Morgunblaðið - 21.10.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.10.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988 VEÐUR Unnið að slökkvistarfi um borð í Pétri Jónssyni RE í gærmorgun. Morgunblaðið/Emiiía Logar frá ljósavél í Pétri Jónssyni ELDUR kom upp í Pétri Jóns- syni RE í gsermorgun, þar sem skipið lá í Reykjavíkurhöfn. Nokkrar skemmdir urðu á skip- inu. Slökkviliðinu var tilkynnt að eld- ur væri laus um borð um kl. 10.30. Þegar það kom á staðinn reyndist loga í gangi niðiir í vistarverur aftan á. Reykkafarar voru sendir inn og sáu þeir að eldurinn var innan þilja. Veggir voru rifnir nið- ur, svo og hluti lofts, til að komast að eldinum og gekk þá greiðlega að slökkva hann. Slökkvistarfí var lokið um kl. 11.30. Pétur Stefánsson, útgerðarmað- ur skipsins, sagði að kviknað hefði í út frá útblástursröri ljósavélar. „Þetta hefði getað farið verr, en eldurinn uppgötvaðist mjög snemma," sagði hann. Pétur sagði að þrátt fyrir skemmdir á skipinu yrði óhappið ekki til að teíja það að ráði frá veiðum. / / . / / . / / ? / / / / ////// //////// ///////// / Heimild: Veðurstofa islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) ÍDAGkl. 12.00: VEÐURHORFUR í DAG, 21. OKTÓBER YFIRLIT í GÆR: Um 1400 km suður ( hafi er 985 mb lægð, sem þokast noröur og önnur álíka um 800 km suður af landinu, sem hreyfist lítið. Yfir Grænlandi er 1028 mb vaxandi hæð. Afram verð- ur hlýtt. SPÁ: Svipað veður og í dag, austanstrekkingur við suðurströndina en hægari austlæg átt annars staðar. Dálítil súld við suðaustur- ströndina en annars þurrt að mestu. Hlýtt áfram. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Fremur hæg austan- átt, dálftil súld eða rigning suðaustan- og austanlands en bjartviðri í öðrum landshlutum. Hiti 7—9 stig. TÁKN: y. Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■j 0 H'itastig: 10 gráður á Celsíus A stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. * Él * V Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka A / / / Þokumóða Hálfskýjað * / * 5 Súid / * / * Slydda oo Mistur '»Skyiað / * / 4 Skafrenningur l _j Alský>ad * * * * Snjókoma * * * . K Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hfti 6 13 veður skýjað skýjað Bergen 12 láttskýjað Helsinki 7 heiðskírt Kaupmannah. 10 skýjað Narssarssuaq +2 skýjað Nuuk 5 rignlng Osló 9 skýjað Stokkhólmur 9 skýjað Þórshöfn vantar Algarve 21 skýjað Amsterdam 13 þokumóða Barcelona 20 lóttskýjað Chicago 2 skýjað Fenayjar 21 þokumóða Frankfurt 13 rigning Qlasgow 11 rigning Hamborg 10 mlstur Las Palmas 24 lóttskýjað London 15 mlstur Los Angeles 18 alskýjað Lúxemborg 10 rignlng Madrfd 14 léttskýjað Malaga 21 skýjað Mallorca vantar Montreal +2 skýjað New York 6 heiðskfrt Parls vantar Róm vantar San Diego 19 alskýjað Wlnnlpeg +3 alskýjað 35. þing BSRB: Nýr formaður kjörinn í dag Ályktað gegn aðild að EB í gær KOSNINGAR formanns, varaformanna og stjómar BSRB eru einu málin á dagskrá 35. þings samtakanna i dag. Þrjiú hafa gefið kost á sér til embættis formanns, Gúðrún Árnadóttir, Ógmundur Jónas- son og Örlygur Geirsson. í gær var búist við að kjósa þyrfti tvisv- ar um formann, þar sem ekki var gert ráð fyrir að einn frambjóð- enda næði meirihluta atkvæða í fyrstu atrennu. Meðal ályktana sem samþykktar vom í gær, var tillaga Evrópubandalagsnefndar. í tillögunni er aðild íslands að Evrópubandalaginu hafiiað. „Mér finnst staðan núna af- sjjymu óglögg," sagði Guðrún Amadóttir í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Það er mikill tauga- titringur núna í loftinu, æsingur að færast í leikinn. Það verður að hafa í huga, að þetta er í fyrsta sinn í 28 ár sem við kjósum okkur formann. En ég held nú að við sem erum í framboði höldum alveg ró okkar," sagði hún. „Það er í rauninni útilokað að átta sig á því hvernig landið ligg- ur, en ég er bjartsýnn," var það eina, sem Ögmundur Jónasson vildi segja. Örlygur Geirsson bjóst ekki við að úrslit næðust í fyrstu atkvæða- greiðslu. „Mér sýnist að minnsta kosti vera all mikið jafnræði milli manna og það er jlóst að all stór hluti þingfulltrúa hefur ekki gert upp hug sinn. Ég er hins vegar bjartsýnn," sagði hann. Alls vom 48 mál lögð fram til afgreiðslu á þinginu. Meðal síðustu mála, sem afgreiða átti í gær- kvöldi, vom fjárhagsáætlun sam- takanna og tillögur um lagabreyt- ingar. Töluverður rekstrarafgangur hefur verið undanfarin ár hjá sam- tökunum. Rúmar þijár milljónir króna 1986, tæpar 11 milljónir í fyrra og stefnir í um sjö milljóna króna afgang á þessu ári. Þessar tölur eiga við um aðalsjóð félags- ins. Fyrir þinginu lágu tillögur þess efnis, að rekstrarafgangi að- alsjóðs BSRB verði varið til að greiða rekstrarhalla orlofssjóðs, vegna mikils kostnaðar við endur- bætur og viðhald orlofshúsa. Gert er ráð fyrir rúmum þremur milljón- um króna í rekstrarafgang á næsta ári, samkvæmt drögum að fjárhagsáætlun. Meðal þeirra mála sem sam- þykkt vom í gær em tillögur Evr- ópubandalagsnefndar. Þar er al- farið hafnað aðild íslands að bandalaginu, miðað við óbreytta stefnu Evrópubandalagsins gagn- vart íslendingum í fiskveiðimálum og vegna hættu á hömlulausum innflutningi fjármagns og vinnu- afls. Þá var samþykkt tillaga nefndar um málefni aldraðra. Þar segir m.a.: „35. þing BSRB vekur athygli stjórnmálamanna og ann- arra aðila sem fjalla um málefni aldraðra á því, að réttur fólks til sjálfsákvörðunar um lífshætti sína hverfur ekki við einhver ákveðin aldursmörk og ber því að sýna sjálfsvirðingu aldraðra borgara fulla tillitsemi." 35. þingi BSRB lýkur í dag. Eggja- og kjúkl- ingabændur sækja um verðhækkun FÉLÖG eggja- og kjúklingabænda hafa sótt um verðhækkun á afúrðum sínum til Verðlagsstofnunar. Aðalástæða hækkunarinnar er veruleg hækkun á innfluttu fóðri. Kjúklingabændur sækja um 12% hækkun og eggjabændur óska eftir hækkun sem dugi fyrir fóðurhækkuninni. Guðmundur Sigurðsson yfirviðskiptafræðingur Verðlagsstofiiunar býst við að erindi alifúglabænda verði afgreitt strax eftir helgi. Einar Eiríksson formaður Fé- lags eggjaframleiðenda segir að algengasta varpfóður hafi hækkað um 9.000 krónur tonnið undan- fama mánuði, eða hátt í 50%, og reiknað væri með sömu þróun áfram. „Við höfum óskað eftir að fá þessa hækkun uppboma í eggjaverðinu," sagði Einar. Eggj- akílóið er nú á tæpar 200 krónur í heildsölu og er þá búið að draga frá niðurgreiðslur sem em um 20 krónur. Miðað við þá fóðurhækkun sem Einar nefndi þurfa eggin að hækka um allt að 15%. I haust dró Verðlagsráð til baka eggja- hækkun sem eggjabændur höfðu ákveðið og setti á hámarkssmá- söluverð. Eggin hafa því ekki hækkað frá því í vor og að sögn Einars em bændur launalausir við framleiðsluna eftir ákvörðun verð- lagsyfirvalda í haust. Bjami Ásgeir Jónsson varafor- maður Félags kjúklingabænda sagði að kjúklingafóðrið hefði hækkað um 21% frá því í maí. Aðrir kostnaðarliðir hefðu einnig hækkað frá því verðið var síðast ákveðið og því hefðu kjúklinga- bændur farið fram á 12% verð- hækkun. Verðlagsráð ákvað há- marksverð á kjúklingum í heild- sölu í haust, með svipuðum hætti °g á eggjum, og bannaði verð- hækkun sem bændur höfðu ákveð- ið. Heildsöluverðið er nú 376 krón- ur og hækkaði síðast 1. júní. Yfirmaður flotastjórnar Nato heim- sækir íslenska ráðamenn YFIRMAÐUR Atlantshafe- fiota Bandaríkjanna og flotastjómar Norður-Atl- antshafsbandalagsins, Lee Bagget aðmíráll, er væntan- legur til landsins í næstu viku, og mun hann þá meðal annars eiga viðræður við Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. Lee Bagget kemur hingað til lands fyrst og fremst í þeim tilgangi að kveðja íslenska ráðamenn, en hann lætur af störfum fljótlega sem yfirmað- ur Atlantshafsflota Banda- ríkjanna og flotastjómar Nato.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.