Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 6

Morgunblaðið - 13.11.1988, Page 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 SVEIWW I.IWRSSOV I\IÝRÁÐII\I\ DAGSKRÁRSTJÓRI SIÓWARI’SIAS Metnaðar- gjarn atorku- maðnr Það er ekki tekið út með sældinni að vera leikhússtjóri hér á landi, eða að vera yfirmaður innlendrar dagskrárgerðar Ríkissjónvarpsins. Sveinn Einarsson er nýráðinn til að gegna þeirri stöðu og tekur við starfínu þann 1. febrúar á næsta ári. Hann vinnur að því þessa dagana að setja saman íslenska leiklistarsögu. Til þess er hann manna hæfastur að áliti viðmælenda Morgunblaðsins og flestir bundu miklar vonir við ráðningu hans að sjónvarpinu. En Sveinn hefúr einnig verið leikhússtjóri um samfellt 20 ára skeið, fyrst hjá Leikfélagi Reykjavikur og síðan hjá Þjóðleikhúsinu. „Maður sem er í starfi leikhússtjóra situr á púðurtunnu. Það er gott ef vel gengur, en á honum bitnar gagnrýnin harðast ef illa fer. Leikarar fá úthlutað hlutverkum og ég vildi ekki vera í þeirri stöðu að eiga þátt í ákvörðun um að úthluta listmálurum þjóðarinnar túbum og segja: „Næstu þrjá mánuðina færðu gult og rautt,“ svo dæmi sé tekið. Leikhússtjórar eru því eðli starfsins samkvæmt yfirleitt ekki vinsælustu menn í leikhúsunum," segir Helgi Skúlason, leikari, aðspurður um hvi Sveinn sé umdeildur. Teikning Pétur Halldórsson Sveinn Einarsson fæddist í Reykjavfk 18. septem- ber 1934, sonur Einars Ólafs Sveinssonar, próf- essors í íslensku og konu hans Kristjönu Þorsteinsdóttur, píanó- kennara. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1954 og stundaði háskólanám í Stokkhólmi í bókmennta- og leik- listarsögu og heimspeki. Lauk það- an fíl. kand.-prófi árið 1958 og stundaði árið eftir framhaldsnám í samanburðarbókmenntum og frönskum bókmenntum við Sor- bonne-háskóla í Frakklandi. Gerðist leikhússtjóri Leikfélags Reykjavík- ur 1963 og gegndi því starfi til 1972, er hann varð Þjóðleikhús- stjóri. Lét af því embætti árið 1983 og hefur síðan verið í hálfu starfí listráðunautar hjá menntamála- ráðuneytinu, auk þess sem hann hefur leikstýrt mikið. Það gerði hann líka meðan hann stýrði leik- húsunum. Hér er aðeins drepið á það helsta sem maðurinn hefur lagt fyrir sig, en auk þessa hefur hann gegnt fjölda trúnaðarstarfa. „Gáfinaljósabekkur“ Það virðist aldrei hafa verið spuming um það hvað Sveinn Ein- arsson myndi leggja fyrir sig í huga þeirra sem þekktu hann í æsku. Ólafur Gunnlaugsson, læknir, sem hefur þekkt hann frá 13. ári segir að það hafí engum komið á óvart að hann hafí helgað sig listum. Hann hafí ungur byrjað að skrifa sögur og sér sé minnisstætt að Sveinn hafí fljótlega eftir að þeir kynntust lesið upp fyrir sig sögu, sem hann hafði samið. Þessa sögu hafi hann raunar einnig lesið í bamatíma útvarpsins á þessum tíma. Bríet Héðinsdóttir, leikkona, hef- ur þekkt Svein allar götur frá því þau voru 12 og 13 ára gömul er hún kom inn í „gáfnaljósabekkinn" í Austurbæjarskólanum. Þau urðu samferða í gegnum gagnfræða- og menntaskóla. Hún segir að hann hafí verið afburðanámsmaður og alla tíð hafí áhuginn beinst að list- um. Raunar hafí hún fengið sitt fyrsta hlutverk í leikriti sem hann skrifaði og fært var upp þegar þau gengu upp úr bamaskólanum. „Leikritið hét Kálína, Pálína, en ég man ekki hvort titilhlutverkið ég lék. Ég man bara að við sem lékum sátum hvort sínu megin við borð og Sveinn, sem var hvíslari, var undir borðinu. Þegar allt var búið og við hneigðum okkur, reis höfundur og hvíslari upp undan borðinu — hann hefur verið 14 ára þegar þetta gerðist — og hneigði sig líka og þá fyrst hló nú mann- skapurinn," segir Bríet. Lifað og hrærst í listum Hún segir að Sveinn hafí alla tíð lifað og hrærst í listum. „Það er ekkert sem hann hefur þurft að til- einka sér. Það kom aldrei ann- að til greina en að hann legði eitthvað af því taginu fyrir sig og hann er líklega sá maður á landinu sem er fróðastur um íslenskt listalíf fyrr og síðar. Mér þætti gaman að sjá bent á þann einstakling sem gæti skákað honum þar. Því er það hreint ótrúlegt lán að Ríkissjónvarpið sé búið að fá hann sem dagskrárstjóra," segir hún ennfremur. Jón Sigurðsson, forstjóri Járn- blendifélagsins, var samferða Sveini í gegnum gagnfræða- og menntaskóla. Hann minnist þess að þegar þeir luku gagnfræðaskóla fengu þeir þriggja vikna upplestr- arfrí. Sveinn hafði lokið lestrinum að hálfnuðu fríinu og notaði síðari hluta þess ásamt skólafélaga sínum til að gefa út nokkur tölusett fjölrit- uð eintök af ljóðum. Hann segir að á þessum skólaárum hafi áhugi Sveins beinst mjög að listum, enda komi hann frá heimili þar sem bók- menntir voru mikið stundaðar. Hins vegar hafí mjög fáir í árgangi þeirra í MR lagt út á listabrautina og það sama gildi um stjórnmálin. Öðru máli gegni um lögfræði og Iæknis- IVMNNSIVIYNP eftir Hjólmar Jónsson BRÍET HÉÐINSDÓTTIR: „Þegar allt var búið og við hneigðum okkur, reis höfundur og hvíslari upp undan borðinu — hann hefur verið 14 ára þegar þetta gerðist — og hneigði sig líka ogþáfyrsthló nú mannskapurinn. “ fræði, því í stúdentsárgangi 1954 sé að fínna fríðan hóp valinkunnra lögmanna og lækna. „Það var eng- inn alvöru kúltúrmaður þarna nema Sveinn," segir Jón. Dugnaðarforkur Samstarfsmönnum Sveins hjá Leikfélaginu og Þjóðleikhúsinu verður tíðrætt um hversu afkasta- mikill hann sé, þó hann beri það eiginlega ekki með sér. Helgi Skúla- son, leikari, sat um árabil í leikrita- valsnefnd Þjóðleikhússins ásamt Sveini. Hann segir að það hafi iðu- lega komið fyrir að Sveinn hafi verið búinn að lesa eitt leikrit um morguninn áður en hann mætti til vinnu. Hann hafi farið upp með fuglunum og lesið meðan aðrir sváfu. Þá verður ekki síður ótrúlegt minni hans og fróðleikur um íslenska leiklistarsögu fólki að um- talsefni. „Maður flettir upp í Sveini eins og alfræðibók," segir Bríet og bætir við að hann geti jafnvel leið- rétt leikara varðandi þeirra eigin leikferil. Ráðning Sveins sem leikshús- stjóra LR fór saman við að ákvörð- un um að breyta því úr áhuga- mannaleikhúsi í atvinnuleikhús. Helgi segir að Sveinn hafi strax haft gríðarleg áhrif, hann hafi ver- ið mjög vel lesinn í leikbókmenntum og hafí nánast opnað gluggann út í heiminn. I sama streng tekur Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona. Hún segir að hann hafí verið mikill hugsjónamaður í leiklistinni og áræðinn við að klífa brattann. „Þeg- ar hann byijaði hjá Leikfélaginu kom hann til móts við listamennina GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR: „Auðvitað voru menn ekki alltaf sammála, en ágreiningurinn var yfirleitt ekki af listrænum toga heldur oftast nær þegar Sveini fannst við gleyma hugsjóninni og hugsa eingöngu um saltið í grautinn.“ sem fyrir voru með virðingu fyrir því sem þeir voru að gera. Þar af Ieiðandi átti hann auðveldara með að hrífa fólk með sér í þær fram- kvæmdir og breytingar sem hann vildi koma á. Auðvitað voru menn ekki alltaf sammála, en ágreining- urinn var yfírleitt ekki af listrænum toga heldur oftast nær þegar Sveini fannst við gleyma hugsjóninni og hugsa eingöngu um saltið í graut- inn.“ Ár Sveins hjá Leikfélaginu voru mikill uppgangstími þess. Guðrún segir að það hafi þó ekki komið á óvart að hann skyldi færa sig yfír á Þjóðleikhúsið þegar staða Þjóð- leikhússtjóra losnaði. Það hafi verið eðlilegt framhald miðað við þá menntun og reynslu sem hann hafði aflað sér. Gangurinn var ekki jafn greiður á Þjóðleikhúsinu og hann hafði ver- ið hjá LR. Viðmælendur Morgun- blaðsins bentu á að það væri tals- vert annað að stýra til þess að gera litlu leikhúsi, þar sem mikið byggð- ist á persónulegum samskiptum, og stórri ríkisstofnun eins og Þjóðleik- húsinu, þar sem mikið stærri hluti starfsdagsins færi í að sinna ýmsum stjómunarlegum verkefnum og samskiptum við ráðuneyti. Því er ekki að leyna að Sveinn Einarsson er umdeildur maður, þó hafí dregið úr því eftir að hann lét af starfí Þjóðleikhússtjóra. Hann er margþættur persónuleiki svo sem við er að búast þegar maður með hans gáfnafar og menntun er ann- ars vegar. Hins vegar vom við- mælendur Morgunblaðsins mjög tregir til þess að gera það sem bet- ÓLAFUR HÖSKULDSSON „Það er fyrst til að taka að maðurinn er bráðskarpur og sjófróður um menn og málefni. Hann er afar skemmtilegur að vera með, glaður og tekur hvorki sjálfan sig né lífíð of alvarlega." ur gæti farið í fari hans að umtals- efni. Einn, sem ekki vildi láta nafns síns getið, nefndi að hann gæti verið hégómlegur og óþarflega hör- undssár, annar að hann ætti til að skreyta sig með stolnum fjöðmm, en enginn dró í efa að hann væri hæfíleikaríkur og hefði gert margt mjög gott á leiklistarsviðinu. Metnaður Guðrún Ásmundsdóttir segir að hún hafi oft öfundað Svein af drif- kraftinum og dugnaðinum. „Hann hefur metnað, en metnaður getur haft jákvæðar og neikvæðar hliðar. Hann er ekki metnaðargjam í nei- kvæðum skilningi, þó metnaðar- laust fólk sé oft þægilegra. Metnað- urinn gefur honum mikinn drifkraft og er honum nauðsynlegur.“ Hún segist ævinlega bera undir hann það sem hún hafi verið bauka við að skrifa í gegnum tíðina og taka mark á því sem honum finnist. Steindór Hjörleifsson, leikari, segist hafa þekkt Svein í áratugi og ætíð af góðu. Þeir hafi unnið saman í níu ár hjá LR og Sveinn hafi leitt starfið þar af eldlegum áhuga. Sveinn sé metnaðargjarn, en á jákvæðan hátt. Hann komi sterkt fram fyrir sitt leikhús og beri það mjög fyrir brjósti. Sem dæmi um hve umhugað Sveini var um sitt nýja leikhús, þegar hann hætti hjá LR og fór til Þjóðleik- hússins, hafi hann freistað þess að fá með sér gamanleikinn Fló á skinni, sem Vigdís Finnbogadóttir, arftaki hans hjá LR og núverandi forseti, vann við að þýða að hans beiðni. Vigdís, sem þá var nýráðin,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.