Morgunblaðið - 13.11.1988, Side 7

Morgunblaðið - 13.11.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 Rannsóknir á tildrögum sjálfsmorða Hclsinki. Reuter. Stjórnvöld í Finnlandi.og Ung- verjalandi vonast til að frekari rannsóknir og samvinna megi verða til þess að tíðni sjálfsmorða lækki í löndum þessum. Fyrir skömmu hittust finnskir og ung- verskir sérfræðingar i Helsinki til að ræða þessi mál en tíðni sjálfsmorða er hvergi hærri en í Ungveijalandi og fer vaxandi í Finnlandi. Jarkho Eskola, formaður ráð- stefnunnar, sagði að bæði ríkin vildu efla samstarf á þessu sviði. Tilganginn kvað hann vera þann að rannsaka ástæður þess að tíðni sjálfsmorða væri svo há sem raun bæri vitni og leita leiða til að fækka þeim. í máli hans kom fram að 60 hverra 100.000 Ungveija stytta sér aldur og er sjálfsmorðstíðnin hvergi hærri í heiminum. 40 til 45 hverra 100.000 Finna fremdu sjálfsmorð en tíðni þeirra færi ört vaxandi. Þannig hefðu 1.310 'Finnar stytt sér aldur árið 1986 samanborið við 1.200 árið áður. Viðamiklar rann- sóknir hefðu farið fram í Finnlandi og hefðu þær m.a. leitt í ljós að mjörg margir þeirra sem styttu sér aldur væru miðaldra landsbyggðar- menn, sem væru í hópi hinna tekju- lægstu. Kvað hann rannsóknir í Ungveijalandi hafa skilað keimlík- um niðurstöðum. , / KRAKKAR! /KUNÍÐ AO BURSTA ■TENNURNAR Öll Lionsdagatöl ern merkt og þeim fylgir jólasveinslímmiði og tannkremstnpa. Allur hagnadur rennnr óskiptnr tillíknarmála. ^terkurog k./ hagkvæmur auglýsingamiðill! Verð 150 leikföng, gjafavörur, sportfatnaður, sælgæti, náttfatnaður, útiljósaseríur, hannyrðavörur, snyrtivörur, kuldaskór og margt fleira. Opið: Mánud.-fimmtud. frá kl. 10.00-18.00 Föstudaga frá kl. 09.00-19.00 Laugardaga frá kl. 11.00-16.00 Skipholti 33 Sími 680940. Askriftarsíminn er 83033 /Æk, , ’/yJÍ' ■ ■ ■ - í íí \í\ix"^R rm F j í i hafí gengist inn á þetta, enda haft mörg önnur verkefni í undirbún- ingi. Leikhúsráðið, sem Steindór átti þá sæti í sem formaður, hafí hins vegar ekki tekið í mál að gefa eftir sýningarréttinn, enda hafí leik- ritið reynst kassastykki, eins og Sveinn hafi spáð. „Hann hefur þann metnað sem máli skiptir," segir Bríet. „Hann hefur feykilega mikinn metnað fyr- ir hönd íslenskrar menningar og það er nákvæmlega sá kostur hans sem ég gæti fyrirgefíð honum ýmis- legt út á. Þetta er mjög einlægur og í raun óeigingjam metnaður og það er ómetanlegur kostur í starfí eins og leikhússtjóra og vonandi dagskrárstjóra líka,“ segir hún enn- fremur. Einlægur og tryggur vinur „Það sem ég met mest í fari Sveins er hversu vandaður maður hann er. Hann er mjög tryggur vin- ur og vinsæll í vinahópi, enda ve) gefinn og skemmtilegur," segir Olafur Gunnlaugsson. Sömu sögu hefur Sigríður Hagalín, leikkona, að segja; að Sveinn sé góður og tryggur vinur og „mikill ákafamað- ur í öllu sem hann gerir, lifandi og skemmtilegur". „Það er fyrst til að taka að mað- urinn er bráðskarpur og sjófróður um menn og málefni. Hann er afar skemmtilegur að vera með, glaður og tekur hvorki sjálfan sig né lífíð of alvarlega," segir Ólafur Hös- kuldsson, tannlæknir, sem þekkt hefur Svein frá því hann kom suður á Garð veturinn 1959-1960. „Hann er sérstaklega umtalsgóður maður. Mér er minnisstætt að við sátum nokkrir saman á góðri stund og að í tal barst maður sem ég vissi að Sveinn hafði ekki góða reynslu af. Sveinn hlustaði hljóður, en eftir nokkra stund fór honnum að leiðast umtalsefnið og vildi slíta talinu: „Nú er nóg komið. Við getum verið sam- mála um að maðurinn er ómerkileg- ur.“ Þetta er það versta sem ég hef heyrt hann segja um nokkurn mann,“ segir Ólafur. Þess vegna hafi bók Sveins um árin hjá Leik- félagi Reykjavíkur, Níu ár í neðra, komið sér á vissan hátt á óvart, því þar fengju ýmsir sinn skammt ómældan. „Eg skýri það þannig að fyrstu viðbrögð persónuleikans Sveins eru ævinlega jákvæð. Hins vegar tíðkast nú til dags að gagn- rýna og þegar hann hefur meiri tíma þá gerir hann það eins og aðrir. Þannig er tilkomið margt sem er í bókinni, en þetta er ólíkt þeim Sveini sem ég þekki. Það er afskap- lega hlýr og raungóður maður, sem tekur málstað þeirra sem minna mega sín,“ segir Ólafur. Guðrún segist skilja mjög vel að fólki fínnist Sveinn koma fyrir sem þurr menningarviti, þó hann sé alls ekki þannig í raun og veru. „Sveinn er margþættur og það er erfitt að lýsa honum. Hann er skemmtileg- astur í hópi af fólki sem hann þekk- ir og treystir og þá hefur hann til að bera þá barnslegu kosti sem hrífa með sér,“ segir hún. Bríet er á sama máli og segir að hann sé mikill lífsnautnamaður, sem láti helst ekki nokkum gleð- skap fram hjá sér fara. Hún segir að það sé ekki munur á Sveini sem yfírmanni og vini. „Sambúð okkar, ef svo má orða það, bæði á vett- vangi vinnunnar og annars staðar, hefur verið stormasöm í gegnum tíðina. Einhvem tíma þegar við vorum unglingar töluðum við ekki saman í tvö ár eða hátt í það. Ég er alveg búin að gleyma út af hveiju þetta var að ég tali nú ekki um hver átti sökina, hafí verið um einhveija sök að ræða. Ég er að vona að við séum orðin svo gömul að við séum hætt að nenna að rífast. Við höfum gert miklu minna af því í seinni tíð.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.