Morgunblaðið - 21.10.1988, Page 22

Morgunblaðið - 21.10.1988, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988 Frakkland: Lítíll áhugí á fram- tíð Nýju-Kaledóníu Trier. Frá Steingrími Sigairgeirssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FRAKKAR virðast hafa lítinn áhuga á þjóðaratkvæðagreiðslunni um framtíð frönsku Kyrrahafsnýlendunnar Nýju-Kaledóníu sem fer fram 6. nóvember nk. Samkvæmt skoðanakönnun sem SOFRES- stofnunin framkvæmdi fyrir tímaritið Le Nouvel Observateur hafa 57% Frakka engan eða nánast engan áhuga á þjóðaratkvæðagreiðslunni og 63% Frakka segjast líklega ekki ætla að taka þátt í henni. í sambæri- legri könnun sem SOFRES framkvæmdi fyrir dagblaðið Le Figaro fyrir mánuði síðan sögðust 53% Frakka engan áhuga hafa og 59% sögðust ekki ætla að taka þátt. Áhuginn virðist því síst fara vaxandi. í þjóðaratkvæðagreiðslunni eiga kjósendur að segja álit sitt á stefnu ríkisstjómarinnar í málefnum Nýju-Kaledóníu en hún vill veita nýlendunni sjálfsstjóm á næstu tíu ámm. Michel Rocard, forsætisráð- herra Frakklands, hóf kosningabar- áttuna með ávarpi á báðum ríkis- reknu sjónvarpsstöðvunum, An- tenne 2 og FR3, þann 5. október sl. Hvatti Rocard kjósendur ein- dregið til að mæta á kjörstað. Frakkar virðast þó vera orðnir lang- þreyttir á kosningum. Kosningar í Frakklandi em oftast tvískiptar og á þessu ári hafa þegar verið forseta- kosningar, þingkosningar og svæð- isstjómarkosningar. Þjóðarat- kvseðagreiðslan þýðir því að Frakk- ar þurfa að ganga að kjörborðinu í sjöunda sinn á þessu ári. Afstaða stjómmálaflokkka er að venju misjöfn. Sósíalistaflokkurínn og Kommúnistaflokkurinn hvetja menn til að krossa við Já“, mið- hægri flokkabandalagið UDF hefur verið blendið í afstöðu sinni og varð útkoman Já, en ...“. Flokkur ný- gaullista, RPR, hvetur stuðnings- menn sína til að taka ekki þátt í kosningunum. Ekki er tekin bein afstaða gegn stefnu stjómarinnar, sem hefur komið á friði á Nýju- Kaledóníu, en RPR vildi ekki heldur styðja stefnu sem gengur þvert á þá stefnu sem flokkurinn fram- fylgdi fyrir nokkmm mánuðum þeg- ar Jaqcues Chirac var forsætisráð- herra. Einungis Þjóðemisfylking Jean-Marie Le Pens berst eindregið gegn stefnu stjómarinnar og hvetur kjósendur til að krossa við „nei“. Ætlar Le Pen að halda 24 fundi um allt Frakkland á næstu dögum til að ná kjósendum á sitt band. Yann Piat, sem var eini þingmaður flokksins þar til hún var rekin úr honum fyrr í mánuðinum, ætlar þó að krossa við ,já“. Óperuhúsið 15 ára Reuter Óperuhúsið í Sydney varð 15 ára gamalt í gær. Síðan Elísabet drottning II opnaði bygginguna árið 1973 hefiir rúmlega 21 milljón manns komið á 49.050 viðburði í henni. Afrýjunardómstóll í Bandaríkjunum: Skipun um handtöku Marcosar endumvjuð New York. Reuter. New York. Reuter. NIÐIJRST AÐA áfrýjunardóm- stóls í Bandaríkjunum á miðviku- dag ryður úr vegi hindrunum þess að Ferdinand Marcos fyrr- verandi forseti Filippseyja verði handtekinn. í úrskurði dómstóls- ins segir að Marcos og eiginkona hans Imelda hafí dregið sér óheyrilegt fé af eignum filip- peysku þjóðarinnar og af eignum Bretland: Skiptar skoðanir um 10. sinfóníu Beethovens London. Daily Telegraph. ÞEGAR Ludwig van Beethoven lá fyrir dauðanum lét hann þau boð út ganga til Londort Philharmonic Society að hann hefði þegar skrifað útlínur að nýrri sinfóníu, þeirri tfundu. Tónlistarfræðimað- ur við Aberdeen háskóla, dr. Barry Cooper, hefur finkembt brot úr handritum og pappírsrissi eftir Beethoven sem fannst I Berlín og á fimm árum tókst honum að skrifa fyrsta þátt þessarar sinfóníu. Þátturinn tekur 15 mínútur f flutningi og hefst á andante í E-dúr. Fyrsti þáttur 10. sinfóníu Beethovens var frumfluttur f London síðastliðinn þriðjudag við misjafiiar undirtektir áheyrenda. Konunglega Fílharmóníusveitin í Liverpool flutti verkið í Hátíðar- höllinni í London. Fiðlusnillingur- inn aldni, Sir Yehudi Menuhin, bar lof á dr. Cooper fyrir að hafa um- gengist frumriss tónskáldsins „með þeirri virðingu sem menn sýna helgum textum". Hann ávarpaði tónleikagesti að tónleikum loknum og sagðist hafa haft mikla ánægju af verkinu. „Þetta er í annað skipti í dag sem ég hlýði á verkið og þó hann sé snillingur get ég fullyrt að Peter Ustinov samdi það ekki,“ bætti Menuhin við og vísaði þar til enska gamanleikarans sem frægur er fyrir að fara í gerfí snillinga sögunnar. Dr. Cooper lýsti því yfir að hann hefði áhuga á að ljúka við sinfóní- una ef fleiri riss eftir Beethoven kæmu í dagsljósið. Walter Weller, stjómandi Fílharmóníusveitarinnar í Liverpool, sagðist hafa notið verksins en sagði að eftir sem áður vissu menn ekki hvemig Beethoven hefði hugsað sér það. Fyrsti óbóleikari hljómsveitar- innar sagði að verkið hefði aðeins verið æft frá því á sunnudag en það hefði ekki verið mjög erfitt í flutningi. Hann bætti því við að það hefði verið hljómsveitarmönn- unum mikið ánægjuefni að fá að frumflytja verkið sem hann taldi vera mjög t anda Beethovens. Ann- ar fiðluleikari sveitarinnar var hins vegar ekki jafn hrifinn. „Yfirleitt er ég útkeyrður eftir að hafa tekið þátt í flutningi á verkum eftir Beet- hoven en núna er ég fremur ósnort- inn og á næga orku eftir," sagði hann. „Verkið er sundurlaust og tréblásturkaflamar eru greinilega mun betur skrifaðir en strengja- kaflamir. Þetta er ekki sannur Beethoven.“ Tónlistargagmýnandi The Daily Telegraph sagði að 10. sinfónían hæfist á stefi sem Beethoven hefði án nokkurs vafa samið. Hins vegar væri framhaldið ekki í líkingu við afrek Beethovens. „Auðvelt er að líkja eftir stíl Beethovens en óger- legt er að líkja eftir hugsanaferli snillings, einkum snillings sem var jafn dyntóttur og frumlegur og Beethoven." Bandaríkjamanna. Þau eru grun- uð um að hafa flutt féð úr landi og keypt fyrir það fasteignir í Bandarikjunum. Úskurður áfrýjunardómstólsins staðfestir niðurstöðu undirréttar. Handtökuskipun á hendur Marcos- hjónunum hafði verið frestað á meðan beðið var niðurstöðu áfrýj- unarréttar. Ennfremur segir að þau hafi sýnt dómsmálayfirvöldum óvirðingu með því að virða ijórar vitnastefnur að vettugi. Marcos- hjónin sem nú em í útlegð á Hawai neituðu að mæta í dómsal og vísuðu til löghelgi þjóðhöfðingja. Þau sögðu einnig að stjómarskrá Filippseyja vemdaði þau gegn sjálfsásökun með vitnisburði fyrir bandarískum dómstólum. í niður- stöðu áfrýjunardómstólsins er ekki tekið tillit til þessa vegna þess að þau séu ekki lengur valdhafar á Filippseyjum. Að sögn stórblaðsins New York Times íhuga lögfræðingar Marcosar nú að áfrýja til hæstaréttar Banda- ríkjanna. Kambodíudeilan: Yíetnamar hafria ftíðartillögum SÞ Banffkok, Tælandi. Reuter. STJORN Vietnams hefiir vísað á bug friðartillögum Suðaustur-Asíu- bandalagsríkja, ASEAN, sem bera átti upp á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna til lausnar deilunum um framtíð Kambódíu. Segja Víetnamar að ekki séu nægilega skýr ákvæði i tillögunum til varnar þvi að skærulið- ar Rauðu khmeranna, sem áður réðu yfir landinu með Pol Pot í farar- broddi, hrifsi aftur til sín völdin. Hanoi-útvarpið í Víetnam sagði í gær að í yfirlýsingu frá utanríkis- ráðuneytinu kæmi fram að í tillögum ASEAN væri ekki tekið tillit til raun- verlegrar stöðu mála í Kambódíu. Krafa víetnömsku stjómarinnar væri að erlend ríki hættu stuðningi við skæruliðahreyfíngar í landinu og skæruliðasamtök Rauðu khmeranna yrðu .leyst upp. Khmeramir eru taldir hafa látið drepa eina til tvær milljónir manna á fjórum valdaárum sínum í Kambódíu. Kínveijar hafa stutt þá með vopnasendingum og eru khmer- amir taldir öflugastir þeirra þriggja skæruliðahreyfinga sem barist hafa undanfarin ár gegn stjóm þeirri em Víetnamar komu á laggimar í höfuð- borginni, Pnom Penh. Víetnamar hafa um 100.000 manna herlið í landinu en hafa heitið því að flytja það á brott árið 1990. bílasýning laugardag 13-17, árgerð 1989 HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK, SÍMI 689900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.