Morgunblaðið - 21.10.1988, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.10.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988 21 Kosningabaráttan í Bandaríkjunum: Bush stendur betur í auglýsingastríðinu New York. Reuter. GEORGE Bush, frambjóðandi repúblikana til forsetaembættis í Bandaríkjunum, er talinn standa með pálmann í höndun- um í auglýsingastríði sínu við Michael Dukakis, frambjóðanda Frakkland: Klofhingiir í Sósíalista- flokknum Parfs. Reuter. RÍKISSTARFSMENN fóru í mót- mælagöngu um götur Parísar i gær en verkföll þeirra hafa nú staðið yfir i eina viku. Aðalritari franska Sósialistafiokksins, Pi- erre Mauroy, lýsti yfir samstöðu með verkfallsmönnum og sagði að Michel Rocard forsætisráð- herra yrði að bæta kjör ríkis- starfsmanna. Pierre Mauroy, sem er fyrrum forsætisráðherra, gagnrýndi harð- lega aðhaldsstefnu ríkisstjórnarinn- ar. „Það gengur ekki að aðeins kaupmáttur ríkisstarfsmanna minnki,“ sagði hann. „Það er skylda hverrar ríkisstjómar að vemda hagsmuni starfsmanna sinna.“ Verðbólga í Frakklandi er um 3% á ári og krefjast ríkisstarfsmenn 10% launahækkunar til bæta upp kaupmáttarrýmun, sem orðið hefur undanfarin ár. Michel Rocard hefur fram að þessu neitað að verða við kröfum ríkisstarfsmanna og segir þær koll- varpa áformum ríkisstjómarinnar um hjaðnandi verðbólgu. Ríkis- stjómin, sem er í minnihluta á þingi, þarf á stuðningi 27 þing- manna Kommúnistaflokksins að halda til að efnahagsáform hennar renni ekki út í sandinn. Hins vegar hefur ríkisstjómin búið sig undir sviptingar á þingi með því að sam- þykkja að grípa til neyðarráðstaf- ana til að styðja efnahagsáform sín. Pierre Beregovoy, fjármálaráð- herra, lagði fram fjárlög ársins 1989 á þriðjudag og bað samtök ríkisstarfsmanna að sýna biðlund og gaf í skyn að það mætti endur- skoða laun opinberra starfsmanna næsta vor. Beregovoy sagði að það þyrfti að ná tökum á verðbólgunni svo minnka mætti atvinnuleysi í landinu, en 12.6 milljónir manna eru atvinnulausar í Frakklandi. demókrata. í auglýsingum frá kosningaskrifstofu Bush er dregin upp mynd af Dukakis sem mjög frjálslyndum manni, sem ekki er umhugað um varnir ríkisins, sem lítið hefur gert í mengunarvarnarmálum og sem klæjar í fingurna að láta glæpa- menn lausa. Skipuleggjendur kosningabaráttu Dukakis viður- kenna að hann hafi verið of svifáseinn að grípa til gagnsókn- ar i auglýsingamennskunni. Haft er eftir sérfræðingum í auglýsingáiðnaðinum að í auglýs- ingar Dukakis hafí vantað þunga- miðju með þeim afleiðingum að auglýsingar Bush hafa fremur þjónað sem skilgreining á fram- bjóðanda demókrata. Snjallar aug- lýsingar frá Bush hafa snúið stöð- unni við frá því flokksþing repú- blikana hófst í ágúst. Þá hafði Dukakis 17% forskot en nú er Bush með allt að 17% forystu sam- kvæmt skoðanakönnunum. Sú nýj- asta sem Harris-stofnunin gerði fyrir sjónvarpsstöðina ABC og dagblaðið Washington Post og birt var í gær sýnir að Bush hefur tæplega 10% forskot. í einni auglýsingunni frá Bush er vikið að frjálslyndi ríkisstjórans Dukakis í fangelsunarmálum. „Á meðan fangamir voru í fríi frömdu þeir nýja glæpi, rændu fólki, nauðguðu og margir þeirra eru enn að. Mike Dukakis vill gera það sama í Bandaríkjunum öllum og hann gerði í Masssachussetts. Bandaríkin hafa ekki efni á siíkri áhættu." Roger Alias, fjölmiðlaráðunaut- ur Bush, átti hugmyndina að aug- lýsingu þar sem sjá má Dukakis allhlægilegan með hjálm á höfði um borð í skriðdreka til að sýnast fyrir sjónvarpsáhorfendum. Aug- lýsingin hitti í mark. Aðstoðar- menn Dukakis brugðu á það ráð að senda út auglýsingu sem sýnir ráðgjafa Bush í reykfylitu herbergi ræðandi um hvemig koma megi höggi á Dukakis. Auglýsingin var svo misheppnuð að áhorfendur vissu ekki hvort hún var Dukakis eða Bush í vil. Nokkur hiti hljóp í kosningabar- áttuna á miðvikudag þegar Dukak- is sakaði Bush um verstu lygar. Tilefnið var kosningabæklingur úr herbúðum Bush sem bar titilinn: „Hver einasti morðingi, nauðgari og fíkniefnasali í Massachussetts kýs Dukakis." Leníngrad: Gömlum þjóð- fána fagnað Þjóðemisvakningin, sem orðið hefúr í ýmsum ríkjum Sovétríkj- anna að undanfömu, virðist vera að ná tökum á Rússum líka ef marka má óvenjulega uppákomu í Leningrad fyrir skömmu. Hinn rauði fáni Sovétríkjanna með hamri og sigð var þá tekinn niður og annar dreginn að húni, rauði, hvíti og blái fáninn, þjóðfáni Rússa fyrir byltinguna. Hefíir hann verið bannaður æ síðan. Er það haft eftir vitnum, að um 15.000 manns hafí verið saman komnir þegar þetta átti sér stað og fagnað gamla fánanum með langvarandi lófataki. Atburðurinn átti sér stað á knatt- spymuleikvangi í Leníngrad og er sagt, að nærstaddir öryggislög- reglumenn hafí engin afskipti haft af honum. Stóð samkoman í fjórar stundir með ræðuhöldum og þess á milli voru gamlir þjóðsöngvar sungnir. ] Electrolux Eigum Hæðir 1,55 m oglf75m útlitsgallaða kæli- og frystiskápa með verulegum afslætti! Vörumarkaðurinn 1 KRINGLUNNI SÍMI 685440

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.