Morgunblaðið - 13.11.1988, Side 44
44 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988
BAKÞANKAR
Samvisku-
sama
konan
*
Eg hlttl konu um daginn.
Hún er sextíu og þriggja
ára, eða fimmtíu og átta, skipt-
ir litlu máli. Hún er forkur til
vinnu, forstöðukona á eigin
heimili og hefur
gegnt því starfi
frá stofnun
þess. Hún á
ágætismann og
þijú uppkomin
börn. Þau búa í
eftir Sigríði sex herbergja
Holldórsdóttur húsi, og leigja
nokkur út.
Gluggarnir eru gljáfægðir,
heimilið er í fullkomnu lagi frá
tiltektar- og hreinlætissjónar-
miði. Það er náttúrulega allt að
sökkva í húsgögnum og ýmsum
munum sem þarfnast allra
krafta hennar. Meðal annarra
muna er hún með á þriðja tug
málveka hangandi á veggjun-
um. Allskonar málverk, lítil og
,stór, feit og mjó í fyrirferðar-
miklum og skrautlegum römm-
um. Þetta eru myndir af öllum
fjáranum eins og gerist og geng-
ur með málverk. Þarna eru esk-
imóar, mynd af hrauni, páfa-
gaukur, börn að leika sér við
hund, stór mynd af vita og bát,
blóm, fjöll og slatti af uppstill-
ingum og náttúrlega grátandi
drengurinn. Þetta er sumsé
óskaplegt myndasafn uppum
^alla veggi og dylst engum að
^þetta safnar assgolli miklu ryki
frá ári til árs. Hún ber ábyrgð
á öllu þessu listaverkasafni;
engum öðrum af heimilismeð-
limum finnst þetta koma sér
við. Hvorki eiginmaðurinn né
börnin horfa nokkurntíma á
svo mikið sem eina mynd.
Tengdasonurinn átti að segja
einstökusinnum ljómandi er
þetta skemmtileg mynd, málað-
irðu hana sjálf? En hann er
löngu hættur því og auðvitað
var honum hundsama hvort
hún hafði málað hana sjálf eða
unnið hana á tombólu. Ég hef
bara hitt þessa konu tvisvar. í
fyrra skiptið var hún að taka
hvern einasta mun, veggskáp,
teppi, styttu og gólf með
hreinsifægi og sóttvarnarefn-
um. Daginn eftir var hún
hvorki meira né minna að þvo
allt málverkasafnið. Hún sat á
stól með listasafn heimilisins
við fætur sér og var að þrífa
senjórítuna með heitu sápu-
vatni oggóðri tusku. Síðan þreif
hún hveija myndina af annarri
af krafti og myndarskap og
lagði hitadampinn og sápuilm-
inn af þvegna bunkanum.
Rammarnir glömpuðu og staf-
■^iði ferskleika af þeim. Um leið
og hún slettir sjóðandi tus-
kunni framani eskimóana segir
hún dáldið æst: Einhver verður
að sinna þessu, ef ég geri það
ekki, þá gerir enginn það. Ég
enda allar hreingerningar
svona. í fyrsta skipti skellti ég
þeim öllum í baðkarið, það var
dásamlegt að sjá hvað þær urðu
glansandi og fíriar þegar þær
þornuðu. Auðvitað dofnuðu
þær örlítið og fóru smávegis úr
fókus. Þær urðu dálítið þoku-
*• kenndar, verða æ þokukennd-
ari með hveijum þvotti. En
hreinar og fínar. SJáðu til dæm-
is senjórítuna, ég er að verða
búin að skrúbba af henni
eyrnalokkana og rauði varalit-
urinn var eftir þvottinn í fyrra
tiltölulega afmáður. Þetta
_*væmna bros er nú að verða að
slæmum varaþurrki.
ÞU SPARAR
. 12.890,-
MED ÚTSÝN
TIL THAILANDS
Ferðaskrifstofan Útsýn hefur nú gert ein íslenskra ferðaskrifstofa,
sérsamning við British Airways flugfélagið um lægri flugfargjöld en
óður hafa þekkst á íslandi. Við kynnum hér mun lægri fargjöld, ó lengri
flugleiðum með British Airways sem kosið var flugfélag órsins 1988.
43.«
HÍTT MiSJÍSUí
TIL THAIIANDS
Ódýrasta fargjaldið frá (slandi var kr. 56.740,-
Við bjóðum nú fargjaldið til Bangkok á kr.
43.850,- og þú sparar kr. 12.890,-
Kong Singapore Tokyo Peking Bombay
kr. 57.990,- kr. 61.410,- kr. 74.910,- kr. 69.365,- kr. 61.800,-
BritishAirways
FLUGLEIDIR
Borgarpakkatilboð
14. og 18. nóv.
GLASG0W
2 dagar
12.950
Hospitality inn
Afbragðs hótel í hjarta borgarinnar.
Gisting og morgunverður innifalið.
4 dagar, 2. og 9. des.
16.900
Gistingin í þessum ferðum er einnig á
hinu frábæra Hospitality Inn hóteli.
26. nóvember
4. desember
4 dagar
19.800
19. nóv. - uppselt
3. des. - 20.800 — 4 dagar
11. des. - 22.400 - 5 dagar
Dorint Hotel
Glæsilegt hótel miðsvæðis
íTrier. Innifalið: flug, gisting,
morgunverður, ferðir til og
frá Trier.
HEIDELBERG
4 dagar
19.400
Flogið til Frankfurt og ekið með
Útsýnarrútu til þessarar frábæru
verslunar- og menningarborgar.
Fararstjóri erÁsa
María Valdimarsdóttir.
Hollander Hof
Mjög gott hótel við
aðalverslunargötuna í hjarta bæjarins.
ri'SYN
Ferðaskrifstofan Utsýn hf
Álfabakka 16, 109 Reykjavík, sími: 91-603060 • Austurstræti 17, 101 Reykjavík, sími: 91-26611