Morgunblaðið - 21.10.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988
27
Helga II RE 373 . Á innfelldu
myndinni eru eigendur Ingi-
mundar hf., Armann Friðriksson
og sonur hans Armann, sem er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Helga II RE 373 komin til heimahafiiar:
Nýtum loðnukvóta tveggja
skipa og þorskkvóta þriggja
Treg mæting í
bifreiðaskoðun
Bifreiðaeigendur á höfuð-
borgarsvæðinu og á Suðurnesj-
um hafa ekki verið nægilega
duglegir að koma með farar-
tæki sín i skoðun nú á haust-
mánuðum, að mati Bifreiðaeft-
irlitsins. Haukur Ingibergsson
framkvæmdastjóri Bifreiðaeft-
irlitsins segir góðar heimtur
hafa verið fyrri hluta ársins og
fram á sumar, en brugðið hafi
til hins verra í september.
Nú á að vera lokið við að skoða
bifreiðir með númer upp að R
62730, Y 15150, G 22220 og Ö
10400. Að sögn Hauks verður
fljótlega farið að grípa til aðgerða
gagnvart óskoðuðum bifreiðum í
samvinnu við lögreglu. Haukur
hvatti eigendur óskoðaðra bíla til
að drífa sig með bíla sína til skoð-
unar og forða þannig sjálfum sér
frá óþægindum og Bifreiðaeftirliti
og lögreglu frá þeirri fyrirhöfn að
leita uppi óskoðaða bíla.
Árlegri bifreiðaskoðun á að vera
lokið í Keflavík þann 4. nóvember
næstkomandi og í Reykjavík í
fyrstu viku desember.
Seinni október
fló FEF verð-
urámorgun *
SEINNI októberflóamarkaður
Félags einstæðra foreldra verð-
ur á morgun, laugardag 22.okt-
óber í Skeljanesi 6, frá klukkan
2 e.h. tíl 5.
Til sölu verður nýr fatnaður,
skór og skrautvörur, tískukjólar
frá ýmsum tímum, bækur og
skraut og gjafamunir. Allt er selt
á ekta flóamarkaðsverði FEF, seg-
ir m.a. í fréttatilkynningu frá fé-
laginu.
- segir Ármann Ármannsson, framkvæmdastjóri
HIÐ nýja nóta- og togskip Helga II RE 373 kom til landsins í vik-
unni. Skipið er i eigu Ingimundar hf og kemur í stað eldra skips með
sama nafni. Skipið er búið til loðnuveiða og rækju- og bolfiskveiða og
vinnslu. Frystigeta er um 30 tonn á sólarhring. Skipið er 793 tonn að
stærð, berum 1.000 tonnafloðnuogum 150 tonn af frystum afurðum.
Helga II er byggð af Ulstein- mesta breidd er 12,50 metrar. Á
skipasmíðastöðinni í Noregi og hönn- vinnsludekki eru flökunarlínur, pökk-
uð af Skipsteknisk a/s í Álasundi. un og vigtun fyrir þorsk, karfa og
Hún er 51,70 metrar að lengd og grálúðu og rækjuvinnslulína og
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 20. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lsagsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 50,00 48,00 49,51 2,442 120.936
Undirmál 38,00 32,00 37,05 1,170 43.386
Undirmálsýsa 20,00 20,00 20,00 0,056 1.120
Ýsa 88,00 37,00 74,54 3,586 267.315
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,045 675
Steinbitur 15,00 15,00 15,00 0,015 225
Koli 34,00 34,00 34,00 0,638 21.692
Langa 39,00 39,00 39,00 1,347 52.537
Lúða 305,00 115,00 192,01 0,687 132.009
Keila 14,00 14,00 14,00 0,246 3.451
Samtais 62,86 10,234 643.346
Selt var aðallega frá Hraðfrystihúsi Breiðdælinga, Aðalvör hf.,
Hafbiörgu sf., Færabaki hf., Kristjáni Guðmundssyni á Rifi og
Fiskverslun Bjarna Einarssonar á Arnarstapa. 1 dag verður selt
úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 50,00 46,00 48,39 1,911 92.478
Ýsa 75,00 40,00 67,17 5,040 338.556
Smá ýsa 10,00 10,00 10,00 0,093 930
Karfi 26,00 26,00 26,00 0,950 24.710
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,035 525
Steinbítur 12,00 12,00 12,00 0,019 228
Hlýri+steinb. 35,00 15,00 22,19 0,670 14.870
Langa 15,00 15,00 15,00 0,025 375 .
Lúða 280,00 185,00 273,85 0,139 38.065
Skarkoli 25,00 25,00 25,00 0,385 9.625
Skötuselur 290,00 290,00 290,00 0,106 30.740
Samtals 58,79 9,374 551.102
Selt var úr bátum. í dag verða seld um 15 tonn af ýsu úr Elínu
Þorbjarnardóttur IS og óákveðið magn úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 53,50 46,00 51,39 4,750 244.100
Ýsa 74,50 10,00 63,50 12,501 793.849
Ufsi 20,00 13,00 17,68 1,322 23.372
Karfi 26,00 25,00 25,04 1,600 40.036
Sfld 9,30 8,50 9,06 42,000 380.350
Keila 13,00 13,00 13,00 0,500 6.500
Langa 25,00 25,00 25,00 0,150 3.750
Blálanga 36,50 36,50 36,50 0,081 2.957
Sólkoli 60,00 60,00 60,00 0,028 1.698
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,098 3.444
Lúða 155,00 65,00 119,92 0,060 7.229
Öfugkjafta 5,00 5,00 5,00 0,010 50
Skata 110,00 51,00 94,47 0,098 9.334
Skötuselur 350,00 350,00 350,00 0,045 15.750
Samtals 24,23 63,262 1.532.692
Selt var aöallega úr Kópi GK, Þresti KE, Þorsteini Gislasyni GK
og Sigrúnu GK. ( dag verður .selt úr dagróðrabátum ef á sjó
gefur og á morgun, laugardag, verða meöal annars seld 40
tonn af þorski úr Bergvfk KE.
Grænmetlsverð á uppboðsmörkuðum 20. október.
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
Gúrkur 158,00 0,065 10.270
Sveppir 450,00 0,232 104.722
Tómatar 208,00 2,250 469.098
Paprika(græn) 324,00 0,640 207.130
Paprika(rauö) 399,00 0,365 145.470
Rauökál 87,00 0,100 8.690
Hvítkál 66,00 6,700 445.000
Gulrætur(ópk.) 86,00 0,050 4.300
Gulræturfpk.) 107,00 1,620 173.220
Salat 61,00 0,195 11.895
Steinselja 34,00 780 búnt 26.320
Sellerí 182,00 0,145 75.515
Kínakál 117,00 2,700 317.220
Samtals 2.000.986
frystitæki. íbúðir eru í skipinu fyrir
23 manns, þarf af 5 í eins manns
klefum. Helga II er búin öllum nýj-
ustu og fullkomnustu fiskileitar- og
siglingatækjum.
Helga II fer um helgina til loðnu-
veiða, en hún heldur loðnuveiðileyfi
eldra skipsins og mun jafnframt
veiða í vetur kvóta Helgu III RE, sem
er í eigu Ingimundar hf. Miðað við
sömu úthlutun og á síðasta ári gæti
því heildarkvóti skipsins orðið um
36.000 til 38.000 tonn. Auk þess
hefur skipið leyfi til rækju- og bol-
fiskveiða.
Armann Ármannsson er fram-
kvæmdastjóri Ingimundar hf: „Mér
líst mjög vel á skipið," segir hann.
„Það kostar nettó 330 til 340 milljón-
ir og á að geta fiskað nóg til að
standa undir sér. Það gerir tvöfaldur
loðnukvóti meðal annars og þorsk-
vóti allra skipanna, það er Helgu,
Helgu II og Helgu III, sem um 1.300
tonn. Um leið verður saltfiksvinnslu
hætt í landi og hin tvö skipin verða
eingöngu á rækju. Síðan er mögu-
leiki að fara með nýja skipið á Dor-
hn-bankann, þar sem rækjuveiði er
fyrir utan kvóta.
Skipstjóri er Geir Garðarsson, en
hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að skipið hefði reynst vel á
heimleiðinni og væri hið bezta í alla
staði og mikill munur frá gömlu
Helgunni. Yfirvélstjóri er Kristján
Bergsson. Bjami Hilmir Sigurðsson,
fyrsti vélstjóri, hafði umsjón og eftir-
lit með byggingu skipsins í Noregi. _
Gamla Helgan, sem víkur fyrir
þeirri nýju fór utan sem greiðsla upp
í nýja skipið. Hún var upphaflega
byggð í Noregi 1967 og hafði því
náð tvítugsaldrinum. Hún var lengd
1974 og yfirbyggð 1977 og var 281
brúttótonn að stærð. Hún bar um
550 tonn af loðnu.
Ráðsteftia um hönnun
Ráðstefna um hönnun verður
haldin laugardaginn 22. október
í Borgartúni 6 og hefst hún kl.
13.00. Markmiðið með ráðstefin-
unni er að fá fram sem skýrasta
mynd af stöðu hönnunarmála
hérlendis, hver þróunin verður
og tillögur um aðgerðir, frá
hönnuðum, fyrirtækjum, sam-
tökum og opinberum aðilum.
Gestur ráðstefnunnar verður
Earl N. Powell forstjóri Design
Management Institute. Stofnunin
er bandarísk sjálfseignarstofnun
sem hefur það að markmiði að efla
þátt hönnunar hjá fyrirtækjum og
vinna að þvi að auðvelda samskipti
hönnuða og stjómenda. Hann
stjómar víðtæku verkefni sem
stofnunin stendur fyrir í samvinnu
við Harvard Business School og
nefnt hefur verið The Triad Project.
Verkefnið felst í athugun á hönnun-
arstarfsemi 15 fyrirtækja í Banda-
ríkjunum, Evrópu og Japan. Meðal
þátttökufyrirtækja eru Braun,
Philips, Black & Decker, Rank
Xerox, Canon, Sharp og Yamaha.
Rannsóknin er athugun á hönnun-
arstarfi fyrirtækjanna, með tilliti til
stjómunar, vömþróunar og vinnu-
umhverfís og mun fyrirlestur Pow-
ells að nokkm byggja á þessu verk-
Earl N. Powell.
efni. Fyrirlesturinn nefnist „Ind-
ustrial Development by Design".
Auk Powells munu innlendir fyr-
irlesarar fjalla um hönnun hérlend-
is, s.s. arkitektúr, grafíska hönnun,
listiðnað og fatahönnun.
'O'
INNLENT
Basar hjá stuðn-
ingsmönnum
sr. Gunnars
Stuðningsmenn sr. Gunnars
Björnssonar efina til basars á
Frakkastíg 6a, laugardaginn 22.
október kl. 15.00.
Á boðstólum verða listmunir,
kökur og aðrir eigulegir munir.
Stuðningsfólk komi með muni
á Frakkastíg 6a föstudag eftir kl.
17.00 (Fréttatilkynning)
Ólympíumótið í brids:
Danska kvennaliðið á leið í úrslit
Feneyjum, frá Guðmundi EirÍkssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
SVÍAR, Austurrikismenn, Bandaríkjamenn og Indveijar komust
áfram i undanúrslit á Ólympíumótinu i brids á miðvikudagskvöld.
í hálfleik voru Bandaríkjamenn og Austurríkismenn yfir í undanúr-
slitaleikjunum sem spilaðir voru í gær og gærkvöldi. Dönsku Norður-
landameistarnir i kvennafiokki voru síðan langt yfír gegn Búlgörum
í hálfleik í undanúrslitum og virtust þvi vera á leiðinni i úrslitaleik-
inn.
Sviar unnu stórsigur á ítölum í
flórðungsúrslitunum á miðvikudag,
189-88. Austurríkismenn unnu
Breta 168-158 í jöfnum leik og
sigurvegaramir úr þessum leikjum
spiluðu saman í undanúrslitum.
Svíar tóku með sér 20 impa þar
sem þeir unnu Austurríkismenn
stórt í undankeppninni en staðan
í leiknum eftir 32 spil var samt
86-75 fyrir Austurríki.
Bandaríkjamenn lentu í vand-
ræðum með sveit Dana í fjórðungs-
úrslitunum en í síðustu spilunum
sýndu þeir Bob Hamman, Bobby
Wolff, Jeff Meckstroth og Erik
Rodwell snilldartakta og unnu leik-
inn með 15 impum, eða 162-147.
Indverjar unnu Grikki 168-158
og urðu þar með fyrsta Asíuþjóðin
til að komast í úrslit á Ólympíu-
móti. í kvennaflokki unnu Búlgarar
mjög óvæntan sigur á Bandaríkja-
mönnum, 170-130, í fjórðungsúr-
slitunum en Bandaríkin eru núver-
andi Ólympíumeistarar í kvenna-
flokki. Bretar unnu Mexíkó
160-110. Danir unnu Austurríki
150-140 eftir framlengdan leik og
Kanada vann Frakkland 151-141.
Bretland spilaði við Kanada og
þar var staðan jöfn, 88-83 fyrir
Kanada.
íslenska karlaliðið spilaði við
Zimbabwe í 1. umferð aukamóts-
ins, sem fer fram jafnhliða úrslita-
keppninni og vann 19-11. í annari
umferð gerði liðið síðan iafntefli
við Svíþjóð, 15-15. Islenska
kvennaliðið tapaði fyrir Taiwan
13-17 í fyrstu umferðinni en vann,
Kína, sem þær virðast hafa tak á,
24-6, $ annarri umferð. Alls verða
spilaðar 8 umferðir með 16 spila
leikjum.