5,
12. Rd5 - Ra6, 13. Bxe7 - He8,
14. Ba3 - Be6, 15. Kfl - Had8,
16. b3
Nunn hefur komið mönnum
sínum vel í spilið fyrir peðið, sem
hann fómaði. Margeir á enn eftir
að koma kóngi sínum á góðan reit,
riddaranum á gl og hróknum á hl
í spilið.
16. - Hd7?
Best var 16. - Rc6!, td. 17. Rf3
- Hd7, 18. b4!? - Raxb4, 19.
Bxb4 — Rxb4, 20. Rxb4 — Hxdl+,
21. Bxdl - Bxc4+, 22. Kgl -
Bxa2 og hvítur á erfiða baráttu
fyrir höndum til að ná jöfnu. Eftir
16. — Rc6 hefði Margeir orðið að
reyna 17. h3 — Hed8, 18. g4 —
Bxd5, 19. cxd5 - Hxd5, 20. Kg2
- Hxdl, 21. Hxdl - Hxdl, 22.
Bxdl — Rab4 með jöfnu tafli.
17. f4! - Rc6, 18. Rf3 - Hed8,
19. Kf2 - Bxd5, 20. cxd5 - Hxd5,
21. Hxd5 - Hxd5, 22. Bxa6! -
bxa6, 23. Hcl - Rd4, 24. Hc5 -
Hd7
Ef til vill var betra fyrir Nunn
að leika 24. — Hxc5 t.d., 25. Bxc5
- Rc6, 26. Ke3 - f5, 27. Kd3 -
Kf7, 28. Kc4 - Ke6, 29. b4 -
World Cup Chess Tournament, Reykjavík 1988 10.20.1988 2l-M
Nafn 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 AIIs Röð
1 Alcxander Bcliavskv M '/2 '/2 1 1 0 ‘A '/2 'A 1 ‘A 'A '/2 1 I 9 1
2 Jan Timman ‘/2 a 'A 0 1 '/2 1 'A 'A 'A 0 1 0 'A 1 l'A 5-9
3 Gvula Sax '/2 ‘/2 1 '/2 '/2 Vi 'A 'A 0 'A 1 !ó 'A 'A VA 5-9
4 Jaan Ehlvest 0 1 0 c 1 Vi 'A 1 'A 'A 'A 'A 'A 1 1 8'/2 2-3
5 Prcdrau Nikolic Ö 0 '/2 0 h 1 'A 'A 'A 'A 'A 1 'A Vi ‘A 6'/2 12-13
6 Artur Júsúdov 1 '/2 ■/2 '/2 0 M 'A 'A 'A 'A 'A 'A ‘A 1 'A 7'/2 5-9
7 Ulf Andersson */2 0 Vl Vi 'Á 'A a 'A 1 0 'A 'A Vi 'A 1 7 10-11
8 Jonathan SDeelman '/2 'A '/2 0 Vi 'A 'A k 'A '/2 'A 0 1 '/2 ‘A 6'/2 12-13
9 Zollan Ribli ‘/2 Vi Vl Vi 'Á Vi 'A Vi 'A 'A 0 0 'A 'A 6 14-15
10 Laios Portisch 0 Vi 1 Vi Vi 'A 11 1 'A ‘A 0 0 0 'A 0 5'/2 16-17
11 Jóhann Hiartarson ‘/2 1 Vi '/2 'A ‘A 0 •gííý 0 0 Vi 1 'A 1 1 VA 5-9
12 Andrei Sokolov '/2 0 0 0 'A ‘A 'A 1 f 1 'A 'A '/2 'A 1 7 10-11
13 Garrv Kasoarov '/2 1 Vi 1 'A 'A 'A 1 0 il 'A 1 'A Vi 'A 8 'A 2-3
14 Mikhail Tal 0 ‘/2 Vi ‘A 1 1 1 'A ’A Vi á Vi 'A 'A 'A 8 4
15 Viklor Kortsnoi Vi 0 'A 'A 0 1 1 0 'A 0 'A 11 0 'A 1 6 14-15
16 John Nunn Vi '/2 '/2 'A '/2 '/2 '/2 1 *i 'A '/2 '/2 I V 0 VA 5-9
17 Boris SDasskv Ví '/2 0 '/2 0 '/2 '/2 Vl 'A 0 'A '/2 '/2 'A K S'A 16-17
18 Margeir Pctursson 0 0 '/2 0 ‘/2 'A 0 1 0 0 '/2 '/2 0 1 ili 4'A 18
Bf6, 30. a4 - g5, 31. g3 - gxf4,
32. gxf4 — Bd8 og svartur ætti að
halda jafntefli.
25. Bcl - Kh7, 26. Hc4 - Rb5,
27. Re5 - Hd5, 28. Be3 - g5,
29. g3 - Bxe5?
Betra var að leika 29. — gxf4,
30. gxf4 - Bxe5, 31. fxe5 - Kg6,
32. Hc5 - Hxc5, 33. Bxc5 - Kf5,
34. a4 — Rc7, 35. Bxa7 — Re6 og
svartur á jafnteflisvon í endataflinu.
30. fxe5 - Hxe5, 31. Hc6 - a5,
32. a4 - Ra3, 33. Ke2 - He4,
34. Kd3 - Hb4, 35. Kc3 - He4,
36. Bcl - He2, 37. Bxa3
Peðsránið á e5 hefur orðið Nunn
dýrt. Hann á enga möguleika í
endataflinu með manni minna.
37. - Hxh2,38. Hc7 - Kg6, 39.
Hxa7 - f5, 40. Bd6 - Hh3+, 41.
Kc4
og Nunn varð að játa sig sigraðan
í fyrsta skiptið í mótinu.
15. Umlerð
Jonathan Speelman - Margeir Pélursson
Zoltan Ribli - UlfAndersson
Lajos Porlisch - ArturJúsúpov
Jóhann Hjartarson - Predrag Nikolic
Andrei Sokolov - Jaan Ehlvest
Garry Kasparov - Gyula Sax
Mikhail Tal - Jan Timman
Viklor Kortsnoj - Alexander Beljavsky
John Nunn - Boris Spassky
Breytt framlög til einka-
rekinna dagvistarstofiiana
MEIRIHLUTI Sjálfstæðis-
flokksins í Borgarstjóm sam-
þykkti í gærkvöldi tillögu
stjómar Dagvistar barna um
breytt framlög til einkarekinna
dagvistarstofiiana. Með tillög-
unni er vægi leikskóla aukið
en jafiiframt er dregið úr
styrkjum til heilsdagsvistar.
í ræðu Önnu K. Jónsdóttur,
formanns stjómar Dagvistar
bama í Reykjavík kom fram að
við núverandi aðstæður væri
rekstraraðilum mismunað, og að
styrkur borgarinnar til einkarek-
inna dagvistarstofnana fyrir hvert
bam í heilsdagsvist væri fímm
sinnum hærri en fyrir bam í leik-
skóla. Breytingin fæli í sér að
þessu misrétti væri eytt.
Borgarfulltrúar minnihlutans
lýstu sig andvíga tillögunni á þeim
forsendum að aukin áhersla á leik-
skóla væri tímaskekkja, og með
breyttum framlögum væri verið
að eyðileggja rekstrargrundvöll
þeirra dagvistarstofnana, sem
þegar era reknar af einkaaðilum.