Morgunblaðið - 13.11.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1988
C 25
SVIÐIN JÖRÐ: Bændumir brenna skópginn - og ógna heimsbyggðinni.
Brennuvargarnir í Brasilíu:
Sjálfri tilveru
okkarerógnað
Jose Samey, forseti Brazilíu, skýrði í síðasta mánuði frá nýjum
ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar í umhverfísverndarmálum. Varða
þær aðallega regnskógana á Amazon-svæðinu en vísindamenn víða
um heim eru nú að komast á þá skoðun, að þeir séu ein mikilvæg-
asta undirstaða andrúmsloftsins og alls loftslagskerfís jarðarinnar.
*
Aundanförnum árum hefur
gríðarmiklum skógarflæmum
verið eytt til að auðvelda þar naut-
griparækt og annan landbúnað og
einnig vegna ásóknar manna í harð-
viðinn, einkum mahóní. Af þeim
sökum hefur yfirlýsingu Brazilíu-
stjórnar verið vel tekið en margir
vísindamenn óttast, að fyrirhugaðar
ráðstafanir séu bæði ófullnægjandi
og of seint á ferðinni.
Brazilískir vísindamenn hafa
áætlað, að á síðasta ári hafi skógur
á nærri 200.000 ferkm verið
brenndur til grunna en þetta svæði
svarar nokkum veginn til alls Vest-
ur-Þýskalands og er tæplega tvö-
falt flatarmál íslands. A um 40%
þessa lands var ósnertur fmmskóg-
ur. Þá bendir flest til, að á þessu
ári hafi eldurinn verið látinn eyða
ennþá stærra svæði. Ef þessu held-
ur áfram verður Amazon-skógur-
inn, mesti frumskógur, sem enn
finnst á jörðinni, með öllu horfinn
um aldamótin.
Talið er, að á Amazon-svæðinu
megi finna tíunda hluta allra
plöntu-, skordýra- og dýrategunda
á jörðinni. Sumar þeirra hafa ekki
enn verið rannsakaðar til hlítar og
aðrar em jafnvel ófundnar. Skógar-
eyðingin hefur hins vegar það í för
með sér, að einhveijar tegundanna
verða aldauða áður en þær komast
á skrá.
Þetta er þó ekki eina áhyggjuefn-
ið. Eldurinn og reykurinn frá frá
honum eiga sök á tíunda hluta
koltvísýringsmengunarinnar í and-
rúmsloftinu en hún er aftur talin
valda hærra hitastigi um allan heim
vegna svokallaðra „gróðurhúsa-
áhrifa". Aðrar lofttegundir, aðal-
lega metan og köfnunarefnissýrl-
ingur, stíga hátt upp í himinhvolfið
og berast síðan í átt til suður-
heimskautsins. Er það hald margra,
að til þessa megi meðal annars rekja
eyðingu ósonlagsins, sem verndar
allt líf á jörðinni.
Jose Lutzenberger, einn kunnasti
vísihda- og vistfræðingur í Brazilíu,
var ekki myrkur í máli í viðtali, sem
átt var við hann nýlega: „Ef við
eyðum Amazon-skógunum, höfum
við eyðilagt andrúmsloftið á jörð-
innj.“
Á síðasta áratug áttu ýmsar al-
þjóðlegar fjármálastofnanir, til
dæmis Alþjóðabankinn, sinn þátt í
að hrinda eyðingunni af stað. Það
vom þær, sem fjármögnuðu þær
áætlanir Brazilíustjórnar að ryðja
Amazon-skógana og breyta þeim í
mesta nautgriparæktarland í heimi.
Jafnvel á þeim tíma töldu margir
sérfræðingar þessa áætlun vera
hættulega og út í hött en herstjórn-
in, sem þá var við völd í Brazilíu,
og Alþjóðabankinn skelltu skolla-
eyrum við öllum varnaðarorðum.
Afleiðingin er einmitt sú, sem
vistfræðingarnir höfðu spáð: Vist-
fræðilegt stórslys, sem haft getur
alvarleg áhrif um allan heim.
í Norður-Ameríku og í Evrópu
hefur áhugi manna á aukinni um-
hverfisvemd stóraukist á síðari
ámm og vegna þess hefur Alþjóða-
bankinn mikið dregið úr stuðningi
sínum við áætlanir brazilísku
stjórnarinnar. Á nýafstöðnum fundi
Alþjóðabankans og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins í Vestur-Berlín kom
það berlega í ljós, að bankinn vill
nú koma í veg fyrir frekari eyðingu
Amazon-skóganna og mun trúlega
setja það sem skilyrði fyrir lán-
veitingum til Brazilíu.
.
medölhi
FLORIDAFERÐ I
SKAMMDEGINU
0112
Flug til Orlando 0112, þar sem tekið er
á móti hópnum og ekið á Hótel Floridian
þar sem dvalið verður í 3 nætur.
0212
Akstur til Disney-World og aðgangur að
þessum einstaka skemmtigarði.
Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður.
A 0 | A Akstur að Sea World þar sem gefst tæki-
U J 1 d! færi til að njóta fjölda skemmtiatriða.
Um kvöldið er akstur að Church Street Station og
kvöldinu eitt í anda villta vestursins.
Mt A Akstur til St. Petersburg Beach þar s,em
gist verður á Beachcombers í 7 nætur.
Akstur til Orlando
og flug heim.
ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS KR.
1112
39.920
EINSTAKT TÆKIFÆRI SEM
EKKI BÝÐST AFTUR
RAM5
HAMRABORG1-3,200 KOPAVOGUR
Travel sími 641522 Fujcle,d,r
frá kl. 1 3-1 ~7 í dag
/ GJAFA VÖR UDEILD
HEIMILISHÚSGAGNADEILD
HABITAT
,sunnudag,
Við kynnum stórkostlegt vöruval þar sem saman fer
- góð hönnun - mikil gæði - „hagstætt verð“
Kaffi á könnunni
KRISTJÁN
SIGGEIRSSON HF. Laugavegi 13 - Sími 625870