Morgunblaðið - 21.10.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1988
Eru Vottar
Jehóva
yfirstétt?
Til Velvakanda.
Eftir að hafa kynnst félagsskap
Votta Jehóva nokkuð undanfarin
ár, séð samkomuhald þeirra og
tímaritin Varðturninn og Vaknið
vaknar óneitanlega hjá mér sú
spuming, hvort Vottar Jehóva séu
yfirstétt.
Þar er aðeins að finna hinn enska
hefðarmann og hinn ameríska pró-
sentuteljara og ímynd þeirra
beggja. Hvergi er gert ráð fyrir
fólki í lægri þjóðfélagsþrepunum. Á
meðfylgjandi mynd úr nýlegu ein-
taki af Awake (Vaknið) kemur
þetta skýrt fram. Sjáið íburðinn hjá
fólkinu sem kallar sig hina Guðs
utvöldu. Leðursófasett, píanó,
klæðnaðurinn.
Svona er klæðnaðurinn á sam-
komum Vottanna. Það eru óskrifuð
lög að mæta í jakkafötum með
bindi, jafnvel í trúboði í AfrSéiku.
Broslegt. Svo eru ritningamar
rannsakaðar af krafti en lifandi
krafti tilbeiðslunnar afneitað svo
og persónugerfingi anda Guðs.
Vottamir em duglegir að hrósa
sér fyrir kærleika og heilbrigði anda
og líkama, það skín glögt út úr
málgögnum þeirra og ummælum
þeirra sjálfra um sjálfa sig. Það
liggur við að maður heyri þá segja:
Takk, Jehóva, að ég er ekki eins
og aðrir menn. Enn þannig breyta
þeir og ritat
Einar Ingvi Magnússon
-----*-*-*---
Amnesty
International:
Overðskuld- -
aður heiður
Til Velvakanda.
Áð gefnu tilefni vill undirritaður
taka fram, að það er mesta firra
sem einhvemveginn hefur komist
á flot í fjölmiðlum að hann hafi
verið umsjónarmaður með dagskrá
Amnesty International á. sunnu-
dagskvöldið var. Heiður þeim sem
heiður ber, og hið rétta í málinu
er að samtök Amnesty Intematio-
nal á íslandi sáu alveg sjálf um
að útbúa þessa dagskrá og fengu
til þess valinkunna listamenn,
snillingurinn Bjöm Emilsson
stjómaði upptökunni af alkunnri
röggsemi en undirritaður kom þar
hvergi nærri nema þá í mjög svo
lítilsigldri pappírsvinnu sem ekki
er á orði hafandi.
Baldur Hermannsson
HEILRÆÐI
Hvar er barnið þitt
að leika sér?
HÖGNI HREKKVÍSI
/,pú KANNT ÉTKKI AP KASTA &OL.TA
OO HITTII? /UPRS NEITr...
Víkverji skrifar
Fyrir skömmu birtist í frétt í
Morgunblaðinu frásögn af því
er veik kona missti niðurfellingu á
ársíjórðungsgjaldi síma, vegna þess
að hún hafði dvalist langtímum
saman í sjúkrahúsi. Þetta var rétt
fyrir ríkisstjómarskiptin og Matt-
hías Á. Mathiesen samgönguráð-
herra brást skjótt við og leiðrétti
þetta óréttlæti. Nú mun símum
þessa fólks, sem missir óskerta
tekjutryggingu við sjúkrahússvist,
verða lokað á meðan á veikindunum
stendur.
Lokun símans er nauðsynleg að
því er Víkveija er tjáð vegna þess
að vart hefur orðið misnotkunar á
þessari eftirgjöf. Fullfrískt fólk hef-
ur borið fyrir sig aldrað fólk, skrif-
að það fyrir símum og notað síðan.
Segja má að slík misnotkun á niður-
fellingu ársfjórðungsgjalds sé víta-
verð og óskiljanlegt að nokkur skuli
leggjast svo lágt, að nota sér veik-
indi aldraðra til þess að svindia á
kerfínu. Síminn á Islandi er alls
ekki dýr miðað við önnur lönd.
Sumar opinberar stofnanir virð-
ast ekki telja það skyldu sína
að veita viðskiptavinum sinum
neina þjónustu. Nýlega varð
Víkveiji vitni að því, að Hitaveita
Reykjavíkur neitaði raðhúsaeigend-
um við götu hér í borginni að senda
þeim heim reikninga fyrir vatnsnot
í bílskúrum. Allir em þeir viðskipta-
vinir veitunnar og þar sem illa gekk
að innheimta hitareikninga, fóru
þessir raðhúsaeigendur fram á að
kostnaður við hitun 16 bílskúra
yrði jafnað niður á reikninga þeirra
allra. Þannig yrði hitunarkostnaður
bflskúranna greiddur með hita-
reikningum raðhúsanna. Þessu
neitaði Hitaveitan og viidi ekki deila
bflskúrshitanum í 16 jafna hluta.
Með nútíma tölvutækni ætti slík
þjónusta að vera smáatriði. Hægt
ætti að vera að setja inn í tölvu
Hitaveitunnar í/ eitt skipti fyHr öll
skipun um að reikningar sem þessi
hitunarreikningur fyrir bflskúra
greiddist í 16 hlutum. Með þessu
fyrirkomulagi ætti veitan að fá
greiðar inn peninga fyrir kyndingu
sameignar sem bflskúrar eru í þessu
tilfelli þar sem hver eigandi er hvort
eð er viðskiptavinur með reiknings-
númer og fær heimsendan gíróseðil
reglulega. Þessi háttur á þó aðeins
að vera, sé hans óskað af viðkom-
andi viðskiptavinum, en hins vegar
er það ekkert annað en skortur á
vilja til að bæta þjónustu, sé slíkri
beiðni hafnað.
Með sama hætti ætti að vera
unnt að fá sömu þjónustu frá Raf-
magnsveitum Reykjavíkur. Þó get-
ur það verið erfíðara, þar sem meiri
sveiflur geta komið í raforkunotkun
í einstökum eignum manna, sér-
staklega ef menn eru með orkufrek
rafmagnstæki. En sums staðar eru
svokallaðir frádráttarmælar, sem
geta gefið upplýsingar um hvar hin
sveiflukennda notkun á sér stað.
Með þessum mælum er því unnt
að fínna, hver eigi að borga meira
en annar, ef notkun eykst skyn