Morgunblaðið - 13.11.1988, Side 16

Morgunblaðið - 13.11.1988, Side 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988 PAMELA svo útkeyrðar fyrstu kvöldin, að þær slógust ekki í sönghópinn á næturstað. Litu ekki heldur við söngvatninu, en ég hygg það hafi verið þriðja kvöldið okkar, sem ís- lendingamir komust að þeirri niður- stöðu að ég hafði ekki ýkt á nokk- um hátt í lýsingum mínum. Þann dag höfðum við riðið langa leið — frá Hunkubökkum, upp Holtsdal- inn, þar sem allir féllu í stafi yfir ógnarlegri fegurð dalsins, yfir heið- ina og niður hjá Skaftárdal. Þar var riðið yfír Skaftá, á brúnni. Stefnan var sett á Lambaskarðs- hóla og þangað náðum við um kvöldverðarbil í roki og rigningu, en enn var sælubrosið sem límt á andlit Pamelu. Meira að segja var Virginia farin að brosa út að eyrum. Ástæður þess að brosmildi stallnanna frá Rhode Island hafði aukist til muna, var sú að Jón fararstjóri hafði séð aumur á þeim, er þær báru sig illa út af særindum á ónefndum stöðum og fómað þeim tveimur gæðinga sinna, þeim Sörla og Hrólfí. Auðvit- að átti Jón ekki eftir að ríða þessum hestum sínum það sem eftir lifði fararinnar, en hann fylgdist hins vegar hinn ánægðasti með stöllun- um, þar sem gæðingamir runnu áfram með þær á töltinu og bar harm sinn í hljóði, eins og hetju af Njáluslóðum sæmir. Njóla, dóttir Jóns fararstjóra, sá okkur fyrir kosti alla ferðina, og hafði ávallt reiðubúna heita máltíð fyrir okkur þegar við komum á áfangastað á kvöldin. Kosturinn var rammíslenskur og svo vel matreidd- ur, að bandaríski auðkýfíngurinn í förinni vildi ólmur fá Njólu til New York næsta sumar, til þess að mat- reiða ofan í veislugesti sína. Við höfðum það í flimtingum á kvöldin, að við værum „eins og úlfar í af- mælisveislu", þegar við réðumst á matinn. Það er líklega fátt sem kitl- ar matarlistina jafn mikið og dags- reið. í Lambaskarðshólum gengu fjór- ir Bandaríkjamannanna og Þjóð- veijamir fjórir snemma til hvílu, sem áður, en íslendingamir komu sér fyrir við langborð og kertaljós og hófu skraf og söng. Vakti það nokkra furðu okkar íslendinganna að erlendu ferðamennimir skyldu ekki vilja njóta góðs félagsskapar og skemmtunar á kvöldin, því mik- ið var eftir af íslensku þreki á hveiju kvöldi. Jafnvel svo mikið, að óhollt má teljast fyrir þjóðar- rembuna. En viti menn, þegar hvað minnst varði, slógust þær Pamela og Virginia í hópinn. Er þær voru inntar eftir þvi hveiju þessi heiður sætti, hlógu þær dátt og sögðu: „If you caní beat them, join them!“ (Ef þú getur ekki unnið sigur á þeim, skaltu ganga í lið með þeim!) Þar að auki sendu þær Jóni ísmeygilegt augnaráð, að ekki verði meira sagt, og sögðu að þessar unaðslegu undraskepnur hans, þeir Sörli og Hrólfur hefðu um allt breytt þeirra líðan. Hafí Jón ekki vitað það fram til þessa að gæðingamir vom hon- um glataðir um hríð, þá þurfti hann ekki að velkjast í nokkrum vafa eftir að þessum upplýsingum var komið á framfæri á jafn hárfínan hátt og raun bar vitni. Er ekki að orðlengja það að þær stöllur fóru á slikum kostum þetta kvöld, með söngvum og skemmti- sögum, að eftir þetta var það ekki talin skemmtun á kvöldin að setjast niður, spjalla, syngja og skála, nema þær tvær væru með, og að sjálfsögðu létu þær sig ekki vanta. Pamela skilur glettilega mikið í íslensku, en lítið getur hún talað hana. Ef því var þannig varið að einhver setning var sögð á íslensku, sem hún ekki skildi, sendi hún mér áminnandi augnaráð og sagði síðan: „Viltu gjöra svo vel að halda þig við enskuna." Vora þær svo strang- ar á því að hver einasta setning væri þýdd, að nánast var eins og ég hefði sest á skólabekk á nýjan leik. Förin í Eldgjá og að Ófærufossi í Ófæra nyrðri varð öllum ógleym- anleg, en þangað fóram við frá Lambaskarðshólum. Pamela hafði aldrei komið í Eldgjá áður og hug- leiðingar hennar um þennan stað eftir að við sneram til baka vora á þessa leið: „Vitið þið hvað yrði um svona náttúraundur í Bandaríkjun- um? Það fengi aldrei að vera svona óspjallað því ferðamálafrömuðumir okkar blessaðir myndu að sjálf- sögðu helluleggja breiðgötu upp gjána að fossinum, og þar væri síðan komið upp sölutumi með minjagripum hvers konar og veit- ingaaðstöðu. Tugþúsundir manna myndu síðan byrgja þér sýn, þannig að þú mættir teljast góður ef þú sæir aðeins glitta í fossinn. Nei, það er eitthvað alveg ólýsan- lega einstakt við að njóta íslenskrar náttúra og skoða. Hér færðu að njóta hennar í friði, ótraflaður af tæknivæðingu og sölumennsku. Þar að auki færðu að vera svo til einn með henni, sem er jú hálfa ævintýr- ið við að fara á ijöll og kynnast sjálfum sér og náttúrunni." Pamela bætir því við að það að upplifa umhverfið og náttúrana af hestbaki, sé nánast eins og að fá fjöll, fossa, ár, jökla, gróður, ilm og dýralíf beint í æð. „Mér fínnst ég geta sett mig í spor hetja fom- sagnanna með því að ríða svona yfír fjöll og fimindi, dögum saman, án þess nokkum tíma að sjá til byggða,“ sagði Pamela. Ævintýrið sem fór út um þúfúr á Mælifellssandi Eftir því sem á för okkar leið óx ferðalöngum ásmegin, þannig að þegar við fóram hálfsdagsferð, þangað sem heitir Skælingar (af- skaplega sérkennilegar hraun- OPNUM 15. NOVEMBER á Laugavegi 91 glæsilega verslun með gjafavörurog húsgögn yý)///" (\\vÁ homas borðbúnaður og gjafavörur borðbúnaður Classic Rose ítalskt keramik Postulínsdúkkur og skrautmunir Silkiblóm og skreytingar Nýborg;cg) GJAFAVÖRUR, LAUGAVEGI 91, símar 18400 og 623868. Kertaljós og Kaldaklof Pamela og Virginia brýndu raustina oft á kvöldin við góðar undirtektir. Stóðið er að koma yfir Kaldaklofskvísl á efri myndinni, vestan Mælifellssands. myndanir) var hugrekkið orðið slíkt að hávaðarok og lítill lofthiti vafð- ist ekki fyrir mönnum. Sumir ætl- uðu sér þó um of, því um stund mátti ætla að veðurguðimir í mestu vindhviðunum væra svo rausnarleg- ir á súrefnisgjöf sinni, að við lá að sumir fykju af baki, eða yrðu ringl- aðir í kollinum af of mikilli súrefnis- inntöku. Hún þýska vinkona okkar, sjötug að aldri lá eins og skata í lítilli laut við fyrstu áningu og stundi þungan. Það varð úr að hún treysti sér ekki til þess að ljúka þessari ferð og Valdimar „kerlinga- smali“ fylgdi henni áleiðis að Lambaskarðshólum á ný. Pamela á hinn bóginn lét rokið ekki hafa hin minnstu áhrif á lund sfna og ánægju. Við áninguna í Skælingum tók hún upp lítinn silf- ursleginn fleyg, klæddan leðri, af- skaplega dömulegan, og bauð ferðalöngum lítið staup af tequila, til þess að ylja sér innvortis og losna við mesta hrollinn. Það má segja að það hafí alltaf verið viss glæsi- bragur yfír öllum hennar gerðum og vissulega var allur útbúnaður hennar glæstur, enda hafði hún það á orði áður en við lögðum í hann frá Reykjavík að hún og Virginia hefðu í sameiningu bjargað íslensku efnahagslífí, með því að kaupa megnið af útbúnaði sínum hér á landi! Daginn sem haldið skyldi vestur Mælifellssand norðan Mýrdalsjök- uls var eiginlega kollubijálað veður. Þegar við komum að Hólmsá, vora þar jeppar sem rétt vora komnir austur sandinn og upplýstu far- þegar þeirra okkur um að sand- stormurinn væri slíkur að sandurinn væri ófær með öllu. Jón fararstjóri lagði á ráðin með hjálparhellum sínum, en loks varð úr að hann ákvað að reyna reið yfír sandinn. „Ofurhugamir" farþegar hans tóku þessari ákvörðun fagnandi, og töldu að nú fyrst fengju þeir að sýna hvað virkilega byggi í þeim hvað varðar karlmennsku og hugdirfð. Pamela var manna kátust og vildi ólm leggja í hann. Allir vora í regngöllum og svo vel vora hettum- ar reimaðar fyrir andlitin, að ein- ungis glytti í nef á stöku stað. Það er ekki að orðlengja það að þegar við voram komin talsverðan spotta inn á sandinn, þá tók storm- inn að lægja, og vestari hluta Mælifellssands riðum við í ágætu veðri, með stórkostlegri fjallasýn til Tindafjallajökuls, Eyjafjallajökuls, Mýrdalsjökuls að sjálfsögðu og víðar. Hestunum var komið fyrir í girðingu í Hvanngili, vestan Mæli- fellssands, en við gistum í skála Ferðafélagsins við Álftavatn. Þar fóra ferðalangar að bera saman bækur sínar. Pamela sagði: „Ég var viðbúin voðaveðri og ógöngum hin- um verstu. Þetta era eiginlega vöra- svik — búið að lofa lífsháska, en svo var þetta bara hin þægilegasta og ánægjulegasta reið!“ Aðrir tóku í sama streng, en var þó greinilega létt. Næstsíðasta daginn var riðið áfram vestur að Einhymingi, þar sem gist var og að rammíslenskum sið var að sjálfsögðu haldið veglegt lokahóf síðasta kvöldið, þar sem Jón fararstjóri útskrifaði ferðalanga með virðulegri diplómu, þar sem þeir hafa það vottað og skjalfest að þeir hafi lagt Fjallabaksleið syðri að baki sér. Þetta er eitt þeirra atriða sem Landanum fínnst hálf- skondið, en eins furðulegt og það kann að virðast, þá virðast sumir erlendu ferðamannanna leggja mik- ið upp úr slíku. Til dæmis var einn ferðalangurinn að því kominn að guggna á miðri leið, og láta sækja sig inn á hálendið á jeppa, en þegar Jón upplýsti hana um að enginn fengi diplóma sem ekki lyki ferð- inni, heyrðist ekki múkk frá henni eftir það! Pamelu var mikið skemmt við að fá skírteini sitt í hendur, en vænst þótti henni um hrós Jóns og annarra leiðsögumanna í ferðinni. Það var auðséð af brosinu hennar breiða, sem breikkaði enn undir lof- gjörðinni. Lokaáfanginn, frá Einhymingi að Eyvindarmúla í Fljótshlíð (bæ Jóns) var svo riðinn í stórkostlegu veðri og enn á ný fengu ferðalang- amir hrikalega fegurð íslenskrar náttúra beint í æð, er þeir riðu nið- ur með Markarfljóti og horfðu yfír til Þórsmerkur, á Mýrdalsjökul og víðar. Það lá við að það væri eins- konar „kúltúrsjokk" að sjá fyrsta bóndabæinn í Fljótshlíðinni, Fljóts- dal, svo fullkomlega var það orðið eðlilegt að vera fjarri mannabyggð- um. Það vora hreyknir ferðalangar sem stigu af baki í Eyvindarmúla og göngulag þeirra var allt annað og íjaðurmagnaðra en það hafði verið að kvöldi fyrstu tveggja dag- anna. Þessari för var að vísu lokið, en Pamela var ekki búin með þrek sitt, því hún hafði gengið svo frá hnútum, að við þijár yfirgáfum rútuna við Lögberg, á leið í bæinn, þar sem einn vinur Pamelu, Friðrik Brekkan, beið okkar og keyrði okk- ur rakleiðis í afmælishóf í Lækjar- botnum. Pamelu óx það ekki í aug- um að mæta í reiðgallanum, skítug upp fyrir haus, eftir viku fjarveru frá nútímaþægindum, eins og heitu vatni og sápu. Virtist enda skemmta sér hið besta innan um glæsilega búna veislugestina. Pamela sannaði það í þessari ferð sinni að hún er sú hin sama, hvort sem hún er í gervi íslensks víkings eða bandarísks glæsikvendis. Bæði gervin fara henni jafnvel.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.